Alþýðublaðið - 20.01.1981, Síða 3

Alþýðublaðið - 20.01.1981, Síða 3
Þriðjudagur 20. janúar 1981. 3 alfisýðu- tJtgefandi: Alþýöuflokkurinn Framkvæmdast jori: Jóhann- es Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Blaðamenn: Helgi Már Arthúrsson, Olafur Bjarnii Guðnason, Þráinn Hall- grimsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuldur Dungal. Auglýsingar: Þóra Haf- steinsdóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdótt- ir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Ritstjórnog auglýsingar eru að Síðumúla 11, Reykjavik, simi 81866. Sagt er að einn heimskingi geti spurtsvo glannalega að það vefjist jafnvel fyrir vitringun- um tiu aö finna skynsamleg svör. Nú hefur Dagblaðiö, með að- stoð simaskrárinnar, spurt 600 kunningja sina þessarar spurn- ingar: Ertu með eða móti efna- hagsráöstöfunum rikisstjórnar- innar? Svarið getur aðeins verið: Já eða nei. Niðurstaðan er sú að 279(46,5%) segja já. Andvigir eða óákveðnir teljast hinsvegar 321 eða 53,5%. En hvað þýðir já-ið, þegar grannt er skoðað? Karl úti á landisegir: „Ef þeir slysast til að gera eitthvað meira i vor, þá hljóta efnahagsaðgerðirnar að vera til bóta”. Annar lands- byggðarmaður svaraði: „Ráð- stafanirnar hefðu mátt vera rót- tækari. Ég er reiðubúinn að axla þyngri byrðar”. Isfirðingur svarar’ „Fylgjandi þeim, svo langt sem þær ná”. Maður á Ólafsfirði svarar: „Fylgjandi þeim sem byrjunaraögerðum, en fleira verður að koma til, ef árangur á að nást”. Kona i Keflavik svarar: „Fylgjandi þeim svo langt sem þær ná, en þær duga ábyggilega ekki einar”. Hvað þýða þessi svör I raun og veru? 1 fyrsta lagi: Að fólk gerir sér grein fyrir þvi, að ráöstaf- anirnar eru ekki það, sem þær segjast vera: Viðtækar efna- hagsráðstafanir, — heldur þvert á móti, skammtimaaðgeröir, sem kalla á mun róttækari ráð- stafanir innan skamms tima. 1 öðru lagi: Er þetta stuðn- ingur við efnahagsstefnu rikis- stjórnarinnar? Augljóslega ekki: Þetta er krafa um aö rikisstjórnin móti sér stefnu i efnahagsmálum, til lengri tima en næstu 4ra mánaða. En hvað þýðir þá nei-ið? Kona i Reykjavik svarar: „Það er lélegt að ganga á gerða samninga”. Karl i Reykjavik svarar: „Ég er andvigur launa- skerðingunni”. Kona i Höfn svarar: „Það er óréttlátt að ganga á samningana, á sama tima og þeir hækka kaupið hjá sjálfum sér”. Kona i Hvera- gerði svarar: „Það er ekki rétta leiðin að klipa af kaupinu”. Hver er rauði þráðurinn i þessum svörum? Þeir sem svara neitandi virðast fyrst og fremst vera fylgjandi óbreyttu visitölukerfi, og andvigir laga- boði, sem breytir þvi. Ef spurt er: Hvaða flokkur er það, sem sýknt og heilagt boðar varð- stöðu um óbreytt visitölukerfi? Hvaða flokkur er það, sem hingað til hefur sagt, aö hann muni aldrei liða ihlutun með lagaboði i gerða samninga? Svar: Alþýöubandalagið. Er nei-fólkið þá aðallega úr röðum þess? Vissulega ekki, ef niöur- stöður skoðanakönnunarinnar eru túlkaðar eins og Dagblaðið sjálft gerir. Um hvað er i raun og veru verið að spyrja? 