Alþýðublaðið - 13.11.1980, Side 2

Alþýðublaðið - 13.11.1980, Side 2
2 Fimmtudagur 13. nóvember 1980 Tilboð óskast i að byggja 3. áfanga dag- heimilis við Hábraut í Kópavogi. útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjarverkfræðings Kópavogs i Félags- heimilinu Fannborg 2, gegn 50.000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 11 f.h. mánudaginn 24. nóv. n.k. og verða tilboð þá opnuð að viðstöddum bjóðend- um. Bæjarverkfræðingur. Laus staða Staða skattendurskoðanda við skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra Siglufirði er laus til umsóknar. Góð þekking á bókhaldi og reikningsskilum er áskilin. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist skattstjóra Norðurlands vestra, Túngötu 3, Siglufirði, fyrir 15. desember 1980. Fjármálaráðuneytið, 10. nóvember 1980. Laus staða Staða fulltrúa við embætti skattstjórans i Vestmannaeyjaumdæmi er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið prófi i viðskiptafræði eða lög- fræði eða hafi haldgóða þekkingu i bók- haldi og reikningsskilum. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist skattstjóranum i Vest- mannaeyjum, Heiðarvegi 1, fyrir 15. desember n.k. Fjármálaráðuneytið, 10. nóvember 1980. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför Sigfúsar Ólafssonar Hlið Siglufirði Þorfinna Sigfúsdóttir Steingrímur Magnússon Margrét ólafsdóttir JónDýrfjörö Bragi Dýrfjörð Birgir Dýrfjörö tengdabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns og föður Tryggva Stefánssonar byggingameistara Hafnarfirði fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstu- daginn 14. nóv. kl. 2.00 eh. Dagbjört Björnsdóttir Þórhallur Tryggvi Tryggvason. MINNING Tryggvi Stefánsson, húsameistari Fæddur 9. desember 1900 — Dáinn 5. nóvember 1980 Tryggvi Stefánsson, húsa- smiðameistari I Hafnarfirði, lézt hinn 5. nóvember s.l. tæp- lega áttræður að aldri. Tryggvi var fæddur hinn 9. des. 1900. sonur hjónanna Stefáns Sigurðssonar trésmiös i Hafnarfirði, og Sólveigar Gunn- laugsdóttur. Þau hjónin Sólveig og Stefán áttu tvær dætur og fimm syni. Synirnir öfluðu sér allir iðn- menntunar. Einn sonanna Sig- urður dó ungur, en hinir urðu máttarstólpar atvinnulifs og framkvæmda i Firðinum um áratuga skeið. Gunnlaugur lagði fyrir sig kaupmennsku, Friðfinnur og Ingólfur störfuðu sem múrarar, en Ásgeir og Tryggvi sem húsa- smiðameistarar. Framan af var Ásgeir oddviti þeirra bræðra i byggingarframkvæmdum, en Tryggvi tók við þvi hlutverki, þegar Asgeir varð forstjóri Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar árið 1931. Þeir bræður voru afbragðs fagmenn og hamhleypur til verka. Flestar meiriháttar byggingar i Firðinum fram undir 1950 höfðu þeir tekið að sér að reisa. Má þar nefna St. Jósefsspitalann, Barnaskólann við Lækinn og Flensborgar- Flugvellir 1 þýða óhagkvæm- ari flugvélategundir. Vélarnar verða að vera minni. Þær mega helst ekki vera hraöfleygar, enda er það svo, að viðast hvar á land- inu eru menn með frekar óhag- kvæmar vélar I notkun. Það mun vera svipað átak, að bera alla áætlunarvellina bundnu slitlagi og það er að leggja bundið slitlag á leiðina Selfoss — Reykja- vik. Á fundinum var i framhaldi af þessu rætt um fjárveitingar til flugmála. Kom fram i máli manna að þeim þætti fjárveiting- ar til flugmála vera af skornum skammti, i samanburði við fjár- veitingar til vegamála, en þær fjárveitingar voru teknar inn i umræðuna á þeirri forsendu, að flugið heföi nú tekið við farþega- flutningum landleiðis. 1 þessu ljósi er athyglisvert að minna á fjárveitingar til flugmála eru skornar niður núm um 8-9% á sama tima og fjárveitingar til vegamála eru auknar um allt að 20%. 