Alþýðublaðið - 09.02.1978, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.02.1978, Blaðsíða 7
"Fimmtudagur 9. febrúar 1978 Upplýsingastöð S.Á.Á. Lágmúla 9. Sími 82399 j „Gaman ad sjá fólk snarsnúa vid bladinu” Spjallaö við Garðar Guðmundsson, skrifstofustjóra Alþýðublaðið hafði samband við Garðar Guðmunds- son, skrifstofustjóra S.Á.Á. (Samband áhugafólks um áfengisvandamálin) að Lágmúla 9, en auk Garðars eru starfandi á upplýsingamiðstöð S.Á.Á., Anna Þor- grimsdóttir, Halldóra Gunnarsdóttir og Ingibjörg Björnsdóttir. Garðar var léttur og kátur að vanda og fer spjallið við hann hér á eftir. Blm.Er margt fólk sem leitar til ykkar i vandræðum sinum út af áfengi? Garðar: Já, það hefur mjög margt fólk leitað til okkar, bæði aðstandendur drykkjufólks og svo drykkjufólkið sjálft. Við segjum fólkinu hvernig það getur best brugðist við sinum vandamálum. Stundum duga upplýsingar, stundum ráðleggjum við þvi aö koma hérna til okkar og ræða málið, en svo i öðrum tilfellum ráðleggjum við sérstaka með- ferð. Blm.: Hvaða tilfelli eru algeng- ust? Garðar: Orræðiðer alltaf fyrst að fara i einhvers konar meðferð, þ.e.a.s. fyrst þarf viðkomandi að stoppa drykkjuna. Það er fyrir öllu. Fara til dæmis upp i Reykja- dal og vera þar i viku. Og við ráð- leggjum fólki yfirleitt, eftir þann tima, að fara i einhverja frekari meðferð, þvi það er staðreynd að fólk sem er búið að drekka lengi, það þarf að hvila sig vel, ef þaö ætlar að ná sér. Eins höfum við fræðslufundi hérna fyrir aðstand- endur drykkjufólksins og eru þeir fræddir um eðli sjúkdómsins. bar kemur fólk frá Al-A-non og segir frá reynslu sinni i þessum mál- um. Blm.: Hinn nýi afvötnunarstaður i Mosfellssveitinni, hvernig hefur hann reynst? Garðar: Það er litil reynsla kom- in á hann ennþá, en við gerum okkur vonir um að hann reynist vel. En það er erfitt að tala um árangur i þessu máli eins og allir vita. Góður árangur getur farið út i veður og vind á fimm minútum eins og þú veist. Blm.: En hvaðan liggur svo leiðin þaðan, fyrir fólk sem vill frekari meðferð? Garðar: Þaðan liggur svo leiðin á Vifilstaði eða Freeport, eftir þvi hvað menn vilja. Við getum ekki boðið aðrar leiðir ennþá, en þetta eru hvort tveggja ágætir staðir svo langt sem það nær. En það er jú draumurinn okkar að koma upp góðu endurhæfingarheimili. Blm.: Nú er það skoðun sumra að Freeport sé eingöngu fyrir ,,aðal- inn” ef svo má að orði komast. Hvað finnst þér um það? Garðar: Ef það er rétt, þá er það vegna þess að drykkjusjúklingar eru „aðallinn” með þjóðinni. Nei, nei, þangað fara menn úr öllum stéttum, brennivinið spyr ekkert um það hvað hver og einn er að starfa. Blm.: Hvað hafa margir útskrif- ast af Vifilstöðum? Garðar: Það eru eitthvað um fimm hundruð manns, held ég. Blm.: Hvað kostar það mig að fara út á Freeport Hospital? Garöar: Það kostar þig svona tvö hundruð þúsund. Þess ber að geta að innifalið i þvi er gjaldeyrir t.d. það er að segja vasapeningur fyr- ir timabilið, sem eru sex vikur. Þess ber þó að geta, að krónan okkar er alltaf á einhverju flökti mður á við, svo að þetta getur að- eins hækkað núna. Blin.: Nú er það vitað mál, að maður sem stendur upp úr fylli- rii, hann á sjálfsagt ekki mikla peninga. Vilji hann fara á Free- port, hvað á hann að gera? Garðar: Það er engin almennileg fyllibytta sem getur ekki slegið sér tvö hundruð þúsund krónur. En það er rétt að geta þess, aft tryggingarnar borga alla dvölina á Freeport, viðkomandi borgar aðeins ferðirnar og svo vasapen- ingana auðvitað. Blin.: Sjúkrasamlagið greiftir þeim vasadagpeninga sem hafa verið á Vifilstöðum, hvernig er það með þá sem fara á Freeport? Garðar: Það er alveg eins. Ann- ars er ég persónulega á móti þvi að taka við þeim sjúkradagpen- ingum. Rikið er búið að borga fyrir mann hálfa milljón króna, en það er það sem meðferðin kostar þarna úti og mér finnst þaft alveg nóg. Blin.: Hvað er nú framundan? Garðar: Þetta