Alþýðublaðið - 16.03.1979, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 16.03.1979, Qupperneq 4
Útgefandi Alþýöuflokkurinn Ritstjórn og auglýsingadeild Alþýðublaðsins er að Síðu- múla 11, sími 81866. Föstudagur 16. mars 1979 Heilbrigðisþjónusta við aldraða verði könnuð Jóhanna Sigurðardóttir leggur fram þingsályktunartillögu ásamt þremur öðrum þingmönnum Alþýðuflokksins um að svo verði gert Lögð hefur verið fram þingsályktunartillaga um könnun á heilbrigðis- og félagslegri þjónustu fyrir aldraða. Flutningsmenn eru, Jóhanna Sigurðar- dóttir, Bragi Níelsson, Arni Gunnarsson og Gunnlaugur Stefánsson. Tillagar hljóðar svo: Alþingi ályktar aö skora á rlk- isstjórnina aö láta fara fram könnun á heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða með tilliti til bæði félagslegra og heilsufarslegra sjónarmiða. Sérstaklega skal athugaö að koma á samræmdu skipulagi þessara mála, sem byggðist á samstjórn og samræmingu allra þátta heilbrigðis- og félagslegr- ar þjónustu viö aldraða, — sem gæti auðveldað yfirsýn yfir brýnustu þörf á sjúkrahúsvist, langlegudvöl, heimahjúkrun, heimilisþjónustu og dvalar- Þó að mikiö hafi verlð gert hér á landi til að beta heilbrigðis- og félagslega þjónustu við aldraða, þá á enn mjög langt I land að aldraðir búi við þá heilsugæslu og ýmsa félagslega þjónustu sem þeirn er nauðsynleg. Hjúkrunardeild Hátúni lOb: Hús þetta er eitt af þeim stofnunum er veitir öldruðum heiibrlgðisþjónustu. heimilum fyrir aldraöa, auk þess sem það gæti tryggt hag- kvæmni á ýmsum sviðum. A grundvelli sllkra kannana skipi heilbrigðis- og trygginga- málaráðherra nefnd til að gera tillögur um umbætur og sam- ræmingu á heilbrigðis- og fé- lagslegri þjónustu aldraöra — og skulu þær tillögur liggja fyrir eigi siðar en I árslok 1979. 1 greinargerð með frumvarp- inu segir: Þó aö mikið hafi verið gert hér á landi til að bæta heilbrigð- is- og félagslega þjónustu við aldraöa, þá á enn mjög langt i land að aldraðir búi við þá heilsugæslu og ýmsa félagslega þjónustu sem þeim er nauðsyn- leg. Vandamál aldraðra sjúkra eru llka oft á tlðum viðkvæm og vandmeðfarin. Þættir heilbrigðis- og félags- legrar þjónustu við aldraöa gera verið margvlslegir og oft mjög samofnir. Má þar nefna öldrunarþjónustu I formi skammtíma innlagnar á öldrun- ardeild, sem í felst endurhæfing hvers konar svo og nauðsynleg lyfjameðferð, — göngudeildar- starfsemi, — dagspitalar þar sem sjúklingar koma nokkra tlma á dag tvisvar til þrisvar I Jóhanna Slgurðardóttir: fyrsti flutningsmaöur þingsólyktun- artillögunnar um könnun á heil- brigðis- og félagslegri þjónustu fyrir aldraða. viku og fálæknisfræðilegt eftirlit og endurhæfingu, — lengri sjúkrahúsvist, — heimahjúkr- un, heimilisþjónusta, svo og langlegudvöl, auk margs konar tengdrar félagslegrar þjónustu við heilsugæslu og aðbúnað aldraöra. Sllkt samofið heilbrigðiskerfi fyrir aldraða hlýtur að kref jast góðs skipulags og samræmingar á ýmsum sviöum til að það nýt- ist sem best I hverju tilfelli fyrir þá sem i brýnustu þörf er hverju sinni, og árangur i heilbrigðisþjónustu aldraðra hlýtur að fara eftir þvl, að samtenging og samhæfing allra þátta þessarar þjónustu sé sem mest. Sú staðreynd að vistrými fyrir aldraða á lslandi er hlutfalls- lega mun meira en 1 okkar ná- grannalöndum — og þrátt fyrir það langir biðlistar á ýmsum þeim þjónustu- og hjúkrunar- stofnunum fyrir aldraða sem viö höfum yfir að ráða, sýnir