Alþýðublaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 2
2 alþýðu- blaðið (Jtgcfandi: AlþýðuHokfcurinn Ritstjóri og ábyrgöarmaöur: Arni Gunnarsson. Aftsetur ritstjórnar er i Síöumúla 11, simi 81866. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverö 2200 krónur á mánuöi oc 110 krónur i lausasöiu. Gerbreytt efnahagsstefna Forsætisráðherra kynnti í ríkisstjórn á mánudag frumvarp til laga um aðgerðir í efnahagsmálum til langs tíma. Vert er að rif ja upp forsögu þessa. Fyrsta desember sl. framkvæmdi rfkisstjórnin efnahagsráð- stafanir sem einasta náðu til þnggja mánaða og voru raunar einasta tilfærslur með peningalaun. Þingf lokkur Alþýðuflokksins vildi standa öðru vísi að málum, svo sem kunnugter. f desembermánuði kynnti Alþýðuflokk- urinn samstarfsflokkum f ríkisstjórn frumvarp til laga um jafnvægisstefnu í efnahagsmálum og samræmdar aðgerðir gegn verðbólgu. Þingf lokkurinn neitaði að af- greiða f járlög, nema afstaða stjórnarf lokkanna til þessa frumvarps lægju fyrir. I f rumvarpinu var að finna lög- bindingu á stef nu, sem lýst haf ði verið í greinargerð með frumvarpinu 1. desember. Þingflokkur Alþýðuf lokksins féllst á að afgreiða f jár- lög fyrir jól gegn því loforði forsætisráðherra að fyrir fyrsta febrúar lægi fyrir frumvarp til laga um lang- tímastefnu í efnahagsmálum. Það frumvarp lá fyrir, svo sem heitið hafði verið og á mánudagsmorgun lagði forsætisráðherra fullbúið frumvarp fram í ríkisstjórn. Það er því ekkert eftir annað en að leggja þetta frum- varp f ram á Alþingi og gera það að lögum. Ljóst er að lykilatriði þessa f rumvarps er að vinna að skipulegri hjöðnun efnahagsmála á Islandi og ná verð- bólgunni þar með varanlega niður. Það er samfélaginu öllu nauðsynlegt, og þá ekki sízt þeim sem lægst hafa launin að ná verðbólgunni varanlega niður. Þar með er útrýmt einhverjum helzta spillingarvaldi undanfarinna ára. Frumvarp forsætisráðherra er í öllum meginatrið- um hliðstætt frumvarpi því, sem Alþýðuflokkurinn kynnti í desember og sem ríkisstjórnarflokkarnir höfðu fallizt á í greinargerð 1. desember. I því er í sjálfu sér ekkertsem kemuráóvart. Þessar hugmyndir hafa verið ræddar í smáatriðum á milli núverandi stjórnarflokka allt f rá því umræður um stjórnarmyndun hóf ust sl. vor. Alþýðublaðið telur, að í raun sé ekki eftir neinu að bíða. Islenzk þjóð verður að brjótast út úr brjáloðu verð- bólguástandi undanfarinna ára, og í því skyni verður þjóðin að leggja á sig nokkrar fórnir um sinn, á meðan verið er að vinna bug á þessu ástandi. Það sem er fórn til skamms tíma, er varanleg trygging til langs tíma. Það má ekki gleymast hvers konar ástand var í landinu þeg- ar núverandi ríkisstjórn tók við völdum. Atvinnuvegirn- ir voru við það að stöðvast, verðbólgan brjálaðri en nokkru sinni fyrr, og verðbólgan ásamt með skuldasöfn- un erlendis á góðri leið meðað steypa f járhagslegu sjálf- stæði þjóðarinnar í glötun. Ot úr þessu ástandi verður að brjótast. Frumvarp til laga um langtímaráðstafanir í efnahagsmálum gengur út á það að ríkisvald, sem hef ur traust vítt og breitt um samfélagið, gangi á undan og hef ji slíkar aðgerðir. Verði f rumvarp þetta að lögum, sem engin ástæða er til að ef- ast um, er þetta sennilega mesta umbylting i efnahags- málum síðan haftakerfið var afnumið á árunum upp úr 1960. Það er eðlilegt að talsmenn stjórnmálaf lokkanna gusi einhverju út úr sér þegar þeir standa frammi fyrir þeirri ákvörðun að hrökkva eða stökkva, að standa að aðgerð- um, sem vissulega verða erfiðar fyrst í stað en sem eru þjóðarnauðsyn, þegar til lengri tíma er litið. Mikil rót- tækni er aldrei auðveld. En þrátt fyrir skapmiklar yfir- lýsingar er engin ástæða til þess að efast um að frum- varp um efnahagsaðgerðir verður lagt fyrir Alþingi á allra næstu dögum og verður gert þar að lögum. Það verður mikið gæfuspor. Því hefur verið haldið fram, að í þessu frumvarpi sé lagt út í svo harðar aðhaldsaðgerðir, að atvinnuöryggi sé stefnt í voða. Þetta er auðvitað misskilningur. Frum- varpið hefst á þeirri markmiðslýsingu, að umfram allt verði að vernda atvinnuöryggi. Lykilhugsun frumvarps- ins er að brjótast út úr verðbólgunni