Alþýðublaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 26.05.1978, Blaðsíða 8
lalþýðu- Iblaðið Útgefandi Alþýðuflokkurihn Ritstjórn Alþýðublaðsins er að Siðumúla 11, sími 81866. Auglýsingadeild FOSTUDAGUR blaðsinserað Hverfisgötu 10, sími 14906 — Áskriftarsími 14900. .. . r ,«-,0' 26. MAI 1978 1 FRÉTTIR I STUTTU MÁLI Ellefu aðilar fram í alþingis- kosningunum — reykvískir kjósendur hafa 8 valkosti! Þorungavinnslan að Reykhólum: Boranir eftir heitu vatni bera iítinn árangur Boranir þær eftir heitu vatni sem sta&ið hafa yfir viö Þör- ungavinnsluna aö Reykhólum undanfarið, hafa litinn árangur boriö. Boruð hefur veriö liölega 900 metra djúp hola til viðbótar þeirri sem fyrir var, en sú hola var einnig dýpkuö nokkuð. Aö sögn Omars Haraldssonar framkvæmdastjóra verksmiöj- unnar jókst vatnsmagniö i eldri holunni um 3 sek/ltr. er hún var dýpkuö, auk þess sem hitastigiö i holunni hækkaöi um 6 gráöur á Celcius. Um annan árangur af borununum er vart hægt aö tala. Þaö kom fram i samtalinu viö Ómar aö verksmiöjan hefur nú yfir aö ráöa um 30 sek/ltr. af 105 stiga heitu vatni, en þetta vatns- magn þyrfti aö aukast um 10 sek/ltr ef halda á uppi fullum afköstum i verksmiöjunni nú i sumar. Fimm flokkar þangöflunar- manna vinna nú aö öflun til verksmiöjunnar og notaöir eru 5 þangöflunarprammar. Sagöi Ómar aö ef tekizt heföi aö tryggja nægjanlegt heitt vatn til verksmiöjurekstursins hefði þangöflunar flokkunum trúlega verið fjölgaö um a.m.k. einn til tvo. — Ég er aö hugsa um að fara fram á aö sérfræöingar Orku- stofnunar komi hingaö vestur annað hvort i dag eöa á morgun, — sagöi Ómar. — Þaö verður aö gera eitthvaö i þessu máli, þvi svona getur þetta 'ekki gengiö. Þaö lætur nærri að borútgerðin kosti okkur um eina milljón króna á dag,— —GEK Yfirkjörstjórnir allra kjördæma héldu fundi f gær viðs vegar um landið og gengu frá framboðs- listum sem borizt hafa til alþingiskosninganna 25. júni. Landskjörstjórn mun síðan úthluta nýjum framboðum listabókstöf- um, en alls munu 11 aðil- ar bjóða fram í kosning- unum! „Gömlu" flokk- arnir fimm, Alþýðuflokk- ur, Alþýðubanda lag, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarf lokkur og Samtök frjálslyndra og vinstri manna, bjóða fram í öllum kjördæmum landsins. 1 Reykjavik bjóöa auk þess fram „Fylking byltingarsinn- aöra kommúnista”, „Kommún- istaflokkur lslands” og „Stjórn- málaflokkurinn”. 1 Reykjaneskjördæmi er óháð framboö til alþingis, einnig eru óháöir framboöslistar á Suöurlandskjördæmi og á Vest- fjöröum. Efstur á óháöa listan- um fyrir vestan er Karvel Pálmason, en hann bauð sig fram fyrir Samtök frjálslyndra áöur, eins og menn muna. Dýrt og vont lesefni — áróðursritin litfögru Að undanförnu hafa hrapað inn um bréf lúgur í Reykjavík litmyndabækl- ingar með góðviðrismynd af miðborginni á forsíðu. Siíkra sendingaáttumenn áður von á frá Ihaldinu einu.-en nú hefur Fram- sókn tekið sig til og gefið út annan siíkan, svo nú hafa menn í tveimur myndasyrpum að fletta, — þeir sem nenna. Bæklingarnir eru prentaöir á rándýran myndpappír, sem synd er aö sjá lagöan undir svo afleitt efni og bæklingarnir hafa inni aö halda. Samkvæmt beztu heimildum mun kostnaöur viö slika útgáfu nema fjórum mill- jónum meö litgreinlnguog vinnu sé miðað við tiu þúsunda upp- lag. Fyrir hver tiu þúsund þar á eftir munu viö bætast tvær mill- jónir og sex hundruö þúsund. Sé ætlaö að upplag bæklinganna sé þrjátiuþúsund eintök munu þvi thald og Framsókn hafa þurft aö greiöa niu milljónir og tvö hundruö þúsund fyrir hvorn pésann. Mikiö heföi nú mátt nota þessa peninga til skemmtilegri útgáfustarfsemi, en þessarar. ,TBílatundurduft” við Akraborgina Við bílaútskipunar- bryggju Akraborgar stendur bryggjupolli, svo að segja