Alþýðublaðið - 22.09.1981, Side 7
Þriðjudagur 22. september 1981
7
FLOKKSSTARFIÐ
FRÆÐSLURÁÐ ALÞÝÐUFLOKKSINS
Leiöbeiningarnámskeiö Alþýöuflokksins fyrir útgáfu
staöarblaöa, veröur haldiö dagnana 25. 26. og 27. septem-
ber 1981.
Námskeiösstaöur: Alþýöuhúsiö, Strandgötu 32, Hafnar-
firöi.
DAGSKRSA
Föstudagur/ 25. sept.
Kl. 20.00
■— NAMSKEIÐIÐ SETT
— Kynning þátttakenda.
— Hvernig veröur blaö til.
— Kaffi.
laugardagur, 26. sept.
kl. 09.00—12.00 —Vinna.
kl. 12.00—13.00 — Matarhlé.
kl. 13.00—18.00 — Vinna.
kl. 19.00 — Sameiginlegur
kvöldveröur.
Sunnudagur, 27. sept.
kl. 09.00—12.00 — Vinna.
kl. 12.00—13.00 — Matarhlé
kl. 13.00—18.00 — Vinna.
— Námskeiösslit.
Efnisþættir sem teknir verða fyrir.
Fjárhagsgrundvöllur.
Val á vinnsluleiöum, auglýsingar, dreifing (selja, gefa,
senda á stofnanir og vinnustaöi), fjárhaldsmaöur, bók-
hald.
Efnisöf lun
Viötalstækni, ljósmyndun, val ljósmynda, fréttaöflun — úr
bæjarlifinu — frá sveitarstjórnum og nefndum, leiöari,
stjórnmálagreinar, samband viö sveitarstjórnarmenn og
þingmenn, fréttiraf flokksstarfi, verkalýösmál, kynning á
atburðum, stofnunum, fólki, meöferö efnis, gera þungt
efni létt.
Uppsetning efnis
Aætla rúm hvers efnis, staðsetning mynda, staðarval
greina, (útsiöa — innsiöa — baksiöa — ofarlega — neöar-
lega) stærö og mál, skriftýpur, val á letri, fyrirsagnir,
millifyrirsagnir, — loft. Hjálpartæki — ciceromál,-
limstafir, linur, rammar, svartur pappir, ljósakassi. Upp-
haf greina.
Prenttækni — heimsókn í prentsmiðju
Hvar á að prenta — hvernig, kostnaöur við mismunandi
aöferöir, setning — venjuleg prentun — offsetprentun —
offsetfjölritun — geymsla efnis á diskum.
Upplíming — prófarkalestur
Hvernig hægt er að lima upp sjálfur til offsetprentunar
eöa fjölritunar. Fariö yfir leiöréttingatækni, prófarka-
lestur.
*
ÞATTTÖKUGJALD VERÐUR KR. 200 og er þar inni-
faliö kaffi og allur matur. Stjórnun námskeiösms veröur i
höndum þeirra: Sigriöar Einarsdóttur, Hauks Helga-
sonar, Rannveigar Guömundsdóttur, Braga Jósepssonar
og Guömundar Oddssonar.
Þötttaka tilkynnist, skrifstofu Alþýöuflokksins, simi 29244
svo fljótt sem unnt er.
Fræðsluráð Alþýðuf lokksins
SÖLUSKATTUR
Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð
1981, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin
4,5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð,
talið frá og með 16. október.
Fjármálaráðuneytið,
21. september 1981
Styrkir til náms í
Sambandslýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráðið i Reykjavik hefur tilkynnt islenskum
stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa
Islendingum til náms og rannsóknastarfa i Sambandslýð-
veldinu Þýskalandi á námsárinu 1982—83:
1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu
hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
2. Þrir styrkir til að sækja tveggja mánaöa þýskunám-
skeiðsumarið 1982. Umsækjendurskulu hafa lokiö eins
árs háskólanámi og hafa góða undirstööukunnáttu i
þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til visindamanna til námsdvalar og
rannsóknastarfa um allt að fjögurra mánaöa skeið, og
4. Nokkrirstyrkir ætlaðir námsmönnum i hugvisindgrein-
um tilað sækja þriggja-fjögurra vikna sumarnámskeiö.
Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs háskólanámi og
áskilin er næg kunnátta i þýskri tungu.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála-
ráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 25. októ-
bern.k. Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö
17. september 1981.
