Alþýðublaðið - 10.11.1979, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 10.11.1979, Blaðsíða 4
Laugardagur 10. nóvember 1979 ,,Ég hef séö þaO haft eftir lærOum mönnum aO mér sé tæpast heimilt aO ræOa viO dómara um annaO en veöurfariö. t ræöu minni hér á eftir veröur nokkuö fariö út fyrir þann ramma og vænti ég þess, aö þaö þyki ekki brot á dómaralegu velsæmi”. Umbætur í dóms- og réttarfarskerfi Ræða Vitmundar Gylfasonar, dóms- og menntamálaráðherra, flutt á aðalfundi Dómarafélags íslands, 8. nóv. s.l Hr. formaöur Góöir áheyrendur! A undanförnum misserum hafa fariö fram miklar umræöur um dómsmál og skyld efni. bæöi i fjölmiölum og manna á meöal. Sannfæring min er sú aö þessar umræöur hafa oröiö til góös. Fyrir nokkrum árum steöjaöi mikill vandi aö dómstólum lands- ins. Þessum málaflokki haföi litiö veriö sinnt árum saman. 1 ljós kom, aö dómskerfiö réöi ekki eöa illa viö aö sinna stórum mála- flokkum. Meö þessu er ekki veriö að varpa rýrö á einstaklinga og ekki heldur á stofnanir. En þetta var kerfi i kreppu. Um þetta hefur veriö hart deilt — stundum óvægilega. Ljóst var einnig, aö i litlu samfélagi, sem var og er umvafiö böndum kunn- ingsskaparins, reyndist umdeil- anlegt, svo ekki sé meira sagt, hvernig leikreglum samfélagsins var réttilegast fylgt fram. Þessar deilur þekkja menn. Þær hafa öörum fremur fjallaö um fjármálabrot i samfélagi, sem hefur árum saman verið svo veröbólgiö, aö skilin milli þess sem rétt er og hins sem rangt er, hafa oröið æriö óljós. Þvi er þaö, aö þegar gagnrýn- andiogutangarösmaöurhefur nú um sinn tekiö viö embætti dóms- málaráöherra, aö einhverjum kann aö finnast sem skæruliðar hafi náö dómsmálaráöuneytinu á sitt vald og aö á slikri örlaga- stundu sé þaö betra, aö lyklarnir aö möppugeymslum islenzkra dómsmála séu vel varöveittir. Umbætur i dóms- og réttarfarskerfi Staöreynd er, aö m.a. vegna allra umræönanna og deilnanna hafa aö undanförnu oröiö tals- veröar umbætur í dóms- og rétt- arfarskerfi þjóöarinnar og eiga bæöi starfsmenn dómsmáiaráöu- neytisins, starfsmenn lögreglu og dómstóla og réttarfarsnefnd þar góöan hlut aö máli. Þessu ber mjög aö fagna. Þegar mér hefur nú veriö faliö embætti dómsmála- ráöherra um skeiö vil ég freista þess, aö hraöa ýmsu þvi, sem veriö hefur i undirbúningi. Ég vil einnig hrinda nokkrum endurbót- um þegar i framkvæmd og loks vil ég láta undirbúa nokkur ný- mæli. Skal ég hér geta helztu mála, sem ég hefi lagt áherzlu á siöan ég tók viö embætti dómsmálaráö- herra og sem ég hyggst þoka fram á viö eftir megni á starfs- tima minum. Opnun dómskerfis 1. Opnun dómkerfis.