Vísir - 28.01.1969, Síða 16

Vísir - 28.01.1969, Síða 16
/ VISIR Þriðjudagur 28. janúar 1969. ínpiitl 171 ■ Sm 2112) Reitjnk i: ?Sœ A i C' : œuzerinn Sími 13835 Avaxtasafl, sem má blanda 4 sinnum með vatni. A Straums- víkurfiörum Það er gott að beita kindum á fjörur þessa dagana. Ljósmynd ari biaðsins tók þessa mynd suð ur við Straum í fyrradag. Þær virðast vera hálf hikandi, roll- umar, að hafa sig eftir beitinni, fyrir umstanginu þarna hinum megin víkurinnar, þar sem verið er að setja niður gríðarstór stein ker í hafnargarð. Þær horfa á mannvirkin stækka þama dag frá degi í fjörunni. STEMMA MA STIGU VIÐAUKN- UM AFBROTUM UNGLINGA" — segir barnavemdarnefnd Kópavogs — Misferli bama og ungl- inga hefur aukizt allverulega, segir í nýútkominni skýrslu barnaverndarnefndar Kópavogs. Hnupi, þjófnaðir, svik, falsan- ir, lauslætk og ölvun. Nefndin hafði afskipti af 76 bömum vegna 98 brota, líkum þeim, sem að ofan eru talin. Á árinu 1967 hafði nefndin af- HafísráBstefnan sett / gær Hafísráðstefnan var sett í gær í húsi Slysavarnafélagsins við Grandagarð. Viðstaddir setning- una voru m. a. forseti Islands, dr. Kristián Eldjárn, og mennta- málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gísla- son. Formaður fratnkvæmdanefndar, prófessor Trausti Einarsson, setti ráðstefnuna, en síðan sagði fram- kvæmdastjóri hennar Markús Á. Einarsson veðurfræðingur nokkur orð. Dr. Unnsteinn Stefánsson flutti fyrsta erindið á ráðstefnunni um 'afstrauma og sjógerðir í Norður- íshafinu, Norður-Grænlandshafi og fslandshafi. Síðan flutti prófessor Trausti Einarsson erindi um hafísinn á N- íshafi og Grænlandshafi og ískomu til Islands. Því næst flutti Adda Bára Sig- fúsdóttir veðurfræðingur erindi um hitabreytingar á íslandi frá 1846- 1968 og notaði athuganir frá Stykk ishólmj til viðmiðunar, en þar er um að ræða lengstar samfelldar veðurathuganir á íslandi. Síðastur tók til máls Helgi Björns son um hafís og veðurfar við Sval- barða síðustu áratugi. Á morgun veröur ráðstefnunni haldið áfram, og þá flytja erindi: Hlynur Sigtryggsson veðurfræðing ur, Unnsteinn Stefánsson haffræð- ingur, Svend Aage Malmberg haf fræðingur, Páll Bergþórsson veður- fræðingur og Þorbjöm Karlsson. skipti af 61 barni fyrir 83 slík brot og hefur því hvoru tveggja fjölgað á árinu 1968, afbrotabörn- um og afbrotum. „Ástæðurnar fyrir þessari fjölg- un eru sjálfsagt margslungnar og ekki einhlítar," segir í skýrslu nefndarinnar, „en án efa mætti mjög stemma stigu við þessari þróun, ef nefndin hefði yfir fleira fóiki að ráða til starfa — svo og frekari möguleikum til vistunar barna.“ I skýrslunni segir, að nefndin hafi þurft að hafa afskipti af 16 heim- iium í Kópavogi (þar af 8 vegna drykkjuskapar) vegna aðbúnaöar 39 barna. Af þeim 76 börnum, sem komu til afskipta barnaverndarnefndar vegna afbrota, voru 69 piltar, en stúlkur voru ekki nema 7. Dreng- irnir voru á aldrinum frá 7 til 16 ára, en stúlkurnar 15 eða 16 ára. Þeir drengjanna, sem viðriðnir voru hnupl og þjófnaði, voru 29, 17 voru viðriðnir innbrot, 10 við svik og falsanir, 12 skemmdir og spjöll, 5 hrekki og líkamsmeiðingar, 2 ölvun, og 16 við aðra óknytti. 