Alþýðublaðið - 14.02.1979, Síða 4
mjTOEDi
bladíó
Cftgefandi Alþýöuflokkurinn
Ritstjórn og auglýsingadeild Alþýðublaðsins er að Siðu AAiðvikudagur 14. febrúar 1979
múla 11» sími 81866.
Um siðustu helgi var
haldið á Hellu i Rangár-
vallasýslu þing Alþýðu-
sambands Suðurlands.
Formaður sambandsins
var kjörinn Hreinn
Erlendsson frá Selfossi.
Varaformaður var kjör-
inn Hilmar Jónsson frá
Hellu.
Alþýðublaðið hafði
samband við nýkjörinn
formann Alþýðusam-
bands Suðurlands, og
spurði hann álits á því,
hvort rétt væri sem
fram kæmi i Þjóðvilj-
anum, að hér væri um
hægri stjórn að ræða.
Hreinn sagöi aö allt slikt tal
væri að sjálfsögðu út I hött.
Sjálfur væri hann flokksbundinn
Alþýðuflokksmaöur og hefði verið
i framboöi fyrir hann. Aðrir
stjórnarmenn væru ekki flokks-
bundnir utanHihnar Jónsson sem
væri sjálfstæðismaöur.
— Eru mörg verkefni fram-
undan hjá ykkur?
„Þau eruþað að sjálfsögðu. Ég
vil þó taka fram aö Sambandið
var f góðum höndum áður, þannig
að ekki er tekið við af neinni
ólestrarstjórn.”
— Var mikil harka i þessu
þingi?
„Ekki nema I kosningunum.
Alþýðubandalagsmenn sýndu
mikla óbilgirni, og voru ekki til
viðtals um neina samvinnu á
sanngirnisgrundvelli. Þeir kröfð-
ust miklu stærri hluts i stjórninni,
en styrkur þeirra i verkalýðs-
félögunum á Suðurlandi gefúr til-
efni tiUReynt var til hins ýtrasta
að ná sáttum, en á þvi höföu þeir
Alþýðubandalagsmenn engan
áhuga.”
— Var samþykkt eitthvað um
stuðning við rfkisstjórnina á þing-
inu?
„Já það má túlka eina sam-
þykkt sem þar var gerö sem
stuðningsyfirlýsingu.”
— Eitthvað sem þú villt taka
fram að lokum, Hreinn?
,,Já ég vildiláta þaðkoma skýrt
fram, aö ég tel að eitt mikil-
vægasta verkefnið sem fram-
undan er hjá okkur sé fræðslu-
málin. AB þeim málaflokki þarf
að vinna ötullega, og efia þá
starfsemi eins mikið ogkosturter
i nánustu framtið.”
—L
Ný stjórn Alþýðusambands Suðurlands
Fræðslumálin mikilvægasta verkefnið
— sagði Hreinn Erlendsson nýkjörinn formaður fll-
þýðusambands Suðuriands í viðtali við Alþýðublaðið
Kennarar í Þinghólsskóla
styðja kennaranema
A fundi i Kennarafélagi Þinghóls-
skóla sem haldinn var þann
7.2.1979 var eftirfarandi ályktun
gerð:
Kennarafélag Þinghólsskóla
sty ður einhuga þær aðgerðir, sem
nemendur Kennaraháskóla ís-
lands standa fyrri þessa dagana.
Mikilvægi góðrar kennara-
menntunar ætti að vera yfirvöld-
um menntamála betur ljóst en
raun ber vitni, hún er hagsmuna-
mál allra landsmanna engu síður
en kennarastéttarinnar. Nú sker
rikisvaldið niður framlög til KHl,
á þeim tima sem skólinn stendur i
breytingum sem færa eiga
kennaramenntunina í það horf að
samræmast hlutverki sinu sam-
kvæmt hinum nýju Grunnskóla-
lögum, en með þessu gera yfir-
völd óframkvæmanlegar eigin
skipanir. Með þessari ályktun
skorum við á öll þau öfl, sem telja
kennaramenntunina eitt hags-
munamál, að styðja viö bakið á
þeim sem standa i forystu fyrri
framförum á þessu sviði.