1 fyrsta lagi: Ertu meðmæltur þvi að núverandi visitölukerfi sé afnumið með lagasetningu? Yfirgnæfandi meirihluti kjós- enda Alþýðuflokks, Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks munu svara því játandi. Kjós- endur Alþýðubandalagsins munu væntanlega harðneita þvi. 1 öðru lagi er spurt: Ertu fylgjandi aukinni verðtryggingu sparifjár og styttingu innláns- bindingar á sparireikningum? Þetta er stefna Alþýðuflokks- ins, enda beinlinis tekin að láni úr frumvarpi, sem þingmenn Alþýðuflokksins lögðu fram um miðjan desember. Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda Alþýðu- flokks, Sjálfstæðisflokks og verulegur hluti Framsóknar- manna myndu svara þessu ját- andi. Ef marka má málflutning Alþýðubandalagsins um há- vaxtastefnu, verður að ætla aö meirihluti kjósenda þess sé and- vigur. 1 þriðja lagi er spurt: Ertu fylgjandi frestun eða niður- skurði opinbera framkvæmda. Bæði Alþýðuflokkur og Sjálf- stæðisflokkur hafa krafizt niðurskurðar á opinberum út- gjöldum. Hinsvegar er ekki sama um hvað niðurskurðurinn snýst. Alþýðuflokksmenn hafa t.d. boðað niðurskurð útgjalda til landbúnaðarmála, innflutn- ings fiskiskipa, og ýmissa opin- berra stofnana, en vilja auka út- gjöld til orkumála og fiskiðn- aðar. Aö þvi upplýstu, aö hverju niöurskurðurinn beinist, myndu kjósendur Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks svara spurn- ingunni játandi. Kjósendur Al- þýðubandalags og flestir Fram- sóknarmenn myndu væntanlega svara neitandi. Niðurstaðan i þéssum spurn- ingaleik Dagblaðsins virðist þá vera þessi: Ef hin almenna spurning Dagblaðsins er leyst upp i frumefni sin og sett fram á hlutlægan hátt, mundu flestir andstæðingar núverandi rikis- stjórnar svara henni játandi. Sýnishorn, sem Dagblaðið gefur sem dæmigerð já-svör, benda til þess að svo sé. Hinsvegar er ljóst, að mikill meirihluti stjórnarsinna úr Al- þýðubandalagi og aö hluta til úr Framsókn myndu svara spurn- ingunum neitandi. Júlkun stjórnarblaöanna, Dagblaðsins og Þjóðviljans, á niðurstöðum þessa spurninga- leiks Dagblaðsins er þess vegna gersamlega út i hött. Þessi skoöanakönnun er reyndar skólabókarfordæmi um félags- fræðifúsk. Villandi spurningar, ranglega fram bornar, fram- kalla villandi svör. Túlkun blaðsins sjálfs á svörunum veldur þvi siðan, að niðurstaðan er ómarktæk. Ef spurt er: Ertu með eða móti hjöðnun verðbólgu? — má ætla fyrirfram, að yfirgnæfandi meirihluti segði já. Það segir hinsvegar nákvæmlega ekki neitt um mat manna á efna- hagsstefnu núverandi rikis- stjórnar. Afleiöingarnar af efnahagsstefnu rikisstjórnar- innar hingað til, bentu til yfir 80% verðbólgu, i stað 15%, sem lofað var, fyrir árslok 1981. Með þvi að afnema verðbætur á laun og fresta gengisfellingu fram eftir ári, bendir ýmislegt til þess, að ríkisstjórninni takist að halda verðbólgustiginu óbreyttu, þ.e. i 55% á ári. Yfir- lýst markmið rikisstjórnar- innar sjálfrar um 40% verð- bólgu nást sannanlega ekki. Af tvennu illu munu flestir fremur kjósa 55% verðbólgu en 80%, einkum og sér i lagi stjórnar- andstæðingar, sem gerar strangari kröfur i þeim efnum. Játandi svar við spurningu Dagblaðsins þýðir á mæltu máli: „Af tvennu illu eru frest- unaraögerðir betri en engar aö- gerðir. Við hefðum hins vegar kosiö allt annars konar aö- gerðir, sem hefðu gefið fyrirheit um varanlegan árangur”. Þeir sem þannig svara spurningu Dagblaðsins eru eðli málsins samkvæmt andstæðingar nú- verandi rikisstjórnar. JBH MEÐ EÐfl MÓTIHVERJU? Á ÁRSAFMÆLI S0VÉSKU INN- RÁSARINNAR í