Alþýðublaðið - 30.08.1980, Side 4
Sjónvarpsskermurinn lýsist
,upp og þar gefur aö sjá börn i leik
i sólskini á iðjagrænum grundum.
Nokkrir drengir leika knatt-
spyrnu, skora og fagna
ákaft.Þrjár ungar stúlkur sitja
undir vegg og klæða og hátta
dúkkur á vixl. Inn á myndina
kemur sandkassi, þar sem þeir,
sem landið munu erfa byggja hús
á sandi og búa sig þannig undir
framtiðarferil sinn i stjórn-
málum.
Nú kemur móðirin fram á
tröppurnar og kallar á börnin i
hádegismatinn. Þau hætta sam-
stundis þvi sem þau eru að gera,
og hlaupa i kapp heim að dyrum.
Undir öllum þessum svip-
myndum af áhyggjulausu og
glöðu smáfólki, drynur slagorð
A RATSJANNI
framleiðandans: „Vextir og
verðbólga. Vextir og verðbólga.
Vextir og verðbólga”.
Börnin koma inn i eldhús og
setjast við matarborðið. Þau
horfa til móður sinnar með eftir-
væntingarsvip. Hún brosir blitt,
snýr sér að eldavélinni og hrærir i
súpupottinum. Börnin iða af eftir-
væntingu.
Móðirin lyfir sleifinni að vitum
sér og andar að sér ilminum af
súpunni. Hún kinkar kolli ánægð
með árangurinn og ber nú pottinn
á matarborðið. Hún eys upp súp-
unni handa börnunum og þau
byrja að skófla i sig góðgætinu.
Nú hefur þulurinn mál sitt og
segir: „Vextir og verðbólga.
Vextir og verðbólga. Ef þú, hús-
freyja góð, villt ala þá vel upp,
sem landið eiga að erfa þá ferð þú
að okkar ráðum. Þú kaupir
félagsmálapakka Lystisnekkj-
unnar og lendir i súpunni. Kyn-
slóðir framtiðarinnar vaxa og
dafna best á félagsmálapakka-
unni frá Lystisnekkjunni. Lysti-
snekkjan er öllum allt:
Svona ættu þeir Lystisnekkju
menn að auglýsa. En þeir eru
seinheppnir með auglýsinga-
stjóra. I stað þess að vinna hylli
fólksins með auglýsingum, sem
eru þó vinsælasta efni sjónvarps-
ins, þá ráða þeir menn, sem iáta
hafa eftirfarandi eftir sér i
blöðum: „Við teljum að verð-
bólgan sé á það mikilli niðurleið
að vaxtahækkanir, sem eru það
veröbólguhvetjandi að þær gætu
seinkað þvi að vextir og verð-
bólga mætist.”
Þetta lét Jón Ormur Halldórs-
son, sérlegur aðstoðarmaður for-
sætisráðherra hafa eftir sér i Visi
i gær. Hann er formaður nefndar,
sem Lystisnekkjan skipaði til að
ihuga leiðir út úr efnahags-
ógöngunum. Sú nefnd mun nú
hafa skilað skýrsiu sinni til ráða-
manna Lystisnekkjunnar. Við
skulum vona að tiliögur nefndar-
innar séu skýrari og markvissari
en „sýntax” aðstoðarmannsins.
Þagall fullvissar lesendur sina
um, að tilvitnin hér að ofan er
orðrétt tekin upp úr Visi. Það er
meir en liklegt, að lesendur hafi
ekki trúað sinum eigin augum
begar þeir lásu tilvitnunina,” svo
Þagall ætlar að endurtaka hana
hér, feitletraða i þetta sinn: „Við
teljum að verðbólgan sé á það
mikilli niðurleiö að vaxta-
hækkanir, sem eru það verð-
bólguhvetjandi að þær gætu
seinkað þvi að vextir og verð-
bóiga mætist.”
Við skulum vona að aðstoðar-
maðurinn kunni meira fyrir sér i
hagfræði en hann kann i
setningarfræði, og það talsvert,
eins og organistinn sagði.
—Þagall
alþýöu-
STYTTINGUR
Fjórdungsþing
Norðlendinga
Fjórðungsþing Norðlendinga
verður haldið á Akureyri 31.
ágúst til 2. septemer 1980 Rétt til
þingsetu eiga 94 fulltfuar frá 66
sveitarfélögum og 6 sýslufélög-
um á Norðurlandi auk alþingis-
manna og annarra gesta. Þing-
setning verður sunnudag 31.
ágúst kl. 2. e.h. á Möðruvöllum,
raungreinahúsi Menntaskólans á
Akureyri. Þingið setur Valdimar
Bragason, bæjarstjóri á Dalvik,
sem formaður Fjórðungssam-
bands Norðlendinga. Fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bandsins Áskell Einarsson, flytur
starfsskýrslu og yfirlit um mál-
efni sambandsins. Formaður
fjórðungssambandsins kynnir
tillögur frá fjórðungsráði um
fjármál fræðsluskrifstofa,
sjávarútvegsmál, umdæma-
skipulag og tekjustofna sveitar-
félaga. Ennfremur kynnir hann
tillögur til breyönga á lögum og
þingsköpum sambandsins.
A mánudag 2. september 1980
verður umræðufundur um
sveitarstjórnarmál og þá einkum
um verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga, um umdæma-
skipulag, tekjustofnamál. Fram-
sögumenn verða Svavar Gests-
son, félagsmálaráðherra, Hall-
grimur Dalberg, ráðuneytisstjóri
og Jón G. Tómasson, formaður
Sambands fsl. sveitarfélaga.
Siðari hluta mánudags fara fram
nefndarstörf. Þingslit verða
siðari hluta þriðjudags 2. septem-
ber n.k.
