Alþýðublaðið - 14.02.1978, Síða 9

Alþýðublaðið - 14.02.1978, Síða 9
9 ssar Þriðjudagur 14. febrúar 1978 —Viröiö notagildiö — gætu veriö einkunnarorö þeirra er búa i Kristjaniu. Þar eru tómar flöskur t.d. ekki brotnar, eins og tiökast viöa annars staöar, —heldur notaöar til húsbygginga, eins og sést hér á mynd- inni. „Fríríkið Krist- janfa” getur lif- að dauða- dóminn af Ibúarnir í Fríríkinu Kristjaniu í Kapmanna- höfn verða að f lytja.Hæsti- rétturinn danski staðfesti fyrir skömmu fyrri dóm um að rýma ætti svæðið. En þrátt fyrir dóminn eygja hinir 700—800 íbúar Kristjaníu nú örlitla vonar- glætu. Ollum til mikillar undrunar kvað Anker Jörg ensen upp úr með það, að engu yrði hreyft í Kristjan- íu fyrr en ríkisstjórnin hefði fjallað um málið og lagt það fyrir þingið til frekari umræðu. Þingið á- kvað í framhaldi af því að hrófla engu í Kristjaníu fyrren að 3 árum liðnum. Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti, því í marz 1976 tók rikis- stjórnin þá ákvörðun að rýma Kristjaníu ,,án ó- nauðsynlegra tafa". Það kom til talsverðra á- taka í Hæstarétti áður en dómur var felldur. Benti verjandi Kristjanfubúa á að ef dómur félli á þann veg, að rýma bæri svæðið væri þar með verið að svíkja loforð ráðamanna. íbúunum hefði verið kunn- gert fyrir nokkrum árum aðekkert yrði gert i málinu fyrr en að aflokinni ráð- stefnu, þar sem framtíð Kristjaníu yrði ákveðin. Sú ráðstefna hef ur aldrei ver- ið haldin. Því verður ekki neitað að aðstæður í Kristjaníu hafa breytzt töluvert á hinum siðari árum. Sem menn muna tók aðeins ungt fólk sér í fyrstu búsetu á svæð- inu og kom sér fyrir i hús- unum sem þá stóðu auð. (- búatalan jókst jafnt og þétt. í hermannaskálunum og bröggunum þar við plankagirðingarnar mynd- aðist smám saman samfé- lag annarrar gerðar. Með- alaldur hækkaði hægt og sígandi, þegar eldra fólk og fjölskyldur með börn hófu að flytja inn f Krist- janíu. Brátt tóku íbúarnir að leggja áherzlu á að verða sjálfum sér nógir að öllu leyti. Veitingahús voru opnuð, verkstæði ýmis konar tóku að líta dagsins Ijós og slysavarðstofa var sett á laggirnar. Til að byrja með, var lit- ið á Kristjaníu sem griða- stað glæpamanna og eitur- lyfjaneytenda. En þegar fordómunum fyrir utan linnti og í þeirra stað kom trú og viðurkenning á staðnum, kom í Ijós, að það voru einmitt íbúar Krist- janíu sem börðust harðri baráttu gegn eiturlyfj- aneyzlu. Það kom enn fremur á daginn að for- fallnir eiturlyf janeytendur höfðu fengið meiri og betri hjálp þar en á öllum þeim stofnunum til samans sem þeir höfðu verið lagðir inn á áður. Þegar dómstólarnir í Danmörku hófu að þinga um framtíð Kristjaníu, litu margir þeim augum á mál- ið að Kristjanía væri í raun mikilvæg samfélagsleg til- raun, auk þess sem þetta litla fríríki minnti stöðugt á þá erf iðleika sem margir ættu í, þegar á reyndi að temja sér þá lifnaðarháttu sem samfélagið fyrir utan tilbæði. Sem fyrr sagði er allt í ó- vissu um, hvernig Kristjaniu reiðir af í fram- tíðinni. Hið eina sem vitað er, er að enn hefur ekkert verið ákveðið varðandi nýtingu svæðisins. Einnig má sjá, að mörg þeirra húsa sem áður voru veru- lega illa farin eru nú orðin aðlaðandi. Það má þakka því fólki sem nú býr i Kristjaníu, sem auk þess að endurbyggja staðinn að miklu leyti hefur leitt inn í það bæði hita og vatn. Utvarp Þriðjudagur 14.febrúar 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Um málefni aldraðra og sjúkra. 1 þættinum er rætt um elli- og dvalarheimili. Umsjón: Ólafur Geirsson. 15.00 Miðdegistónleikar. Grumiaux-trioið leikur Strengjatrió i B-dúr eftir Franz Schubert. Karl Leist- er og Drolc-kvartettinn leika Kvintett i A-dúr, fyrir klarinettu, tvær fiðlur, viólu og selló op. 146 eftir Max Reger. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Fopp 17.30 Litli barnatíminn. Finnborg Scheving sér um timann. 