Alþýðublaðið - 14.02.1978, Page 2
2
Þriðiudagur 14. febrúar 1978
Ármann Snævarr
ræðir tvö lagafrum
vörp — á fundi Kvenréttinda-
félagsins að Hallveigarstöðum
A fundi Kvenréttindafélags Is-
lands, sem haldinn verður að
Hallveigarstöðum á morgun,
miðvikudag kl. 20.30, mun Ar-
mann Snævarr, forseti hæstarétt-
ar, fjalla um 2 lagafrumvörp sem
nú liggja fyrir Alþingi. Hér er um
að ræða frumvarp til barnalaga
og frumvarp til ættleiðingalaga.
Frumvörp þessi snerta mjög
einkahagi fólks og er hér um
ýmsar athyglisverðar breyting-
artillögur að ræða.
Armann Snævarr mun mjög fús
að svara fyrirspurnum fundar-
manna og er fundurinn öllum op-
inn.
Krefst sakadóms-
rannsóknar á um-
mælum vararíkis-
saksóknara
Markús Þorgeirsson, skip-
stjóri, hefur nú farið fram á saka-
dómsrannsókn á hendur Braga
Steinarssyni, vegna ummæla
þess siðarnefnda um að Mána-
fossmálinu svonefnda sé lokið
fyrir löngu. Þessi yfirlýsing
Braga kom fram í viðtali við
Þjóðviljann.
Eftir að yfirlýsing þessi birtist
sendi Markús Siglingamála-
stjóra, Hjálmari R. Báröarsyni,
skeyti, þar sem hann fór fram á
að hann fengiö i hendur yfirlýs-
ingu þess efnis að Mánafossmál-
inu sé ekki lokið af hálfu Siglinga-
málastofnunar og engin yfirlýs-
ing þess efnis hafi verið send sak-
sóknaraembætti rikisins.
I svari Siglingamálastofnunar
kom fram að stofnunin hefur ekki
enn, vegna anna, lokið athugun og
umsögn á hleðsluástandi Mána-
foss, samkvæmt tilmælum rikis-
saksóknara.
Vegna þessa hefur Markús nú
farið fram á sakadómsrannsókn.
Engin fiskvinnsla
h|á Kirkjusandi
Að sögn Rikharðs Jónssonar
framkvæmdastjóra fiskverkun-
arstöðvarinnar á Kirkjusandi
mun ekkert unnið þar við fisk-
vinnslu sern sakir standa vegna
hráefnisskorts. I'yrirtækið mun
ekki hafa fjárhagslegt bolmagn
til kaupa á hráefni til vinnslu
og þvi hafa togarar þeir er lagt
hafa þar upp fram að þessu siglt
utan til sölu.
Rikharður sagði nú i dag aðeins
örfáa menn vera við vinnu á veg-
um fyrirtækisins þ.e. við skreið-
arvinnslu. Allt að 130 manns, þar
af nokkur fjöldi fastráðinn hafa
unnið við fiskvinnslu á vegum
fyrirtækisins meðan úr nægu hrá-
efni hefur verið að spila.
Meðal fastráðinna starfsmanna
hafa verið 17 konur við fiskverkun
á kauptryggingarsamningi. Nú
hefur kauptryggingarsamningi
þeirra verið sagt upp með venju-
legum viku fyrirvara, en þó munu
þær fastráðnar a.m.k. þremur
vikum lengur þar eð ráðningar-
samningur þeirra er enn i
gildi.Ráðningarsamningi verður
nefnilega að segja upp með eins
mánaðar fyrirvara og gildir það
um báða aðila. Þetta þýðir það að
hægt á að vera að kalla fastráðna
til vinnu hvenær sem er þrátt fyr-
ir að þeir njóti engrar kauptrygg-
ingar þegar ekkert er unnið.
Halldór og Hrafn ásamt kvikmyndargerðar- og hljóðumsjónarmanni.
„Lilja” kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar eftir sam-
nefndri sögu Halldórs Laxness
1 gær voru blaðamenn boðaðir á
sýningu kvikmyndarinnar
„Lilja”, gerðri undir leikstjórn
Hrafns Gunnlaugssonar eftir
samnefndri sögu Halldórs Lax-
ness. Að lokinni sýningu myndar-
innar svöruðu nokkrum spurning-
um: leikstjóri, höfundur sögunn-
ar, kvikmyndari Snorri Jónsson
og hljóðumsjónarmaður Jón Þór
Hannesson, semjandi tónlistar er
Gunnar Þórðarson og aðstoðar-
leikstjóri Guðný Halldórsdóttir
Þeir Hrafn og Snorri gerðu jafn-
framt hándrit.
„Lilja” hefur hlotið lofsamlega
dóma dómnefndar kvikmynda-
samkeppni kvikmyndahátiðar og
þótti koma næst verðlaunamynd-
inni „Bóndi” eftir Þorstein Jóns-
son.
Að sögn Halldórs Laxness
samdi hann söguna „Lilja” á ár-
ínu 1933 þá er hann var nýkominn
heim erlendis frá og bjó á hótel-
herbergi i miðbænum þaðan sem
hann útum herbergisgluggann
hafði tækifæri til þess að fylgjast
með þá er lik voru borin til kirkju.
Sagan greinir frá nokkrum
læknanemum er áhuga hafa á að
komast yfir lík ,,er hægt væri að
rústera og taka úr beinin og pússa
upp, án þess að á hættu að lenda i
útistöðum við ættingja og vini”
eins og segir i sögunni. Lækna-
nemarnir frétta „af flækine sem
fannst sjálfdauður i kassa niðri
við sjó, og enginn vissi deili á...”
