Alþýðublaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.01.1981, Blaðsíða 3
3 Laugardagur 17. janúar 1981 alþýðu- q fíT'Tr.M Ctgefandi: Alþýðuflokkurinn Framkvæmdastjori: Jóhann- es Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Blaðamenn: Helgi Már Arthúrsson, ólafur Bjarnii Guðnason, Þráinn Hall- gri'msson. Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuldur Dungal. Auglýsingar: Þóra Haf- steinsdóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdótt- ir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Ritstjórnog auglýsingar eru að Síðumúla 11, Reykjavik, sími 81866. I heimi orkukreppu hafa Islendingar þóttst geta horft björtum augum til framtiðar- innar vegna óþrotlegra orku- linda i iðrum jarðar og i fall- vötnum landsins. 1 samanburði við aðrar þjóðir ýmsar, sem byggja orkubúskap sinn á innfluttri oliu eöa öðrum orkugjöfum, sem eru á þrotum og ekki verða endurnýjaðir, þykjumst við þvi vera hólpnir — a.m.k. þegar til lengri tima er litið. En þrátt fyrir bjartsýnar framtiðarspár er nú svo komið fyrir þessari þjóð, að hún býr nú þegar við orkukreppu og orku- skömmtun. Vonir standa til að úr þessu rætist á næsta vetri, þegar Hrauneyjarfossvirkjun kemur i gagnið. Hitt er ekki öll- um ljóst, að sú viðbótarorka, sem þaðan fæst, gerir ekki meira en fullnægja umframeft- irspurn, sem þegar er staðreynd. Hvað þá tekur við er mikil óvissu undirorpiö. Iðnaðar- ráðherra vonast til þess, að geta tekið ákvörðun um næstu stór- virkjun siðla á þessu ári, i besta falli i vor. 6—7 ár munu liða, áður en sú virkjun kemur að fullum notum. Ýmsir eru þegar farnir að kenna timabilið 1984—1987 við svartnætti orku- kreppu og orkuskorts. Hrauneyjarfossvirkjun er metin upp á ca. 150MW þegar báðar vélar hennar hafa verið gangsettar, sem ætlað er að verði snemma árs 1982. Til samanburðar má geta þess að orkuskömmtun á af- gangsorku nemur nú þegar 51MW. Orkuskömmtun á for- gangsorku mun um miðjan fe- brúar nema 87MW. Alls er þvi talið að rafmagnsskömmtun á þessum vetri samsvari um 138 MW. Áhverjum bitnar þetta? Hvað kostar þetta þjóðarbúið i glötuð- um framleiðsluverðmætum? Þrátt fyrir mikla fjárfestingu i byggðarlinum eystra, nyðra og vestra á undanförnum árum er nú svo komið aftur, að um land allt verður að keyra diselvélar til þess að forða orkuskorti. Erling Garðar Jónasson, raf- veitustjóri á Austfjörðum, segir i viðtali við Alþýðublaðið i dag, að þessi diselkeyrsla kosti 900 milljónir á 2 1/2 mán. Hann mótmælir þvi harðlega, aö ibúar landsbyggöarinnar, viðskiptavinir rafmagnsveitna rikisins, eigi einir að bera af þessu skaðann. Forstjóri Járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga segir að orkuskömmtunin hafi þegar leitt til þess, að annar ofn verksmiðjunnar hefur verið tekinn úr notkun. „Orku- skömmtunin er komin niður á það stig, að ef til frekari skömmtunar kemur, verður við hreinlega að stöðva fram- leiðsluna og loka.” Forstjóri lsals segir að orku- skömmtunin til fyrirtækisins nemi nú þegar 48 MW eða um nálægt 30% af heildar orkunni. ísal hefur þegar orðið að gripa til uppsagna á starfsfólki. Eftir nokkrar vikur kemur til enn frekari fækkunar, ef þessu held- ur áfram. T ap Landsvirkjunar á siðasta ári nam 1,2 milljörðum gkr. og er áætlaður um 1 milljaröur fram til vors. Verulega hefur dregið úr orkusölu til almenn- ingsrafveitna, til áburöarverk- smiðjunnar og Keflavikurflug- vallar. 