Alþýðublaðið - 07.03.1978, Side 3

Alþýðublaðið - 07.03.1978, Side 3
Þriðjudagur 7. marz 1978. 3 Tillaga um ríkisstyrki til idnadar samþykkt í undirnefnd EFTA:_ Allir brjóta EFTA- samningin nema íslendinsar! Svo sem kunnugt er af fréttum hafa íslenzkir iðn- rekendur lagt til og farið fram á einhliða frestun tollalækkunar samkvæmt samningum við EFTA og EBE. Slík frestun myndi skapa aukið svigrúm til jöfnunar samkeppnisað- stöðu iðnaðarins. Iðnrek- endur telja, að auðvelt sé að réttlæta þessar aðgerðir gagnvart samstarfsaðilum islendinga í EFTAog EBE með því að vísa i mjög öf I- ugar stuðningsaðgerðir, sem ekki fyrirf innast hér á landi. „Þessar stuðningsaðgerðir i nágrannalöndunum, sem eru mjög viðkvæmt mál og yfirleitt ekki viðurkenndar opinberlega, brjóta vitaskuld alla friverzl- unarsamninga”, sagði Davið Scheving Thorsteinsson, formað- ur isl. iðnrekenda á fundi með fréttamönnum i gær. Davið er ný- kominn af fundi efnahags- og félagsmálanefndar EFTA, þar sem samþykkt var tillaga, sem viðurkennir óbeint, að slikar stuöningsaögerðir eigi sér stað i EFTA löndum. Tillaga þessi var efnislega samhljóða tillögu, er Davið hafði borið fram. ,,Ég fór á fund ráðgjafanefndar EFTA i nóvember og flutti þá til- lögu um að rannsókn færi fram á þessum stuðningsaðgeröum og að hve miklu leyti þær hindri frjálsa samkeppni milli EFTA landa. Þá varð mikil sprenging. Menn þver- tóku fyrir að slikur stuðningur ættí sér stað. Svii reiddist þessu m.a. feikilega og kváðu enga slika styrki vera til i Sviþjóð. Þá rak ég framan I hann sænska bók, sem við hjá Félagi isl. iðnrekenda höfðum komizt yfir. SU bók hét hreinlega „Handbók um styrki i iönaði”, og fjallaöi hún um ýmsa styrki, sem hægt væri aö fá. Bók þessi var á annað hundrað siður. Við þetta sefaðist Sviinn mjög, enda hafði hann ekki séð þessa bók áður”. „Málinu var svo visað til efna- hags- og félagsmálanefndar og fyrrnefnd tillaga samþykkt samhljóöa 3. marz,nú er einmitt vika slðan leyft var að ræða þetta mál opinberlega á fundum EFTA.” Allir hafa brotið samning- inn nema Islendingar. „Það hefur komið i ljós við at- huganir, að öll riki, sem aðilar eru að friverzlunarsamningum EFTA hafa þverbrotið samning- ana með alls konar styrkjum til iðnaðarins, nema tsland.” „Þessir styrkir eru I ýmsum myndum. Til dæmis borgar sænska rikið iðnfyrirtækjum 20 s.kr. (um 1100 Isl.) fyrir hverja unna klukkustund fyrir það eitt að hafa fólk I vinnu i fataiðnaði. 1 Bretlandi má afskrifa vélar og tæki i iðnaði um 100% á fyrsta ári og iðnaðarhUsnæði um 50%. A Is- landi má afskrifa vélar og tæki mest um 12,5% og hUsnæði um 4- 8%, auk 6% flýtifyrningar. „Veiðarfæragerð telst til vefjar- og fataiðnaðar i Noregi. Þannig fær þessi iðnaður tvenns konar styrki, fyrst sem fataiðnaður og siðan styrk, þar sem iðnin er tengd sjávarUtvegi.” „Þetta styrkjakerfi er hreinn frumskógur. Sænskur iðnaður fær næstu fimm árin 27.000 milljarða sænskra któna i styrkveitingu” (reiknivélin okkar tekur ekki slikar upphæðir, en þetta mun samsvara u.