Alþýðublaðið - 07.11.1981, Side 7

Alþýðublaðið - 07.11.1981, Side 7
Laugardagur 7. nóvember 1981 Kambaselið og gamli skúrinn sem eftirlitsmaður Vinnueftirlits ríkisins taldi óhæfan. fulltnlanum að ganga hart fram i þessum málum. Það hefði ver- iö gerð töluverö hrið aö bygg- ingarfulltrúanum, þegar reglu- gerðin var sett, en Pétur kvaðst ekki vita dæmi þess að hann hefði beitt stöðvunarákvæðinu. Hafa stéttarfélög iðn- aðarmanna tekið höndum saman um að leysa þetta mál í sameiningu? Nei, þvi miöur. Lítil samstaða er á milli stéttarfélaganna, sumpart vegna pölitisks ágrein- ings og sumpart vegna þess að aðrir iðnaðarmenn kæmu inn i framkvæmdir á mismunandi stigi. Húsasmiðirnir hef ja . erkið og er þá ekki um neitt skjólfyrir þá að ræða, ef enginn er skúrinn. Múrara og málarar, svo dæmi séu nefnd, mæta þegar húsið er fokhelt og jafnvel búið að leiða i það hita, og þá er jafnan búið að ganga frá salernisaðstöðu inn- anhúss. Þannig að þetta hags- munamál smiöanna á ekki sam- leiö meö hinum iðnaöarmönn- unum. Pólitiski ágreiningurinn er runnin frá stofnun Sambands Byggingarmanna, en Trésmiða- og Múrarafélagiö stóðu saman að stofnun þess. Þá hættu múr- arar viö aö taka þátt i samband- inu og nú er svo komiö að mál- arar eru búnir að segja sig úr þvi. Þannig aö þar er ekki um samstöðu að ræöa, hver hendin er uppi á móti annarri. Hvernig hafa svona vandamál verið leyst er- lendis? Þar hefur verið sú leiðvalin aö úthluta heilum hverfum út til byggingar i einu og sameinast verktakar um aðstöðu fyrir sitt starfsfólk. Þetta er náttúrlega æskilegast en á meðan er niður- staðan sú aö húsasmiðir verða að læra að halda i sér þar til þeir koma heim. — EGE Jón H. Guðmundsson, húsasmíðameistari fyrir framan vinnustað sinn# Jórusel 1. Samkeppnin það hörð að menn líta framhjá sjálf- sögðum réttindum segir Jón H. Guðmundsson, húsasmiðameistari Jón H. Guðmundsson, húsa- smíöameistari, var að vinna við einbýlishiís að Jóruseli 1 í Selja- hverfi. Þó beyglaöir gámar og mismunandi hrörleg kofaskrifii stæðu við flest húsin i kring, þá var ekkert afdrcp að finna við vinnustað Jóns og fe'laga hans. — Við drekkum kaffið i bfln- um, sagði Jón, og keyrum heim til okkar, upp i Arbæ, þegar við þurfum á klósettið. Hann sagöi að ástandið væri fyrir neöan allar hellur, og þó mikið værikvartaöþá hefði það ekkert að segja. — Annars er þetta að hluta manni sjálfum aö kenna, sagði hann, það á ekki að byrja verk fyrren allt er i lagi varðandi að- stöðu. En ég er búinn að vera i þessu svo lengi aö kaliiö kemur ekki nema heima. Þeir eru tveir i byggingunni og hafa verið að frá i sumar. Framkvæmdir hafa verið slit- róttar, eins og gerist og mönn- um finnstallt i lagi að vera að- stöðulausir á sumrin, en þegar verk dregst fram á vetur þykir verra að hafa ekki eitthvað af- drep. — Ég get sagt þér það, að á þessu svæði eru aðeins 2 boðleg- ir skúrar, allt annað eru kofaó- myndir eða gámar. — Hvað er hægt að gera til bóta ? — Mér finnst að bærinn ætti að sjá um þetta allt saman, og láta kostnaðinn koma ínn i gatnagerðargjöldin. Við höfum sjálfir verið meö skúr, en þegar verkefni eru ekki fyrir