Kópavogur_________________1
niöur eða aö hann renni ínn i
fjölbrautaskóla Kópavogs
ásamt framhaldsdeildum i Vig-
hólaskóla og Þinghólsskóla.
I framhaldi af þessum tillög-
um skólanefndar gerði fulltnli
Alþýöubandalagsins, Ólafur
Jens Pétursson, bókun, þar sem
hann hótar aö slita meirihluta-
samstarfi viö hina flokkana,
sem fara með stjórn bæiarmála
i Kópavogi, ef ekki verði farið
að tillögum Alþýöubandalagsins
i þessu máli. Bókun hans er á
þá leið, aö ef samstarfsflokkur i
bæjarstjóm geri samkomulag
við aöra um þessi mál, sem ekki
tengjast gagngerri skipulagn-
ingu framhaldsskólastigsins
meö hliösjón af samræmdum
framhaldsskóla,líti hann svo á
að grundvöllur meirihlutasam-
starfsins sé brostinn.
Vitað erað framsóknarmenn i
bæjarstjórn eru tilbúnir að
styöja tillögur ihaldsins um af-
not eða kaup á Þinghólsskóla
fyrir Menntaskólann. Ef þeim
tekst aö fá fulltrúa borgaralist-
ans til aö taka þátt i aö sam-
þykkja tillöguna, er kominn
meirihluti fyrir tillögunni i bæj-
arstjórn. Umleiöreynir á hvort
Alþýöubandalagiö muni gera
skólamálin aö fráfararatriöi i
núverandi bæjarsamstarfi. Þ
Togarinn 8
hverjir veriö mjög óánægöir
meö kjör sin á siöasta ári og þau
ekki fylgt visitöluhækkunum hjá
ööru launafólki. tslenskir tog-
arar eru geröir meira og minna
út á skrap, enda þótt sjórinn sé
yfirfullur af þorski. Þaö má
bara ekki veiöa hann.
Samandregið er ástand þess-
arar undirstööuatvinnugreinar
þjóöarinnar vesælt um þessar
mundir. Er ekki timi til kominn
aö láta skammtimaredding-
arnar lönd og leiö og skoöa nú
öll málefni sjávarútvegsins i
samhengi og stokka rækilega
upp og gefa á nýjan leik? Þvi
miöur er varla aö vænta slikrar
uppstokkunar á meöan Stein-
grimur er viö skrifboröiö niðri i
sjávarútvegsráöuneyti. Hjá
honum verbur ekki vart neins
heildaryfirlits eöa ákvaröana i
samhengi. Heildstætt mat og
yfirlit á stööu sjávarútvegsmál-
anna er þaö sem þarf og I fram-
haldi er þörf á uppskuröi og
gagnlegum endurbótum, sem
ná yfir alla þætti sjávarútvegs-
ins. —GAS
Bílbeltin
hafa bjargað
Sigurður Þór
Guðjónsson
skrifar um
tónlist
Stórbrotinn
einfaldleiki
Bruckner: Sinfónia nr. 4 i Es-
dúr
Wcbern: Fimm þættir fyrir
strengjasveit
Hindemith: Sinfónfskar um-
myndanir
Stjórnandi Paul Zukovsky
Nemendur fimmta Zukovsky
námskeiösins héldu tónleika i
rokinu og rigningunni laugar-
daginn 29. ágúst i Háskólabiói.
Fyrst léku þeir fjóröu sinfóniu
Bruckners. Margir eiga erfitt
með aö þola Bruckner. Það get
ég vel skilið. Hann er ekki
spennandi. En hann er blátt
áfram, heiðarlegur, bamslegur
og kann vel til verka. Heimur-
inn li'tur þó með hálfgerðri fyr-
irlitningu á þá sem slikum kost-
um eru gæddir og mega ekki
vamm sitt vita. t stuttu máli
sagt á eðlilega og heilbrigða
menn. Bruckner var jafn sann-
ur og blátt áfram og grasið á
jörðunni. En nú á dögum óttast
menn slikt og þvilíkt. Slikir eig-
inleikar búa i kjánum og litil-
sigldum persónum. Heimsmenn
og áhrifavaldar eiga að vera
slóttugir, duglegir aö koma sér
áfram og harðir ihorn aö taka. t
fáum orðum sagt jafn ómann-
legir og óeðlilegir og nútima
véltækni. Fyrir þeim sem þann-
ig hugsar hlýtur Bruckner aö
vera frumstæður og óþolandi.