með því að endur- skipuleggja íslenzkan þjóðarbúskap frá grunni, meðal annars með þvi að koma á raunvöxtum. Það er verið að leggja til gerbreytta efnahagsstefnu. Verðbólguþjóðfélagið er að þrotum komið. Samfélagið er íhættuogfólkiðer hrætt. Þess vegna þurfum við gerbreytta efnahagsstefnu. Miðvikudagur 14. febrúar 1979 KSr I tilefni af Barnaárinu 1979 Heimilið byggist á samheldni þeirra ein- staklinga er mynda það. Fjölskyldan er þannig undirstaða samfélagsins. Alþýðu- hreyfingin verður þvi að styðjá uppbyggingu heimilanna, svo að þau geti verið nokkurs konar uppeldisstöðvar hinna uppvaxandi kyn- slóðar, áður en hún heldur sina leið út i lifið. Hvort heimilin ná þvi markmiði að vera góður uppvaxtarstaður fyrir barnið, er að verulegu leyti komið undir fjárhagsstöðu fjölskyldunnar hibýl- um hennar og menn- ingarháttum. Nú á timum er það að verulegu leyti konan, sem ber ábyrgð á upp- eldi barnanna. 1 samfé- lagi jafnaðarmanna verður hins vegar að sjá svo um, að allir fullorðnir beri sinn skerf af ábyrgðinni á uppeldi uppvaxandi kynslóðar. Börn og unglingar þurfa að fá aðgang að hvaða störfum sem er, án tillits til hinna gömlu hlutverkaskipt- ingar kynjanna. Uppeldi sem miðar að jafnrétti Verkaskipting sam- félagsins hefur farið mjög eftir kynjum. Stúlkur eru snemma látnar hjálpa til við heimilisverk og piltarnir utan húss. Þessi verkaskipting kynjanna takmarkar möguleikann til gagn- kvæms skilnings. Með verkaskiptingu á heim- ilinu læra bæði kynin að leysa verkefnini félagi, jafnframt þvi að efla skilning og gagn- kvæma virðingu fyrir störfum annarra. Með þvi að hjálpast að, getur fjölskyldan gert heimilið að mikil- vægum vettvangi i uppeldi bamsins. Það getur enginn lagt sitt af mörkum til málefna heildarinnar, sem ekki hefur byrjað á þvi i litl- um hópi. Við viljum beita okkur fyrir: — að það verði komið á stöðugri upplýsinga- miðlun um þá aðstoð og hjálp, sem samfélagið getur veitt fjölskyld- unni á hinum ýmsu sviðum. — en þessi aðstoð verði við það miðuð að fjölskyldan verði fær um að ráða sjálf fram úrvandamálum sinum, það er að segja, verði sjálfri sér nóg að sem flestu leyti. — að samfélagið noti fjölmiðla, skóla og ann- að það, sem að gagni má koma, til að brjóta hina hefðbundnu verka skiptingu kynjanna. Sementsverksmiðjan framleiðir ekki nóg fyrir innanlandsmarkað AriB 1978 voru framleidd 95.900 tonn af sementsgjalli hjá Sementsverksmi6ju/ rikisins og 133.500 tonn af sementi. Skiptist framlei6sla sements þannig, aö framleidd voru 104.600 tonn af portlandssementi og 28.900 tonn af hraösementi. Þar sem notkun sements innanlands er verulega meiri en afkastageta ofnsins á Akranesi, varö aö flytja inn 26.300 tonn af sementsgjalli erlendis frá. Erlenda gjalliö var síöan malaö og úr því framleitt hraösement i verksmiöjunni á Akranesi. Sala sements varö alls 130.455 tonn, þar af voru 100.390 tonn portlandssement, 29.990 tonn hraösement og 75 tonn af hvitu og lituöu sementi. Eins og undanfarin ár veröa reikningar Sementsverksmiöj- unnar birtir, þegar þeir liggja fyrir. Jafnaðar- menn! Gerist áskrif- endur að málgagni ykkar Alþýðublaðinu, strax í dag Ársháti'd A1 þýðuflokksfél agann a á Akureyri verður haldin laugardaginn 17. febrúar i Alþýðuhúsinu. Hátiðin hefst kl. 19.00 með sameiginlegu borðhaldi. Margt verður til skemmtunar. Miðar verða seldir á skrif- stofu félagsins i Strandgötu miðvikudag- inn 14. febrúar og fimmtudaginn 15. febrúar kl. 20.00 til 22.00 Fjölmennið Norrænir styrkir til þýðingar og útgáfu ' ^ Nordurlandabókmennta Fyrrl úthlutun 1979 á styrkjum til útgáfu norrœnna bók- mennta i þýöingu af einu Noröurlandi á annaö fer fram á fundi úthlutunarnefndar 7. — 8. júni n.k. Frestur til aö skila umsóknum er til 1. APRIL N.K. Tilskilin umsóknar- eyöublöö og nánari upplýsingar fást i menntamálaráöu neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, en umsóknir ber aö senda til NABOLANDSLITTERATURGRUPPEN, Sekre- tariatet for nordisk kulturelt samarbejde, Snaregade 10, DK- 1205 Köbenhavn K. Menntamálaráöuneytiö, 7. febrúar 1979. -ath. =1- aoglýsingasíma 8-18-66

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.