Alþýðublaðið - 26.04.1980, Page 4

Alþýðublaðið - 26.04.1980, Page 4
4 Laugardagur 26. apríl 1980 Þessir fjórir hafa haft mikið að segja við gerð kjarasamninganna i Noregi. Ulf Sand fjármálaráðherra, Tor Halvorsen formaöur LO, forsætisráðherrann Odvar Nordli og framkvæmdastjóri NAF, Pál Kraby. Samið umkaupog kjör í Noregi: Gengið var ad flest- um kröfum norska Alþýðusambandsins ^Meðaltalshækkanir launa 12% Urslitum kjarasamninga í Noregi hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu. Að af- lokinni 15 mánaða veröstöövun var gert ráö fyrir að verkalýös- hreyfingin þar mundi standa fast á kröfum sínum um bætur fyrir þá kjaraskerðingu sem orðið haföi á veröstöðvunar- timabilinu. Upp lír áramótunum setti norska Alþýðusambandið fram kröfur sinar og stuttu seinna gáfu samtök atvinnurekenda út yfirlýsingar, sem voru þess efnis, aö ljóst þótti, að samn- ingaviöræöurnar yrðu langar og erfiðar. Kröfur L.O. (norska alþýðusambandsins) voru þær, aö launahækkanir kæmu til framkvæmda i ár, og var miðað við, aölaun hadikuðu um 12% að meðaltali. Þá krafðist LO, að meðlimimir fengju tryggingu fyrir því, að lægstu laun yröu ekki lægri en 87% af meðaltali greiddra launa i iönaði. Þá lagöi LOá það rika áherzlu, að kaup- máttur launa yrði aukinn nægi- lega mikiö til að ná aftur þvi kaupmáttarstigi sem var á ár- inu 1978. Atvinnurekendur neituðu öll- um kauphækkunum, en viöur- kenndu, að vandamál láglauna- hópa yrði að leysa á einhvern hátt og voru tilbUnir að ganga til viöræöna um þetta mál, á þeim forsendum, aö þeir tekjuhærri stilltu kröfum sinum i hóf. Þetta var sá Utgangspunktur sem samninganefndirnar höfðu til að fara eftir. Samningaviöræðurnar hafa verið mjög erfiðar en i miðri siöustu viku rofaðihinsvegar til. Þá lagði sáttasemjari fram samningsuppkast, sem i megin- atriöum byggir á kröfum LO. Skiljanlega hefur samninga- nefnd LO lýst yfir bjartsýni og atvinnurekendasambandið NAF vissri óánægju, en almennt er talið að þetta uppkast geti orðiö grundvöllum samkomu- lags, sem samþykkt verði i hin- um einstöku stéttarfélögum. Viðbrögð einstakra verka- lýösfélaga hafa yfirleitt verið jákvæð, en hins vegar hafa sterk félög, eins og t.d. járn- iðnaöarmannafélagið 1 Osló lýst andstöðu sinni við samnings- uppkastið og lagt áherzlu á aö þeir telji að hvert félag eigi aö semja fyrir sig, en ekki láta heildarsamtökin semja um rammalausn. Þegar samningar höfðu staöið nokkurn tima var ljóst, aö LO kraföist áfram 12% meðaltals- hækkunar launa. NAF haföi þá endurskoðaö afstöðu sina nokk- uö og buöu nU 5% almenna launahækkun. 1 sammngsupp- kasti sáttasemjar er gert ráð fyrir að almennar meðaltals- hækkanir kaups verði 12%. Gert er ráð fyrir að grunnkaups- hækkanir veröi ca. 5% en aö öðru leyti verði hækkanir meðaltalshækkanir slikar að samanlagt verði hækkunin 12%. 