Alþýðublaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 07.11.1981, Blaðsíða 5
Laugardagur 7. nóvember 1981 5 Landsþing FÍB: Stofnar FÍB ferða- skrifstofu? Laugardaginn 7., og sunnu- daginn 8. nóvember n.k. fer fram á Hótel Borgarnesi 14. Landsþing Félags islenskra bifreibaeigenda. Á þingi þessu verða rædd almenn félagsmál F.Í.B., en stórmál þingsins eru vegamál, öryggismál og stofnun ferðaskrifstofu B'.I.B. Vegamálastjóri Snæbjörn Jónasson kemur á þingið og flytur erindi sem nefnist ný viðhorf i vegamálum. Einnig verða flutt erindi um öryggis- mál. Til umræðu á þinginu kemur einnig stofnun ferða- skrifstofu B’.I.B., en hlutverk hennar verði aðallega, að efla samband við systurfélög i ná- grannalöndunum, en Skandi- navisku félögin starfrækja öll ferbaskrifstofur, og hyggst F'.l.B. með þessu móti skapa sér aðstöbu til þess að veita félagsmönnum greiðari ferða- þjónustu en áður hefur verið. Einkum mun sú þjónusta vera i sambandi við ferðalög i bif- reiðum um Evrópu. I sam- bandi við vegamálin verður ennfremur rætt um skattlagn- ingu á bifreiðir og rekstrar- vörur til þeirra. F’élag islenskra bifreiðaeig- enda væntir þess að þér sjáið yður fært að senda —- fulltrúa yðar á þingiö, og eruð þér vin- samlegast beðnir aö hafa samband við framkvæmda- stjóra F.l.B. fyrir kl. 15, þ. 6. nóvember ef svo er. Virðingarfyllst, Hafsteinn Vilhelmsson. framkvæmdastjóri Ljóð handa hinum og þessum eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson Út er komin ný ljóöabók eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson, sem hann nefnir Ljóð handa hinum og þessum. Áöur hefur Sveinbjörn sent frá sér ljóðabökina I skugga mannsinsog ljóðverkiö Stjörnur i skónum, þar sem hann samdi bæði textana og lögin. Um þessa nýju Ijóöabók segir svo i bókarkynningu: „Sveinbjörn er sérstætt skáld, yrkisefni hans fjölbreytt, ljóðin hnitmiðuð og allt tekið föstum tökum. Þessi ljóð eru ort bæði hérlendis og erlendis, fjalla um þaö sem fyrir augun ber, en eru siður en svo nein naflaskoðun. Yfirbragð þeirra er fjörlegt og um þau hrislast glitrandi kimni. ” Ljóðin i bókinni eru alls 36 og skiptast i 5 kafla sem heita Ljóð handa lífinu, Ljóð handa skamm- deginu, Ljóð handa feröamönn- um, Ljóð handa konum, og Ljóð handa öðrum. Fulltrúi framkvæmdastjóra | Ein af aöaldeildum Sambandsins óskar eftir að ráða fulltrúa framkvæmdastjóra. Starfið felur í sér aðstoð við framkvæmda- stjóra við stjórnun fyrirtækisins og að vera staðgengill hans. Viðskipti við erlend fyrir- tæki og utanferðir. Leitað er að manni með haldgóða viðskipta- menntun eða starfsreynslu á þessu sviði. Hann þarf að vera góður í umgengni og haf a stjórnunarhæfileika. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist starfsmanna- stjóra fyrir 20. þessa mánaðan er veitir nán- ari upplýsingar. | SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD Styrkir til háskólanáms \ Sviss Svissnesk stjórnvöld bjóða fram i löndum sem aðild eiga að Evrópuráðinu fimm styrki til háskólanáms i Sviss há- skólaárið 1982—83. Ekki er vitað fyrirfram hvort einhver þessara styrkja muni koma i hlut Islendinga. Styrkirnir eru eingöngu ætlaðir til framhaldsnáms við háskóla og eru veittir til 9 mánaöa námsdvalar. Styrkjafjárhæðin er 1100 svissneskir frankar á mánuði og auk þess fá styrkþegar einhvern bókastyrk. Þar sem kennsla i svissneskum há- skólum fer fram annaðhvort á frönsku eða þýsku er nauð- synlegt aö umsækjendur hafi nægilega þekkingu a ööru hvoru þessara tungumála. Þurfa þeir aö vera undir þaö búnir, að á það veröi reynt með prófi. Umsækjendur skuli eigi vera eldri en 35 ára og skulu hafa lokiö háskólaprófi áður en styrktimabii hefst. