Alþýðublaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 10
10 Landssmiðjan SÖLVHÓLSGÖTU-101 REYKJAVIK SÍMI 20680 TILEX 2207 jafnvægisvél ? Fram til þessa hefur ekki verið hægt að gera viS skilvindur hér á landi. Hefur það reynst mjög kostnaðarsamt fyrir eigendur skipa og fiskimjöls- verksmiðja að fá þessar viðgerðir. LANDSSMIÐJAN getur nú annast viðgerðir á öllum tegunda skilvinda, blásara og rafmótora. LANDSSMIÐJAN hefur fengið jafnvægisvél frá Þýskalandi og sérstök verkfæri til viðgerðanna. Véiin er mjög fullkomin og fljótvirk. oc ALFA-LAVAL hefur framleitt skilvindur síðan 1883 og í dag framleiðir ALFA-LAVAL yfir 200 gerðir af skilvindum m. a. fyrir fiskimjöls- og lýsisiðnaðinn. - v Mosfellshreppur — Lóðaúthlutun Mosfellshreppur auglýsir hér með eftir umsóknum um einbýlishúsalóðir i Tanga- hverfi. Umsóknum sé skilað fyrir 18. marz 1978. Eyðublöð fást á skrifstofu hreppsins, Hlé- garði. Áætlað er að svæðið verði byggingarhæft siðari hluta sumars. Sveitarstjóri. Tilboð óskast i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreiðar og ógangfærar bifreiðar er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 7. marz, kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. SALA VARNALIÐSEIGNA (S: lítboð Tilboö óskast í ýmsar geröir af pappir fyrir Prentstofu Reykjavikur og Fræösluskrifstofu Reykjavikur. (Jtboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3 R. Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 18. aprfl 1978 kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR ; Fríkirkjuvogi 3 — Sími 25800 Frikirkjusöfnuðurinn í Reykjavík Aðalsafnaðarfundur verður haldinn i Frikirkjunni sunnudaginn 12. mars n.k. kl. 3 e.h., strax á eftir messu. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Stjórnin Þriðjudagur 7. marz 1978. SSSST* Félag byggingaridnadarmanna í Hafnarfirdi: Mótmæla skerdingu verdbótaákvæðum Á félagsfundi byggingariðnaðarmanna i Hafnarfirði/ þann 23. febrúar sl. var gerð eftir- farandi samþykkt: Félagsfundur Félags byggingariönaöarmanna i Hafnarfiröi haldinn 23. febrúar 1978 mótmælir þeirri stórfelldu kaupmáttarlækkun, er felst i ný- settum lögum um skeröingu verö- bótaákvæöa. Fundurinn telur aö meö þessari lagasetningu sé veriö á ósvifinn og freklegan hátt aö gera aö engu þann árangur, sem náöst hefur i þeirri varnarbaráttu sem verka- lýöshreyfingin hefur háö til þess aö ná fram viöunandi lifskjörum. Fundurinn mótmælir harölega þeirri atlögu aö frjálsum samningsrétti sem felst i laga- setningu þessari, sem algerlega óþolandi og óviöunandi afskiptum rikisvaldsins af nýgeröum kjara- samningum. Fundurinn mót- mælir harölega þeim rökum rikisvaldsins aö siöustu kjara- samningar launþegasamtakanna i landinu séu tilefni slikra aögeröa. Fundurinn bendir á aö rikis- stjórnin hefur viöurkennt aö samningarnir hafi veriö innan skynsamlegra marka, fyrst meö þvi aö greiöa fyrir samningum ASl, einnig meö gerð samninga viö BSRB og loks er kjaradómur úrskurðaöi laun BHM, en i kjara- dómnum átti fulltrúi rikis- stjórnarinnar sæti. Aö framan sögöu veröur sú eina ályktun dregin aö aögeröir rikis- valdsins miöi aö þvi einu aö efla einu auðstéttina I landinu á kostnaö þeirra sem minnst mega sin launþeganna. Til að mótmæla þessu gerræöi og til þess aö berjast fyrir réttmætum og samnings- bundnum veröbótum samþykkir fundurinn að segja upp kaup- liöum allra kjarasamninga félagsins viö atvinnurekendur. Einnig hvetur fundurinn alla launþega til þess aö sameinast i aögeröum er duga til þess aö hrinda þessum ólögum. Hver er...? 7 hreyfingum sem mest ber nú á, þ.e. Fylkingunni, KFl/ML og EIK (m-1), verða gerð sérstök skil á öðrum staö, en auk þeirra munu ennþá vera til, aö þvi best er vitað, KSML (b), klofnings- brotið úr KSML frá 1974 og Sósial- istafélag Reykjavikur. Sósialista- félagiö er leifar gamla Sósialista- flokksins, en hópurinn sem aö þvi stendur neitaði aö leggja niður þá starfsemi sem fylgdi Sósialista- flokknum — sameiningarflokki alþýöu.og neitaði að ganga inn i Alþýðubandalagið þegar þaö var formlegur stjónmálaflokkur áriö 1968. Hugmyndafræöigrundvöllur félagsins