1 uppkasti sáttasemjara er einnig gert ráö fyrir að hinum lægst launuðuveröi tryggö laun, sem ekki séu lægri en 85% af meðaltalslaunum á LO/NAF svæðinu. LO hafði sett fram þá kröfu að þetta hlutfall yröi 87%, en NAF vildi eins og áður sagði ekki ræöa þetta nema það fengi tryggingu fyrir þvi að launa- skrið yrði stöðvað, eða þvi sem næst. 1 uppkastinu er gert ráö fyrir að launaskrið nemi þremur prósentum, en það er svipað þvi sem LO hafði gert ráö fyrir þeg- ar þeir settu fram sinar kröfur. Þá er gert ráð fyrir að rikis- sjóöurinn norski komi til móts viðhina lægstlaunuðu og veiti fé I tryggingasjóðinn, sem til var og á að tryggja hinum lægst launuöu lágmarkslaun, LO hafði gert ráð fyrir aö rlkis- sjóður veitti mun meiri fjárhæð I þennan tryggingasjóð en gert hefur verið. Talið er aö rikis- sjóður muni standa straum af ca. fjórum prósentum launa- hækkunarinnar. NAF hafði krafist þess að rlkið yki ekki framlög sin til þessa sjóðs , en reyndi heldur aö spara í rikis- rekstrinum. Eins og áður sagði hafa þessir samningar stáðið lengi og margt gengiö á áður en samn- ingsuppkastiö fæddist LO var mjög hart á þeirri linu að fá bætur fyrir 15 mánaöa verð- stöövun og NAF gerði haröar árásir á launakerfiö og vildi af- nema mörg þau réttindi sem verkalýðshreyfingin hefur náð á undanförnum árum, auk þess sem NAF óskaði eftir þvi að verðstöðvunin yrði framlengd. Eins og málin lita út i dag veröur að meta stöðuna þannig, að LO hafi unniö mikinn sigur i samningamálunum. Verö- stöövunin var ekki framlengd og gengiö hefur verið að flestum þeim kröfum sem LO settu fram. Samkomulagiö á eftir að staöfesta af einstöku stéttar- félögum og atvinnurenendum, en liklegt er talið, að svo verði gert. Þrátt fyrir striðsyfirlýs- ingarNAF í upphafi samninga- viðræðnanna hefur LO tekist aö rétta hlut meðlima sinna nokk- uð eftir fimmtán mánaða verð- stöðvun og er þaö vel. —HMA HÁRGREIÐSLUSTOFAN P ^ '^Klippingar, permanent, lagn- Pingar, iitanir og lokkalitanir. MIKLUBRAUT 1 Gefum skólafólki 10% afslátt gegn framvfsun skirteinis. Í 1 R AONHíLLJUR b jaríw ado t t !F lOi ÍVÍ I HJÖHDIS STUKLAUGSDÓTTIR NOKKUR ORÐ UM BÓKINA, UPPREISN FRÁ MIÐJU: Forsendur höfunda eru þær, að hagvöxt- ur hafi stöðvast •NIÐURSTÖÐURNAR BÉRA KEIM AF HUGMYNDUM RÓMARKLÚBBSINS Þegar bókin Uppreisn frá miðju, eða Oprör fra midten, eins og hún heitir á frummálinu, kom út I Danmörku, fyrir rúmum tveim árum siðan, fekk húm mjög misjafna dóma gagnrýnenda. Svo einkennilega sem það kann að hljóma voru viðbrögð gagnrýn- enda að hluta landfræðilega ákvörðuð. Kaupmannarhafnar- blöðin, einkum hin borgaralegu blöð, tættu bókina niöur, en hins vegar voru landsbyggðarblöðin mun jákvæðari i dómum sinum og mörg landsbyggðablaðanna hrósuðu bókinni mjög. Bókin hefur verið gagnrýnd harðlega Það vakti einnig nokkra athygli iumræðunum um bókina, að jafn- aðarmenn, eða réttara sagt for- ystumenn jafnaðarmanna, gagn- rýndu bókina harðlega. Gagnrýni þeirra beindist einkum að þeirri þjóðfélagsgreiningu, sem fram kemur I bókinni. 1 framhaldi af þvi, gagnrýndu þeir þá þjóðfé- lagsskipan, sem höfundarnir setja upp sem valkost við hið vestræna allsængtarþjóðfélag. Hugmyndum höfunda bókarinnar var hafnað, sem óraunsæjum, draumórakenndum millistéttar- hugmyndum um frelsað samfé- lag. Vissulega er hægt að gagn- rýna verkið með tilliti til þeirrar samfélagsskipunar, sem höfund- arnir setja upp. En hinu verður þó ekki neitað, að dregnar eru upp myndir, og sýnt fram á mótsetn- ingar, i danska samfélaginu, sem vekja hressilega til umhugsunar. Þá verður að hafa það I huga, að höfundarnir