Ég hef lengi haft áhuga á þvf aö opna dóms- kerfiö meira fyrir almenningi. Meö þvf á ég viö, aö almenningur fái betra tækifæritil þess aö fylgj- astmeö störfum dómskerfisins og aö upplýst almenningsálit skapi þvi nauösynlegt aöhald í stöfum þess. Einnig aö almenningur eigi greiöari aögang að dómstólum bæöi hvaö varöar lögfræöilega aöstoö og eins hvaö varöar aöild aö dómsmálum. Hér er um viöa- mikiö verkefni aö ræöa, en i fyrstu hef ég látiö hefjast handa um eftirtalin atriöi: 1.1. Stofnun nýrrar fulltrúastööu viödómsmálaráöuncytiö, sem fjalli um almenningstengsl. Ég hef lagt á þaö áherzlu, aö viö dómsmálaráöuneytið veröi stofnuö ný staöa, sem sjái um þaö verkefni, aö taka á móti fyrirspurnum og kvört- unum fóiks varöandi dóm- stólakerfi, löggæzlu og fang- elsismál. Einnig á sá fulltrúi, sem stööunni gegnir, aö leiö- beina almenningi um þaö, hvert hann geti snúiö sér meö vandamál á fyrrgreindum sviöum. Mál þetta er i undir- búningi og hefur fjármálaráö- herra fallizt á aö fyrir sitt leyti, aö fé veröi veitt til þess aö stofna þessa stööu. Þessi staöa veröur stofnuö i til- raunaskyni, veitt til tveggja ára og er skyld hugmyndinni um „umboösmann Alþingis”. 1.2. Gjafsókn og ókeypis lög- fræöiaöstoö viö almenning. Reglur um þessi atriöi þarfn- ast endurskoöunar. Þaö kost- ar oft mikiö fé aö leita rétt- lætis fyrir dómstólum og •ryggjaveröurþaö, aöallir fái notiö lagalegs réttar sins án tillits til efnahags. Frumvarp um ókeypis lögfræöiaöstoö viö almenning er til, eins og kunn- ugt erog veröur þaö lagt fyrir næsta Alþingi. Akvæöi 11. kafla einkamálalaganna um gjafsókn þarfnast endurskoö unar og koma þau til álita i framhaldi af frumvarpinu. 1.3. Meöferö neytendamála viö héraösdómstóla. Eins og kunnugt er hefur þingsályktunartillaga þess efnis, aö svokölluö neytenda- mál fái einfalda og hraöa málsmeöferð hjá héraösdóm- stólum veriö samþykkt. Siöan hefur litiö gerzt i málinu. Hef ég falið tveimur mönnum aö semja frumvarp um þetta efni, sem lagt veröur fyrir Alþingi eins fljótt og kostur er á. Réttarfarsnefndhefur veriö látin fylgjast meö þessum málum. 1.4. Auknar upplýsingar um starf dómstóla og löggæzlu til fjölmiöla og almennings. 1 þvi skyni aö auka upplýs- ingastreymi frá dómstólum og löggæslu um^gang mála, hefur dómsmálaráöuneytiö nú ritaö stærstu embættunum, sem meö dóms- og löggæzlu- mál fara og óskaö þess, aö ákveðnum starfsmanni viö hvert embætti veröi falið þaö verkefni aö greiöa fyrir upp- lýsingagjöf til aimennings og fjölmiðla. Þessi starfsmaöur á aö hafa samband viö fjöl- miöla og hann á aö Utbúa skýrslur um gang mála, sem lagöar séu reglulega fram. Slikar hugmyndir þurfa aö þróast. Viöa erlendis hefur á siöari árum veriö breyting i þá átt, aö almenningur fái i si- auknum mæli aögang aö upp- lysingum, aö almenningur fylgist meö gangi mála, og aö slikt sé visasta trygging ör- yggis og framfara. Auövitaö hefur verið misjafnt hvernig sliku hefur háttaö. Lögreglan hefur, mér vitanlega, starfaö fyrir opnum tjöldum, Skatt- brotamál hafa hins vegar ver- ið lokuö veröld, svo dæmi séu nefnd. Upplýst almenningsálit er réttarrikinu bæði stoö og stytta. Þaö hlýtur aö vera i þágu virkari dómstólakerfis, aö almenningur hafi ævinlega traustar upplýsingar um þaö, sem þargerist.Ogþósvoyfir- borgardómarinn i Reykjavik láti hafa eftir sér i blaöavið- tali aö veriö sé aö leggja til aö draga Ur þjónustu — þá treysti ég þvi aö aörir bæöi skilji og viti betur. 