Alþýðublaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 19.01.1978, Blaðsíða 9
asr Fimmtudagur 19. janúar 1978 9 spékoppurinn Eigið þér til eirgrænar svefntöflur, I stil við nýja nátt- kjólinn minn? Utvarp f llósaskiptum eftir Ævar R. Kvaran Fimmtudaginn 19. janúar kl. 20.10 verður f lutt islenzkt leikrit, „I Ijósaskipt- um" eftir Ævar R. Kvaran. Höfundur stjórnar flutningi, en með hlutverkin fara Rúrik Haraldsson, Sigríður Hagalin, Hjaiti Rögnvaldsson og Gisli Hall- dórsson. Þetta er einstakt verk í íslenzkum bókmenntum, er vist óhætt að segja, þvi að það gerist allt að þessu lífi loknu. Þær f jórar persónur, sem koma við sögu, eru hjón og sonur þeirra og alþýðumaður, sem kynnist þeim. Ævar R. Kvaran er fæddur í Reykjavík 1916, sonur Ragnars E. Kvaran sem um árabil var leikari og leikstjóri hjá Leikfélagi Reykjavíkur og formaður þess um skeið. Ævar lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Islands 1941 og stundaði nám i leiklist og söng í Lundúnum 1945-47. Fastráðinn leikari við Þ jóðleikhús- ið frá stofnun þess. Hann byrjaði að leika á skólaárum sinum og hefur leikið f jölmörg hlutverk, bæði á sviði og i útvarpi. Einnig leikstýrt á annað hundrað verkum i útvarpinu og mörgum þar að auki á sviði, einnig nokkrum kvik- myndum. Þá starfrækti hann lengi leiklistarskóla. Ævar hefur verið einstak- ur áhugamaður um verndun og fegrun íslenzkrar tungu, en nú á seinni árum hafa sálarrannsóknir og nátengd viðfangsefni verið helztu hugðarmál hans. Þetta er fyrsta frumsamda verkið eftir Ævar, en hann hefur áður mikið fengizt við þýðingar og leikgerð fyrir útvarp, m.a. á sögum Einars H. Kvar- ans. Otvarp Fimmtudagur 19. janúar 7.00 Morguniitvarp Veöur- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 9.15: Guðrlður Guöbjörns- dóttir les söguna af Gosa. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frfvaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. Radarmæling- arnar óöruggar — og bifreiðaeigandinn vann málið gegn lögreglunni Bif reiðaeigandi einn í Danmörku hefur nú unnið langvinn málaferli við lög- regluna. Var hann sýknaður af ákæru um að hafa ekið yfir leyfilegum hámarkshraða á G. Köge- vej. Notkun lögreglunnar á radarmælinum var aftur talin vera nokkuð vafa- söm. af leiðingar þessa máls verða í skal ósagt hafa staðið en þá var Hverjar niðurstöður kunna að framtíðinni látið. Má laferlin síðan 1976, Preben Rasmussen kærður fyrir að aka á 91 km hraða eftir G. Kögeveje, en þar var aðeins leyfður 70 km hámarkshraði. Fyrir rétti bar lögmaður lögreglunnar, að mæl- ingartækið væri viðurkennt af ábyrgum stofnunum í landinu. En Tæknifræði- stofnunin hafði aldrei fengið það til skoðunar og viðurkenningar. Ríkisrannsóknar- stofnunin á Amager hafði að vísu gefið jákvæða umsögn um tækið, grund- vallaða á sænskum rann- sóknum, en það hafði sem sagt ekki verið rannsakað i Danmörku. Vegna þessa krafðist Preben Rasmussen þess að geislasvið radarsins yrði mælt nákvæmlega. Hann kvaðst ekki hafa fengið teikningu af geislunar- sviðinu enn sem komið væri, heldur aðeins munn- legar útskýringar frá lög- reglunni. — Ef það kæmi i ljós, að niður- stöðum Svia og dönsku Tækni- fræðistofnunarinnar bæri ekki saman gæti það orðið talsvert af- drifarikt fyrir alla þá bilstjóra, sem