Alþýðublaðið - 09.06.1979, Síða 4
4
Laugardagur 9. júní, 1979
STÖRF
MAGNÚSAR
Jafnaöarmenn á árinu 1979 eru
verkmenn. Pólitik er þeim
ástrióa. og það er vilji fyrir hendi
til þess að hafa svo mikil áhrif á
svo marga aðra aö samfélaginu
verði breytt í grundvallaratrið-
Enn um olíumálin:
HVAB
ER TIL RAÐA?
um.
Magnús H. Magniísson,
heilbrigðis- og félagsmálaráð-
herra Alþvðuflokksins, hefur
unniö mikið og gott starf i sínu
ráðunevti það tæpa ár, sem til
staöar er á æviferli núverandi
ri kiss t jórn a r . Ráðuneyti
Magnúsar hefur lagt til viö
Alþingi. og Alþingi hefur
samþykkt lög um Rikisábyrgð á
launum við gjaldþrot fyrirtækja.
Þetta mál snertir út af fyrir sig
ekki marga, ef mannlifið er
einasta hugsað i hundraðshlutum.
En margir einstakiingar hafa lent
illa i þvi vegna slikra aðstæöna.
Þeirra staða hefur verið lagfærð.
Þá hefur Alþingi, að tillögu
Magnúsar, samþykkt ný lög um
orlof vinnandi fólks, sem fela i
sér. að póstgiróstofa tryggir
orlofsgreiðslur, þó svo vinnu-
veitandi hafi ekki staöiö i skilum.
Þá hefur Alþingi, aö tíllögu og
fvrir forustu Magnúsar, samþykkt
lög um 40 stunda vinnuviku sem
fela isér að eftirvinna feliur niður
á föstudögum, en næturvinna tek-
ur við i staöinn. Islenzkt kerfi er
þannig. að föstudagur er verka-
dagur heimilanna, innkaupadag-
ur fvrir helgina og hvildina. Þetta
erugóð lög, sem hafa mikla og
djuptæka merkingu og áhrif.
Þá hefur Alþingi, vegna til-
lagna frá Magnúsi féiagsmála-
ráðherra. samþykkt lög um rétt
verkafólks til uppsagnarfrests frá
störfum og til iauna vegna
s júkdóms-og slysaforfalla. Þetta
er stærsta mál hins svokallaöa
félagsmálapakka, sem var liður f
efnahagsaðgerðum i haust. Þetta
mál veröur aö lifandi staðreynd-
um, þótt slagurinn viö verðbóig-
una gangi siöur en skyldi. Þá hef-
ur Alþingi, að tillögu Magnúsar,
samþykkt lög um húsaieigu-
samninga. en það er fyrsta heild-
stæða löggjöf sinnar tegundar á
tslandi. Réttur leigjenda hefur
óþolandi lengi verið fyrir borð
borinn. Leigjendasamtök hafa
brevtt hugsunarhætti um þessi
mál. Þessi löggjöf hefur verið
rækilega undirbúin af sérfróðum
mönnum. Alþýðublaöið veit, að
þessi iöggjöf stuðlar að aukinni
siðmenningu.
Loks samþykkti Aiþingi lög um
aðstoð við þroskahefta. Þaö þarf
ekki aö fara mörgum orðum um
það, að Alþýðuflokkurinn hefur
ekki einasta pólitiskar heldur
einnig tilfinningalegar skyldur i
þessum efnum. Jóhanna
Sigurðardóttir, alþingismaður,
samdi grundvöllinn að þessu
frumvarpi, sem Alþingi gerði að
lögum, ekki sizt fyrir góða
samvinnu við heilbrigðismála-
ráðunevtið, svo og fjölmarga
þingmenn, sem skildu mikilvægi
málsins og hófu það upp yfir
dægurþras. Samvinna Jóhönnu,
Magnúsar og annarra áhuga-
manna um þessi efni, svo og
fjölmargra áhugamanna utan
þings, hefur valdið félagslegri
bvltingu hvað varðar hagi þessa
fólks. Þaö er aðal siðmenningar,
aðsjásvo um, að þeir sem hafa
heftan þroska fái samt sem áður
þá þjónustu af hendi samfélags-
ins, sem það getur af hendi látið.
