Alþýðublaðið - 28.01.1978, Side 5
SSS5" Laugardagur 28. janúar 1978.
5
Aðsetur björgunarsveita
til sýnis á morgun
Kvennadeildin í Reykjavlk afhenti 2.6 milljónir á afmælinu og
Lionsklúbburinn Freyr, glæsilegan björgunarbát
„Afmælisins verður minnst með vinnu, en
ekki veizluhöldum,” sagði Gunnar Friðriks-
son, forseti SVFÍ á blaðamannafundinum i húsi
félagsins við Grandagarð á miðvikudaginn, og
á morgun verður starfsemin kynnt með þvi
móti að hafa opnar björgunarstöðvar félags-
ins, og verður lögð áhersla á að fá skólafólk til
að koma þar.
í tilefni afmælisins er ennfremur ráðgerð út-
gáfa frimerkis. Endurprentaðar verða 41 ár-
bók félagsins, en bækurnar komu i fyrstu út ár-
lega, (sú fyrsta strax 1928) þá lengi annað
hvert ár, en nú aftur árlega.
Mót slysavarnafólks i
lok april
Gunnar sagði að i lok april væri
ráðgert að slysavarnafólk af öllu
landinu kæmi saman til móts i til-
efni afmælisins, verður þar rætt
og lögð á ráðin um næstu stór-
verkefni, en ennfremur verður
hér um hátiðarfund að ræða. Þá
er ætlað að tilbúin verði til
sýningar kvikmynd um starf
félagsins.
Fulltrúar Lionsklúbbsins Freys, afhenda Jóhannesi Briem, formanni björgunarsveitarinnar Ingólfs,
iykilinn að björgunarbátnum.
Gúmbjörgunarbáiurinn, sem i^ionsKiuonurinn r reyr gai Djorgunarsveitinni íngom. tsaiunnn er
hraðskreiður og sérstaklega styrktur.
Fjárhagsgrundvöllur
félagsins
Slysavarnafélag Islands hefur
frá fyrstu tíð notið stuðnings frá
rikinu og gefa upphæðir þess
styrks að vonum mynd af verð-
bólguþróuninni. Fyrsti styrkurinn
1928 var t.d. 10 þús. kr., 300 þús.
1960, 2.5 millj. 1964 og 24.8 millj.
1977. Meginstofn alls fjár sen
félagið hefur verið rekið fyrir og
haft með höndum, hefur þó aflast
Hulda Viktorsdóttir, formaður kvennadeildarinnar I Reykjavlk og samstjórnarkonur hennar, færðu
féiaginu uppblásnar spelkur að gjöf. Með þeim á myndinni er Gunnar Friðriksson, formaður SVFl.
með söfnunarstarfi, sem eldhug-
ar i félagsdeildum hafa innt af
hendi. Hefur söfnunarféð ætíð
numið hærri upphæð en hinn opin-
beri styrkur og sýnir sú stað-
reynd um leið hug almennings til
þessa starfs.
Veglegar gjafir kvenna-
deildarinnar i Reykja-
vik og Lionsklúbbsins
Freys
A fundinum sl. miðvikudag
hafði kvennadeildin i Reykjavik
nýlega afhent félaginu 2.6
milljónir króna,en hún hefur_alla
tiö innt mikið og gott starf af
hendi til eflingar félaginu. Af -
hendir kvennadeildin jafnan 2/3
af þvi sem hún safnar félaginu,
en 1/3 ver hún skv. eigin ákvörð-
un. Það var af þeim hluta fjár
sins, sem deildin hafði fest kaup á
á 24uppblásnum spelkum, til nota
i neyðartilfellum, sem dreift
verður samkvæmt nánari
ákvörðun, til félagsdeilda úti um
land.
Lionsklúbburinn Freyr afhenti
á fundinum glæsilegan gúm-
björgunarbát, vélknúinn, sem
blaðinu er kunnugt um að mun
kosta minnst 1.2 milljónir og
veitti Jóhannes Briem, formaður
björgunarsveitarinnar Ingólfs
bátnum viðtöku og fór að þvi
loknu nokkrum orðum um starf
björgunardeildarinnar.
Útköll 15—20 á ári
Jóhannes Briem sagði að bát-
urinn kæmi sveitinni afar vel, en
gamall bátur, sem hún átti væri
mjög úr sér genginn. Ekki sist
yrði sér þá hugsað til þeirrar
hættu sem sýnt er að aukinni
skemmtibátaeign á Reykjavikur-
svæðinu er samfara. útköll
sveitarinnar sagði hann nú 15 —
20 á ári og stæðu mörg dögum
saman, og minntist Jóhannes ým-
issa erfiðustu útkalla i þvi sam-
bandi, svo sem flugvéíaleita o.fl.
Sveitin hefur nú aðstöðu i húsi
Slysavarnafélagsins i Gróubúð og
á auk gúmbjörgunarbátanna
Gisla J. Johnsen, sem nú er i við-
gerð, en hann er orðinn nokkuð
gamall og þarfnast endurbóta.
Þjálfunarstarf er mikið og m.a.
hefur sveitin jafnan tiltæka 6 — 10
froskmenn og varamenn i þvi liði.
Sveitin þjálfar menn sina i
sjúkrabilum og annast kennslu
sjómannaskólanemenda i ýmissi
skyndihjálp. Ennfremur taka
þeir virkan þátt i söfnunarstarf-
inu fyrir félagið.
Útköll færast nær
Jóhannes sagði að útköll færð-
ust nær borginni eftir þvi sem
byggð færðist ofar og leit i ná-
grenni borgarinnar yrði æ al-
gengari, þótt oftast væru þau út-
köll minni háttar. Oft væri lika
um að ræða aðstoð i ófærð, þegar
veður gerast verst. AM