Alþýðublaðið - 18.03.1978, Page 5

Alþýðublaðið - 18.03.1978, Page 5
' Laugardagur 18. marz 1978 5 UR LEIKHUSINU Jónas Jónasson Enskt skáld, John Gay að nafni, samdi The Begar’s Opera sem var fyrst sýnd i Lin- coln’s Inn Fields leikhúsinu 1 Lundúnum, stundum kaliað Hertogahúsið eða jafnvel Tennisvöllurinn, og þegar leikið var fyrst var komið 1728 allar götur. Höfundurinn varð frægur af. Svo leið og beið þar til annar frægur tók sig til og samdi upp úr betlaraóperunni aðra óperu sem heitir á islensku Túskild- ingsóperan og Kurt Wiell skrif- aði tónlistina. Bertold Brecht potaði i heimsvömbina og vakti athygli, en vist er að músikin hans Weill er slik að án hennar yrði verkið hálft og kanski varla það. Túskildingsóperan gerist i Lundúnaborg og persónur ein- tómir þjófar, betlarar og hórur, sumsé fólk eins og enn finnst i þeirra heimsborg. Verkið deilir á og gerir grin að borgarastétt- inni og vaxtaverkjum hennar. Eg hefi ekki fyrr setið sam- komusal Menntaskólans við Hamrahlið en býsn var gaman núna og haglega gert allt sam- an. Það er engin hörgull á mannskap, þátttakendur og reddarar eins margir og ibúar Grimsey og mjög hefur vel rek- ist til að finna manngerðir sem passa i skrautlegar manna- myndir leiksins, sumar leikper- sónur þannig hannaðar að þær festast vel í minni. Sýningin er jöfn og áferðarfalleg, slétt og felldoghvergiáberandigöt, það var þá fljótlega stoppað i þau með galdragripinu Æskufjöri. Það er vont að tina úr brot úr þessari mosaikmynd, byggð á nær fjörutiu brotum, fyrir utan ramma hljómsveitarinnar og verður ekki gert. Það var gam- an, og það er ekki einfalt mál fyrir þá sem sköpuðu gamanið. Sviðsmynd úr Túskildingsóperunni i uppfærslu Menntaskólans við Ilamrahlfð Gaman! Mikil vinna og ströng og ótæm- andi kraftur unga fólksins plús reynsla þeirra sem utan sviðs stóðu. Ingvar Török gerði prýðisgóða leikmynd og teikn- aði búninga, Þorgerður Ingólfs- dóttir, ágæt listakona, stjórnaði söngnum, söngtextar þýddir af Þorsteini frá Hamri, Sveinbirni Beinteinssyni og Böðvari Guð- mundssyni. Taltexta þýddi Þor- steinn Þorsteinsson og öllu sam- an stjórnaði og setti saman, Stefán Baldursson. Hér hefur vel tekist til, já, það var ákaflega gaman. Þökk fyrir 15. marz 1978 Jónas Jónasson Motorciaft Þ.Jónsson&Co. SKEIFUNNI 17 REYKJAVIK SIMAR: 84515/ 84516 MILLILANDS OG EYJA á ódýran, öruggan og þægilegan hátt Það er fátt einfaldara heldur en að taka bifreiðina með á milli lands og eyja, eftir að Herjólfur kom til sög- unnar. Við bjóðum farþegum upp á þægindi og þjónustu, ódýrt fargjald og litinn aukakostnað, ef billinn á að fljóta með. * Helgarferð milli lands og Eyja er bæði sjálfsögð og skemmtileg. Alla daga er siglt frá Vestmannaeyj- um kl. 9.30 að morgni og frá Þorláks- höfn kl. 13.45 eftir hádegi. Á sunnu- dögum er þó lagt af stað kl. 14.00 frá Vestmannaeyjum og siðan kl. 18.00 frá Þorlákshöfn. Flytjum auk farþega og bifreiða alls kyns varning ef þess er óskað. HERJÓLFUR HF. Vestmannaeyjum, sími 98-1838, 98-1792 Matkaupshúsinu, Vatnagörðum, Reykjavík, sími 86464

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.