Alþýðublaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 15.03.1978, Blaðsíða 10
Miðvikudagur 15. marz 1978 10 Ný listgrein kynnt Listgrein sem nýtur siaukinna vinsælda i Bandarikjunum en fáir íslendingar eru kunnugir, veröur kynnt hér á landi i næstu viku. Frú Linda Schapper, bandarisk listakona búsett i Paris mun kynna gerð stoppaöra teppa (quilts) hjá Menningarstofnun Bandariskjanna, Neshaga 16 á morgun, finmtudaginn, 16. marz ki. 8:30. Fyrir tveim árum voru banda- risk hjún hér á ferð og kynntu aö nokkru leyti þessa listgrein sem vakti geysimikla athygii. í þetta sinn mun frú Schapper sýna áhugamönnum hér hvernig teppin eru hönnuö. Frú Schapper kemur hingaötil landsins i sambandi við sýningu sem hún heldur á stopp- uðum teppum aö Kjarvals- stööum. Útsýn fflýgur til 6 staða við Miðjarðar- haf með DC-8 þotum Við gengisbreytingar að und- anförnu hafa fiugfargjöld hækk- að til samræmis við verö er- lcnds gjaldeyris i Islenzkum krónum. Ferðaskrifstofan (Jt- sýn hefur nú gert samning við Flugleiðir h.f. um ieigu á DC8- þotum til flutninga á farþegum sinum til 6 staða við Miðjarðar- haf, en þær rúma 250 farþega i ferð. Með þessu móti tekst að lækka fargjaldið til muna og bjóða ferðir á hagstæðu verði til 4 Miðjarðarhafslanda i sumar: Spánar, italiu, Júgósiaviu og Grikklands. Frumvarp 12 heimilsföng stjórnarmanna. Allar breytingar á lögum, stefnuskrá eða stjórn skulu jafnharöan sendar ráöuneytinu. 1 4. gr. frv. er klásúla sem ekki er óliklegt að eigi eftir aö valda umræöum manna, en þar segir: „Nýr flokkur skal auk ofan- greindra upplýsinga senda ráðuneytinu (þ.e. dómsmála- ráðuneyti, aths. AB) nöfn, heimilisföng og nafnnúmer a.m.k. 1000 flokksmanna úr eigi færri en fjórum kjördæmum, þar af minnst 50 úr hverju”. - Þess má geta i þessu sambandi, að hjá milljónaþjóðinni Norö- mönnum þarf aö leggja fram iistameð sama fjölda stuönings- manna þ.e. 1000 manns, til aö flokkur fái fyrstu skráningu. Peningamálin 7. grein fjallar um fjármála- tengsl rikisvaldsins og stjórn- málaflokka og hljóðar svo: „Nú ákveður Alþingi að veita fé til styrktar starfsemi stjórn- málaflokkanna Ur rflússjóði og skal þá Uthiuta fénu sem hér segir: Af fjárveitingu skiptast 25% jafnt milli flokka, er hafa tvo eða fleiri alþingismenn, en 75% skiptast milli flokka sem skráðir eru hjá dómsmálaráðu- neytinu i hlutfalli við atkvæða- fjölda þeirra i siðustu alþingis- kosningum, enda hafi þeir fengið 1% greiddra atkvæða eða meira. Sé nýr flokkur skráður sam- kvæmt 4. gr. skal á kosningaári greiðahonum Ur rikissjóði sömu upphæð fyrir hvern meðmæl- anda og veitist fyrir hvern kjós- anda samkvæmt 2. mgr. Dómsmálaráðuneytið reiknar úr skiptingu fjárins.”. —ARH Loftbrúin suður — dag- flug. Helzta nýjungin hjá (Jtsýn er ný flugleið frá Islandi sem opnuð verður 13. mai næstkom- andi. Loftbrúin til Italiu Júgóslaviu og Grikklands með DC-8 þotu og verða ferðir viku-. lega til ttaliu þegar kemur fram á sumarið en til skiptis til Júgóslaviu og Grikklands á 2- 3vikna fresti til septemberloka. Það horfir einnig til framfara aö nú er um dagflug að ræða með brottför frá Keflavik kl. 14.00. Mjög vaxandi eftirspurn er eftir ferðum á þessar slóðir, en til skamms tima hafa tslendingar farið nær einvörðungu til Spán- ar i leit að sumri og sól. Spánarferðir (Jtsýn hefur nú haldið uppi Spánarferðum i 20 ár og enn er Costa del Sol vinsælasti dvalar- staðurinn. Aætlun (Jtsýnar þangað