Alþýðublaðið - 26.05.1978, Side 1

Alþýðublaðið - 26.05.1978, Side 1
alþýðu- s FÖSTUDAGUR 26. MAÍ 1978 9/. TBL. — 59. ÁRG. Séftyfir fundarsalinn á HótelSögu. Mynd: Maria Ammendrup SÓKNARHUGUR Á A-LISTA FUNDINUM Húsfyllir var á fundi A-Iistans á Hótel Sögu i fyrrakvöld og mikill sóknarhugur. Kom það fram i ræðum manna, að A-listinn stefndi nú að því að fá tvo fulltrúa kjörna i borgarstjórn, þ.e. að tryggja kjör Sjafnar Sigurbjörns- dóttur enda er það til skammar, að konur skulu aðeins eiga tvo fulltrúa i borgarstjórn eins og nú er. I fundarbyrjun lék unglinga- sveit frá Lilörasveitinni Svan baráttulög. Ræöumenn voru þessir: Benedikt Gröndal for- maöur Alþýöuflokksins, Anna Kristbjörnsdóttir fóstra, sem skipar ll.sæti A-listans, Kristín Arnadóttir, kennarúsem skipar 25. sæti listans, Gylfi Þ. Gisla- son, formaöur þingflokks Al- þýðuflokksins, Sjöfn Sigur- björnsdóttir kennari, sem skip- ar annaö sæti listans og Björg- vin Guömundsson, borgar- fulltrúi, 1. maður listans. Söngtrióiö Trio Bonus söng. 1 lokaoröum sinum sagði Björgvin Guömundsson m.a.: „Þegar við hófum þessa kosn- ingabaráttu vorum viö mjög varfærin. Viö vissum, aö i siö- ustu borgarstjórnarkosningum Bjarni Guönason og Hannibai Valdimarsson heilsast ú Sögufundin um. Visismynd: Gunnar. munaöi aöeins rúmlega 300 at- kvæðum, aö Alþýöuflokkurinn missti fulltrúa sinn úr borgar- stjórn. Viö vissum, að viö yrö- um að vinna mjög vel i þessum kosningum til þess aö ná góöum árangri. Þetta vitum viö aö visu ennþá. En viö Alþýöuflokks- menn höfum fundiö þaö eftir þvi sem nær kosningum hefur dreg- iö, að Alþýöuflokkurinn hefur meðbyr. En ég vil þó leggja á það áherzlu, að þaö næst ekki góöur árangur nema meö góöri vinnu. Þrátt fyrir skoöanakann- anir, sem eru hagstæöar Alþýöuflokknum megum viö ekki slaka á. Viö veröum aö vinna vel fram að kosningum. Viö veröum að berjast. Viö veröum að berjast af krafti fram á sunnudag og allan kjör- dag þar til kjörstaöir loka. Fundarfólk’. Fram til sigurs fyrir A-listann. Nú er þaö Al- þýöuflokkurinn. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, annar maöur á lista Alþýöuflokksins við borgarstjórnarkosningarnar Fylgi æskufólksins $é okkur hvatning í baráttunni Mér finnst mest um vert að við þessar kosningar leggist allir jafnaðarmenn á eitt, til þess að tryggja flokknum sem glæsi- legastan sigur og sér- staklega i ljósi þess hve margt ungt fólk er nú komið til starfa fyrir flokkinn, en það ætti að setja sérstakan bar- áttukraft i okkur, sagði Sjöfn Sigurbjörnsdóttir þegar blaðið ræddi við hana i gær. Sjöfn kvaöst þegar hafa, bæöi i fyrri viðtölum, blaöagreinum sinum og vlöar,hafa gert grein fyrir þeim málefnum, sem henni væru hugstæöust og snertu borgarmálin, og nú þeg- ar aö kjördegi liöi, vildi hún sem fyrr leggja áherzlu á félags- og fræöslumálin. Endurmenntun og starfsnám Endurmenntun og starfsnám fulloröinna sagöi Sjöfn vera málefni, sem verulegs átaks þyrfti viö. Hún nefndi einkum þann mikla hóp kvenna á miöj- um aldri, sem þyrftu aö leita út á vinnumarkaðinn, en ekki