Alþýðublaðið - 18.03.1978, Qupperneq 9
Sía* Laugardagur 18. marz 1978
9
Óhæfilegur málatilbúnaður —
og vinnubrögð
Á etleftu stundu
Fjármálaráöherra vor hefur
boðað — daginn áður en þing-
heimur fer i páskaleyfi, sem
standa mun til 29. þessa mánað-
ar — að fram verði lagt frum-
varptil nýrra skattalaga þegar
þing komi saman á ný!
Almennt mun talið, að stefnt
sé að þvi, að þinglausnir verði
um 20. april, enda taliö, að
landsfeðurnir þurfi þá að fara
að taka sig saman i andlitinu
vegna tvennra kosninga, sem i
hönd fara.
Vitanlega er fjarri þvi, að
skattalagafrumvarpið — ef
fram kemur — verði eina málið
sem þingheimur þarf um að
fjalla fram að þinglausnum.
Þvi er hætt við, að sama
ólánslagið verði á störfum
Alþingis og veriö hefur alltof
lengi.
A sveitamáli talað, mætti
segja, að Alþingi hafi heht tvö
gangmál. Annaö er áður en jóla-
leyfi þingmanna hefst þegar
veriðer aðharka eða pina fram,
og koma einhverju nafni á fjár-
lögin. Hiö siðara er, þegar
uppúr þingstörfum er að slitna
og koma verður r.afni á lokaaf-
greiöslur ýmissa mála, sem
búin eru að velkjast lengi um
þingsali, ef þau verð'a þá ekki
svæfð/
Milli þessa tvenns er svo engu
likara en þingstörfin „liggi
niðri” og litið eða ekkert mark-
vert gerist.
Það væri þá helzt einhver
gofuþytur um þessar sifelldu
neyðarráðstafanir, sem stjórnin
— i umkomuleysi sinu — telur
að gera þurfi. Hér skiptir ekki
máli, þó mest af þessum ráð-
stöfunum áorki þvi einu að
hella oliu á einhvern eld iþjóð-
lifinu, auðvitað helzt í „verð-
bólgubálið”. Það er samt
nokkur tilbreyting og getur
gefið ástæðu til hvassra
skoðanaðskipta, svo lognhatt-
arnir að minnsta kosti hallist
litillega og standi á ská um hrið!
Við skuiuni ekki halda þvi
fram, að störf þingmanna séu
vandalaus, þvi siður að ekki
þurfi aö gæta margs, sem alls
ekki er ætið áhlaupaverk. En
einmitt vegna þess að vandinn
er talsverður. verður að gæta
þess rækilega, að jafna störf-
unum þannig niður á þingtim-
ann, að vinnubrögöin séu ekki
ýmist i ökkla eða eyra.
Þetta heyrir auðvitað undir,
að verkstjórn öll sé skynsamleg,
en líkist ekki þeirri tegund
skollablindu, sem kölluð er að
hitta beint i tunglið!
Enginn vafi leikur á, að fjár-
lögin eru þýðingarmesta laga-
setning hvers árs. Og til þess að
vel fari, verður að gera sér far
um — framar öðru — að þau séu
eins raunhæf áætlun og nokkur
kostur er.
Þau snerta svo djúpt allan
hag almennings á fjárhags-
árinu, að þar verður að finna
kjölfestu. Þá er ekki siður þess
að minnast, aö þau eiga að vera
umgjörð um framkvæmd fjár-
málayfirvalda, umgjörð, sem
fásinna er að setja, eigi ekki aö
hlita henni sem nákvæmast.
Við höfum hinsvegar orðið
vitni að þvi, að þessi merka
áætlun fer oft algerlega úr
böndunum. meira að segja rétt i
sama mund og hnútarnir hafa
verið reyrðir. Þar er margan
dragmöskvann að finna.
Allt slikt skapar samt sem
áður ringulreið, sem auðvitað
mætti komast hjá, ef hagnýtari
vinnubrögð væru viðhöfð.
Við getum rétt hugsað okkur
veslings þingmennina, komna i
það ástand, að vökustaura væri
mest þörfin hamast við að rétta
hendur upp eða niður mörg
hundruð sinnum i beit á þessum
stundum.
Ætla má, að þeim sé tak-
mörkuð þörf á morgunleikfimi
útvarpsins, að þeim slag
loknum!