hefðu verið kærðir fyrir of hraðan akstur með aðstoð þessar- ar radartegundar, segir Preben Rasmussen. Þar sem ég hef nú verið sýknaður, er ég úr leik. Ég fer ekki lengra með þetta, þvi ég hef ekki efni á að kosta frekari málaferli. — Radarinn, sem hefur valdiö svo miklum deilum, er af gerðinni Nedar 71, en tæki af þeirri tegund notar danska lögreglan mest til hraðamælinga. Margir gallar Með rannsóknum hefur verið sýnt fram á, að radar af þessari gerð getur ekki mælt nákvæm- lega ef um mikla umferð er aö ræða. Með þvi er auk þess, aðeins hægt að hraðamæla bila af sömu stærð, ef mælingarnar eiga að vera nákvæmar. En sé það notað til að mæla hraða hjá vörubifreiö og litilli fólksbifreið veröa niður- stöðurnar ekki nákvæmlega þær sömu þótt bilarnir aki jafnhratt. En Preben Rasmussen hafði einmitt leitt fram bilstjóra einn til vitnis um að mjög mikil umferð hefði verið þegar hraðamæling- arnar voru framkvæmdar. Þá hefur þaö verið sannað, að mæl- ingarnar fóru fram á ljósatima, svo viðkomandi lögregluþjónn heföi auöveldlega getaö ruglazt á bifreiðum. — Þaö voru svo margar veilur I þessu máli, aö ég varð að sýkna bilstjórann, sagði dómarinn i réttinum I Hvidovre. Arangurinn getur orðiö sá, að Tæknifræði- stofnunin verði að rannsaka þessa radartegund, sem nú er ein sú elzta á markaðnum, til aö athuga hvort hún stenzt saman- burð við nýrri framleiðslu. 14.30 Kvenfrelsi — kvenna- barátta Þáttur frá Dan- mörku, tekinn saman og fluttur af Islenzkum konum þar: önnu Snædal, Heiöbrá Jónsdóttur, Ingibjörgu Friðbjörnsdóttur, Ingi- björgu Pétursdóttur og Sig- urlaugu S. Gunnlaugsdótt- ur. 15.00 Miðdegistónleikar Yara Bernette leikur á pianó Pre- lúdiur op. 32 eftir Serge Rachmaninoff / Elly Ame- ling syngur úr „Itölsku ljóöabókinni” eftir Hugo Wolf vib texta eftir Paul Heyse, Dalton Baldwin leik- ur á pfan-i / André Navarra og Jeanne Marie Darré leika „Introdi ction og Polonaise Brillaiite” op. 3 fyrir selló og pianó eftir Frédéric Chopin. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veöurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.30 Lagið mitt Helga Þ. Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.10 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Daglegt mál Gisli Jóns- son flytur þáttinn. 19.40 Islenzkir einsöngvarar og kórar syngja 20.14 Leikrit: ,,t ljósaskipt- um” eftir Ævar R. Kvaran Leikstjóri: Ævar R. Kvar- an. Persónur og leikendur: Harnes: Rúrik Haraidsson, ésdis: Sigriöur Hagalin, P ,’ir: Hjalti Rögnvalds- Ani: GIsli Halldórs- S a. 21.20 Póma.HIsk tónlistFræg- it pi inólp’,r'>”ar leika tón- verk eftir ^msa höfunda. 21 50 Skipzt á skoðunum Betty i'riednn og Simon de Beau- voir ræðast við. Soffia Guð- mundsdó tir þýddi samtaliö og flytur ormálsorð. Flytj- endur: K 'istin ólafsdóttir og Brynjó Benediktsdóttir. 22.30 Veöurfregnir. Fréttir. 22.50 Prelúdiur og fúgur eftir Bach Svjatoslav Richter leikur á pianó. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Skák dagsins Hvítur leikur og vinnur Bronstein-Gligoric, Moskva 1967. 1. Iixg7+!, Bxg7 2. Hc8+, Kf7 3. Dh5+, Ke7 4. De8 + , Kd6 5 . Hc6 + , Kd5 6. I)d7 + , Svartur gafst upp, þvi hann er óverjandi mát i næsta leik. Umsjðn Baldur Fjölnisson

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.