Alþýðublaðið - 22.09.1981, Síða 6

Alþýðublaðið - 22.09.1981, Síða 6
6 Þriðjudagur 22. september 1981 Viðtal við Hussein Jordaníukonung: „Afskipti Vestur-Evrópu Austuríöndum nær, er helsta nýmæli síðustu Um miðjan mars átti Hussein konungur i Jórdaníu viðtal við fréttaritara Newsweek i Amm- an, Julian Nundy, en hann var þá aö búast til viðræöna við Alexander Haig utanrikisráð- herra Bandarikjanna. Viötaliö birti Newsweek 23. mars 1981. — Hvaða stefnu tekur rikis- stjórn Reagans i málum ná- lægra austurianda? , ,Ég vona, að rikisstjórnin i Washington kynni sér alla málavexti iþessum heimshluta, sem svo mjög mæðirá.áður en hún markar stefnu sina. Ég vona og biö þess, að orð og gerð- ir undanfarinna ára haldi ekki nýju rikisstjórninni fanginni, heldur liti hún málin ferskum augum. Ef Bandarikin bæru eigin hag fyrir brjósti, mundum við og bandariskir vinir okkar eygja f jölmargar leiðir til sam- fylgdar, En á þessu stigi örlar ekki á mótaðri og eindreginni stefnu.” — Hvað finnst yður um áhuga Bandarikjanna á að styrkja stoðu sina i Persaflóa? „Örói á þessu svæöi verður rakin til átaka Israels og Araba. Sundurþykkja okkar stafar aö- allega af þvi, að vandamál Palestinu hafa ekki verið leyst. Oryggi á þessu svæði veröur að- eins tryggt með þvi aö leysa palestinsku vandamálin. Ibúar nálægra austurlanda eiga sjálf- ir að bera ábyrgð á öryggi þeirra og vörnum — Hvemig list yður á endur- nýjuu Bandarikjanna á orrustu- flugvélum Saudi-Arabiu af gerðinni F-15? „Saudi-Arabia á fulla kröfu til þeirra fiugvéla með öllum út- búnaði. Saudi-Arabar geta átt hendur sinar að verja og sækj- ast þess vegna eftir sem bestum tækjakcsti — tækjakosti sem er þegar i vopnabúum ísraels satt að segja. Ég er feginn þvi, að þau mál hafa verið leyst. Æ ofan i æ gengur Israel á eigin hagsmuni. Saudi-Arabia á ekki siður sinn rétt, auk þess sem ör- yggi hennar og framtið er lika ógnað. Án tillits til þarfa tsraels ætti að fjalla um beiöni Saudi- Arabfu um kaup á vopnum til landvarna.” — Teljið þer, að aö frum- kvæöi, sem Vestur-E vrópa hef- ur að undanförnu tekið i málum nálægra austurianda, muni flýta fyrir gerð friðarsamn- inga? „Afskipti Vestur-Evrópu af þeim eru helsta nýmæli siðustu ára. Evrópa iiggur að þessum heimshluta, svo að hana varöa beinii'nis atburðir i honum. Vin- veittir menn i Vestur-Evrópu eru þess vegna farnir að leita lausnar á vandkvæðum heims- hlutans eftir réttlátum og var- anlegum friði.” — Fyrir skömmu fóru Ráð- stjórnarrfkin fram á ráðstefnu höfuöveldanna tveggja, Þjóð- frelsishreyfingar Palestinu, rikja Vestur-Evrópu ásamt Ar- aba-rikjum og israel. Munið þér hvetja til slikrar ráðstefnu i för yðar til Moskvu á næstunni? „Ég veit ekki, hvað á góma ber i heimsókn minni til Moskvu. Upp á öllum vanda- málunum mun ég brydda til að heyra undirtektir þar. Það er góð hugmynd, aö allir hlutað- eigendur hugi að friðarskilmál- um.” — Var hyggilegt að bægja Ráöstjórnarrikjunum frá frið- arumleitunum fyrr á árum? „Það var ekki hyggileg ráða- breytni. Ráðstjórnarrikin segj- ast vinna að friöi á þessu svæði og sanngjamt er, að þau fái tækifæri til þátttöku.” — Þér hafið hafnað uppá- stungu að inálamiölun, sem nefnd er „Jórdaniu-iausnin”, Hvernig túikið þér þá uppá- stungu og hvers vegna er henni visað á bug? „Viö höfnum henni, af þvi' að við skiljum hana ekki. Pale- stinumenn hafa einir rétt til að ákveða framtiðsina og Israel þá ekki. Enginn hefur rétt til að taka fram fyrir hendur Pale- stinumanna.” — Haldið þér, að rikisstjórn Verkamannaflokksins i tsrael undirforystu Shimon Peres yrði fúsari til friðarviðræðna (en nú- verandi rikisstjórn)? „Fyrarvara er þörf. Verka- mannaflokkurinn fór áður með rikisstjórn. En frá þvi að alls- herjarþingSameinuðu þjóðanna ( samþykkti ályktun 242 i nóvem- ber 1967 fram til stjórnarmynd- unar Likud-bandalagsins varð Verkamannaflokknum ekkert ágengt i friðarmálunum. I framtiðinni kunna aðrir þættir að hafa áhrif á stefnu Israel. Þaö á I alvarlegum efnahags- legum vandræðum, jafnvel þótt haftsséeftir Jimmy Carter for- seta, að i stjórnartiö hans hafi ísrael hlotiö meiri stuðning frá Bandarikjunum en á saman- lögðum dögum allra fyrri stjórna. Felri flytjast frá Israel en þangað, og Aröbum i tsrael fer fjölgandi. Hvenær sem ísra- el hefur verið i vanda statt á