1 ljósi þeirra upplýsinga sem komið hafa fram opinberlega vegna fundar Flugráðs má fast- lega búast við að samgönguráð- herrann, Steingrimur Hermanns- son, gangi nú i það aö „senda bréf” og „kanna viðbrögð manna”. Það er hins vegar engin von til þess aö stefnumótun fari fram i samgöngumálum i tið nú- verandi stjórnar. Þeirrar stefnu- mótunar er að vænta siðar! Skilyrði 1 Eins og öllum ætti að vera kunnugt um er nefnilega gengið þannig frá hnútunum i sjálfu frumvarpinu, að framkvæmda- valdinu er það nánast i sjáfsvald sett hvernig lögin verða prakti- séruð. Alþýðuflokksmenn hafa bentá,að þetta ségert i þvi skyni að framkvæmdavaldið geti ráöskast með málefni Flugleiða að eigin geðþótta 'og er ljóst að þeir hafa rétt fyrir sér, ef marka má mótsagnarkenndar yfirlýs- ingar Steingrims Hermannssonar á fundi Efri deildar. 1 þessu sambandi sagði Stein- grimur til aö byrja með, að óhæfa væri að setja þaö í landslög aö viöræður skyldu hefjast.” Þessu svaraði Kjartan á þá leið, að for- dæmi væri fyrir sliku í óíals- lögum. Þá sagði Steingrimur, að þaö væri misskilningur hjá Kjartani Jóhannssyni, að skilyrð- unum y rði breytt, eða þau skrum- skæld, þótt þau væru ekki lög- bundin. 1 sömu ræðu sinni sagði Stein- skóla, en tvær þær siðastnefndu hvildu að mestu i forsjá Tryggva. Sömu sögu er að segja af Ráðhúsinu og Bæjarbíói. Tryggvi og Guðjón Arngrims' son húsasmiðameistari störfuðu saman við húsbyggingar um all langt skeið. Byggðu þeir mörg Ibúðarhús saman, sem þekkt eru fyrir vandaðan frágang. Stærsta sameiginlega verkefni þeirra var svo Hjúkrunar- heimilið Sólvangur. Það standa því mörg minnismerki um handbragð og afköst Tryggva i Firðinum, þegar hann kveður okkur. Verksvit Tryggva geym- ist lika hjá þeim fjölmörgu sem lærðu trésmiði hjá honum. Enn er það ótalið að Tryggvi teikn- aði ýmis þeirra húsa sem hann tók að sér að smiða. Áriö 1940 gekk Tryggvi að eiga Dagbjörtu Björnsdóttur, dóttur hjónanna Ragnhildar Egilsdóttur og Björns Helga- sonar, skipstjóra i Hafnarfirði. Lifir Dagbjört mann sinn, en hún dvelst nú á Sólvangi. Kjör- sonur þeirra er Þórhallur Tryggvason, stúdent. Tryggvi var ævinlega dyggur stuðningsmaður Alþýðufíokks- ins og hvikaði aldrei frá þeirri stefnu sinni. Það vissu Álþýðu flokksmenn i Firðinum að i grimur hins vegar að margvís- leg framkvæmdaatriði þyrfti að athuga vegna skilyrðanna. Auk þess lýsti hann þvl yfir, að hann vonaðist til þess, að skilyrð- unum yrði ekki breytt verulega. Þá lýsti Steingrimur þvi, að félagið þyrfti starfsfrið og viður- kenndi, að sambandið milli rikis- valdsins og fyrirtækisins væri ekki nógu gott, né heldur væru samskiptin innan félagsins nægi- lega góð. Mótsagnakenndur málflutn- ingur ráðherrans, yfirlýsingar gagnstæðrar merkingar gefa það fyllilega til kynna, að krafan um lögbindingu skilyrða er nauðsyn- leg, og á fyllsta rétt á sér. Kjartan vék einnig i máli sínu sérstaklega að þeim yfirlýs- ingum,semgefnarhafa verið um málefni Flugleiða af ráðherrum og öðrum talsmönnum rikis- stjórarinnar. Hann minnti á makalaust viðtal samgönguráð- herra í útvarpi, þar sem ráð- herrann sagðist vera farinn að halda það aö hann hafi verið plataður. Þá minnti Kjartan á það, að Steingrimur hefði gefið það f skyn opinberlega, að sér virtist, að stjórnendur fyrirtækis- ins gerðu sér ekki grein fyrir vanda fyrirtækisins, eða, að þeir legðu ekki öll spilin á 'borðið. Þá minnti Kjartan Steingrim a pao, að hann hefði lýst því yfir, opin- berlega, að svo virtist sem málið tæki nýja stefnu með hverjum deginum sem liði. Hringlandaháttur Steingrims og stríðsyfirlýsingar Ólafs Ragnars Grfmssonar taldi Kjartan hafa valdiö óróleika, innanfélagsins sem