höfðu ekki i hyggju að búa til nýtt samfélag á prenti, sem menn gætu vonast til að yrði að raunveruleika i einu vetvangi. Tilgangur höfundanna var fyrst og fremst sá, að vekja fólk til um- hugsunar um helztu þætti dansks þjóðfélags, að sýna fólki fram á aö velferðarþjóðfélagið stendur ekki eins traustum fótum og al- mennt er talið. Þetta hefur tekizt. Umræður um bókina hafa orðið mjög miklar og fáar bækur aðrar hafa vakið aðra eins athygli og bókin um misbresti danska sam- félagins. Bók eins og þessi takmarkast hins vegar ekki við eitt land. Margt það sem höfundar draga fram gildir i hvaða vestræna iðn- aðarriki sem er. Þess vegna hefur bókin lika gildi fyrir okkur Islendinga. Vinstri menn gagnrýndu bókina einnig frekar hart. Þeir töldu að höfundarnir gerðu lítið úr stétta- baráttunni og mótsetningunni milli launafólks og atvinnurek- enda, — milli þeirra sem kaupa vinnuaflið og þeirra sem til- neyddir eru að selja það. Að öðru leyti þóttust vinstri menn sjá Marx hér, og Marx þar, og voru heldur jákvæðari i garð bókarinn- ar en jafnaðarmenn, þegar ljóst varð, hve mikla athygli og út- breiðslu bókin fékk. Hin svokölluðu frjálshyggjuöfl 'lýstu náttúrulega fyririitningu sinni á bókinni. Bókinni var lýst sem einfaldri og rómantiskri bók, sem lægi nær þvi að vera skáld- saga en alvarleg umfjöllun um samfélagsmál. Höfundarnir svör- uðu þessari gagnrýni með þvi að segja, að þeir sem vildu ekki kannast við staðreyndir væru rómantiskir, en hinir, sem viður- kenndu raunveruleikann eins og hann er og gerðu sér grein fyrir, að samfélagsvandamál þau sem lúra undir yfirboröinu gætu haft i för með sér alvarlegar afleiðing- ar fyrir lýðræöið, þeir væru raun- sæismenn. Það er ekki ætlunin aö rekja gagnrýni á bókina frekar, heldur var það meiningin að fjalla um örfáa þætti hennar, sem snúa að greiningu höfunda á danska sam- félaginu, eða vestrænu iðnaðar- samfélagi yfirleitt. En fyrst örfá orö um höfunda bókarinnar. Þrír þekktir höfundar slá sér saman Höfundar bókarinnar eru þrir. Hver þeirra mjög þekktur i opin- berri umræðu i Danmörku, hver á sinu sviði. Höfundarnir eru: Willy Sörensen, rithöfundur. Hann er mjög þekktur rithöfundur og hafa bækur hans verið þýddar á mörg tungumál. Smásögur eftir hann hafa m.a. verið birtar I islenzkri þýðingu. Hann hefur tekið virkan þátt i þjóðmálaumræðu i Dan'r mörku I fjölda ára og þekktur fyrir bók sina sem fjallar um samfélagsleg efni og heitir Uden mál og med. Niels I. Mayer, er prófessor við Danmarks Tekniske Höjskole og er meölimur Rómar- klúbbsins svokallaða. Annars er hann þekktastur fyrir andstöðu sina við kjarnorkuver. K. Helveg Petersen er sennilega mörgum íslendingum kunnur, en hann hef- ur um langan tima verið einn for- ystumanna stjórnmálaflokksins De radikale venstre, sem er mið- flokkur I Danmörku. Hann er þekktastur fyrir afskipti sin af skóla- og uppeldismálum. Er Hagvöxtur sögulegt fyrirbæri? Það sem liggur til grundvallar hjá höfundunum og það sem gengur eins og rauöur þráöur i gegnum alla bókina er sú kenning eða skoðun, að vestræn iönaðar- samfélög geti ekki lengur búist við, að hagvöxtur haldi áfram i sama mæli og hefur verið. I þessu sambandi benda þeir á, að' hráefnisskortur