Alþýðublaðið - 14.05.1981, Side 5
Fimmtudagur 14. maí 1981 5
W&Bmr -íjp
Nýr vísitölugrunnur í sjónmáli:
Dyrara verður að greiða niður búvörur
Óhjákvæmilegt að saman fari vísitölugrunnur og samningar í haust,
segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ
Hagstofa Islands vinnur rní aö
endurskoðun á þeim vísitölu-
grundvelli, sem við búum við, en
eins og kunnugt er var hann
byggður á neyslukönnun, sem
gerð var á árunum 1964—65. Eins
og augljóst er, hefur margt
breyst i matar- og neysluvenjum
okkar siðan þá. Árið 1978 fór fram
Aðalfundur
Mjólkursamlags KEA
Aöalfundur Mjólkursamlags
KEA var haldinn I Samkomuhús-
inu á Akureyri, miðvikudaginn 6.
mai 1981 og hófst hann kl. 13:00.
Formaður kaupfélagsstjórnar,
Hjörtur E. Þórarinsson, Tjörn,
setti fundinn. Fundarstjórar voru
kjörnir Oddur Gunnarsson,
Dagverðareyi, og Benjamin
Kristjánsson Ytri-Tjörnum og
fundarritarar Ari Jósavinsson,
Auðunn og óttar Björnsson,
Garðsá.
Á fundinn mættu 130 mjólkur-
framleiðendur. Mjólkursamlags-
stjóri, Vernharöur Sveinsson,
flutti itarlega skýrslu um rekstur
Mjólkursamlagsins á árinu 1980.
Innlagt mjólkurmagn var
21.550.795 litrar og hafi minnkað
um 2.445.347 lítra eða 10.19% frá
fyrra ári. Meðalfitumagn mjólk-
urinnar var 4.086%, en 97,36%
fóru i 1. flokk. Mjólkurfram-
leiðendur 1980 voru alls 276 að tölu
og haföi fækkað um 7 frá fyrra
ári. Meðalinnlegg á mjólkur-
framleiðanda var 78.082 litrar. Af
mjólkinni var 22% selt sem
neyslumjólk en 78% fór til fram-
leiðslu á ýmsum mjólkurvörum.
A árinu 1980 var framleitt:
316.7 tonn smjör
1.272,8 tonn ostur af ýmsum teg.
56,1 tonn mysuostur og
mysingur
145.7 tonn skyr
5,3 tonn kasein
53,7 tonn youghurt
Heildarvelta Mjólkursamlags-
ins nam gkr. 10.012.486.206. Fjár-
magnskostnaður vegna nýju
mjólkurstöðvarinnar, sem tekin
var i notkun á siðasta ári, nam
gkr. 42,41 pr. ltr. mjólkur en gkr.
31.36 pr. ltr. vantaði á að rekstur-
inn skilaöi framleiðendum fullu
grundvallarveröi.
A fundinum voru samþykktar
önnur neyslukönnun hérlendis og
mun hún verða notuð til grund-
.vallar nýjum visitöluútreikning-
um. 1 könnuninni tóku þátt 176
fjölskyldur á Stór-Reykjavikur-
svæðinu. og einnig var gerð könn-
un á 5 stöðum úti á landi. Þegar er
ljóst að talsverðar breytingar
verða á visitölugrunninum, t.d.
ályktanir til Framleiðsluráös um
málefni mjólkurframleiðslunnar.
Haukur Halldórsson,
Sveinbjarnargerði, var endurkos-
inn I samlágsráð og sem vara-
menn þeir Haukur Steindórsson,
Þrihyrningi og Oddur Gunn-
arsson, Dagverðareyri.
Fyrstu stúdentarir frá
Menntaskólanum
á Egilsstöðum
Otskrift fyrstu stúdentanna frá
Menntaskólanum á Egilsstöðum
fer fram I Egilsstaðakirkju
sunnudaginn 17. mai kl. 14.00.
í skólanum hafa verið I vetur
151 nemandi á 6 brautum, uppeld-
isbraut, náttúrufræðibraut,
viðskiptabraut, félagsfræðibraut,
málabraut og eðlisfræðibraut.
Kennt er eftir einingakerfi og
áfangakerfi. Vegna þess hve
sameiginlegur námskjarni hinna
ýmsu námsbrauta er mikill, er
hægt að kenna nemendum saman
að miklu leyti á þeim 6 náms-
brautum sem nú eru i boði. Þá ber
þess að geta að hægt er að hefja
nám á hvaða braut framhalds-
skólastigsins sem er og ljúka hér
allt að tveim til þrem árum áður
en farið er I aðra sérskóla.
Samstarf framhaldsskóla á
Austurlandi hefur verið mikið og
gott. Stjórnunarnefnd, en I henni
eiga sæti skólastjórar allra skóla
fjóröungsins, sem framhaldsnám
reka hefur yfirumsjón með
náminu og leitast við aö tryggja
samræmingu náms og próf-
krafna. Meö nefndinni starfar
áfangastjóri og deildarstjórar I
hinum einstöku fögum.