1 þessu sambandi hefur at- hygli manna beinzt mjög að gangsetningu Hrauneyjarfoss- virkjunar. Alþýðublaðið rifjaði* nýlega upp, að ef staðiö hefði verið við upphaflega áætlun um gangsetningu hennar, þ.e. haustið 1980, væri nú enginn orkuskortur. Ástæðan fyrir frestun, sem ákveðin var i febrúar 1978 i iön- aðarráðherratið dr. Gunnars Thoroddsens, var sú, að þá var reiknað með 35 MW frá Kröflu, veturinn 1980—81. Kröfluævin- týri Gunnars Thoroddsens og félaga dregur þvi langan slóða á eftir sér. Ekki bætir úr skák, að eitt fyrsta verk Hjörleifs Gutt- ormssonar, sem iðnaðar- ráðherra, var að óska þess með bréfi, dags. 16.09.1978, „að Landsvirkjun endurskoðaði timasetningu framkvæmda við Hrauneyjarfossvirkjun með tilliti til þess, hvort ekki væri unnt að fresta gangsetningu fyrstu vélar hennar til haustsins 1982.” Astæöan fyrir frestunar- áformum ráðherrans var sú, að hann sótti fast eítir fjármagni til Bessastaðaárvirkjunar i heimakjördæmi sinu. Seinasta klukkutimann, sem ráðherrann var við völd haustið ’79 gaf hann út dagsskipun um að hefjast handa við þá virkjun. Þvi var afstýrt. Með þvi að hreyía þvi máli ekki meir hefur ráðherr- ann staðfest, að Bessastaðaár- virkjun hafi fyrst og fremst átt að vera „kosningavirkjun” ráðherrans i aðventukosningun- um 1979. Sem betur fór tókst Lands- virkjun að fá ráðherra ofan af frestunaráformum, meö þeim rökum, að þar meö væri of mikil áhætta tekin varðandi orkuskort og oliukeyrslu, ef útaf brygði með meðalárferði. Ráðherrann hefur nú gefið út yfirlýsingar, þar sem hann vill ekki kannast við þessi frest- unaráform sin. Þaö fer þó ekki milli mála. 1 viðtali við Morgun- blaðið 13.10. 1978, segir: „Þaö er að visu búið að undir- búa framkvæmdir og binda með samningum, sem dregur úr svigrúmi til breytinga, en engu að siður tel ég mögulegt að hnika allverulega til með fram- kvæmdir við Hrauneyjafoss- virkjun og draga úr fyrirhuguð- um framkvæmdahraða.” Um þetta þarf þvi ekki að deila. Tilkoma Hrauneyjarfoss- virkjunar 1981—82 getur i besta falli aflétt þeirri orkuskömmt- un, sem þegar hefur oröið að gripa til á annað ár. En hvaö tekur þá við? Næsta stórvirkjun verður ekki komin i gagnið fyrr en á árunum 1986—87, jafnvel þótt ákvörðun um hana væri tekin strax i dag. Við þessar kringumstæður er gjörsamlega óskiljanlegt, hvers vegna yfir- völd orkumála telja, aö ekkert liggi á að taka ákvöröun um næstu stórvirkjun fyrr en siðla á þessu ári. Sannleikurinn er sá, að þeirri ákvörðun hefur verið frestað of lengi. Hana hefðí þurft að taka strax haustiö 1978, þegar núverandi iðnaöar- ráðherra settist fyrst i ráðherrastól. Athyglisvert er, að samstarfsnefnd um orkumáí á Austfjörðum, i kjördæmi ráðherrans, hefur itrekað kraf- ist þess með samþykktum og ályktunum, að þessari ákvörðun yrði hraöað. En Austfirðingar hafa talað fyrir daufum eyrum yfirvalda i Iðnaðarráðuneyti. — JBH ORKUKREPPA I IÐN AÐARRÁÐUN EYTIN U INNLEND SYRPA Niðurfelling aðflutningsgjalda A vegum fjármálaráðuneytis- ins og iðnaðarráðuneytisins hefur á undanförnum mánuöum verið unnið aö endurskoðun á auglýs- ingu nr. 284/1978 um niðurfellingu eða endurgreiðslu tolls og/eða sölugjalds af ýmsum aðföngum til samkeppnisiðnaðar. Endur- skoðun þessari er nú lokið og hef- ur ný auglýsing nr. 8/1981 verið birt óg tók hún gildi 2. janúar sl. Við endurskoðun á aðflutnings- gjöldum