Alþýðublaðið - 30.08.1980, Qupperneq 3
Laugardagur 30. ágúst 1980
3
,,Þeim mun merkilegra er, að aðalritstjóri Þjóð-
viljans, málgagns verkalýðshreyfingar og sósialisma
á (slandi, hefur í ritstjórnargrein ráðlagt skipasmiðj-
unum í Lenín-smiðjunum, að kynna sér betur kenn-
ingar Leníns. Hann segir að þær hafi gefizt vel sem
leiðarvisir í baráttu gegn alræðisstjórnum.
Hvernig væri að gáf umannafélagið í Alþýðubanda-
laginu skyti saman í farareyri f yrir Kjartan Ólafsson,
þannig að hann gæti í eigin persónu flutt verka-
mönnunum í Lenín- skipasmiðjunum þennan maka-
lausa boðskap sinn?"
alþýðu
UimLM
Otgefandi: Alþýöuflokkur-
inn
Framkvæmdastjóri:
Jóhannes Guðmundsson
Stjórnmálaritstjóri (ábm):
Jón Baldvin Hannibalsson.
Blaöamenn: Helgi Már
Arthursson, Ölafur Bjarni
Guðnason.
Auglýsinga- og sölustjóri:
Höskuldur Dungal
Auglýsingar: Elin Harðar-
dóttir
Gjaldkeri: Halldóra Jóns-
dóttir.
Dreifingarstjóri: Sigurður
Steinarsson.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Siðumiila 11, Reykjavik,
simi 81866.
Aðalritari pólska kommún-
istaflokksins, Gierek, hefur nú
gert þjóð sinni ljóst, um hverjar
af krófum verkamanna hann
hafi umboð til að semja, og
hverjar ekki. Hann er tilbúinn
, að tala um kauphækkun. Pólskt
efnahagskerfi er að visu nánast
i rústum eftir þriggja áratuga
miðstjórnarbúskap. En Gierek
gerir sér vonir um að geta sam-
ið við Rússa um efnahagsað-
stoð. Og Helmut Schmidt leið-
togi þýskra Sósialdemókrata
hefur gengið fram fyrir skjöldu
og lofað stórtækum lánum. Með
þessu er þó aðeins tjaldað til
einnar nætur’ Pólska rikið er
þegar skuldum vafið. Þetta
mikla landbúnaöarland getur
ekki einu sinni brauðfætt þegn-
anna. Efnahagskerfið er ekki
þess umkomið, aö tryggja var-
anlegar kjarabætur. Enda snú-
ast málin ekki lengur um það.
Viðhöfum ekki umboð til þess
að ganga að kröfum sem beinast
gegn sjálfum grundvelli hins
sósialiska þjóðskipu-
lags” — segir Gierek. Hvaða
umbótakröfur verkamanna eru
það, sem eru ósamrýmanlegar
sósialísku þjóðfélagi? Svar:
Frjáls verkalýðsfélög, afnám
ritskoðunar á fjölmiðlum, rétt-
arvernd einstaklingaog minni-
hluta hópa. I einu oröi sagt:
Lyðræði. Sovétkommúnismi er
ósamrýmanlegur lýðræði. Verði
kröfum um raunverulegt lýð-
ræði haldið til streitu, blasir
ekkert annað við en sovésk
hernaðarinnrás.
Þetta er boðskapurinn, sem
formaður pólska Kommúnista
flokksins hefur aö flytja verka-
mönnum i Lenln-skipaverk-
smiðjunum i Gdansk, árið 1980.
Það er kaldhæðni örlaganna, að
þessar miklu skipasmiðastööv-
ar skuli bera nafn þess manns,
sem er höfundur þeirrar þjóð-
félagskenningar, sem rikissós-
ialisminn I Austur Evrópu
byggir tilveru sin á.
Þeim mun merkilegra er, að
aðalritstjóri Þjóöviljans, mál-
gagns verkalýöshreyfingar og
sósialisma á Islandi, hefur I rit-
stjórnargrein ráðlagt skipa-
smiðunum i Lenin-smiðjunum,
að kynna sér betur kenningar
Lenins. Hann segir að þær hafi
gefist vel sem leiðarvisir i bar-
áttu gegn alræðisstiórnum
Hvernig væri að gáfumanna-
félagið i Alþýðubandalaginu
skyti saman i farareyri fyrir
Kjartan Ólafsson, þannig að
hann gæti i eigin persónu flutt
verkamönnunum i Lenin-skipa-
smiðjunum þennan makalausa
boðskap sinn?