þ.b. 1.1 milljón mill- jörðum islenzkra króna). „Það er alveg ljóst, að íslenzka rikið getur aldrei keppt við slikar styrkveitingar. Það er einnig andstætt okkar hugmyndum. Við erum á móti rikisstyrkjum og þar sem við erum aðilar að friverzl- unarsamningum viljum við að bandalagsaðilar okkar i EFTA og EBE virði leikreglur friverzlunar og leggi rikisstyrki til iðnaðar og Utflutnings niður.” „Við viljum ekki að islenzka rikiö taki upp styrktaraðgerðir. Við viljum lengri aðlögunartima að EFTA og EBE, þannig aö við getum barizt gegn styrkjum I öðr-‘ um aðildarlöndum. Við þurfum að vinna tima og förum fram á 2-3 ára frest á tollalækkunum.” „I baráttu okkar innan EFTA gegn styrkjunum höfum við þeg- ar unnið tvær lotur með sam- þykkt tillögunnar, sem fyrr er minnst á. NU á eftir að ræða hana I ráðgjafarnefnd EFTA, verði hUn samþykkt i ráðherranefnd, sem við erum bjartsýnir á að verði, þá er stórum áfanga náð.” „Svo við förum aðeins fram á lengri aölögunartima. TrUi menn þvi, að frjálst markaðskerfi komi sér bezt bæöi fyrir atvinnurek- endur og almenning, eins og fri- verzlunasamningar byggja á, þá má ekki koma með hundakUnstir eins og styrkjakerfi. Ef þaö við- gengst áfram, þá álit ég að gamla hafta- og tollakerfið sé bæði hreinlegra og heiðarlegra”, sagði Davið Scheving Thorsteinsson að lokum. —ATA Eitt verkanna á sýningunni eftir Tryggva ólafsson Den Nordiske’% 99 samsýmng norrænna myndlistarmanna 4. marz s.l. þ.e. á laugar- daginn var opnuð í Nor- ræna húsinu í Reykjavik myndlistarsýningin „Den Nordiske". Þetta er sam- sýning 20 norrænna mynd- listarmanna frá Norður- landar íkjunum öllum, Færeyjum og Grænlandi. Sýning þessi hefur áður verið sett upp í Danmörku og mun opnuð víðar á Norðurlöndum eftir að henni þ.m. lýkur hér þ.e. 19. Sýningunni „Den Nordiske” er af stað komið af samnefndum sýningarsamtökum 17 mynd- listarmanna frá Norðurlöndum. Aðild að samtökum þessum eiga m.a. islenzku listamennirnir þau Olöf Pálsdóttir og Tryggvi Ólafs- son. Samtökin hafa haldið sýning- ar i Kaupmannahöfn annað hvert ár, siðan 1970, 1974 sýndu þau einnig i Norræna hUsinu hér. Sýningunni hefur verið mjög vel tekið i Kaupmannahöfn áður en hUn kom hingað til lands. Verk íslendinganna á sýningunni þeirra Tryggva Olafssonar mál- ara og Óskars MagnUssonar vefnaðarlistamanns, vöktu tals- verða athygli en mesta hrifningu munu þó hafa vakið verk fær- eysku listamannanna Ingólfs av Reyni og Zakariasar Heinesen. Gagnrinandi „Berlinske Tid- ende” segir t.d. um sýninguna: „að hún bjóði upp á forvitnileg og lifleg verk, jafnvel i svo rlkum mæli að sýningin megi teljast sú besta til þessa.” Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar: Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarðar verður haldinn i Aiþýðuhúsinu i Hafnarfirði fimmtudaginn 9. marz næstkomandi klukkan 20:30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Árni Gunnarsson, ritstjóri, flytur ræðu. 3. Önnur mál. Stjórnin. \feentanlegir vinnimshafar 3. flokkur Vinsamlega athugið að Happdrætti Háskólans greiðir ekki vinninga á þá miða, sem ekki hafa verið endurnýjaðir. Látið ekki dragast að hafa samband við umboðsmanninn og endurnýja í tæka tíð. Dregið verður föstudaginn lO.mars. HAPPDRÆTTI HASKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinningshlutfall í heimi! 18 @ 1.000.000,- 18.000.000,- 18 — 500.000,- 9.000.000,- 207 — 100.000,- 20.700.000.- 306 — 50.000,- 15.300.000.- 8.163 — 15.000.- 122.445.000.- 8.712 185.445.000.- 36 — 75.000,- 2.700.000,- 8.748 188.145.000-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.