okkur ljósar en flest annað að endurskoðun á þáttum heil- brigðisþjónustu fyrir aldraða og endurskipulagning er orðin mjög brýn. 1 ársbyrjun 1978 höföum viö yfir að ráða tæplega 1700 vist- rýmum fyrir aldraða, þar af rúmlega 700 rými fyrir hjúkrun- arsjúklinga. Einnig má nefna að I könnun, sem gerö var meðal heimilislækna, kom i ljós, að 450-470 aldraðir sjúkir eru á einkaheimilum I Reykjavlk. Samanburöartölur frá árinu 1976 sýna ljóslega hve við höfum yfir mun meira vistrými að ráöa fyrir aldraöa en nágranna- þjóðir okkar. Þær sýna aö vist- rýmafjöldi á elliheimilum og ibúðir fyrir aldraða á 1000 ibúa 65 ára og eldri eru mun fleiri á tslandi en hjá nágrannaþjóðum okkar — eða 84.2 á Islandi, i Danmörku 66.8, Finnlandi 61.1, Sviþjóð 46.9, Noregi 26.9 og Bretlandi 18.5. IHikið annríki hjá Sinfóníuhljóm- sveit íslands — sjö tónleikar í þessari viku íslensk skip fest- ust í klaka og ís Þessa dagana er mikið annriki hjá Sinfóniu- hljómsveit tslands, en alls heldur hljómsveitin 7 tónleika í þessari viku. Mánudaginn 12. þ.m., hélt hljóm- sveitin tónleika i Hamrahliöar- skólanum fyrir nemendur þar og siðar um daginn lék hún i Há- skólabiói fyrir Menntaskólann við Sund og menntaskólann i Kópa- vogi. I gær, miðvikudag var hljómsveitin á Akranesi og hélt þar tvenna tónleika, hina fyrri fyrir nemendur barnaskóla og hina siöri fyrir Fjölbrautarskól- ann, svo og fyrir aðra skóla I ná- grenni Akraness. 1 dag, fimmtu- dag, 15. mars verða áskriftartón- leikar I Háskólabiói og hefjast þeir eins og aö vanda kl. 20.30. Tónleikar þessir eru Beethoven- tónleikar þeir sem ráðgerðir voru 8. mars s.l., en fresta varð vegna veðurs. Efnisskrá tónleikanna helstóte-eytt eins og auglýsthefur verið, svo og hljómsveitarstjórn- inn Jean-Pierre Jacquillat og ein- leikarinn Halldór Haraldsson. Föstudaginn 16. mars heimsækir hljómsveitin Hafnarfjörðog held- ur þar einnig tvenna tónleika, hina fyrri fyrir barnaskólana þar og hina siöari fyrir nemendur Flensborgarskólans og fl. Hljómsveitarstjórar á þessum 6. skólatónleikum eru þeir Jean- Pierre Jacquillat og Páll P. Páls- son. Einleikarar eru þeir Halldór Haraldsson pianóleikari og Bjarni Guðmundsson, sem leikur á túbu. Kór Menntaskólans við Hamrahlið syngur á öllum skóla- tónleikunum og Guörún Þ. Step- hensen leikkona segir yngri nem- endum á Akranesi og i Hafnar- firði söguna um hann Tobba Túbu. Skip Sambandsins og Eimskipafélagsins hafa undanfarið lent i nokkr- um erfiðleikum vegna mikils iss á sundunum við Danmörku. Voru tafir af þessum sökum nokkrar, en öll skipin munu vera laus núna. Mælifell, sem var á leið frá Austur-Þýskalandi var fast i Is við Danmerkurstrendur I 2 daga, og Mælifellið tafðist jafnlengi á svipuðum slóöum. Dlsarfell naút aðstoðar isbrjóta viö að komast frá Finnlandi til Danmerkur. Hvað Eimskipafélagsskipum viðkemur, þá töföustbæði Irafoss og Múlafoss nokkuð vegna mik- illa isa i Eyrarsundi. Is hefur verið óvenju mikill þetta árið á þessu svæði og tafir skipafélaganna því nokkrar. Sú hætta er ætið fyrir hendi, að skip laskist þegar þau lenda I isreki og er þá skipsskrúfan hvað við- kvæmust. Þá gæti það og gerst að skip festust I is og reki bókstaf- lega á land með Isnum. Svo viröist sem Sambands- skipin hafi sloppið tiltölulega - ósködduð úr þessum hildarleik i isnum, en einhverjar smávægi- legar skemmdir urðu á Eimskipafélagsskipum. GAA

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.