hendi þá er hvergi hægt að geyma skúr- inn. — Hvers vegna hefur ekkert verið gert til aö bæta úr þessum málum? — Ætli það sé ekki framtaks- og samstööuleysi. Nú og svo er samkeppnin það mikil að menn eru ekki að setja fyrir sig aö ekki skuli vera til staðar lág- marksaðstaöa fyrir smiðina. Það má segja sem svo að menn fómi nauösynjum fyrir verk- efni. * 7 atvinnurekenda um að ekki sé svigrúm tii grunnkaupshækkana? Taka allaballarnir undir grátsöng ööru visi okkur áður brá. Guðmundur Árni Stefánsson skrifar um samningamálin: Launþegar verða að fá leiðrétting á launum sínum Sáttasemjari hefur i nógu að snúastþessa dagana og litil von um fri og frið á þeim vettvangi næstu vikur og mánuði. Þegar eru kröfur Alþýðusambands Islands, landssambandanna og sérkröfurhinna einstöku félaga, komnar inná borð sáttasemjara og samningaviðræður aðila þegar hafnar. Þá eru banka- menn, bókagerðarm enn og blaðamenn einnig farnir aö ræða við viðsemjendur si'na á kontór sáttasemjara. Flest félög Alþýðusambands- ins hafa samþykkt verkfalls- heimild, en ekki hefur það verið nefnt að boða skuli til verkfalls á næstunni, enda samningavið- ræðurréttnýhafnar. Hins vegar er ljóst, að ef vinnuveitendur munu nú strax i upphafi hafna algjörlega kröfunni um aftur- virkni samninga, þannig að þeir gildi frá 1. nóvember s.l., þá er ljóst, að launafólk þrýstir á um, að samningar takist fyrr en seinna . Launafólk vill nefnilega ekki láta það endurtaka sig, aö því sé greitt eftir gömlum samningum fleiri fleiri mánuöum eftir að þeir samn- ingar ættu að vera úr gildi falln- ir. Það vill aö þegar samið er til einsárs, þá sésamið til eins árs, enekki að þaö þýði eittog hálft ár, eöa tvö ár. Þess vegna verður mikill þrýstingur á samninganefnd Alþýðusam- bandsins um það, að hún knýi á um að samningar takist hið fyrsta. Ef ekki með góðu, þá með iUu, jafnvel verkfalli. Bókagerðarmenn boða vinnustöðvun Það eru bókagerðarmenn, sem hafa riðið á vaðið í þessari yf irstandandi samningagerð. Þeirhafa þegar boðað til vinnu- stöðvunar frá og með 14. nóvember næstkomandi, hafi samningar ekki tekist. t Félagi Bókagerðarmanna eru um 800 félagsmenn og á fjölmennum félagsfundi i vikunni var sam- þykkt með miklum meirihluta atkvæöa að ganga hart fram i þvf, aö ná samningum. Þótti bókagerðarmönnum sýnt, að viðsemjendur þeirra væru ekkert á þeim buxunum að semja á næstu vikum, heldur ætti að draga samninga á lang- inn. Þessu vildu þeir mótmæla, vildu set ja skurk i samningavið- ræðurnar. Bankamenn boða vinnustöðvun Félag bankamanna hefur einnig boðaö til vinnustöðvunar. Þeirra dagsetning er 12. növem- bernæstkomandi. Hins vegar er það á valdi sáttasemjara að fresta því verkfalli um hálfan mánuð, með þvi að leggja fram tillögu tilsátta. Það hefur hann gert og frestast þvi boöuö vinnu- stöðvun til 26. nóvember hafi samningar ekki tekist fyrir þann ti'ma. Þá má nefna aö blaðamenn hafa fyrir nokkru lagt fram kröfugerö sina og einnig hefur félagsfundur samþykkt verk- fallsheimild. Viðræöur biaða- manna og viðsemjenda þeirra eru á byrjunarstigi. Stefnir i harðvitug átök Það er náttúrlega erfitt að spá i spilin hvað