hefst 22. marz með páskaferð sem er nærri full- skipuð enda er nú sól og fegursta sumar þar syðra. Eftir páska býður (Jtsýn 3 þriggja vikna ferðir til Torremolinos með hagkvæmum kjörum. I Norðurlandaferðir (Jtsýn starfrækir sérstaka deild fyrir Norðurlandaferðir, bæði einstaklinga og hópferðir i nafni ýmissa félagssamtaka. . Nýlega hefur Félag isl. bifreiða- eigenda gert samning við Útsýn um Norðurlandaferðir og aðra þjónustu við félagsmenn sina með mjög hagstæðum kjörum. En að auki rekur (Jtsýn al- hliða alþjóðlega skipulagningu ferðalaga um allan heim og er stærsta söluumboð flugfélag- anna á Islandi. I þjónustu útsýnar munu starfa nærri 100 manns hér heima og erlendis i sumar. Ekki skortir áhuga fólks að vinna fyrir útsýn þvi að um 300 manns sótti um starf þegar útsýn aug- týsti 3 störf hjá fyrirtækinu ný- tega. AlUft^SOruÍuf! AUGLVSINGASIMI BLAÐSINS ER i 14906 alþýöu' - 1 K \ Það tilkynnist ættingjum og vinum að systir okkar og mágkona Elin Brynjólfsdóttir andaðist 3. marz 1978 að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Jarðarförin hefur farið fram. Guðjón Brynjólfsson Þórður Brynjólfsson Helga Jónsdóttir Anna Hallmundsdóttir Lán 12 Kallast þeir IB-ráögjafar og eru tveir á hverjum afgreiðslustað. Með þessu móti hyggst Iðnaðar- bankinn gera tilraun tilað auka tengsl viðskiptavina og starfs- fólks með persónulegum ráð- gjöfum. Samningar um IB-lán og IB- veðlán verða til reiðu i Iðnaðar- bankanum frá og með deginum i dag, en að sögn forráöamanna bankans er framvegis gert ráð fyrir að innborganir á IB-reikn- inga fari fram fyrstu sjö daga hvers mánaðar. —GEK Kínaveldi 7 hefði vaxiö upp i hinu nýja Klna. Hver myndi vera ástæðan til þess, að hann villtist af leiö og hrasaði? Alyktanir Kangs voru þessar: Fang hefði langtimum saman vanrækt félagslegt uppeldi sitt og neitað að þiggja hjálp samverka- manna sinna. I þess stað hefði hann aðhyllst stjórnleysis hug- myndir „hinna fjögurra” glæpa- manna, sem að lokum hefði leitt hann á afbrotabrautina. „Þetta allt er hluti af hinni stöðugu stéttabaráttu, sem heyja verður ætið og æfinlega. Það er söguleg nauðsyn hins sósialiska þjóðfé- lags. Þessvegna veröum við að gefa uppeldi sona okkar og dætra nán- ari gaum en veriö hefur. Við verðum að hjáipa þeim til að lesa og læra ritverk Marx, Engels, Lenins og Stalins og þó umfram alltrit Maós formanns, til þess að þau fái rétt lifsviðhorf. Við verðum að hjálpa þeim til aö öðlast sannan byltingaranda, vilja til harðrar baráttu og elsku til verkalyðsstéttarinnar og sam- félagsins. Við verðum að hjálpa þeim ti! að vera fær um að axla byrðar, sem bylting hinna fátæku kann að leggja þeim á herðar.” Cr Cfiina Reconstructs Græddum 12 fjölda landsmanna. Arfð 1975 var fjöldinn 33.1% af ibúatölu hér og þvi um markverða aukningu að ræða, eða sem jafngildir að meðaltali um 13% aukningu á ári. Þærtekjur sem við höfum af erlendum ferðamönnum eru hlut- fallslega engu lakari en grann- þjóða okkar, sem verja þó mun meira fé og sýna meiri áhuga á landkynningu og efiingu ferða- mála en við gerum. T.d. námu ferðamannatekjur Dana 1976 6% af verðmæti heildarútflutnings og þjónustu það ár. Sambærilegar tölur voru hjá okkur Islendingum 4,7%, hjáNorðmönnum 3,2% og Svium 2.