Siðan fjallar sagan um lækna-
nefmana og likið þeirra sem þeir
vildu kryfja.
Halldór sagði sitt álit vera að
Hrafni hefði tekizt vel upp við
gerð kvikmyndarinnar og furðaði
sig nokkuð á þvi hvað hefði tekizt
að gera úr sögu sinni en hann
hafði ekki reiknað með að
hún vekti athygli kvikmynda-
gerðarmanna. Hann hefði
raunar verið búinn að gleyma
sögunni þá er honum barst til
eyrna sú fregn að Hrafn hyggðist
kvikmynda hana. Annars sagði
Halldór sig ekki hafa mikla inn-
sýn i heim kvikmynda, enda litið
komið þar nálægt þrátt fyrir að
hann hefði dvalið i þeirri ágætu
kvikmyndaborg Hollywood. Sölku
Völku hefði hann reyndar samið i
upphafi sem kvikmyndahandrit
en munað hefði dauða eins ágæts
manns að það handrit yrði að
Hollywoodkvikmynd.
Hrafn Gunnlaugsson kvaðst
m.a. hafa valið „Lilju” með það i
huga að reyna að bæta fyrir gagn-
rýni þá er kvikmyndin „Blóðrautt
sólarlag” hefði mætt. Hann vildi
með töku „Lilju” gera kvik-
mynd er væri mannlegri en
„Blóðrautt sólarlag”. „Lilju”
þ.e. kvikmyndina mun nú eiga að
þýða yfir á dönsku af Erik
Sönderholm og mun hún þá
væntanlega verða sýnd á hinum
Norðurlöndunum og eftil vill i
islenzka sjónvarpinu ef það kærir
sig um hana að þvi er Hrafn segir.
Hrafn sagði að lokum bók
Halldórs Kristnihald undir jökli
hefði vakið athygli sina sem efni-
viður i kvikmynd þar sem upp-
bygging sögunnar væri á þann
veg, undir þetta tók Halldór.
Megum við þvi kannski vænta
kvikmyndunar Kristnihalds undir
jökli? Eftil vill ef forlögin verða
Hrafni og öðrum islenzkum kvik-
myndagerðarmönnum hliðhollari
en hingað til.
Dvalarheimili aldr-
aðra tekið í notkun
Dvalarheimiliö Höfði.
á Akranesi
Þann 2. febrúar siðastliðinn
fiuttust fyrstu vistmenn inn i hið
nýja dvalarheimili aldraðra á
Akranesi. Heimilið stendur á
mjög fallegum stað við sjóinn á
Sólmundarhöfða á Akranesi. 1
þeim áfanga sem nú var tekinn i
notkun búa 22 vistmenn I 16 ein-
staklingsibúðum og 3 hjónaibúð-
um. t hverri ibúð er baðherbergi
með steypibaði, svefnherbergi,
stofa og anddyri með eidhúskrók.
1 honum eru skápar, rafimigns-
heila, vaskur og lltili isskápur.
1 sumar mun annar áfangi
byggingarinnar verða tekinn i
notkun. Hann er eins og fyrri á-
fanginn hvað innréttingar varðar
og þegar hann hefur verið tekinn i
notkun verða vistmenn orðnir 44.
Dvalarheimilið Höfði er eign
Akraness og hreppanna fjögurra
sunnan Skarðsheiðar og er heim-
ilið rekið sem sjálfseignarstofn-
un.
Þrír góðir gestir í
Norræna húsinu
I gær kom hingað til
lands i boði Norræna húss-
ins danski rithöfundurinn
Elsa Gress. Var í fyrstu
gert ráð fyrir að hún kæmi
fyrir helgina en af þvi gat
ekki orðið.
Annað kvöld, miðvikudags-
kvöld 15. febr. mun hún svo halda
fyrri fyrirlestur sinn i Norræna
húsinu. Hinn siðari verður sið-
degis á laugardag og hefst hann
nánar tiltekið kl. 16.00.
Þá koma tveir norrænir heim-
spekingar hingað til lands i vik-
unni. Heita þeir Lars Heitzberg
frá Finnlandi og Peter Kemp frá
Danmörk. Eru báðir þessir heim-
spekingar þekktir fyrir ritverk
sin. Þeir eiga það einnig sameig-
inlegt að vera á móti pólitiskum
öfgum, hvort sem er til hægri eða
vinstri. Vilja þeir sýna fram á að
pólitisku heimspekikerfin stefni
meira og minna að þvi að bæla
manninn.
Hertzberg og Kemp koma hing-
að i boði Norræna hússins i sam-
vinnu við Háskóla Islands, en þar
munu þeir halda röð fyrirlestra.
Þeir munu einnig halda fyrir-
lestra i Norræna húsinu, Hertz-
berg n.k. fimmtudag 16. febr. kl.
20.30 og Kemp mánudaginn 20.
febr. kl. 20.30.
Framleiðsluráð og
sexmannanefnd
sýknuð af
Framleiðsluráð land-
búnaöarins og sexmanna-
nefndin, sem ákveður af-
urðarverðtil framleiðenda
og verð landbúnaðaraf-
urða í heildsölu og smá-
sölu/ hafa verið sýknuð af
þeirri kröfu ASI um land-
búnaðarvöruverðshækkun#
kröfu ASi
sem látin var koma til
framkvæmda hinn 24.
marz 1976.
ASI taldi ólöglega að þessari
hækkun staðið og óheimilt að láta
hana koma til framkvæmda á áð-
ur greindum degi.
Sem fyrr segir var krafa ASl
ekki tekin til greina og umrædd
verðhækkun þvi óhögguð.