En þeir sem mætur hafa á ein-
földu lifi og fábreyttu fólki þykir
væntum Bruckner. Og hann var
enginn sauður.Hann hugsaöist-
orar hugsanir á látlausan hátt.
Stórkostleiki hans og hugvit
leynir lika á sér. Enhann gefur
mikið þegar allt er komið i
kring.
Þaö var mesta furöa hve
þettta stórbrotna verk var vel
flutt af þessu unga fólki. Menn
geta veriö bjartsýnirum hag is-
lenskrar tónlistar þegar þessir
nemendur Zukovskys taka að
hasla sér völl.
Eftir hlé fluttu nemendurnir
fimm þætti fyrir strengjasveit
op. 5 eftir Webern og Sinfónisk-
ar ummyndanir eftir Hinde-
mith. En hann finnst mér leiðin-
legasta tónskald allra tima. Ég
veitað þvi veldur persónulegur
smekkur eöa smekkleysi. Ekki
verður honum frýjað vits né
kunnáttu. EJn andleysi hans og
þurramæöi er óbærileg. Ekkert
tónskald finnst mérbetur sanna
aö það er i raun og veru hvorki
sniUd né vit i listaverkum sem
hrifur okkur mest. Það er ein-
faldlega karakter mannsins
sem heillar okkur eba fælir al-
veg einsog i alvöru lifinu. Sumir
höfundar eru alveg yndislegir
þó þeir séu mestu klaufar. E n af
þeim verkum sem ég þekki eftir
Hindemith finnst mer þó þessar
Sinfónisku ummyndanir viö-
felldnast. En ekki vildi ég deila
húsnæði með höfundinum og er
égþóekki vandlátur iþeimefn-
um á þessum siðustu og hús-
næðislausustu timum. Hins veg-
ar langar mig til að óska flytj-
endum og stjórnanda til ham-
ingju meö flutninginn, áhugann
og lifsfjöriö.
SiguröurÞór Guðjónsson
Fulltrúastaða í
u tanrikisþ j ónustunni
Staða háskólamenntaðs fulltrúa i utan-
rikisþjónustunni er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist utanrikisráðu-
neytinu, Hverfisgötu 115, 105 Reykjavik,
fyrir 10. október 1981.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 17. september 1981.
FLOKKSSTARF
KJÖRDÆMISÞING
Alþýöuflokksins i Reykjavik verður haldið i veitingahúsi
Glæsibæjar við Alfheima laugardaginn 10. október og
sunnudaginn 11. október n.k.
Fundarefni:
1. Umræöur um viðfangsefni 40. flokksþings Alþýöu-
flokksins 24. og 25. október n.k.
2. Umræður um stjórnmálaástandið.
3. önnur mál.
Til þingsins eru hér meö boðaðir aö venju allir aðalfulltrú-
ar og varafulltrúar i fulltrúaráðinu sem og allir trúnaöar-
menn flokksins i borginni i siöustu kosningum.
Þinghaldiö veröur nánar auglýst siöar.
F.h. Stjórnar Fuiltrúaráös
Alþýöuflokksins i Reykjavik,
Siguröur E. Guömundsson
(formaöur).
Sambands-
stjórnarfundur
SUJ
Sambandsstjórnarfundur
Sambands ungra jafnaöar-
manna veröur haldinn laugar-
daginn 26. september 1981
klukkan 14 i Iðnaðarmannahús-
inu viö Hallveigarstig i Reykja-
vik. Fundarefni:
l.Skýrslur framkvæmda-
stjórnar, utanrikismála-
nefndar, stjórnmálanefndar
og verkalýðsmálanefndar.
2. Hússtjórn greinir frá ástandi
húsmála.
3. Umræöur um vetrarstarfiö
hjá FUJ-félögunum og SUJ.
4. Fjallaö um aukaflokksþingiö
og þau mál, sem þar veröa
efst á baugi. .
5. Önnur mál.
Ailir þeir sem setu eiga i ráö-
um og nefndum SUJ, eöa fyrir
hönd Sambands ungra jafn-
aöarmanna og fulltrúar FUJ
félaganna eiga seturétt á fund-
inum meö fullum réttindum. Aö
auki eru boönir velkomnir til
fundarins aörir meölimir
FUJ-félaganna.
Framkvæmdastjórn SUJ
Snorri Guömundsson
formaöur.