%”. SKIPAUTGCRB KlKlSlðS. M/s Hekla j fer frá Reykjavik þriðjudag- inn 21. þ.m. austur um land til Seyðisfjarðar og tekur vörur á eftirtaldar hafnir: Vest- mannaeyjar, Hornafjörð, Djúpavog, Breiðdalsvik, Stöðvarfjörö, Fáskrúðsfjörð, Reyðarfjörð, Eskifjörð, Nes- kaupstað og Seyðisfjörð. Móttaka alla virka daga nema laugardag til 20. þ.m. M/s Esja fer frá Reykjavik miðviku- daginn 22. þ.m. vestur um land I hringferð og tékur vörur á eftirtaldar hafnir: tsafjörð, Akureyri, Húsavikj Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakka- fjörð, Vopnafjörö, Borgarfjörð eystri, Seyöisfjörð, Mjóafjörð, Neskaupstað, Eskifjörð, Reyðarfjörð, Fáskrúðsfjörð, Stöðvarfjörð, Breiðdalsvik, Djúpavog og Hornafjörö. Móttaka alla virka daga nema laugardag til 21. þ.m. (P Lausar stöður Staða hjúkrunardeildarstjóra við heima- hjúkrun. Gert er ráð fyrir, að væntanlegur deildar- stjóri þurfi að kynna sér málefni heima- hjúkrunar á Norðurlöndum. Staða deildarljósmóður við mæðradeild — hlutastarf. Staða meinatæknis og aðstoðarmanns á rannsóknastofu. Staða ritara við heilbrigðiseftirlit Reykjavikur — hálft starf. Umsóknum sé skilað til framkvæmda- nefndar Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur fyrir 29. marz n.k. Heilsuverndarstöð Reykjavikur Skólastj óras tarf Bankarnir gerðu með sér samning sl. haust um viöara starf Bankamannaskólans. Hefur skólanefndin nú fengiö heimild til þess að ráða skólastjóra i heilsársstarf. Reynsla i bankastörfum er æskileg,en einnig kemur til greina að fá skólamann til starfsins. Leggja þarf grund- völl aö framtiðarstarfi skólans og mikið verk er framund- an að koma upp fagbókmenntum. Auk daglegrar stjórn- unar fylgir starfinu talsverð kennsluskylda á móti kennurum i ýmsum fögum, sem ýmist koma úr bönkum eða utan þeirra. Almennt starfar skólinn að fræöslumál- um yngri og eldri bankamanna. úmsóknir um starfiö sendist: Skólanefnd Bankamanna- skólans, pósthóf 160 Reykjavik, meö upplýsingum um inenntun, l'yrri störf og fleira. Reiknaö er með þvi að starf hefjist ekki seinna en 1. ágúst n.k. Laun og önnur starfs- kjör skv. kjarasamningi bankamanna. úmsóknarfrestur er til 1. mai n.k. 13. mars 1978 SKÓLANEFND BANKAMANNASKÖLANS Fulltrúaráð Alþýðuflokksins i Reykjavik boðar til fulltrúaráðsfundar fimmtudaginn 16. marz kl 20.30 að Freyjugötu 27 2. hæð til hægri (áður félagsheimili múrara og rafvirkja). Fundarefni: 1. Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Alþýðu flokksins við Alþingiskosningar á vori komandi. 2. Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Alþýðu flokksins við borgarstjórnarkosningar á vori komandi Fulltrúar eru hvattir til að fjölmenna stundvlslega. - Stjórnin. Almennur flokksmanna- fundur í Reykjavík á fimmtudagskvöldið kl. 22 Alþýðuflokksfélögin i Reykjavik efna til almenns flokksmannafundar nk. fimmtu- dag 16. marz að Freyjugötu 27 2. hæð til hægri (áður Félagsheimili múrara og raf- virkja). Hefst fundurinn þegar að loknum fundi Fulltrúaráðs Alþýðuflokksins i Reykjavik, en hann hefst kl. 20.30 sama kvöld og i sömu húsakynnum. Aætlað er að almenni flokksmannafundurinn hefjist u.þ.b. kl. 22. Til umræðu og meðferðar á fundinum verður tillaga Fulltrúaráðs Al- þýðuflokksins I Reykjavik um framboðs- lista Alþýðuflokksins i Reykjavik við væntanlegar borgarstjómarkosningar. Kemur hún til afgreiðslu i lok fundarins. Alþýðuflokksmenn i Reykjavik eru hvattir til að mæta vel á fundinum. Stjórnir Alþýðuflokksfélags Reykjavikur, Kvenfélags Alþýðuflokksins I Reykjavik og Félags ungra jafnaðarmanna i Reykja- vik. i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.