H ver var kjarninn I kenning-
um Lenins þessa? Hann setti
fram kenningar um það, hvern-
ig fámennur en harðsviraður
samsærishópur gæti með of-
beldi náð völdum, þrátt fyrir
andstöðu mikils meirihluta
þegnanna. Hann setti fram
kenningu um, að byltingarsinn-
aður flokkur marxista ætti að
lúta skipulagi hers og leynilög-
reglu, en vera ekki fjöldaflokk-
ur með lýðræðislegri uppbygg-
ingu, eins og Sósialdemókrata-
flokkar i V-Evrópu. Lenin setti
fram þá kenningu, að byltingar-
flokkurinn yrði að brjóta mis-
kunnarlaust á bak aftur alla
minnihlutahópa, alla stjórnar-
andstöðu, allan skoöanaágrein-
ing. Kenning hans var ólýðræð-
isleg i innsta kjarna. Það þjóð-
félag, sem pólskir verkamenn
eru nú I uppreisn gegn, er rök-
rétt niðurstaða af pólitiskum
kenningum Lerúns. Um það má
deila, hvort arftakar Lenins hafi
gengið lengra en hann ætlaöist
til i valdbeitingu, kúgun og of-
sóknum á hendur andstöðuhóp-
um. Um hitt veröur ekki deilt,
að valdakerfi Sovétkommún-
ismans er rökrétt niðurstaöa af
hugmyndum og kenningum
Lenins um aðferöir Kommún-
istaflokksins við að koma á
,,sósialisma.”
Við höfum áöur rifjað það
upp, að Kommúnistaflokkurinn
islenski og arftaki hans.
Sameiningarflokkur alþýðu-
Sósialistaflokkurinn, hafði ekki
annan sósialismaað boöa ásinni
tið, en þann sem pólskir verka-
menn biöja til Guðs að megi frá
þeim vikja. Þriðja ættliður
þessarar hreyfingar, AJþýðu-
bandalagið, hefur sem kunnugt
er forðast i' lengstu lög að ræða
sinn sósialisma. Af stefnuskrá
þess verður þó ekki annað ráðið,
en að það byggi en á þeim
dólgamarxisma, sem rekja má
til Lenins. En I staðinn fyrir
hugmyndafræðilega umræður
eru nú komnar samúðarkveðj-
ur, þegar mikið liggur við.
Stundum eru gerðar gælur við
eitthvað sem kallaö er evrópu-
kommúnismi. Um hann er það
að segja, að hann staðfestir
andlega uppgjöf og pólitiskt
gjaldþrot Sovétkommúnismans.
1 staðinn er settur hugmynda-
hrærigrautur, sem helst ein-
kennist af þvi, að engin hug-
myndhefur verið hugsuðtil rök-
réttrar niðurstöðu.
Sósialismi an lýðræðis 3r ekki
til. Þeir menn, sem skilja til
hlitar eðli Sovétkommún-
ismans, viðurkenna um leið, að
lýðræðið veröur aö verja. Það
verður aðeins gert með öflugu
varnarsamstarfi lýöræðísrikja,
hvað semliður öðrum ágreiningi
þeirra i milli. Lýðræði bygght
öðru fremur á vaiddieifingu.
Dreifing valds, hvort heldur er i
efnahagsmálum, stjórnmálum
eða skapandi menningu, sam-
rýmist ekki fræðikenningu
Leninismans, né heldur valda-
kerfi Sovétkommúnismans.
Áminningar Þjóðviljaritstjór-
ans til pólskra verkfallsmanna
um að lesa betur Lenin eru
ámóta kurteislegar og að nefna
snöru i hengds manns húsi.
— JBH
Að lesa betur Lenín
‘ÍTALINN
stöður
ígar
tar til starfa á
öngudeild Hvita-
idi hafi geðhjúkr-
■sreynslu á geð-
til greina.
arfa nú þegar á
ingardeild Borg-
:ig.
veittar á skrif-
isima 81200 (207)
X. laga nr. 40 18.
t og eignarskatt
um að álagningu
u 1980 sé lokið i
)á lögaðila sem
ndi samkvæmt 2.
g á þá aðila sem
æmt 3. gr. lag-
irseðlar) er sýna
;kattstjóra ber að
þessa skattaðila
agðra opinberra
:attaðilum hefur
álagningarseðli
it skattstjóra eða
n 30 daga frá og
rar auglýsingar.
'80,
ísumdæmi,
Minning
Björgvin Sæmundsson
bæjarstjóri í Kópavogi
Dáinn 20. ágúst 1980
Fæddur4. mars 1930 —
Bæjarstjórinn okkar er dáinn.
Þessi sorgarfrétt fór um Kópa-
vog sem eldur i sinu einn sól-
bjartan morgun nú i ágúst.
