Alþýðublaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 16
\ 16 JÖLABLAÐ \ ----------- Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum gott samstarf á liðnum árum IBJfl, Félag verksmiðjufólks Akureyri FRÁ RAFMAGNSVEITU REYKJAVlKUR Raf magnsveitunni er þaö kappsmál, að sem fæstir verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um jólin sem endranær. Til þess að tryggja öruggt raf- magn um hátíðirnar, vill Rafmagnsveitan benda notendum á eftirfarandi: IReynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna henni yf ir daginn eins og kostur er, eink- um á aðfangadag og gamlársdag. Forð- ist, ef unnt er, að nota mörg straumf rek tæki samtímis, t.d. rafmagnsofna, hrað- suðukatlaþvottavélar og uppþvottavélar — einkanlega meðan á eldun stendur. 2Farið varlega með öll raftæki til að forð- ast bruna og snertihættu. Illa meðfarnar lausataugar og jólaljósasamstæður eru hættulegar. Útiljósasamstæður þurfa að vera vatns- þéttar og af gerð, sem viðurkennd er af Rafmagnserftirliti Ríkisins. 3Eigiðávallttil nægar birgðir af vartöpp- um („öryggjum"). Helstu stærðir eru: 10 amper = tjós 20-25 amper=eldvél 35 amper=aðalvör fyrir íbúð. Ef straumlaust verður,skuluð þér gera eftirtaldar ráðstafanir: Takið straumfrek tæki úr sambaridi. Ef straumleysið tekur aðeins til hluta úr ibúð, (t.d. eldavél eða Ijós), getið þér sjálf skipt um vör í töflu íbúðarinnar. 5Ef öll íbúðin er straumlaus, getið þér einnig sjálf skipt um vör fyrir íbúðina í aðaltöflu hússins. 6Ef um víðtækara straumleysi er að ræða skuluð þér hringja í gæslumann Raf- mangsveitu Reykjavíkur. Bllanatilkynningar i síma 18230 allan sólarhringinn. Á aðfangadag og gamlársdag til kl. 19 einnig í símum 86230 og 86222. Vér flytjum yður beztu óskir um Gleðileg jól og farsæld á komandi ári, með þökk fyrir samstarfið á hinu liðna. F/3 RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR HIIHIBk t Geymið auglýsinguna. Ný bók um baráttu alþýðunnar eftir Einar Olgeirsson komin út Mál og menning hefur sent frá sér nýja bók eftir Einar Olgeirsson sem nefnist Uppreisn alþýöu. betta er ritger&asafn frá árunum 1924-39ogumþauár. Þaö Umabil er vafalaust merkast og afdrifarikast i sögu Islenskrar verkalýðshreyfingar.og þvi hefur veriö sifellt meiri gaumur gefinn á undanförnum árum. Safniö skiptist 1 þrjá kafla, i meginatriöum eftir timaröö. Fyrsti kaflinn takmarkast aö mestu viö árin 1924-28. Annar kaflinn tekur einkum til áranna 1928-30, þess timabils er Einar tekur aö deila á Framsóknar- stjórnina (1927-30) og ritdeila þeirra Jónasar frá Hriflu hefst. Þriöji kaflinn er mikils til bund- inn viö timabil Kommtlnista- flokksins 1930-38. Einar Olgerisson vareinn helsti leiötogi róttækarar alþýöuhreyf- ingar á íslandi allt frá 1924, fyrst i vinstra armi Alþýöuflokksins, siöan i KommUnistaflokknum og sósialistaflokknum. Greinasafni þessu er i senn ætlaö aö vera heimild um baráhtusögu þessa timabils og um ritstörf og póli- tiska hugsun einhvers mikil- hæfasta islensks stjórnmála- manns siöari tfma. Uppreisn alþýöu er papp- irskilja, 315 blaðsiöur, prentuö i Prentsmiöjunni Hólum hf. Kápu- mynd geröi Þröstur Magnússon og myndamót Litróf hf. Smásagnasafn eftir William Heinesen komið út Mál og menning hefur sent frá sér smásagnasafniö Fjandinn hleypur i Gamalfeleftir William Heinesen I þýöingu Þorgeirs Þor- geirssonar. Þetta er önnur bókin i ritsafni þeirra verka Heinesens semennhafa ekki veriö gefin út á islensku og sem Þorgeir Þór- geirsson hefur tekiö aö sér aö þýöa fyrir Mál og menningu. Fyrsta bókin, skáldsagan Turninn á heimsenda, kom út i fyrra. Fjandinn hleypur I Gamalfel (Gamaliels besættelse) komfyrst út á frummáli 1960, en þá stóö skáldiö á meiri háttar tima- mótum. Fyrirbragöiö gefur þetta safn einkar fjölbreytta mynd af sagnagerö þessa einstæöa rit- höfundar. 1 fyrsta hlutanum er aö finna ýmsar af viöamestu og þekktustu smásögum Heinesens, hina ismeygilegu og snjöllu titil- sögu, sögurnar Atlanta, Sálin og Jómfrúfæöing þar sem ein a&al- persónan er skáldiö Einar Bene- diktsson. Annar hlutinn er settur saman úr ljóörænum endur- minningabrotum, einkum frá uppvexti skáldsins i Færeyjum. Siöasti hlutinn er einnig sprottinn upp af sliku umhverfi, en þar eru fornar minningar og æskuleikir umsköpuö f ævintýri og skáld- skap. Þessihluti hefur a& geyma þrjár efnisskyldar sögur, hverja annari fegurri, og meö honum er safniö tengt i býsna samfellda heild. Þorgeir Þorgeirsson er löngu nákunnugur og handgenginn skáldskaparheimi Heinesens, enda eru þýöingar hans rómaöar og bera vitni fágætlega vönduöum listrænum vinnu- brögöum. Fjandinn helypur i Gamalfeler 202 bls., prentuö i Prentsmiöjunni Hólum hf. Kápa og mynd- skreytingar eru eftir Yacharias Heinesen, son skáldsins. Otgáfa bókarinnar, sem og hinnar fyrri, er styrkt af Norræna þýöingar- sjó&num. ,*V •*' i ^ W'i • -V V ír -i ’ »* \ • Laugardagur 23. desember 1978 m«öm Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum gott samstarf á liðnum árum Verkalýðsfélag Norðfirðinga Látið LETUR fjölrita fyrir yður Offset fjölritun er fullkomnasta fjölritun, sem völ er á. GLEÐILEG JÓL! LETUR Offset — Fjölritun — Bókaútgáfa Grettisgötu 2, simi 23857 Blikksmiðjan Vogur h.f. Auðbrekku 65 — Kópavogi Smiðum loftræsti- og lofthitakerfi, stór og smá. Útvegum eða seljum af lager alls konar tæki tilheyrandi loftræsti- og lofthita- kerfum. Framkvæmum alla algenga blikksmiði viðkomandi húsbyggingum o.fl. Smiðum ýmsa hluti úr eir, áli, messing og járni eða stáli. Simar: Verkstjóri, teiknistofa, skrifstofa: 40340 — 40341. — Framkvæmdastjóri: 40342. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum viðskiptin á liðandi ári.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.