varðar framvindu samningamálanna. Hins vegar virðist allt stefna i harðvitug átök. Fátt eitt virðist geta komið i veg fyrir verkfall bóka- gerðarmanna og ef af sliku verkfalli yrði, má vafali'tið búast við verkbanni vinnuveit- enda á bókagerðarmenn og blaðamenn. Og sliku yröu svo aftur blaöamenn að svara með verkfalli. Ástæöan fyrir þvi, aö ekkert útlit er fyrir samninga milli bókagerðarmanna og við- semjenda þeirra, er einfaldlega sú, að engar linur eru komnar i samningamálin. Engin almenn pólitík hefur verið mörkuð hjá vinnuveitendum og rikisstjórn- inni. Af þeim sökum eru vinnu- veitendur auðvitað hræddir og hikandi og þora ekki aö semja viö bókagerðarmenn, vitandi að slikur samningur myndi verða visandi fyrirönnur stéttarfélög. Flotið að feigðarósi Og ekki er að sjá, að vinnu- veitendur né rikisstjórnin sé á neinn hátt tilbúin i einhverjar ákvarðanir. Það er bara beðið og látið fljóta að feigöarósi. Aðalsamninganefnd eöa öllu heldur viðræðunefnd ASl manna er rétt byrjuð aö ræða við VS t — menn um meginkröf- urnar og vart verður samið við nokkur stéttarfélög fyrr en ein- hverjar niðurstöður liggja frammi um meginkröfur Alþýöusambandsins, sem hljóta að vera að talsverðu leyti vis- andi um þá pólitik sem á aö hafa uppi i samningagerðinni við hin óliku og fjölmörgu stéttarfélög. Á elleftu stundu Það stefnir þvi allt i' verkföll. Timinn hefur hlaupið frá vinnu- veitendum og rikisstjórninni. Rikisstjórnin getur ekki leyft sér aö vera stikkfri i' þessum málum, það vita allir. Samt er hún stikkfri. Þaö verður þvi fróðlegt að fylgjast meö við- brögðum rikisstjórnarinnar á næstu vikum, þegar hjól at- vinnulifsins fara að stöðvast hvert af öðru. Hvernig ætlar t.d. Alþýðubandalagið að snúa sig Ut úr vandanum. Ætla Alþýöu- bandalagsráðherrarnir aö taka undir grátsöng vinnuveitenda og segja launþegum aö ekki sé svigrúm til neinna grunnkaups- hækkana, 2% væri hamarks- hækkunin sem til greina kæmi? Launþegar i landinu vilja vita hvarþeirhafa rikisstjómina, þá einkanlega Aiþýöubandalagið sem gefur sig út fyrir að vera flokkur launafólks. Næstu vikur og niánuðir veröa þvi viöburðarikir i islenskum stjórnmálum. Eins ogkunnugter,þástefniri óefni i islensku atvinnulifi vegna rekstarerfiðleika I sjávarútvegi og iðnaði. Þegar ofan á bætast siðan verkföll og hatrammar vinnudeilur, þá er ástæða fyrir rikisstjórnina aö fara aö athuga sinn gang. Heimilin eru gjaldþrota Hvað sem öllum rekstar- öröugleikum ýmissa fyrirtækja liður, þá er einnig ljóst að heim- ilinilandinu berjast i bökkum. Þau eru gjaldþrota. Launþegar eiga ekki fyrir brauði morgun- dagsins. Þeir verða að fá leiö- réttingu launa sinna. Þeir verða aö fá grunnkaupshækkanir, ef þeir eiga að geta dregið fram lifiö. Þetta eru staðreyndir sem blasa við og verður aö svara. Fólkið i landinu biður eftir viöbrögðum rikisstjórnarinnar. Það biöur eftir þvi að yfirvöld taki í taumana. Islenskt launa- fólk gerir þá kröfu, að þaö geti dregiö fram lifiö af iaununum. Ætar Alþýðubandalagið að streitast á móti og mótmæla slikum eðlilegum og sann- gjörnum kröfum? —GAS

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.