Alþýðublaðið - 22.02.1979, Blaðsíða 4
alþýou
blaöið
Cftgefandi Alþýöuflokkurinn v
Ritstjórn og auglýsingadeild Alþýðublaðsins er að Siðu ' Fimmtudagur 22. febrúar 1979.
múla 11, simi 81866.
Frumvarp til laga um
Stjórn efnahagsmála
og ráðstafanir til þess að draga úr verðbólgu
og stuðla að framförum í þjóðarbúskapnum
þriðji hluti
Um 25. gr.
Hér er gerö tillaga um viðmiö-
un fyrir aukningu peningamagns
á næstu tveimur árum. Peninga-
magn má skiigreina með ýmsum
hætti. í þrengri skilgreiningu er
átt viö samtölu seðla og myntar i
umferð og veltiinnlána, þ.e. inn-
stæðna á sparifjárávisanareikn-
ingum og hlaupareikningum. Er
einkum miðað viðþað hugtak hér
Auk þess má svo vikka hugtakið
og bæta þá viö innstæöum á al-
mennum sparifjárbókum. I við-
asta skilningi er svo loks bætt við
bundnum sparifjárinnstæðum.
Vegna þess aö ýmsar utanaðkom-
andi breytingar geta haft áhrif á
þessa stærð, veröur hér að vera
um stefnuyfirlýsingu að ræöa,
fremur en alveg ákveðið mark.
Hins vegar er það ákveðinn vilji
rikisstjórnarinnar, að peninga-
málum verði beitt á virkari hátt
en verið hefur til viðnáms gegn
veröbólgu. Til þess aö svo megi
verða þarf að gera breytingar á
nokkrum helstu stjórntækjum
peningamála, auk þess sem jafn-
vægi i rikisfjármálum er mikil-
væg forsenda þess að aukning
peningaframboðs sé hófleg.
Um 26. gr.
1 þessari grein eru geröar til-
lögur um breytingar á laga-
ákvæðum um bindiskyldu inn-
lánsstofnana i Seðlabankanum.
Breytingin er þriþætt: I fyrsta
lagi er tenging bindiskyldunnar
við endurkaup Seðlabankans á af-
urðalánum felld úr lögum, en
þessi tenging hefur dregið mjög
ur möguleikum þess að nota
bindiskylduna til aö hafa áhrif á
peningaframboð og útlán banka-
kerfisins, sem er megintilgangur
innlánsbindingarinnar. Endur-
kaup afurðalána er hægt að fjár-
magna á ýmsan annan hátt, m.a.
að hluta með erlendum lánum,
sem er nærtækt nú, þegar upp
hefur veriö tekin gengistrygging
ásamt lágum vöxtum af þessum
lánum. 1 ööru lagi er'lagt til, að
hámarkshlutfall bundinna inn-
stæöna, sem verið hefur 25%,
verði hækkað i 30%. Sé hlutfalliö
lægra, getur Seðlabankinn ákveð-
iö aö greiöa beri hærra hlutfall af
innlánsaukningu, þar til hámark-
inu er náð. En i þriöja iagi er ein-
mitt lagt til i ákvæði til bráða-
birgða, að þetta jaöarhlutfall
verði fyrst um sinn 35%, eða þar
til annað veröur ákveðiö. Með
þessu móti væri peningatækjum
beitt á móti straumi verðbólg-
unnar þegar i staö.
Um 27. gr.
1 þessari grein er .lagt til að
bætt verði I Seðlabankalögin
ákvæði um viðmiðun gengis-
skráningar islensku krónunnar á
hverjum tima. Brýnt er að þessi
almenna viðmiðun sé bundin i
lög, þegar um jafnmikilvægt hag-
stjórnartæki og gengisskráningu
er að ræða,
Um 28. gr.