utan, og hefði þessu leikur skaðað bæöi fyrir- tækið sjálft og þjóðarhagsmuni. Kjartan fullyrti, að yfirlýsingar- nar og hringlandahátturinn væri tilkominn vegna misskilnings. Hann benti réttilega á það, að ekkert talnaósamræmi heföi komið fram i' þeim upplýsingum, sern borist hafa frá Flugleiðum. Merkingaleysi yfirlýsinganna og klaufalegar yfirlýsingar ráð- herra mætti þvi fyrst og fremst rekja til þess, að viökomandi hefðu ekki kynnt sér málin nægi- lega vel, áður en þeir hlupu til og flettu ofan af „braskinu” og „samsærinu”. Að lokum gagnrýndi Kjartan Jóhannsson ýmislegt i starfi stjórnar Flugleiða og lagði áherzlu á þaö, að rikisstjórnin hefði átt að leyta til óháðra aðila strax i upphafi og láta þá meta það sem frá félaginu kæmi. Hefði það verið gert væri öruggt aö þetta mál væri úr sögunni nú. Það sem eftir stendur vegna þessa umfangsmikla máls er i öfugu hlutfalli viö þá athygli, sem málið hefur fengið á opinberum vettvangi. Stefna i samgöngu- Tryggvi Stefánsson, húsa- smlðameistari, Hafnarfirði. Tryggva áttu þeir traustan bak- hjarl og það viljum við þakka. Hann var maður uppbyggingar og framfara, ákveðinn í að gera landið betra og byggilegra. Til þess lagði hann drjúgan skerf með elju og eindæma ötulleika. Seinustu árin voru Tryggva þungbær. Hann var rúmfasturá fimmta ár. Nú hefur hann fengið hvild. Fjölskylda min og ég, vottum Dagbjörtu og Þórhalli og öðrum aðstandendum samúð okkar á þessari stundu. Kjartan Jóhannsson málum hefur dcki verið mótuð, rikissjóður hefur tekið að sér aö greiða hallann á Ameríkuflugi fyrirtækisins og spurningunni um það hvort Steingrimur bauðst til að hjálpa Flugleiðum, eða hvort Flugleiðir báðu um aðstoð, hefur enn ekki verið svarað. Sú spurn- ing er i raunauka atriði nú. Aðal- atriðið er það, að jafnvel I ein- földu máli, eins og Flugleiðamál- inu, getur rikisstjórnin ekki látið hendur standa fram úr ermum. Hún getur ekki leyst þau mál sem til hennar b’erast. Hún getur ekki leyst Ollu- malarmálið, án þess að láta skattgreiðendur borga brúsann. Hún getur ekki leyst vanda út- -gerðarinnar nema með þvi að flytja, til mikla fjármuni frá sjómönnum til útgerðar, gegnum oliugjaldið. Fjármálum rikisins er bjargað með hærri skatt- heimtu. Og kjarasamningum er bjargað með fyrirheitum um félagslegar aðgerðir, sem legið hafafyrir áður. Asama timalysa sumir ráðherrar þvi yfir að að þeim setji hroll, þegar þeir hugsi málið. Það ber allt að sama brunni. Stjdrnin er vond. —HMA Niðurgreiðslur 1 Annan þriðjudag berst þvi greiðslan til Framleiösluráös, sem afgreiöir greiðslurnar oftast samdægurs eða innan tveggja daga til söluaðila. Niðurstaðan er þvi sú að ferillinn ‘tekur um 18 daga. Fjármálaráðherra segir i svari sinu um afgreiðsluferil útflutn- ingsbóta, að útflutningsfyrirtæki sendi reikninga yfir útflutnings- bætur til Hagstofu Islands og samrit til Landbúnaðarráðuneyt- is og Framleiðsluráðs landbúnaöarins. Hagstofa Is- lands staðfestir verðábyrgð rikissjóðs miðað við skráð heildsöluverð innanlands. Hag- stofan sendir siöan nefndar verö- ábyrgðir til Landbúnaðarráðu- neytisins, sem gefur út greiðslu- beiönir vegna útflutningsbóta, þegar f jármálaráðuney tið heimilar útborgun. Framleiöslu- ráö landbúnaðarins tekur á móti útflutningsbótum og greiðir þær um hæl til útflutningsfyrirtækja. 1 svari fjármálaráðherra eru siðan rakin dæmi um greiðsluferil útfluttra landbúnaðarvara. Einnig kemur fram i svari fjármálaráðherra, að Fram- leiösluráð landbúnaðarins ber ábyrgö á innra eftirliti meö niöur- greiðslum, en Rlkisendurskoðun skoöar frumgögn reglulega hjá Framleiðsluráöi og Rikisbók- haldi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.