væri nauösyn aö orðlengja um þá staðreynd aö i nútima verö- bólguþjóöfélagi, þyrftu bæöi hjón aö vinna úti, ef sjá ætti fyr- ir heimili. Þessar konur, sem komiðheföuupp börnum sinum, ættu að baki langa starfsævi, sem húsmæöur og uppalendur og ætti tvimælalaust, þegar aö starfsnámi þeirra kæmi aö meta þá starfsreynzlu sem gild- an þátt i þvi. Þar meö gætu þær hlotiö viðurkenningu á starfi sinu og kunnáttu, sem skylt væri að meta viö atvinnuráöningu og væri enda ekki svo litil starfs- menntun og ætti hún að dragast frá námstímanum. Skóla- og dagheimili Til móts viö útivinnandi kon- Tómstundastarf væri efni sem mjög tengdist félagsþörf æsku- fólks, en Sjöfn hefur beitt sér fyrir aö tómstundastarf hæfist ekki sibar en viö tlu ára aldur og fengnir yröu til leiðbeiningar hæfir starfskraftar, sem vinna kynnu meö börnum og þyrftu próf eða önnur námsástundun ekki að vera fyrsta forsenda þess, hverjir veldust i þau störf. Atvinnumál Atvinnuöryggi er eitt grund- vallarskilyröi fyrir heill borgar- anna, sagöi Sjöfn aöloKum. Þaö mun koma til kasta borgar- stjórnar Reykavikur aö tryggja það sem bezt meö uppbyggingu atvinnulifs i borginni og aö þeirri uppbyggingu vil ég vinna eftir megni. ur sagöi Sjöfn aö ætti aö koma með stofnun fleiri dagheimila og ekki sizt skóladagheimila, en þau efni tengjast og barna- verndarmálum, sem Sjöfn hefur rikan áhuga á. Hún taldi þörf á aö koma á raunhæfu sambandi milli skólans og heimilanna, en helzt á þann hátt yrði lagöur grundvöllur aö félagsþroska unglinganna. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, sem skipar annaö sætiö á iista Al- þýöufiokksins við borgarstjórnarkosningar er borinn og barnfæddur Reykvikingur, fædd 15. október 1936. Að loknu stúd- entsprófi dvaldi hún við nám og störf i Bandarikjunum i fjögur ár. Hún er gift Braga Jónssyni, veðurfræðingi og eiga þau þrjá syni, Atla Björn, 13 ára, Sigurbjörn 11 ára og Baldur 10 ára. Eru þeir allir við nám i Fellaskóla. Auk húsmóðurstarfa hefur hún gefið sig mikið að félagsmálum og kennslumálum og er nú kennari við fjölbrautaskólann I Brciö- holti. Ahugi hennar á félagsmálum vaknaði snemma og hefur hún gefið þeim mikið af tima sinum. Hún er formaður sveita- stjórnarráðs Alþýðuflokksins og hefur innt mikiö starf af hendi I kvenfélagi hans. Þá hefur hún undanfarin árveriði stjórn Kven- stúdentafélags islands og tekið virkan þátt i félagsmálum kenn- ara almennt. Siðasta hausttók hún sæti Guðmundur Magnússon- ar.sem varaborgarfuiltrúi og settist um leið i sæti hans sem full- trúi Aiþýöuflokksins i Félagsmáiaráði. Siðasta kjörtimabii var hún og fuiltrúi flokksins i Barnaverndarnefnd og varamaður f Fræðslu og félagsmálaráði. Auk þessa hefur Sjöfn Sigurbjörns- dóttir verið leiðsögumaður hja ferðaskrifstofunum XJtsýn og Landsýn og enn eitt sumar I Rúmeniu, þar sem hún var á veg- um Landsýnar til ráögjafar og hjáipar gigtveiku fólki, sem þangað fór og kynntist, auk vandamáium þessa fólks, mjög vel högutn fólks I þessu Austur-Evrópuiandi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.