AFGHANISTAN Meðal margra þjóða, sem eru uggandi vegna sovésku innrásar- innar í Afghanistan, eru Kinverj- ar. Hér fylgir eftir grein, þýdd ár Beijing Review, eftir kinverska biaðamanninn Yi Min. Áætlun Sovétmanna haföi verið sá að ná völdum i Afghanistan I einni svipan. Það er nú ljóst, að þar misreiknuðu þeir sig. Þrátt fyrir yfirburði i vopnabúnaði og mönnum, 100.000 hermenn, skrið- drekar, brynvarðir bilar, stór- skotalið, sprengjuflugvélar, þyrl- ur og eiturgas, hefur Sovétmönn- um ekki tekist að vinna bug á Afgönum. Þvertá móti munu þeir hafa mikið mannfall, eða 10.000 manns. Til þess að fela sannleikann fyrir sovésku þjóðinni hafa sov- ésk yfirvöld ákveðið, að lik hinna föllnu eru ekki send heim heldur grafin i Afghanistan. Sovétmenn hafa byggt liksmiðjuverksmiðju I Kabui, sérlega i þessum tilgangi. Þeir, sem illa eru særöir, meðal hermannanna, eru sendir á spit- ala viðs vegar ilepprikjum Sovét- rikjanna í Austur-Evrópu. Þegar komið var i ljós, að þungavopn dugðu ekki til i bar- dögum við skæruliða, skiptu sov- ésk yfirvöld um baráttuaðferðir. I Kreml lýsti Brezhnef yfir að draga ætti hluta hersveitanna til baka, og með mikilli viðhöfn sendu Sovétmenn til baka sínar gagnslausu eldflaugar, skrið- drekabyssur og stórskotalið, og sendu í stað þeirra, við litla við- höfn, hersveitir, sem hafa hlotfð þjálfun i gagnaðgerðum gegn skæruliðum. Þó hefur þeim litið sóst baráttan. Flugvellir, her- stöðvar, borgir og samgönguæðar eru i sifelldri hættu af árásum skæruliða. Sovésk yfirvöld hafa lýst þvi yfir að liðssafnaður þeirra I Afghanistan sé litill. Það er sannað mál, að svo er ekki, þeir hafa sent þangaö ógrynni liðs. Ekki einasta þurfa sovéskir hernámsmenn að eiga við skæru- liða, heldur einnig mótmælaað- gerðir i Kabul og öðrum borgum. Þeir hafa reynt að deila og drottna, með þvi að nota Afghani gegn Afghönum. Þeir hafa reynt að stjórna I gegnum leppstjórn Karmals, en sú blekking hefur orðið til litils. Hermenn i afgh- anska hernum hafa gerst lið- hlaupar i hópum, þvi þeir vilja ekki deyja fyrir Sovétrikin og ekki berjast gegn löndum sinum. Oftlega hefur frést af heilum her- flokkum, sem hafa gengið til liðs við skæruloða uppi i fjöllunum. Fjöldi hermanna í stjórnarhern- um hefur minnkað úr 100.000 i 30.000. Stjórn Karmals hefur reynt að kaupa sér tryggð hersins með hærri launum og betra fæði. En þó laun hermannanna séu nú niu sinnum hærri venjulegs opin- bers starfsmanns, hefur það reynst stjórninni næstum ómögu- legt að fá menn til að ganga i her- inn. Það gerir stjórn Karmals ekki auðveldara fyrir, að átök innan hennar eru mikil. Hver stjórnar- deild hefur sina sovésku ráðgjafa. Meir að segja lifveröir Karmals eru sovéskir, ekki afghanskir, og lýsir það kannski hvað best hversu almenns stuðnings stjóm- in nýtur. Staðreyndin er að stjórn Karmals gæti ekki setið einn ein- asta dag, án sovéskrar aðstoðar. Það er talið að sovéski stuðning- urinn kosti Kremlverja um 5 mill- jón dollara á dag og af öllum sól- armerkjum að dæma, eiga Sovét- menn fyrir höndum langt og blóð- ugt striö. Vegna ihlutunarinnar i Afghan- istan hafa Sovétrikin verið for- dæmdumallanheim, oghafa ein- angrast mikið. Allsherjarþing Sameinuðu þjóöanna samþykkti meö yfirgnæfandi meirihluta ályktun, þar