var m.a. höfð samvinna viðFélagfslenskra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna. Var hafður til hliðsjónar listi yfir þá vöruflokka, sem fyrirsvars- menn þessara samtaka töldu nauðsynlegt að teknir yrðu inn i fyrrnefnda auglýsingu. Fullyrða má að þær breytingar, sem gerð- ar hafa verið á eldri auglýsingu, séu til verulegra hagsbóta fyrir iðnaðinn. Aætlað er að útgjöld -fyrirtækja i samkeppnisiðnaði lækki um 15 milljónir nýkróna á árinu 1981, vegna þessarar ráð- stöfunar, eða sem svarar til 1500 milljónum gamalla króna, og var gert ráð fyrir tekjurýrnun rikis- sjóðs sem þessu nemur við gerð fjárlaga 1981. Helstu breytingar sem felast I hinni nýju auglýsingu eru: a) Tekin eru upp tollskrárnúmer yfir fjölmarga nýja vöruflokka, auk þess sem gildissvið auglýsingarinnar hefur verið rýmkað að ýmsu leyti. b) í stað þess að gera eingöngu ráð fyrirniðurfellingu gjalda af ýmsum varahlutum við tollaf- greiðslu er nú jafnframt gert ráð fyrir þvi, að iðnfyrirtæki geti sótt um endurgreiðslu gjalda af varahlutum, sem þau hafa keypt af innlendum birgð- um. c) Felld eru niður aðflutnings- gjöld, vegna viðgerða erlendis sem fram fara á ábyrgðartima véla og tækja, sem fvilnana geta notið samkvæmt ákvæð- um auglýsingarinnar. Lánadeild iðngarða Hinn 17. nóvember 1980 gaf iðnaðarráðuneytið út reglugerð um lánadeild iðngarða við Iðn- lánasjóð. Við undirbúning reglu- gerðarinnar var haft samráð viö Samstarfsnefnd, um iðnþróun, sem i eiga sæti aðilar er tengjast iðnaðinum i landinu, svo og við stjórn Iðnlánasjóðs. Ráðuneytið telur rétt að vekja hér með athygli á þessari reglu- gerð nr. 584/1980, og möguleikum aðila til að fá lán til að reisa iðn- garða að uppfylltum tilteknum skilyrðum. 11. gr. reglugeröarinnar segir: ,,Samkvæmt heimild i lögum nr. 59/1979 um breytingu á lögum um Iðnlánasjóö, skal starfrækt við sjóðinn sérstök deild er nefn- ist lánadeild iöngarða. Deildin hefur þann tilgang að veita stofn- lán til sveitarfélaga, félagasam- taka og einstaklinga, sem reisa iðnaðarmannvirki, i þvi skyni að skapa starfsaðstöðu, fyrir iðn- fyrirtæki, efla þar með islenskan iðnað og stuöla að hagkvæmari dreifingu iðnaðar um landið.” 1 reglugerðinni er m.a. kveðiö á um heimild fyrir stjórn Iðnlána- sjóðs að leita eftir samstarfi við aðra sjóði um fjármögnun iðn- garða eftir þvi sem þörf krefur. Með starfsemi lánadeildar iðn- garða skal stefnt að aukinni iðnaðarframleiðslu. Að öðru jöfnu skulu ný iðnaöarfyrirtæki sitja fyrir um aðgang að iðngörðum. Samkvæmt reglugerðinni ber eigendum iðngarða að gera sér- stakar samþykktir um stofnun þeirra og notkun. Heimilt er að setja þar reglur um timabundin leiguhlunnindi fyrir fyrirtæki, sem fær aðstöðu i iðngaröi til að létta fjárhagslegar byrðar fyrir- tækis, sem er aö hef ja starf eða er á viökvæmu breytingarskeiði. Stjóm Iðnlánasjóðs ber hins veg- ar að foröast að lánveitingar til iðngarða leiði til neikvæðrar samkeppni milli fyrirtækja innan iðngarða og fyrirtækja sem utan við þá standa, hvort sem er innan einstakra byggöarlaga eða i land- Akureyri Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn að Strandgötu 9, mánudaginn 19. janúar kl. 20.30 Stjórnin. Blaðburðarbörn óskast á eftirtalda staði STRAX Skipasund — Efstasund Kleppsvegur — Sæviðarsund Barónsstigur — Eiriksgata — Leifsgata — Egilsgata — Mimisvegur—Þorfinnsgata. Hjarðarhagi—Kvisthagi — Fornhagi. Alþýðublaðið Helgarpósturinn Sími 81866 inu i heild. Tekjur lánadeildar iðngarða voru ákvarðaðar f lögunum 250 milljónir gamalla króna á ári, ár- in 1980—1983, sem taka ætti þá af almennu umráðafé Iönlánasjóðs i þessu skyni. Ýmsar sveitarstjórnir og aðrir aðilar hafa á undanfömum árum leitað eftir stuðningi við byggingu iðngarða og er með ráðstöfunum þessum verið að bæta út brýnni þörf. Það getur i ýmsum tilvikum haft úrslitaáhrif fyrir uppbygg- ingu nýrra iðnfyrirtækia' að auð- velda þeim að komast i hentugt húsnæði. Iðngarðar gefa einnig mögu- leika á margvislegu samstarfi fyrirtækja. Þannig geta mörg smærri fyrirtæki notið innan iðn- garða rekstrarhagræðis og að- búnaöar, sem aðeins hin stærri njóta venjulega. Bankamenn ____________1 að ná fram efndum á kjara- samningum frá árinu 1977. Ef þau 3% eru frátalin, sem bankamenn knúðu fram, og vanefnd voru frá samningunum 1977, stendur eftir vegin meðal- talshækkun launastiga sem nemur 3.12%. A tvo fjölmenn- ustu launaflokkana, þar sem er um helmingur bankamanna nemur launahækkun rétt um 3.5% og fer síðan lækkandi eftir þvi sem ofar dregur og nemur aðeins 0.40% i 12. flokki, 2. þrepi. Ljóst er þvi, að yfii^banka- mönnum vofir kjaraskerðing, sem er margföld miðað við þær hækkanir sem þeir hafa fengið eftir um 15 mánaða samninga- þóf. Stjórn SÍB þykir erfitt að finna samhengi á milli þeirrar láglaunastefnu, sem rikis- stjórnin hefur þóst reka og launahækkana siðustu mánaða, sem nema allt að 20 af hundraði. Þá þykir stjórn SIB það skjóta skökku við margitrekaðar yfir- lýsingar sumra aðstandenda rikisstjórnarinnar um að kjör launamanna væru ekki höfuðor- sök verðbólgunnar, um samn- ingana i gildi o.s.frv., að einu úrræðin sem rikisstjórnin sér nú, sé skeröing visitölubóta. Samband islenkra banka- manna hefur rekið kjaramál sin undanfarin misseri i trausti þess að.visitalan yrði i heiðri höfö. Ekki veröur horft fram hjá þeirri staðreynd, að megininn- tak bráðabirgðalaga rikis- stjórnarinnar er visitöluskerð- ing og þar með röskun á gerðum kjarasamningum. önnur atriði eru mjög óljós og stefnan i heild þokukennd og óáreiðanleg. Að ofansögðu er ljóst, aö stjórn Sambands islenskra bankamanna leggst gegn bráðabirgðalögunum og telur þau ekki fela i sér lausn á að- steðjandi vanda. Stjórn sam- bandsins áskilur sér allan rétt til aðgerða i þessu sambandi og bendir i þvi sambandi á rétt sinn skv. ákvæðum kjarasamninga, til endurskoðunar á kaupliðum samninganna, verði gerðar breytingar á umsaminni visi- tölu, svo rétt til endurskoðunar á launalið skv. 4. grein sam- komulags um kjarasamninga félagsmanna SÍB. Að lokum vill stjórn Sam- bands islenskra bankamanna lýsa vanþóknun sinni á yfirlýs- ingum stjórnvalda um samráð við launamenn, og ævinlega reynast oröin tóm. Til skýringar fylgir hér meö tafla yfir prósentuhækkanir launa félagsmanna SÍB, i launaflokkum 1—12 3. þrepi, samkvæmt samningunum frá 12. desember, að frádregnum 3%, sem voru vangoldin frá kjarasamningunum frá 1977 og áttu að greiðast frá 1. júli 1979. Þessberaðgæta.aðum 70% bankamanna taka laun skv. launaflokkum 6, 7 og 8, og sárafáir, eða um 0.1% taka laun skv. fyrstu tveimur flokkunum. Fiokkur 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 Hækkun i % 5.70 5.07 5.83 4.11 3.87 3.51 3.68 3.40 1.53 0.82 0.89 0.80

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.