Vísir - 04.01.1969, Qupperneq 3
Viðburðir ársins 1968
Hrægammar slíta hér lík eins af fómarlömbum borgarastyrj-
aldarinnar i Bíafra.
Tveir bandarískir leiðtogar féllu fyrir morðingjahendi, séra Martin Luther King, foringi
blökkumanna og Róbert Kennedy, öldungad eildarþingmaður og forsetaframbjóðandi.
V1 S IR . Laugardagur 4. janúar 1969. /
Richard Nixon var kjörinn 37. forseti Bandaríkjanna meö naumum meirihluta yfir andstæðing sinn, Hubert Humphrey.
/^ll ár eru viðburðarik — að-
eins mismunandi viðburða-
rik. Á erlendum og innlendum
vettvangi hefur fjölmargt borið
við á árinu 1968. Styrjaldir, stúd
entaóeirðir, stjórnarbyltingar og
þar fram eftir götunum, og
mannlífið hefur gengið sinn
vanagang án þess að það sé í
frásögur færandi.
Sá atburður, sem ógnvænleg-
astur gerðist á árinu, er tví-
mælalaust innrás Sovétríkjanna
og annarra Varsjárbandalags-
ríkja inn í Tékkóslóvakíu, þar
Jacqueline Kennedy og Ar-
istoteles Onassis gengu í heil-
agt hjónaband á árinu — og
kom það mörgum vægast sagt
á óvart.
sem hafður var að engu réttur Martin Luther King og Robert
þjóðar til sjálfstjórnar. Kennedy, öldungadeildarþing-
Um tíma leit út fyrir að Frakk maður, sem keppti að því að
land riðaöi á barmi stjórnleys- verða útnefndur forsetaefni
is, þegar allt iogaði þar í verk- demókrata.
föllum og stúdentaóeirðum, en í Bíafra geisar blóðugt stríð,
de Gaulle tókst' að ná föstum
tökum á stjórntaumunum.
Stúdentar og verkamenn
gerðu uppþot víöa um heim og
miklar óeiröir urðu, t. d. í Banda
ríkjunum, þar sem menn mót-
mæltu einkum aðskilnaði hvítra
og þeldökkra og styrjöldinni í
Víetnam.
í Víetnam hélt hildarleikur
styrjaldarinnar áfram með miklu
mannfalli á báða bóga. Styrjald-
araðilar sitja nú að samninga-
gerð, þótt hægt virðist miða í
samkomulagsátt.
1 Bandaríkjunum völdu kjós-
endur nýjan forseta, repúblíkan-
ann Richard Nixon, og tveir
stjómmálaleiötogar féllu þar
í valinn fyrir morðingjahendi;
blökkumannaforinginn séra
sem kannski er enn sorglegra
fyrir þá sök, að fæst fómar-
lömb þess láta lífið á orustu-
vellinum, heldur deyja vegna
næringarskorts — einkum konur
og börn.
Atburðir ársins 1968 eru að
sjálfsögðu efni i þykka bók, svo
að þeir verða ekki raktir hér
frekar. Myndimar á sfðunni
segja líka sína sögu af enn einu
ári í söigu mannkynsins.
Sovétríkin og önnur aðildarríki Varsjárbandal agsins gerðu innrás í Tékkóslóvakíu, til að
kúga þjóðina til hlýðni við Moskvuvaldið. So vétleiðtogar skýrðu frá því heima fyrir, að inn-
rásin hefði verið gerð að ósk Tékka sjálfra — en hinn blóðugi tékkneski fáni hér á mynd-
inni segir aðra sögu.