Alþýðublaðið - 19.05.1978, Blaðsíða 7
Föstudagur 19. maí 1978
7
Sími
flokks-
skrifstof-
unnar
i Reykjavik
er 2-92-44
Kópavogur
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins i Kópavogi er opin
daglega frá kl. 5 og frameftir kvöldum, lengur um helgar.
Sími skrifstofunnar er 44700.
Garðabær .... Garðabær.
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins f Garðabæ er aö
Garðaflöt 23, sími 42244. Skrifstofan er opin alla virka
daga frá klukkan 20:30 til 22:30. A laugardögum er hún op-
in frá klukkan 14 til 18. — Hafið samband viö skrifstofuna.
Alþýðuflokksfólk!
Viðtalstimi framkvæmdastjóra Alþýðuflokksins er á
| þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 4-6
e.hd.
Hafnarfjörður:
Kosningaskrifstofa Alþýðuflokksins i Hafnarfirði er i
Alþýðuhúsinu, simi 50499. Skrifstofan er opin alla virka
daga frá kiukkan 16 til 18.
Utankjörfundar-atkvæðagreiðsla er hafin. Kosninga-
skrifstofan aðstoöar þá, er þess óska. — Hafið samband
við skrifstofuna.
Ungbarnið
TINY
Eftirlæti allra telpna
Dúkka sem:
Grætur - Drekkur úr pela
og vætir bleyju
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1
í HREINSKILNI SAGT
Stjarna eða
hrímþursatá?
í sviðsljósinu
Að vonum hljóta fræðslumál
hverrar þjóðar aö vera áhuga-
vekjandi hverju sinni. Svo er og
hér á landi, sem dæmin sanna.
Mikil umbrot eiga sér nú stað i
þessum málum hér og vant að
sjá fyrir endann á þvl—máske
ekki ástæða til aö óska
þess—enda veröa slik mál ætlð
að laga sig nokkuð að breyttum
timum.
Annað mál er, hve hratt skuli
farið, þegar breytingar eru
fyrirhugaðar, eða að ganga yfir.
Aðstæðum, sem búnar eru að
eiga langan aðdraganda, verður
varla gjörbreytt I einni svipan,
en þær áorka miklu um alla
möguleika til rekstrar og fram-
kvæmda.
Þvi miður viröist ærið mörg-
um sjást yfir þessa augljósu
staðreynd og á það ekki siður
viö allra hæst yfirvöld en hina,
sem beinllnis starfa I þeim
„vlngarði”.
Ætlunin er aö drepa
nokkuð—-aö þessu sinni— á hug-
myndir um rekstur og stjórnun
skóla, sem nú eru að stinga koll-
inum upp og furöu margir ræða
af áhuga, en máske ekki að
sama skapi af grundaðri Ihygli.
Svo virðist, sem nokkuð af
þessu blessaöa fólki telji, að það
væri til mikilla bóta, að sem
flestir kássist I yfirstjórn skól-
anna. Fram til þessa hefur verið
talið, að hér þyrfti ákveðinn
aðili að hafa siðasta oröiö, enda
bæri sá aðili ábyrgð á hinum
fræðilega rekstri.
Grunnskólalögin gera r áð fyr-
ir, að um eigi að vera að ræða
allskonar ráð—vægast sagt vott
af ráðstjórn— sem þó firrir
aðalstjórnanda á engan hátt
ábyrgð af heildarstarfi.
Allir mega auövitaö sjá, að
slikir stjórnarhættir væru meira
en vafasamir. t fyrsta lagi er
yfirstjórn háö þeim lögum og
reglugerðum, sem stofnunin
starfar eftir. Engin leið er aö
komast framhjá þvi.
Hugmyndir um allskonar
frumkvæði, sem stofnunin eigi
að taka I sinar hendur, og menn
eru aö velta völunni um, eru svtt
bezt framkvæmanlegar, aö þær
brjóti ekki I bága við lög og regl-
ur, auk þess sem aöstæðurnar á
hverjum stað geta auðveldlega
reist við þeim skorður. Þegar
menn ræöa um sjálfstæöi skól-
anna sem allra meina bót, sézt
of oft yfir þennan hlut.
Enginn þarf að telja sig neinn
kerfisþræl, þó látinn sé I ljós
verulegur efi á, að fræðslukerfið
eigi að stefna ýmist I þessa átt-
ina eöa hina I störfum hinna ein-
stöku skóla. Menn geta auö-
veldlega gert sér í hugarlund,
hvernig þeirri útgerö reiddi af
yfirleitt, þar sem skipshöfn gæti
borið skipstjóra ráðum, að ekki
sé talað um ef þeir fengju einnig
ihlutunarrétt, sem lltt eða ekki
hefðu á sjó komið.
Eflaust má margt að skóla-
stjórum og kennurum finna. En
væru til þess nokkrar likur, að
betur gegndi, ef þeir, sem að-
eins hafa séö skólann frá ann-
arri hliðinni —ytri hliðinni—
hefðu úrslitavald um rekstur-
inn?
Hinir fyrrnefndu hafa þó lagt I
það umtalsverða vinnu og orku,
að sérmennta og sérhæfa sig við
þau störf, sem hér um ræðir.