og rányrkja muni fyrr en siðar setja svo alvarlegt strik i reikninginn, að lýðræðis- rikjum Evrópu sé hætta búin. SU skoðun höfundanna, að hrá- efnisskortur og kúgun þriðja heims rikja, geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir vestrænu sam- félögin, hefur við nokkur rök að styðjast. Höfundarnir byrjuðu að skrifa bókina, eða undirbúa hana árið 1972. Tveimur árum siðar, OFT ER VITNAÐ I „BRANDARABÓK- INA” Á ALÞINGI t þessari viku sá dagsins ljós óskalisti rikisstjórnarinnar um mál sem hún leggur áherslu á að afgreidd verði fyrir þingslit. Oskalistinn hljóöar uppá að af- greidd verði 36 frv. og 2 þáltill. Atta þessara mála hafa ekki veriö lögð fyrir Alþingi enn. Má þar nefna umfangsmikil mál eins og lánsf járáætlun og vega- áætlun. Flest hinna málanna eru enn I nefnd eftir fyrstu um- ræðu i fyrri deild. Engu að síður stefnir rikisstjórnin að þingslit- um eftir um það bil 3 vikur, svo ekki er ætlaður langur timi til að afgreiða þessi mál,. Vist er um það að öll þessi mál fá ekki afgreiöslu á yfirstand- andi þingi, enda þurfa mörg þeirra itarlegrar umfjöllunar viö. Vist er að sum þeirra munu mæta mikilli andstöðu stjórnar-. andstöðunnar, — og á ég þar sérstaklega við sifellt auknar skattaálögur, — sem rikis- stjórnin hefur veriö iðin við að leggja fyrir Alþingi siðan hún tók við völdum, og ekki sér fyrir endann á enn. Og rikisstjórnin lætur sér ekki nægja, stórfelldar skattaálögur einar sér, — heldur er stefnti stóraukna skuldabyröi I láns- fjáráætlun, —sem enn mun með ófyrirsjáanlegum afleiðingum magna upp verðbólguna, —• og draga niður lifskjörin i landinu. Samráð í orði en ekki á borði Rikisstjórnin brýtur ákvæði stjórnarsáttmálans næstum daglega með stjórnvaldsathöfn- um sinum, enda var sá sáttmáli réttnefndur „brandarabókin” af einum þingmanni i umræðum á Alþingi, og ekki af ástæðu- lausu, aö oft er i hana vitnað á Alþingi. Aðhaldið I peninga- fjárfest- ingar- og rikisfjármálum, sem finna má i sáttmálanum er kastaö fyrir róða og löngu gleymt af stjórnarherrunum enda gengiö i þveröfuga átt við ákvæði hans. Akvæði sáttmálans um lækk- un Utsvars á láegstu tekjum var framkvæmtá þann hátt að veita heimild til hækkunar Utsvars. Enda á það ákvæöi sennilega bara að vera einn af „brönd- urunum” „brandarabók” rikis- stjórnarinnar. í kaflanum um kjaramál segir að rikisstjórnin muni leita eftir samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins um niöurstöður kjarasamninga, sem geti samrýmst baráttunni gegn verðbólgu og þeirri stefnu stjórnarinnar að jafna lifskjör og bæta kjör hinna lakast settu i þjóðfélaginu. — Eins og annað i þeim sáttmála er þaö auðvitað bara i orði en ekki á borði. Eða hvar er það samráð? Skyldi það margrómaða samráð kannske bara vera einn af bröndurunum i brandarabókinni. Ekki er úr vegi að athuga það ögn nánar. Þrátt fyrir ákvæðið um samráð við verkalýðshreyfing- una eru stórfelldar skatta- hækkanir látnar dynja yfir, söiuskattshækkun, benzinhækk- un, tekjuskattshækkun, Ut- svarshækkun, hækkun flug- vailargjalds, jafnt á utanlands- flug sem innanlandsflug, (þvi ekki sizt dreifbýlisskattur), — og að auki dynja yfir hömlu- J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.