I þessari grein er gerð tillaga
um þaö, að tekin verði upp I
áföngum á þessu og næsta ári al-
menn verötrygging, en vextir
verði jafnframt lækkaðir. Hin öra
verðbólguþróun hérlendis að
undanförnu hefur eðlilega leitt til
þess, að ieitaö er leiöa tii þess aö
leiörétta skekkju af völdum verð-
bólgunnar á ýmsum sviðum efna-
hagslifsins. En tilfærsla eigna frá
þeim, sem skulda i peningum
með vöxtum, sem liggja undir
hraða verðbólgunnar, til hinna.
sem geyma fé sitt á vöxtum undir
verðbreytingum, er ef til vill einn
alvarlegasti fylgikvilli veröbólg-
unnar. Auk eignatilfærslu fylgir
þvi ástandi, sem hér hefur rikt.
óhófleg eftirspurn eftir lánsfé og
jafnframt brenglar veröbólga
mat á framtiðargildi fjárfesting-
ar, þegar raunverulegur vaxta-
kostnaður kemur ekki fram i
lánskjörum. Leiöirnar til þess aö
verjast þessu eru tvær: Hækkun
nafnvaxta eöa verðtrygging með
lágum vöxtum. Hækkun nafn-
vaxta og lækkun eftir verðbólgu-
stigi hefur ýmsa ókosti, sem
verötrygging hefur ekki, einkum
ef hraði verðbólgunnar er breyti-
legur. A hinn bóginn er ljóst, að
verðtrygging eftir á hentar ekki i
öllum iánsviðskiptum til skamms
tima. 1 þessari grein er lagt til,
að stefnt verði aö verðtryggingu
— og þar meö jákvæðum en lág-
um raunvöxtum — með vaxta-
ákvörðun Seölabankans á næst-
unni. Hér er um vandasamt verk
að ræða, sem hlýtur að taka nokk-
urn tima að koma á, en i frum-
varpi þessu er mörkuð skýr
stefna i þessu efni.
VI. kafli— Um verðtrygg-
ingu sparif jár og lánsf jár.
Þaö er eitt af markmiðum
rikisstjórnarinnar i peningamál-
um, aö tryggja örugga ávöxtun
sparifjár með þvi að verðtryggja
sparifé landsmanna og almanna-
sjóða. I iögum um verðtryggingu
fjárskuldbindinga nr. 71/1966 er
gert ráð fyrir verulegum tak-
mörkunum á notkun verðtrygg-
ingarákvæða i lánsviðskiptum. 1
tillögum þessa kafla felst, að þau
ákvæði, sem hér er gert ráð fyrir
komi i stað lagá nr. 71/1966.
Það er meginstefna þessara til-
lagna, að tekin verði upp sem al-
mennust verðtrygging á inn- og
útlánum. Með samþykkt þeirra
væru þvi sett almenn lagaákvæði
um ákvörðun verðtryggingar,
bæði i viðskiptum innlánsstofn-
ana og utan þeirra, en nánari
reglur varðandi verðtryggingu
yröu settar af Seölabankanum
með sama hætti og vextir eru
ákveðnir. Gert er ráð fyrir þvi, að
verðtrygging útlána verði einkum
með þeim hætti, aö verðbótaþátt-
ur vaxta er leggist viö höfuðstól
láns i lok hvers vaxtatimabils.
Þetta hefur þau áhrif, að raun-
verulegri greiðslubyrði afborg-
ana er dreift sem jafnast á láns-
timann.Þessi aðferð er þó ekki
framkvæmanleg, að þvi er varöar
viöskiptavixla, og verður þvi að
taka tillit til verðtryggingar við
ákvörðun forvaxta og verðbóta-
þáttar þeirra.
Þau lánskjör, sem þannig yröu
ákveðin fyrir innlánsstofnanir,
yröi einnig heimilt að nota i öllum
sambærilegum viðskiptum aðila
utan bankakerfisins. 1 reynd yrði
þvi heimilt aö taka upp almenna
verðtryggingu i lánsviðskiptum
t.d. sem tengd eru kaupum og
sölum á fasteignum, framleiöslu-
tækjum eöa öðrum varanlegum
verðmætum. Slík verðtryggö við-
skipti yrðu háö þeim reglum,
sem Seðlabankinn setur um þau
efni. 1 tillögunum er gert ráö fyrir
sérstökum reglum um lánskjör
fjárfestingarlánasjóða og um
heimildir lifeyrissjóða til að veita
verðtryggð lán, en lifeyrissjóöum
yrði að sjálfsögðu einnig heimilt
aö veita lán með sömu kjörum og
innlánsstofnanir.