umliðnum árum, hefur það skorið upp herör. Erfitt er að segja um, hvort stefna þess i framtiðinni verði undir öðrum þáttum komin.” — Þér hafið nýiega farið hörð- um orðum um Henry Kissinger. Teljið þér honum hafa orðið mikil mistök? „Henry Kissinger hefur verið pesónulegur vinur minn, eins og ég vona, að hann verði enn um ókomna daga. Mistök urðu, meðan hann gegndi ábyrgöar- stöðu, eins og hann hefur sjálfur viðurkennt. Hann olli ekki að- eins mér vonbrigðum, heldum öllu frekar öðrum i þessum heimshluta. Hann var ekki óvil- hallur, heldur dró taum Israels. Honum urðu lika á ranghermi um aðgerðir Jórdaniu upp úr 1973. En við verðum að horfa fram á við, og ég vonast til raungóðra samskipta við hann.” — Hvað leggið þér að Alex- ander Haigh utanrikisráðerra á fundi yðar? „Ég ræði við hann af hrein- skilni. Frá málsatvikum segi ég honum allt af létta, eins og ég þekki til þeirra sem Arabi, og bið hann að mynda sér eigin- skoðun um þau. Ég vona að rikisstjómin i Washington verði raunsærri ar áöur i vandamál- um þessa svæðis.” — Hvernig fer, ef sjálfheldan I friðarumleitunum i nálægum austurlöndum varir mikiu ieng- ur? „Að þvi dregur, að menn gefi loksins og algerlega upp von um nokkra lausn. Af þvi mundi stafa feiknarleg hætta.” H.J. SKYTTURNAR 108. D’Artagnan og Athos sættu sig alls ekki við að sofa i sitt hvorum enda vcitinga- hússins, og lýstu þviyfir, að þeir myndu liggja i veitingasalnum. Veitingamaðurinn hélt fast við að þeir skyldu iiggja upp á herbergjum, en varð að gefa eftir á endanum. — Grimaud getur passað hestana i hesthúsinu aleinn, sagði Planchet, þannig að ef herrarnir vilja, get ég legiö á hálmknippi, fyrir framan dyrnar. — Það er rétt hjá þér, sagði d’Artagnan. Mér list heldur ekki á svipinn á veitinga- manninum. Hann er alltof undanlátssamur. Klukkan f jögur vöknuðu þeir við hávaöa frá hesthúsinu. Þaö var Grimaud, sem hafði vakið hestasveinana og þeir launuðu honum greiðann með þvi að ganga i skrokk honum. Hann iá mitt Iforgarðinum, meðstórtsár á höföinu. Það leit ekki vei út. Planchet fór til þess aö söðla hestana, en þeir voru styggir. Við garðhiiðið stóðu tveir hestar, söðlaðir og tilbúnir til feröar. Athos fór inn til aö borga, en veitingamaðurinn æpti upp yfir sig, að peningarnir hans væru faiskir. Hann vildihandtaka Athos og alla hina. — Endemis óþokki, öskraði Athos. Ég sker af þéreyrun! i þessu komu fjórir vopnaðir menn þar að og réöust að Athosi. — Þeir hafa náð mér, kaliaöi Athos. D’Artagnan, flýttu þér að stað, fiýttu þér. i sama augnabliki kváðu við tvö skot. D’Artagnan og Planchet létu ekki hvetja sig tvisvar. Þeir leystu hestana við garö- hliðið, köstuðu sér á bak, og stormuðu af stað. — Sást þú hvernig fór fyrir Athosiz spurði d’Artagnan um ieið og þeir þutu áleiðis. 109. — Ég sá aö tveir menn féiiu fyrir skotum Athosar, sagði Pianchet, og ég sá ekki betur,, í gegnum dyrnar en að hann væri að kljást við hina tvo. Hundraö skrefum frá borgarhliöcalaise, gáfust hestarnir upp, og neituðu að fara skrefi lengra. Þeir d’Artagnan og Planchet létu þá dýrin bara eiga sig, og hlupu sem fætur toguðu niður að höfninni. Planchet varð aö benda herra sinum á að á undan þeim gekk aðalsmaður, með þjóni sinum. Aðalsmaðurinn gekk til sjómanns, og bað um far til London. — Það ættiekkiað vera erfitt, svaraði skipstjórinn, en við megum ekki flytja farþega nema þeir hafi leyfi til ferðarinnar frá kardinálanum. — Ég hef slíkt leyfi, sagði aðaismaðurinn, og dró skjalupp úr vasanum. — Hafnarfógetinn veröur að skrifa uppá það, sagöi skipstjórinn. Hann á jörð nokkuð fyrir utan bæinn, og hann er þar nú. Aðalsmaðurinn og þjónn hans flýttu sér af stað. D’Artagnan og Planchet fylgdu þeim eftir f dáiltilli fjarlægð. Þegar þeir komu út fyrir bæinn, gekk d’Artagnan að aðalsmanninum, og bað hann aö láta sér eftir vegabréfið, þvi hann yrði að komast til Englands. — Það er ómögulegt, sagði aðalsmaðurinn. Ég hef feröast sextiu milur á 44 klukku- stundum, og verð aö vera kominn til London um hádegi á morgun.Sg þjóna kónginum ! — Þvi miður, sagði d’Artagnan, en ég hef ferðast sömu vegalengd á aöeins 40 timum, og ég verð að vera i London klukkan tlu. Ég þjóna sjáifum mér. Planchet! Þú sérð um þjóninn. Ég skal sjá fyrir herranum!

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.