Alþýðublaðið - 15.03.1978, Page 4
Miðvikudagur 15. marz 1978
Alþýðuf lokkurinn fer
nú fyrir brjóstið á mörg-
um andstæðingnum.
Kommúnistar hafa um
áratuga skeið reynt að
koma flokknum fyrir
kattarnef. Eftir síðustu
kosningar töldu þeir
markið í augsýn: aðeins
skorti herzlumuninn.
Formaður Alþýðubanda-
lagsins lýsti hinu göfuga
markmiði: að koma
Alþýðuf lokknum fyrir
kattarnef.
Nú þegar Alþýðuflokk-
urinn hefur snúið vörn í
sókn, sjá kommarnir
rautt, í orðsins fyllstu
merkingu. Draumurinn
um sæluríki kommún-
ismans ætlar ekki að
rætast. Kenningarnar
eru orðnar að mark-
lausum slagorðum,
starfshættirnir úreltir og
ekki í nokkrum takti við
tímann. Kommúnistar
eru að verða að steintrölli
i einhverju dapurlegasta
stjórnmálaævintýri, sem
hér hefur verið sett á
svið.
Á ferli sínum hefur
kommúnistum tekist að
höggva slík skörð í laun-
þegahreyf inguna
íhaldsmanninum þykir
gott.
Alþýðuf lokkur og Sjálf-
stæðisf lokkur stjórnuðu
þessu landi í æði mörg ár í
nafni viðreisnar. Enginn
viti borinn maður getur
neitað því, að þetta sam-
starf tókst vel í þágu
þjóðarheildar. En
Alþýðuf lokkurinn var of
lítill til samstarfs af
þessu tagi og gætt þess
ekki að lifa sjálfstæðu líf i
við hlið hins stóra sam-
sarfsflokks. Þetta var
kölluð íhaldsþjónkun, þótt
oft hefði Alþýðuflokk-
urinn meiri áhrif á
st jórnaraðgerðir en
íhaldinu þótti gott.
Skrif Morgunblaðsins
að undanförnu benda ein-
dregið til þess, að ,,stóru
karlarnir" í Sjálfstæðis-
f lokknum séu argir vegna
þróunar mála að undan-
förnu og að „ég vil ráða
yfir þér"- reglan muni
ekki gilda áfram. Og þeir
skulu vita, rétt eins og
kommarnir, að því meira
sem þeir hamast á
Alþýðuf lokknum því
stæltari verður hann.
—AG—
Mikil gróska í fisk-
idnadi og fiskveid-
um Færeyinga!
hráefnisaukning allt ad 20% í janúar og febrúar
á þessu ári miðað vid sömu mánuði í fyrra
Sósialurinn skýrir frá iðjuver tæp 11 þúsund tonn. blaðsins er ufsaveiðin
þvi þann 4. marz, að 17 Aukningin er um 20% burðarás í aukningunni.
fiskiðjuver i Færeyjum miðað við sama tima. Sum iðjuverin hafa alls
hafi tekið á móti um 13000 ekki getað tekið við þeim
tonnum á tveim fyrstu Að þessu sinni afla, sem i boði var, jafn-.
mánuðum ársins, en í hefur ufsagengd verið vel þó umsamið væri áður”
fyrra fengu þessi sömu óvenjumikil og að sögn við báta, sem eru fast-
Or frystihúsi I Klakksvik
f
ráðnir. Flest iðjuverin láta
vinna á tvi- eða þriskiptum
vöktum og mikill hugur er i
Færeyingum að auka við
og bæta móttökuskilyrði.
Annars hefur netaveiði
verið treg í ár og linuveiði
sömuleiðis, en þó snöggt-
um skárri en netaveiðin.
Línuveiðisjómenn kvarta
annars undan þvi, afl
erfiðlega gangi að fá hæfa
beitingamenn, þvi frysti-
húsin sogi að sér vinnu-
aflið.
Flugmál
Nýlega var tekin i notkun ný
flugstöö I Vogi. Þetta er mikil
bygging um 1600 fermetrar aö
flatarmáli og á einni hæð, þar eru
allar nauðsynlegar þjónustu-
stofnanir undir einu þaki og sam-
timis þessu var tekið i notkun
nýgert flugvélastæði að flatar-
mali 2750 fermetrar ásamt rými
fyrir 40 bila. Þetta er gjörbreyt-
ing á allri aðstöðu við flugið og
eruPæreyingar fagnandi yfir
þessari umbót.
iþróttir
Hafizt er nú handa við að
byggja iþróttahöll i Vogi og hefur
raunar verið á döfinni siðan 1970,
þó menn hafi verið að safna
kröftum til framkvæmdanna. Að
visu segir blaðið, að iþróttamenn
hafi nokkrar áhyggjur af rekstri
iþróttahallar, en hér brjóti
nauðsyn lög, ef ætlað sé að koma
til móts við áhuga eyjaskeggja.
íslenzkú, að hún hefur
ekki náð að vera það
volduga afl, sem henni
ber að vera. Og innan
launþegahreyf ingarinnar
hafa lýðræðis sósialistar
verið kommúnistum mik-
ill þyrnir í augum, enda
lýðræðishugmyndir litt
við þeirra hæfi. Vonandi
fer nú að koma að því, að
islendingar átta sig á því
að kommúnisminn á
ekkert erindi til þeirra,
fremur^ en auðvalds-
hyggjan.
Barátta jafnaðar-
manna gegn auðvaldi og
kommúnisma, — fyrir
samfélagi samvinnu í
stað samkeppni og gegn
hverskonar öfga-
En það eru ekki
kommúnistar einir, sem
eru i erfiðri aðstöðu.
íhaldsöflin óttast þessa
þróun. Þar á meðal eru
hinir þröngsýnu í Sjálf-
stæðisf lokknum. Bene-
dikt Gröndal, formaður
Alþýðuf lokksins, hefur
fengið tiltal í Morgun-
blaðinu, og má honum
vera af því mikill heiður.
Morgunblaðsrisinn mun
nú á næstunni helga
Alþýðuf lokknum eitthvað
af prentsvertu sinni.
Ástæðan er einföld:
Alþýðuf lokkurinn er,
farinn að lifa sjálf-
stæðara lífi en mörgum
Nýja flugstöðin I Vogi.
hreyfingum, hefur borið
mikinn ávöxt. Jafnaðar-
menn eru hvarvetna í
sókn og flokkar þeirra
fara viða með völd.
Kommúnístar hafa enn
ekki áttað sig á því
hvernig bregðast skal við
þessari sókn. Moskvu-
herrarnir vita ekki hvort
þeir eiga að vingast við
jaf naðarmenn, eða halda
áfram fyrri fjandskap
við þá. Kommúnistar
annarra þjóða draga dám
af þessari afstöðu.
tJtgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Rekstur: Reykjaprent h.f. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Árni Gunnarsson. Fréttastjóri: Éinar Sigurðs-
son. Aðsetur ritstjórnar er I Siðumúla 11, simi 81866. Kvöldsimi fréttavaktar: 81976. Auglýsingadeild,
Alþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — simi 14906. Áskriftar- og kvartanasimi: 14900. Prentun: Blaðaprent h.f.
Áskriftaverð 1500 krónur á mánuði og 80 krónur I lausasölu.
íhalds- og kommakór
alþýðu-
blaöíö