sem krafist var að allar erlendar hersveitir yrðu þegar á brott frá Afghanistan. Á ráðstefnu islamskra þjóða var samþykkt ályktun, þar sem lýst var yfir fullum stuöningi við bar- áttu afghönsku þjóðarinnar og krafist var að sovéskar hersveitir yrðu þegar á brott þaðan. Yfirlýs- ingar Sovétrikjanna um að þau séu hinn eðlilegi bandamaður þriðja heims ríkja, hljóma eins og lélegur brandari. Eftir innrásina, hefur „detente”, sem Sovétrikin reiddu sig svo mjög á, verið aö deyja drottni sinum. A Madrid- ráðstefnunni, þar sem átti að skoða árangurinn af Helsinki- sáttmálanum, var það innrásin i Afghanistan, sem kom i veg fyrir að nokkuð ynnistá. Efnahagsleg- ar refsiaðgerðir, sem Bandarfkin og sum vestur-evrópsk lönd stóðu fyrir, ásamt mótmælum i kring- um Ólympiuleikana, sýndu hvað þjóðum heims fannst um innrás- ina i Afghanistan. En þó innrásin hafi bakað Sovétmönnum mikil vandræði, hafa þeir neitað að draga sig til baka þaðan. Um leið og Kremlverjar neita að hlusta á kröfur heimsins, hafa þeir aukið ofsóknir sínar á hendur Afghön- um. Þeir hafa einnig reynt að gera stöðu slnaí Afghanistan lög- lega með þvi að undirrita samn- inga við leppstjórn sina i Kabul. Mikil hermannvirki m.a. eld- flaugsskotpallar, hafa verið byggð i Afghanistan og þar er rekin hrein nýlendustefna af Sovétmönnum. Tilgangur Sovét- manna er greinilega sá að ná völdum i landinu i eitt skipti fyrir öll. Samkvæmt skipunum frá Kreml, buðu stjórnarleppar þeirra i Kabul Pakistan og Iran upp á samningaviðræður, til að blekkja heiminn og þakka niður í gagnrýnisröddum. Það skiptir höfuðmáli fyrir Sovétrikin, að stjórnin i Kabul fái löglega viður- kenningu, þannig að hernám þeirra verði óbeint viðurkennt, sem orðinn hlutur, svo þeir geti hreinsað sig af því að gera innrás i þriðja heims riki. Það erum þetta, sem hin svokallaða póli- tiska lausn Afghanistan-málsins snýst, hvað Sovétrikin varðar. Afstaða Sovétrikjanna vegna Afghanistansýnir aö innrásin var ekki tilviljun, heldur liöur I lang- tima ráðagerðum Sovétmanna um heimsyfirráð. Afghanistan stendur þannig, að sá sem þar ræður rlkjum hefur yfirburða- stöðu gagnvart olíurikjunum viö Persaflóa, Indlandshaf og áfram yfir Suður-Asiu. Siðan á fimmta áratugnum hafa Mið-Austurlönd og Suður-Asia verið helsta skot- mark Sovétmanna. Með svokall- aðri „aðstoð”, hafa þeir fjárfest mikið á þessum slóðum. bæði meö peningum og vopnum. A siðari hluta sjöunda áratug- arins hefur valdajafnvægið milli Sovétrikjanna og Bandarlkjanna gerbreyst. Sovétríkin hafa náð fótfestu við Rauðahaf og Adenflóa og hernám Afghanistan gerir þeim kleift að ráðast gegn íran úr austri, ná þannig völdum við Persaflóa og tengja þannig her sinn við Rauðahaf og Adenflóa. Með þvi að ráðast til austurs á Pakistan, gætu Sovétrikin opnað leiðina til Suður-Asiu og þannig náð að tengja heri sina við Kyrra- hafsflota sinn, en hann er i högg- flri við Malakkasund, eftir að Vietnamar réðust inn I Kampút- seu. A siðasta ári bar á því, aö sovéskar hersveitir tækju stöðu °g byggðu aðstöðu við pakist- önsku landamærin og þau. irönsku. Um leið hafa Sovétmenn stutt við bakið á fylgismönnum sinum innan þessara landa, sem og aðskilnaðarsinna meðal ým- issa þjóðarbrota. Þaðmá af þessu sjá, hversu mikilvægt svæöi