Alþýðublaðið - 25.01.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 25.01.1978, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 25. janúar 1978. Togaranum Baldri breytt í rannsóknarskip: Kostnaðurinn um 215 milljónir króna — Hafrannsóknarstofnun gagnrýnd fyrir kröfuhörku Þórarinn Sigurðsson látinn Þórarinn Sigurðsson/ sjómaður# Efstasundi 80/ Reykjavík/ lézt s.l. laugardag, 74 ára að aldri. Þórarinn hafði starfað hjá Skipaútgerð rikisins í 49 ár eða allt frá stofnun hennar. Hans verður nánar minnzt i blaðinu siðar. Botnvörpungurinn Bald- ur EA 124 var talsvert um- ræddur í Sameinuðu þingi í gæn en skip þetta var á sinum tíma keypt frá Dal- vík og notað sem gæzluskip á vegum Landhelgisgæzl- unnar í síðasta þorska- stríði. Haf rannsóknar- stofnun eignaðist siðan skipið/ en það hefur verið bundið við bryggju í Hafnarf jarðarhöfn síðan snemma árs 1977. Matthias Bjarnason, sjávarút- vegsráöherra, svaraöi tveimur fyrirspurnum varöandi Baldur i gær. Voru þær frá Jóni Arm. Héöinssyni (AF) og Pétri Sig- urössyni(S). 1 svari ráöherra kom m.a. fram, aö upphaflegt kaupverö skipsins var rúmlega 324 milljón- ir kr., en Baldur var afhentur sjávarútvegsráöuneytinu 24. mai 1977 og var þá talsvert laskaöur eftir átökin i þorskastriöinu. Var áætlaö af Landhelgisgæzlunni aö viögerö myndi kosta 67-70 millj- ónir. A vegum Hafrannsóknar- stofnunar var siöan gerö tillaga um breytingar og endurbætur á skipinu, til aö gera þaö fullhæft til rannsóknarstarfa, en þar sem sú áætlun þótti dýr i framkvæmd, fól sjávarútvegsráöuneytiö fyrir- tækninu Skipatækni aö fara ofan i saumana á áætluninni. Féllst Skipatækni á þær og var verkiö siöan boöiö út og lægsta tilboöi tekiö. Samningar voru undirrit- aöir 1. desember s.l. og mun verkiö kosta 215 milljónir kr. Er ætlunin aö ljúka þvi I marz á þessu ári. Varöandi kostnaö rikis- sjóös vegna legu Baldurs i höfn allan þennan tima kom fram, aö á siöasta ári voru greiddar 6.6 milljónir kr. i laun til vélstjóra og fleiri verkamanna um borö, og i launatengd gjöld. Þá hefur borizt reikningur fyrir hafnargjöid kr. 680 þúsund. Ráöherrann rakti i stuttu máli I hverju breytingarnar um borö I Baldri væri fólgnar. Er veriö aö breyta vindukerfi skipsins, stækka brúarhúsiö og innrétta vistarverur fyrir rannsóknar- menn og rannsóknarstofu. Auk þess aö bæta viö tækjakostinn o.fl. Kom fram, aö upphaflega hafi veriö áætlaö aö taka rúm af vistarverum yfirmanna á Baldri til aö innrétta Ibúöir fyrir rann- sóknarmenn, en þvi mótmæltu stéttarfélög viökomandi manna og var horfiö frá þvi ráöi. Var nokkurra milljóna aukakostnaöur vegna þessa, en ráöherra sagöi þaö vera óhjákvæmilegt til aö „halda friöinn” viö skipstjórnar- menn. Gagnrýndi hafranns- óknarstofnun Jón Arm. Héöinsson sagöi þá spurningu hljóta aö vakna, hvort ekki heföi veriö heppilegra aö byggja nýtt rannsóknarskip og selja Baldur. Þá gagnrýndi hann Hafrannsóknarstofnun fyrir miklar kröfugeröir varöandi út- búnaö Baldurs og sagöi óþolandi aö Alþingi væri ekki gerö sóma- samleg grein fyrir framkvæmd- unum og kostnaöinum viö þær, enda væri hér um verulegar upp- hæöir aö ræöa. Þá benti hann á aö öll vinna viö Baldur færi fram um borö i skipinu i