F.h. Kennarafélags Þinghóls-
skóla,
ArsællMásson
Frá útflutningsmiðstöð iðnaðarins
Mesta aukningin í skinnaiðnaði
Otflutningur iönaðarvara nam
á árinu 1977 34.8 milijörðum
króna og hafði þá aukist úr 22.3
milljöröum árið áður eða um
56%.
Af þessu var ál og álmelmi
rúmlega 77 þús, tonn á 23,6 millj-
arða en hafði verið 74 þús. tonn á
14,9 milljarða áriö áöur. Verö-
mætaaukning nam þvi 58% en
magnaukning 4%.
Otflutningur iönaðarvara án
áls nam samtals 11,2 milljöröum
kr. enhafði verið 7.4 Aukning I út-
flutningi hinna ýmsu iðnaðarvara
landsmanna án áls hefur þvi
numið 51%.
Mesta aukning í magni og verð-
mæti var i skinnaiönaði, en þar
var aukningin 78% i verðmæti úr
1092m, kr. í 1974 m, kr. en magnið
jókst um 23%.
Aukningin bæði 1 magni og
verðmæti milli áranna 1977 og ’78
var i lagmetisiönaði, en útflutn-
ingur hans jókst í verðmæti úr
1206 m.kr. i 2000 m.kr. eða um
67% en magnið jókst um 7%
Eins og áöur er ullariðnaðurinn
langstærsta útflutningsgreinin og
jókst útflutningur ullarvara úr
3441 m.kr. i 4529 m.kr. eöa um
32%. Hér varö aftur á móti mikill
samdráttur f magni, samtals 128
tonn. Hér munar mest um sam-
drátt á Sovétmarkaði er nam
samtals 193 tonnum.
Kisilgúrútflutningur dróst lítil-
lega saman af ástæðum sem öll-
um eru ljósar nú voru flutt út
rúmlega 20. þús, tonn á 226 millj.
kr..
Samtais nemur útflutningur
ofantaldra vörutegunda um 9.9
milljörðum króna.
1.3milljarðar skiptast svo milli
fjölmargra jjörutegunda. Þar ber
alveg sérstaklega að nefna út-
flutning Hampiöjunnar, sem
rúmlega þrefaldaöist að verð-
mæti og nemur 343.2 m.kr.. Þá
ber og aö nefna þangmjöl, sem
var flutt út fyrir 278 m.kr., máln-
ing og lakk fyrir um 269 m.kr. og
pappaumbúðir fyrir um 187 m.kr.
Útflutningur annarra vöruhópa
náði ekki 100 m.kr.
Útflutningur ullar- og skinnavara
1978.
Heildarútflutningur ullar- og
skinnavöru nam á árinu 1978
samtals 6.662 milljónum króna,
og hefur þvl aukist um 46%, eða
2.085 milljónir króna á árinu. Út-
flutningur þessara vörutegunda
1977 nam 4.577 milljónum króna.
Þróunin'I útflutningi ullar- og
skinnavara á árunum 1976, 1977
og 1978 er sem hér segir:
Vörur unnar úr ull
1976 1977 1978
T;onn: 882,4 1.146.7 605.?
Loðskinn og vörur úr þeim
Tonm 695,9 1.018.8 755.3
Eins og hér kemur fram hefur
útflutningur skinnavara aukist að
magni til um ca. 25% en 11% sam-
drattur hefur átt sér stað i út-
flutningi vara úr ull.
Útflutningur skinnavara er að
langmestu leiti forsútaðar gærur
og munar hér mestu um hvernig
útflutningur skiptist milli ára.
Það sem hins vegar setur
mestan svip á útflutning ullar-
vara á árinu 1978 er samdratt-
urinn I viðskiptum við Sovétrlkin.
Samtals var útflutningur á ullar-
fatnaöi til Sovétrfkjanna 270 tonn
áriö 1977 en einungis 77 tonn 1978.
Salan á vestrænum markaði jókst
um 10% og varö 253 tonn en hafði
verið 229 tonn áriö 1977. Meöal-
útflutningsverö á ullarfatnaði pr.
kg. nam hins vegar 8.415 kr. og
hafði hækkað úr 4.820 eða um
75%. Hér munar aö sjálfsögðu
mest um innbyrðis hlutföll milli
einstakra markaða en áriö 1977
hafði tiltölulega mikið magn farið
til Sovétrikjanna á hlutfallslega
lágu verði.