Tillögur Magnúsar H. Magnús-
sonar, heilbrigðis-og félagsmála-
ráðherra, hafa verið svo vei
undirbúnar og igrundaðar að
Alþingi hefir fallizt á þær. Samt
veröur aö viðurkennast, að hluti
þessarar miklu vinnu fór
forgöröum. Alþingi bar til dæmis
ekki gæfu til þess að samþykkja
tillögur ráðuneytis Magnúsar um
eftirlaun fyrir aldraða. Sennilega
voru Frammararnir forneskju-
legu að hefna viöbragöa skatt-
greiðenda vegna landbúnaðar-
mála.
Alþýðubiaðið undirstrikar, að
það er hefðarmerki nútfmalegrar
jafnaðarstefnu að þeir sem vinna
á hennar vegum vinna vel, i leik
og I starfi. Magnús H. Magnússon
hefur ekki setið auöum höndum i
ráðuneyti sinu I vetur. Þjóöfélag-
ið veröur smátt og smátt réttlát-
ara, meöal annars vegna þessara
verka. Þess vegna verða menn
jafnaðarmenn.
—VG.
Aðferðir til lausnar
olíuvandanum eru mjög
umdeildar. Þær raddir
gerast æ háværari sem
krefjast viðræðna strax
við sovétmenn, þar sem
farið yrði fram á aðra
viðmiðun olíuverðs en
Rotterdammarkaðinn.
Málið er stórpólítískt.
Horft er fram á þá stað-
reynd að olíuvörur verði
nálega þriðjungur af
f járlögum, en þau eru 200
milljarðar. Vissir aðilar
segja að nú verði ríkis-
valdið að grípa inn í með
þjóðnýtingu olíu-
félaganna. Þessir sömu
aðilar benda einnig á að
oliufélögín skulda um
2000 milljónir í banka-
kerfinu.
Andstæðingar áður-
nefndrar skoðunar telja
ekkert vit í þjóðnýtingar-
hugmyndinni. Þeir segja
það engu breyta um
grundvallaratriði máls-
ins, sem sé innkaupsverð-
ið háa.
S.l. fimmtudag ræddi
blaðið við sjávarútvegs-
ráðherra og forstjóra
Olis. Milli skoðana þeirra
reyndist þvilíkt hyldýpi
að Alþýðublaðinu þykir
eðlilegt að afla fanga
Skyldi hann vera aö athuga bensineyösluna á bilnum sinum? Hann er dýr bensindropinn og þvi eins gott
að stilla bilvélarnar vei og haida þannig bensíneyðslunni i Iágmarki.
víðar i afstöðu til þessara
mála.
Hér fara því svör
þeirra Svavars
Gestssonar viðskipta-
málaráðherra og ólafs G.
Einarssonar alþingis-
manns við spurningum
blaðamanns.
rLýðræði forsenda þjóðnýtingar olíufélaganna’
— segir Svavar Gestsson viðskiptaráðherra
— A að hefja viðræöur strax
viö sovétmenn?
„Það hafa nú þegar verið
ákveðnar viöræöur viö sovét-
menn. Þær viöræður munu fara
fram nú i haust. Þarna munum
viö kanna til hlitar ýmsa fleti og
aðra viömiöun en Rotterdam-
markaðinn svokallaða.
1 þessu sambandi ber okkur
einnig aö gá að þvi aö þaö eru
ekki liöin nema tvö til þrjú ár
frá þvi er við sjálf óskuöum eftir
þvi aö viömiöun oliuvöruverös
skyldi háö Rotterdammarkaön-
um. Nú, auk þess getum við ekki
lokaö augunum fyrir þeirri
staðreynd að þær þjóöir aörar
sem kaupa unnar oliuvörur
veröa aö sæta sömu kjörum og
viö islendingar.”
— Ertu með þessu að segja aö
okkur beri einvörðungu aö
versla viö Sovétrikin?
„Nei fjarri þvi. Ég vil skora á
hvern og einn aö reyna að benda
á hverja þá möguleika sem
hugsanlega geröu okkur kleift
aö fá ódýrari og betri oliuvörur
annars staðar frá með hagstæö-
ari skilmálum. t þessum málum
sem öörum verða menn aö
temja sér raunsæi, i stað þess aö
láta óskhyggjuna hlaupa meö
sig i gönur.