1.5. Aöild aö dómsmálum. Reglur þær um aöild aö dómsmálum, sem nú er aö finna I 6. kafla einkamálalag- anna skilgreina aöildarhug- takiö þröngt. A siöari árum hefur þeirri hugmynd vaxiö fylgi á Vesturlöndum, aö ástæöa sé til aö taka aöildar- hugtakiö til endurskoöunar. Fjöldi almennra félaga og stofnana hefur t.d. oft ástæöu til þess aö fá skoriö Ur gildi laga fyrir dómstólum, en er hins vegar meinaö þaö sökum hinnar þröngu skilgreiningar. N áttúruverndarsamtök myndu e.t.v. vilja láta reyna fyrir dómstólúm á gildi ákvaröana, sem ganga i ber- högg viö stefnu þeirra, en þau eru sennilega ekki aöilar, ef eignarréttarlegum mæli- kvaröa er beitt viö skiigrein- ingu þesshugtaks. Er þeim þá ókleift aö leggja máliö beint undir Urskurö dómstóla. Hér er vissulega vandrataö meö- alhófiö, þvi slik rýmkun á aö- ildarreglum má ekki lama al- veg löglegar aðgeröir al- mannavaldsins. Ég hef faliö réttarfarsnefnd aö taka þetta mál til meðferö- ar, en ég tel að með þvi sé stefnt a aukinni þýöingu dóm- stólakerfisokkar fyrir farsælt og friösamt þjóölif. 2. Endurbætur á dómstólakerf- inu. A undanförnum árum hefur verið unniö viö tillögugerö um endurbætur á dómstólakerfinu. Ég vil hraöa þeim endurbótum eftir megni, svo og auka viö, og vil ég hér skýra frá aögeröum, sem dómsmálaráðuneytiö hefur nú i undirbúmngi á þvi sviöi. 2.1. Frumvarp um Lögrettu. Ég er þeirrar skoöunar aö frumvarp um Nýtt dómsstig, svokallaöa Lögréttu, sem lagt hefur veriö fyrir Alþingi tvis- var sinnum horfi til mikilla bóta (m.a. þarsem þaö miöar aö nauösynlegum aöskilnaöi dómsvalds og framkvæmda- valds). Frumvarpiö hefur ekki hlotiö endanlega af- greiöslu þingsins og veldur þar væntanlega mestu um ótti manna við þaö, aö breytingin veröi of viöamikil og kostn- aöarsöm i framkvæmd. Ég hef nú faliö prófessor i réttarfari að yfirfara frum- varpiö á nýjan leik og „hefla” þaö til. Niöurstööurnar veröa svo lagöar fyrir réttarfars- nefnd og aö afgreiöslu hennar lokinni veröur frumvarp um lögréttu væntaniega lagt fyrir Alþingi á nýjan leik. 2.2. Veiting dómaraembætta. Veiting dómaraembætta hef- urlöngum valdiö deilum hér á landi og hafa þau vinnubrögö, sem hafa veriö notuö viö val dómara ekki vakiö viröingu Efnahagsstefna Sjálfstæðisflokksins: Ósundurliðaður niður- skurður uppá 35 milljarða — þingmpnn flokksins algeiiega sammála i landbúnaðarmálum! Geir Hailgrimsson, formaöur Sjáifstæöisflokksins, kynnti biaöamönnum efnahags- og at- vinnumálastefnu flokks sins á biaöamannafundi i fyrrakvöld. Stefnuskráin, sem ber heitiö „leiftursókn gegn veröbólgu”, er aö vissu marki unnin uppúr