Hann hafði orðið bráðkvaddur
kvöldið áöur uppi á Holtavörðu-
heiði. Það var erfitt að trúa þvi
að þessi lifsglaði maður væri
allur. Vissulega haföi hann átt
við vanheilsu að striða seinni
árin, en áreiðanlega hefur eng-
angrunað að lifshlaup hans yrði
ekki lengra. En þannig gerist
það, kallið kemur þegar sist
skyldi og þá er ekki spurt um
aldur né annaö. Það er i sjálfu
sér ofur eðlilegt þegar aldur-
hnigin manneskja, þrotin að
kröftum og heilsu, fellur i val-
inn, en maður á erfitt meö að
sætta sig við, þegar atorkumenn
á besta aldri eru kallaðir burt
frá þessu lifi mitt i dagsins önn.
Þá stöndum við harmi slegin og
brestur skilning á tilgang for-
sjónarinnar.
Hér verður æviferli Björgvins
Sæmundssonar ekki gerð nein
tæmandi skil heldur aðeins
stiklað á fáu einu. Hann var
fæddur 4. mars 1930 á Akureyri.
Foreldrar hans voru Sæmundur
Steinsson bóndi að Hrúthóli i
Ólafsfirði og kona hans Magnea
Magnúsdóttir. Björgvin lauk
stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri árið 1950 og
fyrri hluta prófi i verkfræði frá
Háskóla tslands 1954. Arið 1957
lauk hann prófi í byggingar-
verkfræði frá DTH i Kaup-
mannahöfn. Að loknu námi
stundaði hann ýmis verkfræði-
störf og var m.a. bæjarverk-
fræðingur á Akranesi 1958-1960.
Björgvin varð bæjarstjóri á
Akranesi 1962 og gengdi þvi
starfi til 1970.
Þann 10. ágúst 1970 var hann
kosinn bæjarstjóri I Kópavogi
og þvi embætti gegndi hann til
dauðadags.
Það kom snemma f ljós að
Björgvin hafði einstaka forystu-
hæfileika. A námsárunum veitti
hann forystu félagi verkfræði-
nema og siðar varð hann for-
maður i ýmsum félögum og
samtökum bæði á Akranesi og I
Kópavogi.
En Björgvin var fyrst og sið-
ast sveitarstjórnarmaður. Þar
reyndi mest á hann og þar var
hann lika á heimavelli. Mér er
það mjög til efs, að aðrir menn
hér á landi hafi verið jafn vel að
sér um málefni sveitastjórna og
hann. Hann var góður og farsæll
stjórnandi sem iagði metnað
sinn i að gera hag bæjarins sem
mestan. Starf bæjarstjóra er
vissulega ekki neinn rósadans,
en sem framkvæmdastjóri
bæjarins verður hann oft á tið-
um að verja ákvarðanir bæjar-
stjórnar, hver svo sem hans
persónulega skoðun er. Þarna
var Björgvin Sæmundsson yfir-
burðamaöur, og á slikum stund-
um fann maður best, hve harður
málafylgjumaður hann var, og
um leið traustur samstarfsmað-
ur. Þvi miður urðu kynni okkar
Björgvins alltof stutt, en þvi
betur sem ég kynntist honum,
þeim mun meiri virðingu bar ég
fyrir honum. Hann reyndist
mér, nýliðanum i sveitastjórn,
einstakur lærifaðir og fyrir þaö
vil ég þakka.
Arið 1957 giftist Björgvin
eftirlifandi eiginkonu sinni As-
björgu Guðgeirsdóttur og eign-
uðust þau tvö börn Hildisif og
Kjartan.
Elsku Asbjörg min, við Sóley
sendum þér og börnunum, okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur i
ykkar miklu sorg. Megi minn-
ingin um góðan dreng lifa i hug-
um okkar allra. Enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hef-
ur.
Guðmundur Oddsson.
Auglýsing
samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18.
mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt
með siðari breytingum, um að álagningu
opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið i
Suðurlandsumdæmi á þá lögaðila sem
skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 2.
gr. greindra laga.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna
þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að
leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila
hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagðra opinberra
gjalda sem þessum skattaðilum hefur
verið tilkynnt um með álagningarseðli
1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans innan 30 daga frá og
með dagsetningu þessarar auglýsingar.
Hellu, 31. ágúst 1980,
Skattstjóri Suðurlandsumdæmis
Hálfdán Guðmundsson.
Auglýsing
samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18.
mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt
með siðari breytingum, um að álagningu
opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið i
Vesturlandsumdæmi á þá lögaðila sem
skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 2.
gr. greindra laga.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna
þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að
leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila
hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagðra opinberra
gjalda sem þessum skattaðilum hefur
verið tilkynnt um með álagningarseðli
1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans innan 30 daga frá og
með dagsetningu þessarar auglýsingar.
Akranesi, 31, ágúst 1980,
Skattstjóri V esturlandsumdæmis,
Jón Eiriksson.