Alþýðublaðið - 27.04.1978, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 27.04.1978, Qupperneq 1
FIMMTUDAGUR 27. APRIL Ritstjórn blaðsins er til húsa í Síðumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta vaktar (91)81976 .Huldumeyjarnar” í handtökumálinu fundnar: Segja að fölskum sönn- unargögnum hafi verið komið fyrir Haukur Guðmundsson neitar sakargiftum kvennanna Hinar svoköiluðu „huldumeyjar”, sem hvað mest var leitað vegna rannsóknar á, „handtökumálinu” svonefndar virðast nú komnar fram i dags- Ijósið. Tvær konur búsettar i Kefiavik hafa viðurkennt i ræki- legri skýrslugerð hjá Rannsóknarlögreglu rikisins sem þær háfa siðan staðfest fyrir dómi, að hafa að beiðni og áeggjan Hauks Guðmunds- sonar, fyrrum rannsóknar- lögreglumanns i Keflavik, biekkt Kari Guðmundsson og Guðbjart heitinn Páisson, til Voga á Vatnsleysuströnd C.desember 1977. Við yfir- heyrslur hafa konurnar sagt að áður hafi áfengi verið komið fyrir með leynd i farangurs- geymslu bifreiðar Guðbjarts, i þvi skyni að koma honum og Karli Guðmundssyni undir hendur Hauks Guðmundssonar til handtöku fyrir ætluð smýgl- brot. Haukur Guðmundsson hef- ur við yfirheyslur alfarið neitað sakaráburði kvennanna. Svo sem kunnugt er taldi rikissaksóknariá sinum tima að rannsókn á handtökumálinu hefði ekki leitti ljós nægjanlega sterkar likur til sakfellis yfir Hauki Guðmundssyni. Var þvi af ákæruvaldsins hálfu ekki krafist frekari aðgerða i málinu að sinni, „nema fram komi nýjarupplýsingarsem kynnu að renna styrkari stoðum undir fyrrgreindar sakargiftir á hend- ur kærða,” eins og segir orðrétt i bréfi rikissaksóknara. Hinn 9.april siðastliðinn komu hins vegar fram nýjar upplýs- ingar sem leiddu til þess að haf- in var rannsókn af hálfu Rannsóknarlögreglu rikisins. Sú rannsókn leiddi siðan til þess að böndin bárust að konunum tveimur sem nú hafa játað að hafa aðstoðað Hauk Guðmunds- son er hann handtók Karl Guðmundsson og Guðbjart Pálsson i Vogum 6.desember siðast liðinn. Forræði rannsókarinnar er i höndum Rannsóknarlögreglu rikisins, en það eru þeir Hannes Thorarensen og Grétar Sæmundsson rannsóknar- iögreglumenn sem hafa haft hana með höndum. Hefur f jöldi fólks verið yfirheyrður siðustu sólarhringa vegna hennar.GEK Kröflu- virkjun gang- sett í gær - enn einu sinni i gær hófst enn ein til- raun til að framleiða raf- orku frá þeirri frægu Kröf luvirkjun, en raf- magnsframleiðslu virkj- unarinnar var sem kunn- ugt er hætt fyrir nokkru siðan þegar þrýstingur í beztu holu virkjunarinnar koðnaði niður. Siðustu daga hefur þrýstingur í holu 7 verið að glæðast og i gærdag um há- degisbil voru vélar virkj- unarinnar gangsettar á ný og rafmagnsframleiðsla hafin. En rætt var við Gunnar Inga Gunnarsson, staðartæknifræðing Kröfluvirkjunar um miðjan dag i gær, var rafmagns framleiðslan komin i 2 megawött og taldi Gunnar ekki útilokað að hægt yrði að auka hana i 4—5 megawött. Þess má geta að það er innan við 10% af afkastagetu virkjunar- innar. Fróðlegt verður að fylgjast með hve lengi tekst að halda raforku- framleiðslu virkjunarinnar úti þetta skiptið en eflaust yrði það máttarstólpum orkumála lands- ins mikill andlegur styrkur, ef blessaðar holurnar vildu nú vera svo vænar að halda uppi ögn af þrýstingi þótt ekki væri lengur en bara fram yfir kosningar. —GEK Hún var ekkert sérlega uppveðruð yfir allri hljómsveitarinnar i gær. Sjá frétt á baksiðu. — klassikinni unga frökenin, sem sat og hlýddi á æf- AB-mynd: ATA ingar Söngsveitarinnar Filharmóníu og Sinfóniu- „Það má segja að farið sé að hrikta f hér nyrðra,” sagði Jón Heigason, formaður Einingar, þegar Aiþýðublaðið átti tal við hann i gær um framDvæmd út- flutningsbanns þar fyrir norðan. Jón sagði að til félagsins hefði nú borizt bréf frá Kaupfélagi Ey- firðinga, vegna ástands mála á Dalvik, en þar eru horfur á að geymslur fyllist um aðra helgi og er þvi i bréfinu beðið um að mega skipa út 6000 kössum af freðfiski þaðan. Þá sagðist Jón eiga von á bréfi frá kaupfélaginu, vegna Hriseyjar, en þar hefur verið all- nokkur afli að undanförnu, og þótt geymslurými sé þar enn nokkuð og eitthvað verkað i salt, munu einhverjir hafa fullan hug á að fá undanþágu undan banninu. 100 tonn af málningu Enn sagði Jón að við sig hefði verið rætt af forstöðumönnum Sjafnar á Akureyri, vegna leyfis til útflutnings á 100 tonnum af málningu, en þvi kvaðst hann hafa svarað á þá lund, að þar væri við IÐJU og formann henar. Jón Ingimarsson, að eiga. Þeir hjá Sjöfn kveðast hafa greitt yfir- borganir til sinna starfsmanna, 15—20%, og þykjast þvi eiga inni að fá þessa heimild, en Jón sagði að hverjar sem málalyktir yrðu i viðskiptum SjafnarviðlÐJU, ætti eftir að reyna á hvort verkamenn á Akureyri kærðu sig um að skipa vörunni út og yrðu það aldrei nema fullar verðbætur til sam- ræmis við fyrri samninga greidd- ar. Fundur i dag Jón Helgason sagði að i dag yrði haldinn fundur um þessi mál. og þar rætt hvernig við yrði brugðizt. Hann sagði það álit'sitt að of mikil vægð hefði verið sýnd i framkvæmd bannsins og lýsti sig andvigan undanþágunum. AM Útflutningshann á Norðurlandi „Farið að hrikta V’ — segir formaður Einingar og telur að of mikil vaegð hafi verið sýnd í framkvæmd útf lutningsbannsins

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.