Alþýðublaðið - 25.01.1978, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 25.01.1978, Blaðsíða 1
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 20. TBL. — 1978 — 59. ÁRG. JRitstjórn blaðsins er ' til húsa í Síðumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91)81976 I Dómkirkju Krists konungs í Landakoti Margir eru þeir eflaust hér á landi, sem ekki hafa augum litið innviði ka- þólskrar kirkju, enda mun ekki vera nema ein slík hér á landi. Það er kirkja Krists konungs í Landakoti. Blaðamaður og Ijós- myndari Alþýðublaðsins brugðu sér þangað fyrir skömmu og er greint frá heimsókninni í máli og myndum á blaðsíðum 6 og 7 í blaðinu i dag. VEXTIR VERÐA SKATT- LAGÐIR — Og höfuðstóllinn líka, þar sem ekki er gerð fullnægjandi grein fyrir honum Rannsókn á bankainni- stæðum fslendinga í er- lendum bönkum er haldið áfram af fullum krafti. í samtali við Garðar Valdi- marsson skattrann- sóknarstjóra í gær, kom fram, að nú er verið að senda út frekari fyrir- spurnir bæði til erlendra aðilja sem og þeirra ís- lendinga sem uppvíst hef ur orðið um að eiga fé í dönskum bönkum. Til þessa hafa skattrann- sóknarstjóra borizt upplýsingar frá þremur dönskum bönkum, en þaó eru Finansbanken og tveir minni bankar á Sjálandi. t Finansbanka fannst alls 81 reikningur i eigu tslendinga, þar sem innistæöur voru yfir 10 þúsund danskar krónur, en aö sögn Garöars Valdimarssonar eru reikningshafar viö hina bankana tvo innan við 10. Svo sem kunnugt er var um- ræddum reikningshöfum ritaö bréf, þar sem þeir voru beönir um aö gera grein fyrir tilurö þessara peninga og vöxtum sem þeir hafa haft af þeim. Sagöi .Garöar aö þegar svör allra reikningshafanna heföu borizt yröu þau metin og i framhaldi af þvi yrðu vextir skattlagöir. 1 þeim tilfellum þar sem ekki fengjust fullnægjandi upplýs- ingar um höfuðstólinn yrði höf- uöstóllinn skattlagöur lika. Ekki taldi Garöar útilokaö aö samskonar upplýsingar fengj- ust frá fleiri erlendum bönkum þótt of snemmt væri aö fullyröa nokkuö um þaö á þessu stigi málsins. —GEK Blaðamenn segja upp samningum Blaðamannafélag Islands sendi i gær frá sér svohljóöandi fréttatilkynningu. Blaðamannafélag tslands sagöi i gær upp samningum sin- um við Félag blaöaútgefenda i Reykjavik, Dagblaöiö h.f. og titgáfufélag Þjóöviljans, en heimild til uppsagnar samning- um var i samkomulagi sem félagiö undirritaði viö áöur- nefnda viðsemjendur sina hinn 28. júli 1977. I þvi samkomulagi var svo kveöiö á, aö samræma skyldi kjör félaga i Blaða- mannafélaginu og fréttamanna Rikisútvarpsins. Skyldi sam- ræmingunni lokiö fyrir 20. janú- ar en næöist ekki samstaöa um hana gæti hvor aðili um sig sagt upp samningunum. Fulltrúar blaöaútgefenda, sem fjaliaö hafa um þessi mál viö Blaðamannafélagiö, fram- kvæmdastjórar dagblaöanna komust nýlega að þeirri niöur- stööu aö þegar væri algjört samræmi i kjörum blaöamanna og fréttamanna Rikisútvarps. Þessi niöurstaöa er fengin sam- kvæmt útreikningum þeirra sjálfra, sem framkvæmda- stjórarnir hafa neitaö aö sýna blaöamönnum. Ennfremur hafa þeir hafnað þeirri tillögu Blaða- mannafélags tslands, aö hlut- laus nefnd, Kjararannsókna- nefnd, reiknaöi út þann mis- mun, sem telja má vist aö sé á kjörum blaöamanna og frétta- manna. Meö hliösjón af þessum tveimur synjunum litur Biaöa- mannafélagiö svo ó, aö fram- kvæmdastjórar úagblaöanna hafi af ráönum hug stefnt kjara- málum blaöamanna i tvisýnu meö þvi aö mynda ágreining viö þá um samræminguna,sem auö- vitaö getur ekki leitt til annars en Blaöamannafélagiö neyti þess réttar sins, sem samkomu- lagiö frá þvi i júli veitir þvi. Sem dæmi um þann mismun sem er á launakjörum frétta- manna Rikisútvarpsins og blaöamanna, skal tekiö fram, aö byrjunarlaun blaöamanns eru nú 109.990 krónur, en byrjunarlaun fréttamanns hjá Rikisútvarpinu eru 190.911 krónur. Laun blaðamanns þyrftu þvi að hækka um 73,6% til þess aö jöfnuöur næöist. Þá skal þess einnig getið aö hæstu laun blaðamanns eftir 13 ára starf eru nú 192.427 krónur eöa 1.516 krónum hærra en byrj- endalaun fréttamanns hjá Rikisútvarpinu. Auk þess sem hér er aö framan taliö, má geta þess aö laun blaöamanna hafa hækkaö á bilinu frá 1. desember 1976 til 1. desember 1977 að meöaltali um 47,6%. A þessum sama tima hafa laun alþingismanna sem kunnugt er hækkaö um 78,3%, launþega innan ASI að meöal- tali um 60% og launþega BSRB aö meðaltali um 76,5%. Launa- hækkun fréttamanna Rikisút- varpsins á þessum sama tima en það eru þeir menn, sem vinna hin sömu störf og blaða- menni hafa hækkað um 74,8%. Blaðamannafélag tslands harmar ab framkvæmdastjórar dagblaöanna i Reykjavik skyldu ekki standa viö undirskrift sina viö samkomulagiö frá 28. júni 1977. Blaöaútgefendur eru ný- gengnir i Vinnuveitendasam- band tslandss. Þaö er lág- markskrafa blaöamanna, aö þeir viöurkenni grundvallar- reglur þess félagsskapar, sem þeir eru nýgengnir I. Vinnuveit- endasambands Isíands, aö greiöa skuli sömu laun fyrir sömu vinnu án tillits til þess hjá hverjum hún sé unnin. Það er von Blaöamannafélags tslands, að leysa megi kjaramál félaga þess meö friösamlegum hætti, svo sem ávallt hefur veriö utan einu sinni, að kom til verk- falls. Þrátt fyrir þaö veröur aö segjast aö afstaöa fram- kvæmdastjóra dagblaöanna gefur ekki tilefni til bjartsýni. Þeir viröast þvi miöur ekki hafa skilning á þvi aö dagblööin veröa aö geta keppt viö aöra vinnuveitendurum hæfan og vel menntaöan starfskraft. Stjórn- mála- menn hafa sýnt mjög takmark- ada innsýn í efna- hagsmál — sjá baksídu .

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.