• ••
Ferðamála-
bæklingur um
Norðurland
Nýlega hefur komið út á vegum
Fjórðungssambands Norðlend-
inga samræmdur ferðamála-
bæklingur fyrir Norðurland.
Bæklingurinn er i litum og prent-
aður á ensku og nefnist „Nort-
hern Iceland”. Einnig fylgir
bæklingnum auglýsinga og þjón-
ustuskrá fyrir Norðurland, sem
einnig er á ensku. tJtgáfa þessi er
gerð í samvinnu við ferðamála-
ráð um útlit og frágang. Hönnuð-
ur er Kristján Kristjánsson, aug-
lýsingateiknari á Akureyri, sem
réði að öllu leyti myndavali og
efnisröðun. Það sem einkennir
bæklinginn er að i miðju hans er
kort af Norðurlandi með númera-
skrá, ásamt stuttri lýsingu af 50-
60 stööum á Norðurlandi, þannig
að um leið og ferðamaðurinn sér
staðinn á kortinu getur hann
fengið vitneskju um hann. Hand-
rit hefur Eirikur Eiriksson,
prentari gert. Frágang lesmáls á
ensku annaðist Rafn Kjartans-
son, menntaskólakennari. Bækl-
ingi þessum verður fyrst og
fremst dreift erlendis i samráði
við Feröamálaráð, sem stuölaði
að útgáfu hans.
BOLABÁS
Boli hefur heyrt að horfur
séu á að Sigurður Helgason
Flugleiðaforstjóri, sem nú er
staddur í U.S.A., komist ekki
til sins heima þann 5. sept
n.k. mcð sinu eigin flugfé-
lagi. Flugliðið sem Sigurður
er búinn að sparka hefur
nefnilega engan áhuga á að
ferja hann yfir hafið. En
máske fær hann far með
S.A.S. Hvur veit?
f|l Grá Grunn-
rý skólum
Kópavogs
Grunnskólarnir (barna- og gagnfræða-
skólar) i Kópavogi verða settir með kenn-
arafundum i skólunum kl. 10 fh. mánudag-
inn 1. sept.
Næstu dagar á eftir verða notaðir til
undirbúnings kennslustarfs.
Nemendur eiga að koma i skólana föstu-
daginn 5. sept. sem hér segir:
7árabekkir (börnfædd 1973) kl. 15:00
8 ára bekkir (börnfædd 1972) kl. 14:00
9 ára bekkir (börnfædd 1971) kl. 13:00
lOárabekkir (börnfædd 1970) kl. 11:00
11 ára bekkir (börn fædd 1969) kl. 10:00
12 ára bekkir (börn fædd 1968) kl. 9:00
13 ára bekkir (börn fædd 1967) kl. 14:00
14 ára bekkir (börn fædd 1966) kl. 11:00
Framhaldsdeildir og fornám kl. 9:00
Forskólabörn (fædd 1974, 6 ára) verða
boðuð siðar simleiðis.
Skólafulltrúi.
Lífeyrissjjóður Dagsbrúnar og
Framsóknar hefur flutt
starfsemi sína að
Suðurlandsbraut 30, sími 84399
Síjórn Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar
og Framsóknar
A Frá Tónlistar-
y\ skóla
Kópavogs
Innritunhefst fimmtudaginn 4. september
og lýkur þriðjudaginn 9. september.
Innritað verður samtimis I forskóladeild-
ir. Skrifstofa skólans að Hamraborg 11, 2.
hæð, simar 41066 og 45585, verður opin inn-
ritunardagana kl. 9-12 og 17-18, nema
laugardaginn 6. september kl. 9-12.
Athygli er vakin á þvi að takmarka verður
fjölda nemenda i vetur.
Skólastjóri
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI A — SÍMI 25500
Starfsfólk í
heimilishjálp
F élagsmálastofnun Reykja vikurborgar
óskar að ráða starfsfólk til heimilishjálp-
ar.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
heimilishjálpar Tjarnargötu 11, simi
18800.
úrskurður-
Að beiðni bæjarsjóðs Kópavogs, úrskurð-
ast hér með lögtak fyrir útsvörum og að-
stöðugjöldum til Kópavogskaupstaðar,
álögðum 1980 sem falla i gjalddaga skv. 9.
gr. laga 13/1980.
Fari lögtak fram að liðnum 8 dögum frá
birtingu úrskurðar þessa, til tryggingar
ofangreindum gjöldum, á kostnað
gjaldanda, en á ábyrgð bæjarsjóðs Kópa-
vogs, nema full skil hafi verið gerð.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
19. ágúst 1980.
Auglýsing
samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18.
mai 1978 um tekjuskatt og eignarskatt
með siðari breytingum, um að álagningu
opinberra gjalda á árinu 1980 sé lokið i
Austurlandsumdæmi á þá lögaðila sem
skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 2.
gr. greindra laga, svo og á þá aðila sem
skattskyldir eru samkvæmt 3. gr. lag-
anna.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna
þau opinberu gjöld sem skattstjóra ber að
leggja á á árinu 1980 á þessa skattaðila
hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagðra opinberra
gjalda sem þessum skattaðilum hefur
verið tilkynnt um með álagningarseðli
1980 þurfa að hafa borist skattstjóra eða
umboðsmanni hans innan 30 daga frá og
með dagsetningu þessarar auglýsingar.
Egilsstöðum, 30. ágúst 1980,
Skattstjórinn i Austurlandsumdæmi,
Bjarni G. Björgvinsson.
Vextir og verdbólga:
FÉLAGSMÁLAPAKKASÚPA
LYSTISNEKKJUNNAR