1 tillögunum eru aimenn ákvæði
um helstu skilyrði, sem reglur
um verðtryggingu verða að full-
nægja. Gert veröur ráð fyrir þvi
sem meginstefnu, aö verðtrygg-
ing miðist viö opinbera, skráða
vísitölu, en einnig yröi heimilt að
leyfa verötryggingu, er miöist
t.d. við gengi erlends gjaldeyris,
breytingu á tilteknu vöruveröi
eða visitölu, sem byggist á
meðaltali nokkurra verðþátta.
Meöal formskilyröa, sem sett eru
fyrir verötryggingu, má nefna, aö
verðtryggt sparifé, kröfur og
skuldbindingar séu ætiö skráðar
á nafn, og aö getið sé verðtrygg-
ingar, þegar skuldbindingar eru
færðar i veðmálaskrár og á veö-
bókarvottorð.
Almenn upptaka verðtrygging-
ar sparifjár og lánsfjár hefur
áhrif á ýmis önnur atriöi, sem
taka verður til endurskoðunar.
Má þar nefna, að verðtrygging
krefst samræmingar á ákvæðum
skatta- og bókhaldslaga um
endurmat eigna og meðferö verð-
bóta. Þá verður nauðsynlegt aö
heimila endurmat vörubirgða i
samræmi viö verðlag.
Um 29. gr.
Það er meginstefna þessara til-
lagna að heimila verötryggingu
sparifjár og lánsfjár, eftir þeim
reglum, sem koma fram I tillög-
um þessa kafla og ætlaö er aö
tryggja sanngjarna og örugga
framkvæmd. t 29. gr. er veitt al-
menn heimild til verðtryggingar
og þar meö fallið frá þeirri nei-
kvæðu framsetningu, sem ein-
kennir 1. gr. 1. 71/1966. Einnig er
fallið frá hinni rúmu skilgrein-
ingufjárskuldbindinga, sbr. 1. gr.
1. 71/1966 og gildissviðið tak-
markað við hreinar fjárskuid-
bindingar eða peningalánsvið-
skipti, án ihlutunar i verðmyndun
raunverðmæta.sbr. og 1. mgr. 30.
gr. frumvarpsins, og öll slik við-
skipti við banka, þ.m.t. innlán.
Hugtakið verðtrygging er tekiö
i viðri merkingu og á við hvers
konar tilvik, þar sem um er að
ræöa, að greiösla eöa fullnæging
fjárkröfu sé tengd breytingu á
visitölu, vöruverði, gengi gjald-
eyris, þegar það á við i endurlán-
um eöa annarri viðmiðún.
Um 30. gr.
Gildissvið ákvæða þessa kafla
er takmarkað við skriflegar
skuldbindingar, sem tilgreindar
eru I peningum, hvort sem stofn-
að er til þeirra með beinni lán-
töku, óviðkomandi öðrum lög-
skiptum aöila, eöa þá að þær
standa eftir aö afloknum skilum
efnislegra verðmæta eða þjón-
ustu, er aðilar hafa samið um, t.d.
eftirstöðvar kaupverðs húsnæðis
eða bifreiðar.
Um31.gr.