Skattamálin og úrlausnir
þeirra hafa verið á döfinni
mestallan valdatima núverandi
rikisstjórnar. Landslýður hefur
verið alinn á loforðum um úr-
bætur á þeim þýðingarmiklu
lögum, svo að segja stanzlaust.
Efndirnar á þvi hafa auðvitað
verið niðri i frostmarki allan
timann, en nú, nú hefur fjár-
málaráðherra boðað að kálf-
urinn muni senn lita dagsins
ljós!
Eftir þvi sem bezt er vitað,
hanga tvö nýmæli við skatta-
lögin. Annað er upptaka virðis-
aukaskatts og hitt að koma á
staðgreiðslukerfi skatta.
Hér er um að ræöa gagngera
breytingu á framkvæmd laga og
þvi ætti það svo að vera, að
þingheimi gæfist kostur á ræki-
legri athugun. Þess ber einnig
að gæta, að sá er munurinn á
almennum skattalögum og
hinum árlegu fjárlögum, aö
skattalögunum er eflaust ætlað
að standa árum saman, þar sem
fjárlögin gilda aöeins fyrir eitt
ár. þó það sé jsála sannast, aö
drefjar illa unninna fjárlaga
sulla út nokkurt árabil.
Nú er það rétt, að mikilsvirtur
embættismaður, þar sem rikis-
skattstjóri er, hefur unnið að
gerð skattalaganna nokkuð
lengi. En svo virðist sem fjár-
málaráðherra hafi ekki getizt
meira en svo að tillögum hans,
þvi það veröur að draga stór-
lega i efa, að óburðurinn, sem
fram kom siðast, hafi verið hans
verk — óspillt.
Mun það og hafa verið sam-
mæli þingmanna, að drögin,
sem fram voru lögð, ættu
ekki annasrs staðar frekar
heima en i ruslakörfunni!
Vitanlega er rikis'skattstjóri
ekkert almætti fremur en aðrir
dauðlegir menn. Samt verður að
gera ráð fyrir, að hann sjái
ýmsum öðrum betur i þessu
efni.
Núverandi skattalög hafa
eðlilega lengi verið þyrnir i
holdi landsmanna. Ranglæti
þeirraerog hefurverið fyrst og
fremst i þvi fólgið, hve menn
ganga ójafnir til leiks.
Tekjuskatturinn er orðinn
hreinn launamannaskattur, en
aðrir — einkum þeir, sem mest
hafa umleikis — hafa fundiö ótal
göt, til þess að sleppa við lög-
mætar kvaðir. Ef til vill er varla
viö þvi að búast, aö nokkur
skattalög , verði nokkru sinni
lögfræðingaheld. En þvi betur,
sem til þeírra ervanaað og þau
nákvæmar rædd og krufin til
mergjar, mætti þó ætla að færri
yrðu flösurnar.
Ef allt fer að h'kum.er Alþingi
ætlaður þriggja vikna timi, til
að inna þetta af höndum, auk
alls annars, sem saman hefur
safnast frá siðasta gangmáli!
Þetta eru auðvitað fráleit
vinnubrögö, þegar um svo af-
drifarika löggjöf er að ræða. Og
það þarf ekki neinn stór-
spámann til að sjá, að hér
verður sama skoilablindan sett
á svið og um fjárlagaafgreiðsl-
una.
Málið verður trúlega hespað
af, að svefndrukknum,
rauöeygum þingheimi einhverja
nóttina rétt fyrir þinglausnir!
Um slikan málatilbúnað og
vinnubrögð veröur naumast
haft nema eitt orð — óhæfilegt.
Oddur A. Sigurjónsson,
I HREINSKILNI SAGT
Björgvin Jónsson þrettán ára
gamall úr Keflavik kom sá og
sigraði i deildarkeppni Skáksam-
bands Islands, þegar Skákfélag
Keflavikur sigraði Skákfélagið
Mjölni með 5.5 vinningum gegn
2.5. Hann tefldi einnig úrslita
skákina um skákmeistaratitil
Suðurnesja við Gisla Sigurkarls-
son, en þar sigraði Gisli og varö
skákmeistari Suðurnesja og
tryggði sér sæti i áskorandaflokki
á Skákþingi Islands sem nú er aö
hefjast. Tefldar voru 7 umferðir
eftir Monrad-kerfi og fékk Gisli 6
vinninga. Þvi miður hefur Gisli
ekki tima til að sinna skákinni
sem skyldi vegna starfa sinna, en
þvi má bæta við að I öilum keppn-
um Skákfélags Keflavikur i deild-
arkeppni Skáksambandsins hefur
hann aðeins tapað einni skák.