er dálltiö óljás, en ljóst er þó að þaö viðurkennir félag- ana Marx, Engels og Lenin sem frambærilega frumkvöðla sósial- ismans, en óljóst er um afstöðuna til Stalins og afstöðuna til núver- andi stjórnarfyrirkomulags i Sovét. Sósialistafélagiö hefur boöiö fram I kosningum i Reykjavik, en að öðru leyti ber mjög litið á þvi. Félagið er þó skrifað fyrir blaðinu Nýrri Dagsbrún, sem kemur út mánaðarlega i Reykjavik. Aðset- ur félagsins er að Tryggvagötu 10. KSML (b) fór af stað með tals- veröum umsvifum i upphafi, hófu meöal annars útgáfu höfuömál- AUGLÝSINGASIMI BLADSINS ER 14906 alþýöU' smáauglýsinga- sími VÍSIS er 86611 gagnsins, Oreigans og fræðilegs rits sem heitir Bosévikinn. Siðari hluta ársins 1977 heyröist ekkert frá þeini og útgáfa málgagnanna hefur legið niöri allt til þessa dags. Hvort þetta er lognið á und- an storminum skal ósagt látiö, en þeir sem vilja kynna sér samtök- in geta snúiö sér til miöstöövar KSML (b) að Laugavegi 2&. 3, hæð. —ARÍ 1977 T urlandi ogi ám i Þingeyjarsýslum og i yopnafirði og i Breiðdalsá i Suður-Múlasýslu. Sömu sögu er ekki að segja af veiöi á Suöurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum þó að undantekning sé frá þvi. Þannig varð metveiði i Þverá i Borgarfiröi og þar veiddist stærsti stangar- veiddi laxinn, svo vitaö sé, og var þaö 28pundalax.Þá ervitaöum tvo 28 punda laxa, sem veiddust i net i Olfusá frá Laugardælum. Laxá i Aðaldal bezta laxveiðiáin. Bezta stangarveiöiáin var Laxá i Aöaldal meö 2699 laxa aö meðal- þyngd 9,3 pund. í öðru sæti varö Miöfjaröará i Húnavatnssýslu með 2581 lax aö meöalþyngd 7,7 pund, en i báöum þessum ám var met- veiði, og þriöja bezta stangarveiði- áin var Þverá i Borgarfiröi með 2368 laxa að meöalþyngd 7,9 pund. Siöan kemur Laxá i Kjós i fjóröa sætið, en þar veiddust 1940 laxar aö meðalþyngd 7,0 pund og fimmta varð Viöidalsá og Fitjá I Húna- vatnssýslu með 1792 laxa aö meöal- þyngd 9,6 pund, sem er hæsti með- alþungi aö þessu sinni, og varð þetta bezta laxveiöi, sem fengizt hefur i þessum ám. Af laxinum, sem veiddist sumar- iö 1977 höföu 53% dvaliö eitt ár i s jó, en 47% tvö ár eöa lengur, en meðal- þungi á laxi var 3,6 kiló. 1 Laxeldisstöð rikisins i Kolla- firði komu 1574 laxar og í Lárós- stööina á Snæfellsnesi gengu 835 laxar. Auk þess komu laxar i Fisk- haldsstööina aö Botni i Súganda- firði og fiskhaldstilraun i Reykjar- firði við Isafjarðardjúp gaf góða raun s.l. sumar, en þar fengust um 100 laxar. Hér með fylgir listi yfir veiði f tæplega 70 ám viðsvegar um land sumariö 1977 og innan sviga eru tölur um laxveiðina 1975 og 1976 til samanburöar. Styrkir til háskólanáms i Noregi Norsk stjórnvöld hafa tilkynnt aö þau bjóöi fram I löndum sem aöild eiga aö Evrópuráöinu fjóra styrki til háskólanáms I Noregi háskólaáriö 1978-79. — Ekki er vitaö fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma ( hlut Islendinga. — Styrkir þessir eru eingöngu ætlaöir til fram- haldsnáms viö háskóla og eru veittir til niu mánaöa náms- dvalar. Styrkfjárhæöin er 2.300 n.kr. á mánuði, auk allt aö 1.500 n.kr. til nauösynlegs ferðakostnaðar innan Noregs. — Umsækjendur skulu hafa góöa þekkingu á norsku eöa ensku og hafa lokið háskólaprófi áöur en styrktimabil hefst. Æskilegt er aö umsækjendur séu eigi eldri en 40 ára. Umsóknir um styrki þessa skuiu sendar til: Utenriksdepartementet, Kontoret for kulturelt samkvæm med utlandet, Stipendieseksjonen, N-Oslo- Dep., Norge, fyrir 1. april 1978 og lætur sú stofnun i té frekari upplýsingar. Menntamálaráðuneytið, 28. febrúar 1978 Auglýsing um grásleppuveiðar Meö tilvisun til reglugerðar frá 23. febrúar um grásieppu- veiðar vill ráöuneytiö minna á, aö allar grásleppuveiöar eru óheimilar nema að fengnu leyfi sjávarútvegsráöu- neytisins. Upphaf veiöitimabilsins er sem hér segir: Noröurland eystri hluti 10. mars. Austurland 20. mars. Noröurland vestur hluti 1. april. Vesturland 18. april. Þar sem nokkra daga tekur aö koma veiöileyfum til viötakenda, vill ráöuneytiö hvetja veiöimenn tii aö sækja timanlega um veiöileyfi. Sjávarútvegsráöuneytiö

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.