Það er merkur áfangi i sögu
skólans og raunar fjórðungsins i
heild þegar nú á sunnudag út-
skrifast frá skólanum 22
stúdentar. Allir vinir og velunn-
arar skólans eru velkomnir I
Egilsstaðakirkju.
mun vægi matvöru innlendrar
sem erlendrar minnka I grund-
vellinum, en vægi ýmissa
munaðarvara og annars, sem
ekki telst til beinna lifsnauðsynja
hækka. Alþýðublaðið hefur aflað
sér nokkurra heimilda um gang
þessa starfs m.a. hjá Vinnuveit-
endasambandi Islands, en sam-
bandiö á fulltrúa i Kauplagsnefnd
ásamt Alþýðusambandi Islands,
sem taka munu á ýmsum ágrein-
ingsmálum og reyna að komast
að samkomulagi um grundvöllinn
i heild, en að þvi loknu mun koma
til kasta Alþingis að setja ný lög
um hinn nýja visitölugrundvöll.
Fulltrúar ASÍ og VSI hafa báöir I
samtali við Alþýðublaðiö látið
uppi þá skoðun, að æskilegt væri,
að hinn nýi visitölugrunnur liggi
fyrir i haust, áður en gengið er til
samninga og sagði Asmundur
Stefánsson, m.a. I samtali við
Alþýöublaðið i gær, að
óhjákvæmilegt væri að saman
færi endurskoöun á visitölunni og
nýir samningar i haust.
Hlutfall matvöru lækkar
Við leituðum til Jónasar
Sveinssonar fulltrúa Vinnuveit-
enda i Kauplagsnefnd og báðum
hann að segja okkur frá þvi
helsta, sem breyttist I visitölu-
grundvellinum, eftir að teknar
verða inn forsendur úr þeirri
neyslukönnun, sem áður er vitnað
til
Jónas sagði að það væri alveg
ljóst, að hlutfall matvörunnar
mundi lækka i hinum nýja grund-
velli, hins vegar myndu ýmsir
aðrir liðir hækka svo sem ferðir
og feröalög. Kostnaður vegna bif-
reiðar veröur einnig nokkru hærri
en nú er. Landbúnaðarvörur
munu eins og almennar matvörur
vega minna i grunninum. „Þetta
eru aðalbreytingar”, sagði hann,
„aörar breytingar eru mun
léttvægari. Það er verið að vinna
úr könnuninni sem tekin var 1978
og ekki er á þessu stigi hægt að
nefna neinar tölur um þessar
breytingar þannig að ekki er hægt
að segja i smáatriðum hvernig
þetta kemur til með að breytast,
en við sjáum svo linurnar i
þessu”.
Jónas var spurður hvernig
þessari vinnu miöaði og hvort
vænta mætti einhverra
ákvarðana og niðurstaðna á næst-
unni. Hann sagöi, að tölvuvinnsla
gagna væri nú i fullum gangi og
Kauplagsnefnd væri farin aö
leggja mat á þær upplýsingar
sem henni hafa borist. „Ef þetta
gengur fram sem horfir, getur
verið að hægt verði að ljúka þessu
á einum til tveimur mánuðum, en
ég þori þó ekki alveg að fullyrða
það%’, sagði hann.
Æskilegt að ný visitala
verði til fyrir
samninga i haust
Ef Kauplagsnefnd tekst aö
komast að samkomulagi um hinn
nýja grundvöll, mun málið
væntanlega sent Álþingi, sem
setja mun þá lög á grundvelli
samkomulagsins. Jónas
Sveinsson sagði i gær, að hann
teldi, að nefndin mundi ná
samkomulagi, viss vandamál
heföu komið upp og mundu ef-
laust koma upp en hann sæi ekki
annaö á þessu stigi en að þau yrðu
leyst. „Það getur hins vegar tekið
nokkurn tima að ná samkomulagi
um viss atriði, en ég tel sjálfur að
það væri mjög æskilegt, ef
samkomulag næðist við
launþegahreyfinguna um nýjan
grundvöll. „Ég býst þó ekki viö að
þaö verði nein atriði, sem geta
valdið meiriháttar ágreiningi, en
það eru viss matsatriði, sem við
veröum að skoða og ná sam-
komulagi um”, sagði hann.
Jónas var spuröur að þvi, hvort
hann teldi, að hinn nýi visitölu-
grundvöllur yrði kominn I gagnið
fyrir samninga i haust. „Ég
mundi fagna þvi ef svo yrði, en ég
tel nú að það sé nokkuð hæpið,
mér finnst miklu liklega aö nýi
grunnurinn verði tekinn upp i
kjölfar samninganna. Annars
kemur framfærsluvisitalan
ekkert inn i þetta sem slik, en
verðbótavisitalan gerir það hins
vegar og menn reyna væntanlega
að koma sér niður á einhverja
lausn þar i samningunum I haust.
Ég mundi fagna þvi, ef visitölu-
grunnurinn nýi, eins og ég segi,
yrði tekinn upp fyrir samningana,
en g býst varla viö að svo verði”,
sagði hann.
Útgjöld meðal-
fjölskyldu hækka
En niðurstöður neyslukönn-
unarinnar eru ekki einhlitar. Vel
getur verið, að þó að ýmsar
niðurstöður úr könnuninni sýni
eitt, verði annað ákveðið I hinum
endanlega grundvelli, enda I
sumum atriðum um pólitiskt mat
aö ræða. Alþýðublaöið hefur
heimildir fyrir þvi, að liklega
muni útgjaldafjárhæð grund-
vallar meðalfjölskyldu, eða
útgjaldafjárhæö úr neyslukönn-
uninni vaxa verulega frá þvi sem
nú er, sem þýðir það, eins og áður
$
Stjórnvöld hafa notfært sér þetta m.a. með þviað greiöa niöur landbúnaðarvörur, en það er tiltölulega
ódýrt nú, vegna þess, að hlutdeild þeirra er miklu hærri i vísitölunni en ef fariö væri eftir raunverulegri
neyslu.