Ljóst er, að með tillögunum, ef
að lögum verða, er fariö inn á
svið, þar sem erfitt er að sjá fyrir
um ýmis tæknileg atriði. Er óum-
flýjanlegt að fela opinberum aðila
eftirlit með framkvæmd laganna
og veitingu heimilda um verö-
tryggingu. Seðlabankanum er
áfram falið að hafa þetta verk-
efni meö höndum. Honum hefur
verið falin yfirumsjón peninga-
máia og fengið I þvf sambandi
m.a. ákvörðunarvald um vexti,
bæði innan bankakerfisins sem
utan. Likt er farið um vexti og
verðbætur. Við framkvæmd lag-
anna yrði bankinn að ákveða
vaxtakjör í verðtryggðum samn-
ingum með hliðsjón af aðstæðum
hverju sinni, þ.á m. verðtrygg-
ingu þeirri, sem um er aö ræða og
timalengd samninga. Ætla má, að
vextir i verðtryggðum samning-
Framhald á bls. 2:
Tekiö á móti gestum að búlgörskum sið
Dansarar sýndu búlgarska þjóðdansa
Hótel Loftleiðir kynnir Búlgaríu næstu daga
STOFNUÐ VERÐA VINATTUSAM-
TÖK (SLANDS OG BÚLGARfU
A fundi meö fréttamönnum s.l.
þriöjudag kom fram aö hinn 22.
febrúar hefet á Hótel Loftleiöum
Búlgariukynning sem mun
standa i 11 daga, eða til og með 4.
mars n.k. Þaö er Ferðaskrifstofa
Kjartans Heigasonar ásamt Hótel
Loftleiðum sem standa mun fyr-
ir kynningu, en þátttakandi er
einnig Grand Hotel i Varna i
Búlgarfu sem leggur til
matreiðslumeistara sinn, Ivan
Mitev, og aðstoðarstúlku hans,
sem einnig er frægur matreiðslu-
meistari. I tilefni BUlgariukynn-
ingarinnar er nú staddur hér á
landi hótelstjórinn á Grand Hotel
Varna. Atanas Gugley, en auk
hans er hér 13 manna hópur
sem tekur þátt i Búlgörsku kynn-
ingunni. Fyrirliðinn er StÚian
Petrof, túlkur er Anne
Anguelova. Þá eru i hópnum þrir
tónlistarmenn, sem leika undir
söng og þjóðdönsum og ennfrem-
ur fyrir dansi i Vikingasal. Alls
eru dansarar sex, og þeir sex-
menningarnir munu sýna
þjóðdansa frá hinum ýmsu
héruðum Búlgariu. A Búlgariu-
kynningunni verða að sjálfsögðu
þjóölegir búlgarskir réttir á
boðstólum i Vlkingasal Hótel
Loftleiöa og munu þar leggja
saman snilli sina þau Ivan Mitev,
yfirmatsveinn á Grand Hotel
Varna, Elefterka Dimitrova, og
Þórarimi Guölaugsson yfirmat-
sveinn á Hótel Loftleiöum og hans
lið. Búlgörsk vin, hvitvin og
rauðvin, verða á boðstólum, en
búlgarar eru þekktir fyrir vand-
aða vinframleiðslu. Það eru þeir
Emil Guðmundsson aöstoðar-
hótelstjóri að Hótel Loftleiðum og
Kjartan Helgason forstjóri sem
boriö hafa hita og þunga undir-
búnings Búlgariukynningarinnar
hér á landi.
1 Grand Hotel Varna er nokkur
hluti hótelsins sérstaklega út-
búinn til heilsuræktar. Yfirmaður
þar er Dr. Mariam Vartanian og
er hún stödd hér á landi meö
hópnum um þessar mundir.
Flestír gestir i Grand Hotel
Varna nota einhvern hluta dvalar
sinnar til heilsuræktar.
Aö kveldi miðvikudags 28.
febrúar mun verða efnt til fundar
i Vikingasal Hótels Loftleiða og
þar verða stofnuð vináttusamtök
Islands og Búlgariu.
Sem fyrr segir leikur búlgarskt
trió við sýningar listafólksins og
ennfremur fyrir dansi að sýn-
ingaratriðum loknum. Búlgariu-
kynningin hefst sem fyrr segir 22.
febrúar og lýkur 4. mars.
Á fundinum var fréttamönn-
um gefinn kostur á að sjá og
heyra og einnig bragöa á þvi sem
væntanlegum gestum hótelsins
verður boðið upp á og veröur að
seg jastað hér sé um mjög vandað
prógramm að ræða þannig aö
fólki ætti ekki að leiðast sem legg-
ur leið sina á Búlgariukynning-
una að hótel Loftleiðum næstu
daga.