Útflutningur á lopa og bandi
jókst um 35 tonn og nam 459 tonn-
um. Útflutningur á værðarvoðum
jókst um 15 tonn og nam 193,8
tonnum. Af þessu magni fara nú
um 26,5 tonn á vestræna markaði
og hefur það magn þrefaldast
rúmlega frá árinu áður.
Markaðshorfur á árinu 1979 eru
góðar. Nú þegar hafa veriö gerðir
stórir samningar við Sovétmenn
um sölu þangað. Söluundirbún-
ingur á vestræna markaöi hófst
snemma og má segja að salan sé
komin i fullan gang.
Að vanda veltur mjög á þvi að
sölutimabil hefjist snemma og að
framleiðslutlmabil fullnýtist.
Undanfarin ár hefur varla brugö-
ist að allir framleiðendur hefðu
nóg aö gera þegar liða tekur á
framleiðsluáriö. Vandinn er hins
vegar sá, að fullnýta framleiðslu-
getuna fyrrihluta tlmabiisins og
að sérhverjum framleiöanda tak-
ist að koma sinni vöru nógu
snemma. Eftir ákveðinn tima er
ekki unnt aö koma nýjum geröum
að allar endurpantanir beinist að
vöru, sem keupendur hafa þegar
kynnst.
Hér er i rauninni verið aö lýsa
vanda iðnaðar, þar sem salan er
skipulögð I tveimur tlmabilum á
ári hverju, en framleiðslan Is-
lenska tekur aðeins mið að öðru
tlmabilinu. Þessvegna eykst i si-
fellu þörfin fyrir sumarvöru, sem
komi fram á haustin og jafni
framleiðsluna. Þegar verðum við
vör við aðgerðir I þessa átt en i
raun og veru þarf hér að gera
stórt sameiginlegt átak I vöru-
þróuninni.
1 9 7 7 1 í 7 8 Breyt.í %
VÖRUFLOKKAR
MAGN VERÐ MAGN VERÐ MAGN VERÐ
HEILDARÚTFLUTN. 533.935.5 101.889.3 628.415.0 176.285.7 18 73 j
Heildarútflutn. iönaðarvara 101.769.6 22.341.5 106.266.9 34.844.9 4 56
Í1 og álmelmi 74.265.7 14.933.1 77.389.5 23.652.0 4 58 í
Otflutn. án áls 27.503.9 7.408.4 28.877.4 11.192.9 5 51
Kísilgúr 20.985.1 830.6 20.019.8 1.226.0 - 5 48
iNiðursoðnar eða niðurlagðar sjávarafurðir 1.702.0 1.206.4 1.815.9 1.999.9 7 66
;Loðsútuð skinn og húðir 594.7 1.092.3 734.0 1.947.3 23 78
Vörur úr loðskinn. 10.5 157.6 7.5 182.4 - 29 16 j
Gærusneplar 26.1 2.6 13.8 3.2 - 47 23 '
Prjónavörur úr ull aðallega 499.3 2.405.8 329.7 2.774.4 - 44 15 '
Ytri fatnaður nema prj ónafatnaður 16.5 116.0 17.0 217.7 3 88
Ullarlopi og jullarband 424.4 605.9 458.9 1.005.3 8 6 6 .
jUllarteppi 179.5 264.2 193.8 465.4 8 76
jönnur vefavara 27.0 49.1 19.4 66.0 - 28 34 j
jMálning og lökk 1.225.7 258.7 1.016.8 268.8 - 17 4 '
íPappaumbúðir 766.4 121.1 858.4 186.6 12 54 '
Vélar og tæki 13.8 31.8 17.5 83.2 27 162 ;
Fi.skilínur ,kaðlar og net alls konar 174.3 106.2 328.6 343.2 89 22 3
Húsgögn úr tré og málmi 10.2 7.1 4.1 7-0 i i
Skrautvörur úr !
leir,silfur og gul1smíðavörur 18.0 28.2 . 13.0 32.3 1 1
Þangmjöl Plastpokar og 687.7 44.3 2.933.3 278.2 1 1
plastmunir Prentaðar bækur 89.3 35.9 65.2 48.5 - 27 35 |
Dg prentmunir ^ðrar vörur 24.2 32.8 17.6 47.2 1 i
í flokki 89 29.2 11.7 13.1 10.3
I