3 stúlkur komu tii afskipta nefnd arinnar vegna flakks o útivgistar, 3 vegna lauslætis og 2 vegna ölv- unar. STEFNAN ER FULL ATVINNA Jónas H. Haralz skýrði m. a. frá því á Varðarfundi um helgina, að full atvinna væri, ásamt hagvexti, meginstefnumið í efnahagsmálum, eins og Vísir skýrði frá í gær í frá- sögn af ræðu hans. Jónas H. Hár- alz hélt þvi ekki fram á fundinum, að 3% atvinnuleysi væri æskilegt eða væri skilyrði mikils hagvaxtar. Hins vegar sagði hann, að 3% at- vinnuleysi væri staðreynd í mörg- um nágrannalöndum okkar. Þær kenningar hafa komið fram erlendis, að 3% atvlnnuleysi sé skilyrði mikils hagvaxtar. Blaðið sá þvi ástæðu til að bæta inn f frá- sögnina af fundinum innskoti um, að það teldi þessa kenningu ranga. í því felst engin gagnrýni á Jónas H. Haralz, þvi í fréttinni kemur einmitt fram, aö hann telur fulla atvinnu vera annað aðalmarkmiðið i efnahagsmálum Iandsins. SITJA ÞUNGT HALDNIR YFIR SKÁKUM SÍNUM FRIÐRIK gerði jafntefli við Lom- bardy í 11. umferö skákmótsins i Beverwijk, en hann er nú í 5.—6. sæti á mótinu ásamt Benkö. Önnur úrslit urðu þau, að Geller vann Ciric, Sheltinga vann Ree, Botvinn- ik gerði jafntefli við Kavalek, Ker- es og Benkö gerðu einnig jafntefli, svo og Donner og Doda, Portisch og Langeweg. En Ostojic vann hins vegar Medina. Friðrik teflir í tólftu umferöinni við Ciric. Veikindi hafa tafið nokkuð skákir á mótinu og hafa margir skákmann- anna setiö þungt haldnir af pest | yfir skákum sínum. Munu fiestir skákmannanna hafa tekiö pestina, þar á meðal Friðrik Ólafsson. Ekki hefur þó þurft að fresta nema ör- fáum skákum vegna þessa. 1 Hafísráðstefnan sett. Fremstir á myndinni eru forseti Islands dr. Kristján Eldjárn og mennta- málaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason. SELUR Á AKUR EYRARPOLLI Akureyringar veittu því at- hlunkaði á selinn. Þar með voru hygii í gærdag, að selur var dagar þessarar skepnu taldir. að lóna á Akureyrarpolli um En veiðimaðurinn var ekki daginn og hélt hann sig eink- lengi hróðugur yfir sínum feng, um við slippinn og togarabryggj því að í ljós kom, að selurinn una, en menn höfðu gaman af hafði aflað sér ekki fárra vina því, hve spakur hann var, og þennan eina dag, sem hann hve nálægt landi hann hélt sig. svamlaði á Pollinum, og brugð- En það, sem í sumra augum ust þeir nú æfir við. er fagurt dýr og augnagaman, Höfðu þeir engin umsvif á. er í annarra augum soðning og heldur kærðu skotrrianninn björg i bú, enda fór svo, að strax til lögreglunnar, enda er veiðimannseðlið vaknaði í einum bannað að hleypa af byssu á áhorfendanna. Brá hann sér tii þessu svæði. Á hann nú vfir þess að sækja byssu sína og höfði sér sektir og jafnvel byssu ieyfismissi.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.