Viö höfum þá staðreynd fyrir
okkur aö tsland er eina landiö
sem ekki hefur orðið að sæta
oliuskömmtunum til þessa. Nú,
flutningsgjöld eru einkar hag-
stæð, viö höfum 105 daga
greiðslufrest á aöeins 2% vöxt-
um. Þetta þýöir meö öörum orö-
Svavar Gestsson
um að sú dýra olia sem kemur i
júli verður ekki greidd fyrr en
siöar á árinu.”
— Hvernig getum viö sparað
oliu?
„Viö stefnum að þvi aö draga
stórlega úr oliunotkun til húsa-
kyndinga, þannig að hún hverfi
á örfáum árum. Svo er stefnt aö
mjög aukinni notkun svartoliu á
fiskiskipaflotanum, en hún hef-
ur verið of litið notuö á þeim.
Siöan veröur hreinlega að draga
úr almennu bruðli meö oliuvör-
ur, það bruöl hefur veriö gifur-
legt og viröist aukast þrátt fyrir
hækkanir.”
— Ertu hlynntur þjóönýtingu
oliufélaganna?
„Já, ég hef talað fyrir henni i
mörg ár.”
— A hvaöa forsendum?
„Forsendan er einfaldlega
lýðræði. Ég álit það ólýðræöis-
legt þegar einstaklingar auög-
ast mikiö á sölu nauösynjavarn-
ings.”
G.Sv.
„RÍKISAFSKIPTI ERU ÞEGAR ALLTOF MIKIL”
— segir Olafur G. Einarsson alþingismaður
— A að hefja viðræður strax
við sovétmenn?
„Mér þykir sjálfsagt aö hefja
þegar i staö viðræöur viö þá um
aöra viömiöun oliuverös en
Rotterdammarkaöinn. Viöræð-
urnar myndu þá auðvitaö
byggjast á þvi aö viö héldum
áfram kaupum frá Sovétrikjun-
um. Ég er þó ekki meö þessu aö
segja að viöskipti við þá séu
endilega þaö eöUlegasta.”
— Hvar er þá eölilegt að
reyna fýrir sér?
„Ég tel að hægt sé aö reyna
aöra möguleika, en hef þó enga
sérstaka ihuga þessa stundina.
Ég er þeirrar skoöunar aö
mögulegt sé aö fá oliuvörur
annars staðar frá á betri kjör-
um. Þaðerálit mittaö réttsé og
eölilegt aö oliukaup verði boöin
út, og þannig fengiö sem hag-
stæðast verð.
Þegar svo er komiö að til
dæmis bensínverö frá sölutanki
i Bandarikjunum er ódýrara en
innkaupsveröiö sem viö veröum
að greiða, þá er eitthvað meira
en litiö að.
Útboð eiga sér nú staö hjá
okkur á vissum oliupródúktum,
til dæmis á malbiki. Þvi ekki að
hafa sama háttinn á um aörar
oliuvörur.”
— Hvernig eigum við að haga
okkur þegar olfuvörur eru orön-
ar þriðjungur af fjárlögum?
„Fyrir þaö fyrsta er rétt aö
gera sér þaö ljóst aö hin mikla
Ólafur G. Einarsson
rikisskattlagning skapar þenn-
an vanda. Þennan þriðjung sem
þú nefndir getum viö lækkaö
stórkostlega meö smá skilningi
af hálfu stjórnvalda.”
— Hvernig á að spara?
„Viö getum sparað á ýmsan
hátt, til dæmis með virkjun ;
jarðvarma og fallvatna. Hvaö
fiskiskipaflotanum viökemur ;
þarf náttúrlega að auka svart- r-
oliunotkun. Og svo segi ég bara
eins og Ómar i sjónvarpinu aö j
gott væri ef ökumenn stigu ekki
eins fast niöur hægri fætinum.” I
— Eru hin mikiu útgjöld okk-
ar tilefni þjóðnýtingar?
„Það útaf fyrir sig er ekki til- \
efhi þjóönýtingar. Þjóönýting er ;
engin trygging fyrir lægra oli'u- |
verði og breytir þar af leiðandi
ekki grundvallaratriði málsins,
sem er hiö háa innkaupsverö.
Ég er andvi'gur þjóðnýtingu
yfirleitt, ogá sviði oliumála eru
rikisafskipti þegar allt of mik-
il.”