Alþýðublaðið - 08.05.1978, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.05.1978, Blaðsíða 1
alþýöu- blaöið BORGARMAL BÉ-IjjHHP §p£lív;' ígjl l. pL' é&t&UmS"BSr. % I w „Borgin kaupi skipa- lyftu ásamt einkaad- ilum í Reykjavík” Rætt við Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúa, um uppbyggingu skipasmíða og skipaviögeröa í höfuðborginni Reykjavikurborg á að ganga til samstarfs við Slippfélagið i Reykjavik um kaup á skipalyftu, er gæti tekið upp öll stærstu kaupskip okkar íslendinga, sagði Björg- vin Guðmundsson, borg- arfulltrúi Alþýðuflokks- ins, i viðtali við Alþýðu- blaðið í gær. Og borgin á einnig að beita sér fyrir- ir samstarfi stálsmiðj- anna i Reykjavik um skipasmiðar og skipa- viðgerðir, sagði Björg- vin. Björgvin Guðmunds- son, borgarfulltrúi, lagði nýlega fram i borgar- stjórn svofellda tillögu um þetta mál: „Reykjavikurborg hafi frum- kvæði að þvi að koma á samstarfi Slippfélagsins i Reykjavik og stálsmiðjanna i borginni um stofnun skipasmiðastöðvar og skipaverkstæðis. Ef þörf krefur leggi borgin fram hlutafé i nýtt fyrirtæki um þessa starfsemi. Slikri starfsemi i borginni verði þegar ákveðinnstaður. M.a. verði athugað hvort borgin eigi ekki að kaupa skipalyftu ásamt framan- greindum aðilum svo unnt veröi að taka upp hin stærstu kaupskip okkar tslendinga og framkvæma á þeim flokkunarviðgerðir”. Björgvin sagði, að einkaaðilar i Reykjavik hefðu ekki fjárhags- legt bolmagn til þess að skapa þá aðstöðu, sem nauðsynleg væri til skipasmiöa og skipavið- gerða. Þess vegna yrði að fara sömu leið i þessu efni og farin hefði verið á Akureyri, þ.e. fá opinbera aðila til þess að veita málinu stuðning. Hér veröur borgarstjórn Reykjavikur að taka alla forustu, sagði Björgvin. A t vi nn u m á la á s t an di ð i Reykjavik er þannig i dag, að nauðsyn er stórátaks i atvinnu- málum. Viö þurfum að byggja upp nýjar atvinnugreinar i Reykjavik, sagði Björgvin. Undanfarið hefur framleiðslu- starfsemi i borginni dregizt saman. Þá þróun þarf að stöðva og snúa henni við. Ný skipa smiðja og ný skipaverkstöö getur verið fyrsta skrefið á þvi sviði, sagði borgarfulltrúinn. En það er ekki aðeins hags- munamál Reykjvikinga að skapa þessa aðstöðu i Reykjavik, bætti hann við. Hér er einnig um þjóð- hagslegahagkvæmtmálað ræða. Hundruð milljóna i erlendum gjaldeyri fara til viðgerða erlendis á kaupskipum okkar. Ef við flytjum þessar viðgerðir inn i landið þ.e. til Reykjavikur spörum við gifurlegar fjárhæöir i gjaldeyri um leið og við sköpum aukna atvinnu i höfuðborginni, sagði Björgvin Guömundsson að lokum. Frá núverandi athafnasvæði Slippfélagsins. (AB-mynd: KIE)

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.