Hafnarfjaröar- höfn, einmitt á þeim árstima er dimmast væri og allra veöra von. Taldi hann aö hér væri um aö ræöa furöuleg vinnubrögö. Sverrir Hermannsson (S) benti á aö heildarkostnaöur viö kaup og útbúnaö Baldurs til rannsóknar- starfa yröi á bilinu 600-700 miilj- ónir króna og sagði þaö gott aö Hafrannsóknarstofnun bæri á þessu máli ábyrgö en ekki þing- fararkaupsnefnd Alþingis! Kjördæmisráðid þingar á Suðurlandi I kjölfar prófkjaranna er undirbúningur Alþýðu- f lokksins fyrir Alþingis- og sveitastjórnakosningarnar i vor kominn i fullan gang. Um siöustu helgi kom kjör- dæmisráö Alþýöuflokksins á Suö- urlandi saman, ásamt þeim frambjóöendum, sem valdir hafa veriö. Rædd voru málefni byggöalaganna i kjördæminu ásamt þeim baráttumálum, sem efst eru á baugi á hverjum staö. Lögö voru drög aðfundaseriu I kjördæminu, þar sem baráttumál flokksins yröu kynnt og kjósend- um gefinn kostur á þvi aö kynnst skoðunum frambjóöendanna sem og aö heyra skoöanir forystumanna flokksins á lands- málum. Einnig voru útgáfumál I kjördæminu rædd og röðun á framboöslistann, sem og væntan- leg árshátiö. Fundinn sátu um fimmtán manns og var hann haldinn á Stokkseyri hjá Albert Magnússyni. Guölaugur Tryggvi Stefán Magnússon á Selfossi, Guömundur Einarsson I Hverageröi og frambjóöendurnir Erlingur Ævar Jónsson, skipstjóri I Þorláks- höfn og Hreinn Er lendsson iönverkamaður á Selfossi fylgjast meö umræöum. Agúst Einarsson, forstjóri, annar maöur listans mætti einnig á fundinum en formaöur kjördæmaráösins, Þorbjörn Pálsson Albert Magnússon á Stokkseyri I Vestmannaeyjum varð aö sitja heima vegna veikinda. reifar máliö. STOR FELLI ) i/ror w 1 m Ijl tfÆKI ojx ÁSVUÖRI Núna kostar kílóið £ 8SO.kr. lóeins Magnús Magnússon stöövarstjóri efsti maöur á listanum og Einar Eliasson á Seifossi, varaform. kjördæmaráösins, leggja málin fyr- ir. „Kvennasveitin” og Stefán Magnússon á Selfossi fyigjast meö. Fyrstu tilboðin varð- andi Hrauneyjar- fossvirkjun opnuð Fyrstu tilboðin vegna byggingar væntanlegrar rafaf Isvirkjunar við Hrauneyjarfoss verða opn- uð eftir tæpa viku/ nánar tiltekið þann þriðja febrú- ar næstkomandi. Þetta eru tilboö i aflvélar virkj- unarinnar. I gær haföi ekkert til- boð enn borizt, en fregnir höföu borizt af all mörgum, sem væru á leiðinni. Sem fyrr segir verða tilboöin opnuð þriöja febrúar og verður væntanlega hægt aö skýra frá innihaldi þeirra fljótlega eftir þaö. 1 gær tókst ekki aö afla neinna upplýsinga um kostnaöar- hugmyndir þær sem væru á lofti hjá ráöamönnum Landsvirkjun- ar, enda ekki von, þar sem ekki þykir ráölegt aö gefa upp áætlaö verö fyrr en tilboöin hafa veriö unnin og send viötakanda. —hv Útboð Tiluoð óskast f eftirfarandi fyrir Rafmagnsveitu Reykja- víkur. 1) Háspennustreng. Tilboðin verða opnuö fimmtudaginn 23. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h. 2) Loftstreng. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 21. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h. tJtboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, R. Tilboðin verða opnuö á sama staö.. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvogi 3 — Sími 25800

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.