er bara fyrsta skrefið, en það hefur margt gerst á skömmum tima. Vifilstaöir tóku til starfa og hressingarheim- ilið i Mosfellssveitinni er tekið til starfa. Það sem vantar ef til vill mest er það sem Amerikaninn kallar „industrial program”/ ég veit ekki hvað best væri að kalla það á isl., en það er sem sagt áð auka skilning atvinnurekanda á þessu vandamáli. Og að at- vinnurekendur og verkalýðsfélög tækju að sér að pressa svolitið á starfsfólkið. Þetta er sú leið sem hefur gefið langbesta raun er- lendis. Ef sjúklingur finnur að það er búið að eyða talsverðu fé i að þjálfa hann upp og allir vilja allt fyrir hann gera svo honum geti liðið sem best, þá er eins og menn hugsi sig tvisvar um, áður en þeir fara ofan i sama drullu- pollinn aftur. Og skilningurinn þarf lika að koma ofan frá, eins og ég sagði. Blm.: Nú er drykkjusýki fjöl- skylduvandamál, er það ekki rétt? Garðar: Jú, það er að segja, það er ekki aðeins drykkjusjúklingur- inn sjálfur sem á i vandræðum, heldur lika allir i kringum hann. Eiginkonur drykkjumanna eru t.d. oft mjög illa farnar. Þær hafa nefnilega gengið i gegn um þetta allt saman deyfilyfjalausar, en drykkjumaðurinn meira að minna út úr heiminum. Fyrir eig- inkonur eða maka drykkjumann- eskjuhöfum við A-La-non samtök- in, sem eru bráðnauðsynleg og hafa gert feykilega mikið gagn. Þar er fólki til dæmis bent á, að það er ekki til nein endanleg lausn á þessu, en það er ótrúlegt hvað hægt er að gera ef viðkomandi vill þiggja þá hjálp sem i boði er. Sið- an e‘r börnunum bent á að sækja A-La-tin fundi. Þau samtök eru mjög nauðsynleg og hafa sannað ágæti sitt. Ég vil taka fram að okkar starf hér er umfram allt að fá fólk til að hugsa sjálft um málið. Við göng- um alls ekki undir alls konar dellu i þjóðfélaginu sem fólki er svo gjarnt að blanda saman við hið eiginlega vandamál — drykkj- una. Það er brennivinið sem er vandamálið. Það leysist margt af sjálfu sér þegar brennivinið er farið. Blin.: A Ránargötunni er húsnæði fyrir fólk sem er að byrja að ná sér á strik? Garðar: Jú, en það er bara allt of litið. Það er þáttur sem þarf að laga, ef vel á að vera. Eins er hús- næði i Brautarholtinu, en þetta er þvi miður ekki nóg. Blm.: Hvað svo? Garlar: Við erum með tilraun á prjónunum, sem við vonum að gefi góða raun. Meiningin er að fara i skólana og kynna unga fólk- inu okkar mál. Við teljum að það þurfi að vinna mikið upplýsinga- starf, ef á að takast að stöð.va þá þróun sem verið hefur undanfarin ár, þá þróun að drykkjan sé alltaf að aukast, ekki sist meðal ungs fólks. Við vitum ekki ennþá hvernig þetta kemur til með að verða, en okkar hugmynd er að fá menn úr okkar hópi með mikla reynslu til þess að vinna þetta starf. Meiningin er að byrja af fullum krafti næsta haust. Blm.: Er ekki skilningur manna að aukast á þessum málum? Garðar: Hann er alveg gjör- breyttur, skilningur ráðamanna á þessum hlutum til dæmis. Og það er ekkert annað en fordæmið sem kemur þar til. Menn eru búnir að horfa upp á fólk sem, var mjög illa farið, snarsnúa við blaðinu og ýmsir sem sverja fyrir að við- komandi hafi nokkurn tima bragðað vin, hvað þá heldur meir. Þegar svoleiðis lagað sýnir sig, þá eru allir fljótir að sjá hvað gerst hefur. Blin.: Nú færð þú upphringingar frá fólki sem liður i mörgum til- fellum mjög illa. Er það ekki oft erfitt svona persónulega? Garðar: Það er oft mjög hryggi- legt,' en það er þó mjög gott að geta bent fólki á leið út úr þessu viti, þvi að hún er vissulega til. Margirsem voru áður mjög illa haldnir eru nú á vissan hátt lykil- menn i þjóðfélaginu, ef svo má segja. Nú kosturinn við þessa stöð hérna er umfram allt sá að nú getur fólk sem á i erfiðleikum snúið sér til ákveðins aðila. Og við vonum að allir sem eiga i vand- ræðum vegna áfengis láti frá sér heyra. Siminn er 82399. Og þar með setjum við tappann i þetta spjall. Örn Bjarnason.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.