Hinir fyrrnefndu hafa þó lagt I
það umtalsverða vinnu og orku,
aö sérmennta og sérhæfa sig við
þau störf, sem hér um ræðir.
Við skulum ekki gleyma þvl i
öllu þvi breytingabusli, sem nú
þykir hæfa, aö skóli hefur
hneygð til að vera Ihaldssöm
stofnun, reyndar I beztu merk-
ingu þess orðs.
Skóli hlýtur að byggja starf
sitt á reynslu, bæði um það sem
vel eða miður hefur gefizt.
Óviða á betur við en þar hið
forna spakmæli: Flýttu þér
hægt. Hvort sem mönnum likar
betur eða verr, verða allar
breytingar aö skirast I eldi
reynslunnar, og þá fyrst verða
marktækar, þegar hún er feng-
in. Þetta á ekki hváö sfzt við,
þegar um er að ræöa gjörbreyt-
ingar á starfsháttum.
Enginn vitiborinn maöur ætti
að kasta þvi fyrir róða, sem
sómasamlega hefur gefizt, fyrir
óreyndar og litt þekktar hug-
dettur, jafnvel þó berist erlend-
is frá. Allt annað er að standa i
vegi fyrir þvi, að álitlegar
nýjungar séu reyndar eftir þvl
sem aðstæður og starfsreglur
leyfa.
Til er i okkar fornu fræöum
dálitiö gráglettin saga um við-
skipti Asa og hrimþursa, sem
vissulega voru sjaldan ástúðleg,
en gætu enn verið ihuganarefni.
Einn af hinum siðarnefndu haföi
orðið fyrir þvi i vörzlu Asa, að
stórutá hans kól. Til bóta fyrir
þetta brutu Æsir tána af, köst-
uðu henni upp á himininn og
gerðu stjörnu af. Þetta þótti
þursum vera fullar bætur og vel
það og glöddust af bliki hennar
og ljóma!
Eigum við ekki að hugleiða og
athuga vel, hvers eðlis ýmsar
þær „stjörmur”, sem mörgum
þykir þeir sjá á himni fræðslu-
mála okkar eru.
Þaö skyldi þó aldrei vera, að
sumar þeirra—máske fleiri en
ýmsa grunar—séu meira I ætt
viö hina fornu hrlmþursatá en
raunverulegar stjörnur?
Oddur A. Sigurjónsson
Aldamótabarn flytur þakkir
Reykjavlk, 16. mai 1978
A annan I hvitasunnu slðast-
liðinn sat ég boð I Glæsibæ
ásamt mörgum hundruöum af
eldra fólki, sem Alþýðuflokkur-
inn bauð til kaffidrykkju með
mikilli rausn og prýöi. Þar voru
nokkur skemmtiatriði, ræður,
yndislegur söngur og undirleik-
ur ágætra listamanna.
Þar sem ég er ein af alda-
mótabörnunum þá er ég svo
gamaldags að ég kann ekki við
að þiggja mér veittan greiða og
ógleymanlega gleöistund án
þess að þakka fyrir mig. Ég
bjóst við að einhver góður félagi
mundi kveöja sér hljóðs, og
segja nokkur þakkarorð til
stjórnandans, og flokksins I
heild, frá okkur gestunum. En
þar sem ég er nýliöi á þessum
vettvangi og þrengsli svo mikið
að ég náöi ekki til stjórnandans,
Hauks Morthens, til aö fá 4-5
minútur til umráöa og sýna
þakklæti okkar, fannst mér ég
veröa að senda nokkrar llnur og
fá þeim rúm i blaði ykkar.
Það er nauösynlegt að gera
sér dagamun og skipta um föt
Alþýðublaðið
á hvert heimili
Ert þú félagi 1 Rauóa krossinum? '
. '• I
Deildir félagsins »
eru um land allt.
RAUÐI KRÖSS ISLANDS
og sjá fólk. Þá gefst oft timi og
tækifæri til að rifja upp gamlar
minningar, sem gaman er aö
orna sér við. Og einmitt i þessu
kaffiboöi kom mér i hug áminn-
ing frá bernsku minni og hér er
sú: Ef maður var sendur til
næstu bæja með fundarboö,
gangnaseöil eða önnur skilaboö
þá var sagt af góöri móður,
„Mundu aö heilsa og kveöja og
mundu að þakka fyrir þig, ef þú
færð góðgjörðir” Þess vegna
leyfi ég mér fyrir hönd allra
veizlugesta að þakka ógleym-
anlega gleðistund i Glæsibæ.
Við ég biðja Alþýöuflokknum
allrar blessunar, framfara og
sigurs og megi hann verða
leiðarljós lands og þjóðar um
ókomin ár.
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
PÓST- OG SÍMA
MÁLASTOFNUNIN
Óskar að ráða
Loftskeytamann/Simritara
hjá Pósti og sima á Isafirði. Nánari upp-
lýsingar verða veittar hjá Starfsmanna-
deild og umdæmisstjóra á Isfirði.
UTBOÐ
Tilboð óskast I Ijósaperur (220 V) og ræsa fyrir skóla
Reykjavlkurborgar.
Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3,
R.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 6. júnl 1978
kl. 11 f. hád.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Ffíkifkjuvegi 3 — Sími 258C0