Afghanistan er, I áætlunum Sovétrikjanna. Og þetta er eina mögulega túlkunin á fyrirætlun- um Sovétrikjanna með innrásinni i Afghanistan. Ef menn skoða innrásina I Afghanistan aðeins Gunnarsson i hlutverki Sower- berry’s líkkistusmiðs og Jó- hönnu Norðfjörð sem kona hans. Mér fannst þau bæði skila sinum hlutverkum vel einkum var gaman að sjá gamalkunnugt en þó nýtt andlit Jóhönnu. Þórunn var skemmtileg Carlotta, létt og lævís eins og vera ber. Gervi Fagins, gyðingsins, var mjög nærri sannleikanum i höndum Baldvins Halldórssonar. Mikið getur hann Erlingur gert sig ljótan, svei mér þá, ef þetta var ekki sjálfur Bill Sikes á sviðinu. Guöbjörg, Valur og Ævar voru hvort öðru ljúfara, og það minnti mann þægilega á gamla daga að sjá þau öll aftur saman á sviðinu. Ekki sætti ég mig alveg við túlkun Eddu Þórarins- dóttur á hinni yndislegu Rósu, velgerðarkonu og frænku Oli- vers. Leikstill hennar stakk I stúf við öll hin, og Rósa var of ýkt til þess að sannfæra mann um gæsku sina. Það kom fyrir, að ekki heyrðist til leikenda á sviðinu, og þá fóru áhorfendur að tala saman um það sem þeir héldu, að væri aö gerast. Þar sem leik- tjöld eru svo til engin, og ekkert sem svæðisbundið vandamál, falla menn í þá gryfju að vanmeta heimsvaldastefnu Sovétrikjanna. En þó Sovétrikin séu heims- veldi, grátt fyrir járnum, hefur þeim ekki tekist það, sem þeir ætluðu sér að gera i Afghanistan. Afghanir eru fátæk þriðja heims þjóð. Þá vantar vopn. Baráttuað- ferðir þeirra, sem og samlyndi gæti verið betra. Þó hefur máttur Sovétrlkjanna ekki dugað til að merja þá niður. Þvert á móti eykst andspyrna sifellt. Þetta er enn ein sönnunin á þvi, að enginn nútima árásaraðili getur vonast tilað sigrast á þjóðum Suður-Asiu með leiftursókn. Rikari og betur búinn árásaraðili getur tekið landið hrskildi en honum er ó- mögulegt að hafa raunverulega stjórn yfir því til lengri tima. Fá- tækter hindrun,en verður kostur, þegar berjast skal gegn háþróuðu árásarrfki, þvi fátækt fólk getur þolað miklar þrengingar, og lé- legar samgöngur gera yfirburði óvinarins i vélvæddu striði einsk- is virði. Skæruliðamir i Afghan- istan geta frætt heiminn um það, að útþenslustefna Sovétrikjanna er ekki ómótstæðileg. til þess að beina hljóðinu fram i salinn, verða leikendur aö gæta þess að tala fram, ef þeir eiga að halda athygli áheyrenda, og verða svona smágallar væntan- lega lagfærðir. En hver er þá heildarniður- staðan af þessari barnaleiksýn- ingu Þjóðleikhússins? Eins og ég sagði, þá langaði mig til þess aðupplifa eitthvaö, gleyma mér á sama hátt og þegar ég las bók- ina. En mér tókst það ekki. Nú er það kannski ekki aö marka, þarsem ég er fullorðin, en þetta er bamaleikrit. En lifðu þá bömin sig inn i ævintýri Olivers litla? Grétu þau af meðaumkun þegar hann var laminn? Grétu þau af gleði, þegar hann slapp frá ræningjunum? Nei, ég varö þess ekki vör. Þau trúðu ekki einu sinni á morðið á Nancy. Börn á sjónvarpsöld kippa sér kannski ekki upp viö neitt. Þau hafa séð allt. Þegar Bill Sikes murkaði lifið úr ástkonu sinni fyrir framan nefið á okkur, sagði einn fimm ára polli I næstu röð fyrir framan: Sást’etta? Hann kýldi hana niður með annarri hendi. Bryndís Schram Oliver Twist

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.