í miðri leið þeirra bifreiða, sem aka skulu um borð. Þessi polli, sem sést á með- fylgjandi mynd, hefur valdið miklum skaða þeg- ar, og voru Akraborgar- menn ekki ómyrkir i máli, þegar við hittum þá í gær. „Þessi polli er eins og nokkurs konar tundurdufl hér i vegi bil- anna og er þegar búinn aö valda mörgum tjónum,” sögöu þeir. Til dæmis munu þrfr sjúkrabil- ar, sem voru aö sækja sjúklinga um borð, hafa rekiö sig á hann og nú mjög nýlega fór rúta frá Guömundi Jónssyni upp á hann og festist illa og skemmdist. Er talið að skemmdin nemi hundr- uðum þúsunda. Þá eru ótalin önnur óhöpp, sem ýmsir einka- bílár hafa oröið fyrir, en pollinn er oft illgreinanlegur í myrkri og dimmu veöri. Eflaust er ekki hlaupið aö þvi aö ná honum upp, og hætt viö aö þaö kosti nokkuö, einhver gizkaöi á tvö til þrjú hundruö þúsund. En þaö nemur þó ekki meiri upphæð, en sem svara myndi einu tjóni á bíl og þvi krafa manna, ekki sizt Skagamanna, aö þetta „bila- tundurdufl” veröi slætt. Sérstakir kjörstaðir fatlaðra í Hátúni Engar kjördeildir verða starfræktar á sjúkrahúsunum Hvernig verður háttað möguleikum öryrkja, sjúkiinga og aldraðra á að kjósa við kosningar þær sem í hönd fara? Blaðið hafði i gær tal af ólafi Jónssyni, lögfræð- ingi hjá Reykjavíkurborg og spurði hann um þetta efni, en hann annast slík mál fyrir yfirkjörstjórn. Ölafur sagöi aö viö þessar kosningar yröi komiö upp kjör- deildum i Hátúni 10A og 10B, þar sem öryrkjabandalagiö hefur sin húsakynni og enn i Há- túni 12, i húsakynnum Sjálfs- bjargar. Hvað þaö fatlaö fólk varöar, sem erfitt á meö að komast um á þeirri kjördeild, þar semþaöerskráö, sagöi Ólaf- ur, aö þvi yröi einnig gefinn kostur á aö kjósa i kjördeildun- um i Hátúni. Mun veröa beitt til þess heimild i kosningalögum, sem kveður á um aö menn megi kjósa annars staöar en á eigin kjördeild, gefi þeir yfirlýsingu þessefnis.og gefur yfirkjörstjórn þá út vottorö, sem skila þarfa á báöum kjördeildum. Kvaö Ólaf- ur nokkra skriffinnsku af þessu leiöa, en átti von á að stjórn- málaflokkarnir myndu létta nokkuð undir i þvi efni. Annars kvaö hann aöstööu á kjördeild- um viöa ágæta, en nefndi Miö- bæjarskóla helzt til, sem dæmi umóhentugankjörstað fyrir fatl- aöa. Ekki kjördeildir á sjúkrahúsum Kjördeildir munu starfa á elliheimilunum Grund og á Hrafnistu, en á hvorum staö munu vera tvö til þrjúhundruð kjósendur. Verra kvað Ólafur vera meö aöstööu til kosningar á sjúkrahúsum, en þar verða kjördeildir ekki starfræktar. Ekki kvaö hann auövelt aö segja til um fjölda atkvæðisbærra Reykvikinga á sjúkrahúsum, þar sem margt fólk utan af landi væri þar liggjandi. Kvaðst hann þó vona að sem flestir heföu haft aöstöðu til aö kjósa utankjör- staða, áöur en þeir hefðu lagzt inn. AM Heitt í kolunum á fundi Sjálf stæðismanna í Hafnarfirði Heitt mun hafa gerzt í kolunum hjá Sjálfstæðis- mönnum í fyrrakvöld, þegarþeirhéldualmennan og fjölmennan fund í Hafnarfirði. Aö sögn eins fundarmanns, mun þaö hafa gerzt i fundarlok, að fundarstjórinn Oliver Steinn, kvaddi sér hljóös og hélt ske- legga ræðu. Kom fram i ræöunni að hann teldi stjórn Sjálfstæðis- flokksins i bæjarmálum allra góöra gjalda verö, en ööru máli gégndi um rikisstjórnina, sem bæöi væri ráöalaus og dáðlaus. Segir sagan aö fjármálaráð- herra, Matthias A. Matthiesen, sem var gestur fundarins, hafi þykkzt viö slika oröræöu og yfir- gefiö fundinn, ásamt nokkrum fylgismanna sinna. Blaöiö haföi i gær tal af Oliver Steini og reyndi aö fá nánari út- listun á skoöun hans á ágöllum stjórnarinnar. Oliver kvaö sannast hérsem fyrr aö ekki sýndist öllum eitt um silfriö, en vildi ekki endurtaka efni ræö- unnar og yrði aö bera fyrir aðra heimildarmenn en sig.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.