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamála- ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 10. janú- ar n.k. á tilskildum eyðublööum sem þar fást. Menntamálaráðuneytið, 3. nóvember 1981. Blikksmiðir Okkur vantar vana blikksmiði strax. Fæði og húsnæði á staðnum. Upplýsingar hjá starfsmannastjóra mánudaginnú. nóv. frá 8-17. Simi 19887 og 92-1575. íslenskir Aðalverktakar Keflavikurflugvelli. Yfirfiskmatsmaður á Vestfjörðum Staða yfirmatsmanns við Framleiðslueft- irlit sjávarafurða með búsetu á Vestfjörð- um er laus til umsóknar. Matsréttindi og reynsla i sem flestum greinum fiskvinnslu æskileg. Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt- un og fyrri störf sendist sjávarútvegs- ráðuneytinu fyrir 1. desember n.k. Sjávarútvegsráðuneytið, 5. nóvember 1981. Rafmagnsveitur ríkisins óskar eftir tilboðum i eftirfarandi: Tilboðum' skal skila á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik, fyrir opnunartima, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim. bjóðendum er þess óska. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik, frá og með mánudeginum 9. nóvember 1981 og kosta kr. 25.- hvert ein- tak. Reykjavik 5. nóvember 1981 RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Laus staða Staða umdæmisstjóra flugvalla i flug- vallaumdæmi IV (Austfirðir), sem jafn- framt stýrir rekstri Egilsstaðaflugvallar, er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist samgöngu- ráðuneytinu fyrir 30. nóvember 1981. Laus staða Hálf staða endurskoðanda við embætti skatt- stjóra Vesturlandsumdæmi er íaus til um- sóknar frá og með 1. janúar n.k. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist skattstjóra Vesturlandsumdæm- is, Akursbr. 13, Akranesi fyrir 10. des. n.k. Skattstjóri Vesturlandsumdæmis Auglýsing frá Launasjóði rithöfunda Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir árið 1982 úr Launasjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og reglugerð gefinni út af menntamálaráöuneyt- inu 19. október 1979. Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa islenskir rithöfundar og höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr sjóðnum tyrir þýðingar á islensku. Starfslaun eru veitt I samræmviðbyrjunarlaun menntaskólakennara skemm.st til tveggja og lengst til niu mánaða i senn. Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun I þrjá mánuði eða lengur, skuldbindur sig til að gegna ekki fast- launuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Slik kvöð fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum, enda skulu þau einvörðungu veitt vegna verka sem birst hafa næsta almanaksár á undan. Skrá um birt ritverk höfundar og verk, sem hann vinnur nú að, skal fylgja umsókninni. Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum, sem fást I menntamálaraðuneytinu. Mikilvægt er aö spurning- um á eyðublaðinu sé svarað og verður farið með svörin sem trúnaðarmál. Umsóknir skulu sendar fyrir 30. desember 1981 til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Reykjavik, 6. nóvember 1981 STJÓRN LAUNASJÓÐS RITHÖFUNDA TILKYNNING TIL ÍBÚA BREIÐHOLTS III (FELL, HOLAR OG BERG) Nýlega hefur verið fjölgað læknum við heilsugæslustöðina i Asparfelli 12, þannig að þar starfa nú 4 læknar. Þvi er kleift að veita fleiri ibúum i hverfinu þjónustu heilsugæslustöðvar, þ.á.m. heimilislæknis-, heilsu- verndar- og vaktþjónustu, svo og heimahjúkrun. íbúum sem þess óska er bent á að hafa samband við stöðina i sima 75100 og láta skrá sig. HEILBRIGÐISRÁÐ REYKJAVÍKURBORGAR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.