17.50 Að tafli. Jón Þ. Þór flyt- ur skákþátt og fjallar um Reyk ja v ik urskák mót ið. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Rannsóknir i 'erkfræði- og raunvisindadei.J skóla tslands. Guðni Alfreðsson dósent fjallar um Salmonella-sýkla, sér- kenni þeirra og útbreiðslu. 20.00 „Myndir á sýningu” eft- ir Modest Mussorgsky i hljómsveitarbúningi eftir Maurice Ravel. Concertgebouw-hljómsveit- ini Amsterdam leikur, Edo de Waart stj. 20.35 Réttur til orlofs- greiðslna. Þáttur um oriofs- greiðslur til Póstgiróstof- unnar. U ms jónarmenn : Þorbjörn Guðmundsson og Snorri S. Konráðsson. 21.00 Kvöldvaka: a. Einsöng- ur : Sigurveig lfjaltested syngur lög eftir Sigfús Halldórsson við undirleik tónskáldsins. b. l'linningar frá menntaskólaá.um. Séra Jón Skagan flytur fyrsta hluta frásögu sinnar. c. Alþýðuskáld á Héraði. Sigurður ó. Pálsson skóla- stjóri les kvæði og segir frá höfundum þeirra, — fjórði -þáttur, Endurtekið er brot úr gömlu viðtali við Friðfinn Runólfsson á Viðastööum. d. Presturinn og huldufólkið á Bújörðum Pétur Péturs- son les frásögu Jónatans S. Jónssonar. e. Kórsöngur: Þjóðleikhúskórinn syngur islensk lög. Söngstjóri: Carl Billich. 22.20 Lestur Passiusálma. Ólafur Þ. Hallgrimsson nemi i guðfræðideild les 19. sálm. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Harmonikulög. Harmonikuhljómsveitin i Glaumdal i Noregi leikur, Henry Haagenrud stjórnar. 23.00 A hljóðbergi. Skáldaást- ir: The Barrets of Wimpole Street eftir Rudolf Besier. Flytjendur eru Anthony Quayle og Katharine Cornell, sem les einnig nokkrar sonnettur eftir Elizabeth Barrett Brown- ing. 23.35 Fréttir. Dagskrárlok. Sjónvarp 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Reykjavikurskákmótið (L) 20.45 Bflar og menn (L) Franskur fræðslumynda- flokkur i sex þáttum um sögu bifreiða. í þáttum þessum er ekki aðeins lýst framförum,sem orðiðhafa i bifreiðaiðnaðinum, siðan fyrsti Benz-billinn leit dags- ins ljós árið 1886, heldur einnig þeim gifurlegu breyt- ingiim, sem verða á lifshátt- um manna, þegar bifreiðar verða almenningseign. 1. þáttur. Aðalsmenn og vél- virkjar (1886-1908) Lýst er smiði fyrstu bifreiðanna. Fljótlega er hafinn kapp- akstur um alla Evrópu, og sigurvegarar fá verðlaun. Þýðandi Dóra Hafsteins- dóttir. Þulur Eiður Guðna- son. 21.35 Sjónhending Erlendar myndir og málefni. Um sjóna rmaður Bogi Agústsson. 21.55 Serpico(L) Nýr, banda- riskur sakamálamynda- flokkur i 16þáttum, byggður á bók eftir Peter Maas um lögreglumanninn Frank Serpico, sem varð frægur fyrir baráttu sina gegn spillingu innan lögreglunn- ar i' New York. Kvikmynd um Serpico var sýnd i Sjörnubiói nýlega. Aðalhlut- verk David Birney. 1. þátt- ur. Hættulegur leikur Þýð- andi Jón Thor Haraldsson. 23.25 Dagskrárlok smáauglýsinga- sími VÍSIS er 86611 V_______ J Verkamannafélagið Hlíf, Hafnarfirði Tillögur uppstillingarnefndar og trúnað- arráðs Verkamannafélagsins Hlifar, um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1978, liggja frammi á skrifstofu Hlifar frá og með þriðjudegi 14. febrúar 1978. öðrum tillögum ber að skila á skrif- stofu Hlifar, Strandgötu 11, fyrir kl. 17 fimmtudaginn 16. febrúar 1978 og er þá framboðsfrestur útrunninn. Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlifar. Deildarverkfræðingur Staða deildarverkfræðings með efna- fræðimenntun við öryggiseftirlit rikisins er laus til umsóknar. Verksvið er m.a. stjórnun eftirlits með eiturefnum og hættulegum efnum og eftir- lit með sprengiefnum, en auk þess skal deildarverkfræðingurinn vera staðgengill öryggismálastjóra. Laun samkvæmt launakerfi rikisins. Umsóknarfrestur er til 1. mars 1978. Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf sendist ráðuneytinu. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 7. febrúar 1978.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.