Vikjum nú aftur aö unga piltinum
úr Keflavik og sjáum hvernig
hann teflir.
Hvitt: Björgvin Jónsson.
Svart:Magnús Gislason.
1. e4 e5, 2. Rf3 Rc6, 3. d4 exd4, 4.
Bc4 Be7, 5. c3 Rf6, 6. e5 Re4, 7»
CXD D5, 8. Bb5 0-0, 9. 0-0 a6, 10.
BxR bxB, 11. Rd2 c5, 12. dxc
Rxc5,13. Rb3 RxR, 14. DxR c5, 15.
Bf4 Be6 16. Hfdl Hb8,17. Dc2 Db6,
Mý unglingastjarna
skák í Kef lavík
Friðrik Ölafsson fer á skákmót-
ið á Lone Pine.
18. b3 Db4, 19. Bg5 BxB, 20. RxB
g6, 21. Hacl Hbc8, 22. De2 Hc6, 23.
De3 Kg7, 24. h3 a5, 25. Df3 h6, 26.
Df6 skák Kg8.
Á leiö tií útianda
Birkir Leósson frá Skákfélag-
inu Mjölni fer þriðjudaginn 21.
marz til Noregs og tekur þar þátt
i unglingamóti.
abcdefgh
~~~~yrws?----jcjyw'""—---------------
I it3ri if
5 L 1 & &
<1 % '
> a m
K
& &
.. &
ABCDEFGH
27. Rxf7 HxR, 28. Dxg6 skák Hg7,
29. De8 skák Kh7, 30. DxH De4, 31.
g3 Dxe5, 32. Dxc5 Hxg3, 33. fxH
Dxg3, 34. Kfl Bxh3, 35. Ke2 Dg2,
36. Df2 Bg2, 36. Df2 Bg4, 37. Kel
De4, 38. Kd2 Bf5, 39. Hc7 Kh8, 40.
Hc8 Kh7, 41. Da7 Kg6, 42. Hgl
Kh5, 43. Df7 Kh4, 44. Df6 Kh5, 45.
Hhl DxH, 46. DxB Kh4, 47. Df2
Kh5, 48. Hg8 Da2 og svartur gaf
um leið.
Hallur Simonarson finnst mér
full harður að segja að ýmist hafi
Walter S. Browne verið hafinn
upp til skýjanna eða fordæmur.
Hann hefur sina galla eins og
flestir menn, en einnig sina kosti.
Walter S. Browne
Ég hef reynt að lýsa honum eins
og ég kynntist honum i þáttum
hér i Alþýöublaðinu og finnst að
ég hafi fariö milliveginn. Kannski
les Hallur ekki það sem hér er
ritað en ég les hans skrif og hef
gaman af.
Guðlaug Þorsteinsdóttir Norö-
urlandameistari kvenna, einnig
úr Skákfélaginu Mjölni fer til
keppni i Danmörku miðvikudag-
inn 22. marz.
Varmárskóli i Mosfellssveit
sigraði Barnaskólann i Keflavik
með 11.5 vinningum gegn 4.5.
Tefltvará átta borðum, tvöföld
umferð, umhugsunartimi var 15
minútur á keppanda.
Keppt var i ýmsum iþrótta-
greinum þennandagen þvi miður
veit ég ekki um frekari úrslit.
Þetta var miðvikudaginn 15.
marz.
Svavar Guðni Svavarsson.
Féiag járniðnaðarmanna
Félagsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 21. mars 1978
kl. 8.30 e.h. i Félagsheimili Kópavogs,
uppi.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. önnur mál.
Mætið vel og stundvislega
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.
Maslus tii*
Grensásvegi 7
Simi 32655.
&
MOTOfítOLA
Alternatorar
i bila og báta
6, 12, 24 og 32 volta.
Platinulausar transistor
kveikjur i flesta bila.
Hobart rafsuðuvéiar.
Haukur og Ólafur h.:’.
Armúla 32—Simi 3-77-00.
Auc^sendu'
AUGLvSINGASlMI
BLADSINS ER
14906
Svefnbekkir á
verksmiðjuverði
SVEFNBEKKJA
Höfðatúni 2 — Simi 15581
Reykjavik.
2-
50-50
Sendi-
bíia-
stöðin h.f.