jafnvægisstefnu Alþýöuflokks- ins, og aö þvi leyti nokkuö skyn- samleg. Hins vegar er þessi stefnuskrá viöa gloppótt og meö mörgum ófrágengnum endum. Gert er ráö fyrir 35 milljaröa lækkun á rikisútgjöldum og -fjárfestingu. Hinsvegar hefur algerlega láöst aö sundurliöa þessa upphæö, og veröur hUn þvi aö teljast úr lausu lofti grip- in. Þaö er fullkomiö viröingar- leysi við kjósendur aö sletta þvi bara framan i þá aö lækka eigi Utgjöld um 35 milljaröa, en gera akkUrat enga grein fyrir sund- urliöun upphæöarinnar. Aö visu geröi formaöur Sjálf- stæöisflokksinsgrein fyrir skoö- un sinni á ýmsum minniháttar samdrætti. Kvaöst hann nýlega hafa frétt aö starfsmannafjöldi Skólarannsóknardeildar heföi vaxiö I 89 manns. Hann sagöi: , „Manni er spurn, hvaö allt þetta fólk hefur fyrir stafni og hvort slik miöstýring sé af hinu góöa.” Skv. upplýsingum sem Al- þýöublaöiö hefur aflaö sér, eru stöðugildi viö skólarannsókna- deild 21. — Afgangurinn er nefndarmenn, sem unniö hafa aö tímabundnum verkefnum! 1 stefnuskránni segir aö flokk- urinn ætli aö beita sér fyrir þvi aö „niöurgreiöslur veröi lækk- aöar” og aö „bændur veröi sjálfstæöir atvinnurekendur”. Athygli vakti aö Geir sagöi aö alger einhugur væri um þessi á- kvæöi innan þingflokks Sjálf- stæöisflokksins. Þykir Alþýöu- blaöinu sem veöur hafi all- snögglega skipast I lofti á I- haldsheimilinu i þessum efnum. Formaöurinn var spuröur, hvaö flokkurinn ætlaöi sér lang- an tima til aö gera bændur aö sjálfstæöum atvinnurekendum. Kom fram aö engin áætlun hef- ur verið gerö þar um, en Geir sagöi: „Svo ég nefni einhvern árafjölda, þá mætti hugsa sér 5-10 ár. Sem fyrr greinir kveöst flokk- urinn vilja lækka niöurgreiösl- ur. Hinsvegar lá ekkert á lausu um hve mikiö ætti aö lækka og á hve löngum tima. En i fram- haldi lækkunarinnar sagöi Geir aö flokkurinn vildi aö hluta niö- urgreiöslanna veröi breytt I tekjutryggingu til láglauna- fólks. Aöspuröur um skilgrein- ingu á „lágum launum” nefndi hann 210-220 þUsund krónur, en bætti þvi við aö upphæöin hlyti að markast verulega af niöur- stööum kjarasamninga. A fundinum kom fram aö flokkurinn vill bjóöa út hafnar- gerö, vegagerö, strandferöa- þjónustu og heilbrigðisþjónustu. Til viöbótar viö útboö á heil- brigöisþjónustu bætti Geir viö, aö meö eflingu heimilislækn- inga og göngudeildarþjónustu þyfti aö leggja færri sjúklinga inn en ella. Þegar Geir Hallgrimsson var itrekaö spuröur hvort þaö væri virkilega meiningin aö láta þessa 35 milljaröa standa alger- lega ósundurliöaöa, sagöi hann: „Þaö má hugsa sér aö spara yf- ir linuna, án þess aö gera upp á milli málaflokka.” Aö siöustu var formaöurinn spuröur hvort líta mætti á þessa stefnu sem gagnrýni á stjórnar- stefnu Geirs Hallgrimssonar á árunum 1974-8: „Já, I þessu felst ákveöinn lærdómur og reynsla,” sagöi hann. — G.Sv.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.