Vísir


Vísir - 10.02.1969, Qupperneq 13

Vísir - 10.02.1969, Qupperneq 13
V ISIR . Mánudagur 10. lebruar 19b0. 13 Philip Morris vekur athygli á mest seldu amerísku filtersigarettunni í Evrópu. Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er raunverulegur tóbakskeimur. Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro þennan góða keim. Er þetta ekki það sem þér:leitið áð:í.filtersigarettunni? „FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI. TRICITY HEIMILÍSTÆKl HÚSBVGGIEnDUR <H) ÍSLENZKUR IÐNAÐUR ALLT TRÉVERK Á EINUM STAÐ Eldhúsinnréttingar, raf- tæki, ísskápar, stálvask-* ari svefnherbergisskáp- ar. harSviðarklæðning- ar, inni- og útihurðir. NÝ VERZLUN NÝ VIÐHORF ÓÐINSTORG Skólavörðustíg 16, — sími 14275 Tækni — »->- 6. síðu. ig fara svo, að allar verðandi mæður hafa verið bólusettar i æsku. Ennþá óttast bóluefnissérfræð ingarnir kapphlaupið viö tím- ann. Næst má gera ráð fyrir að rauðir hundar brjótist út um 1970, og þangað til verður að bólusetja um 40 milljón böm í Bandaríkjunum til að koma í veg fyrir að veikin nái að breið ast út eins og venjulegt er: og þrátt fyrir það hefur ekki enn verið gert ráð fyrir þeim tíu milljón dollurum, sem nauð synlegir eru, á bandarísku fjár- lögunum. Þess vegna hefur Edward Kennedy öldungadeildarþing- maður boðað lagafrumvarp, þar sem gert er ráð fyrir fjárhags- aðstoð frá ríkinu í neyöartilfell- um, þar sem þörf er á bólusetn ingu. Lög af svipuðu tagi voru mikilsverður þáttur í sigri iækna vísindanna yfir barnalömun og mislingum. Get nú afbir bætt við mig nemendum. — Þórir Hersveins son. — Símar 19893 og 33847. Xjka&iGöúi Rætt um umferðarmál Fyrir skönimu ræddi þáttur- inn nokkuð um umferðarmál og umferðaröryggi m. a. lýsingu á miklum umferðaræðuni. Þættin- um hefur nú borizt vréf um þessi mál frá Sigurði Ágústs- syni vegna sanitakanna Varúð- ar á vegum. Þar sem bréf hans fjallar að mörgu leyti um þessi mál og vekur athygli á vanda- málinu, þá birtum við hluta af bréfinu, en bví miður eru ekki tök á að birta það í heild. „ ... en lengst af og í vax- andi mæli hefur ástandið verið verst á kaflanum við Silfurtún og suður undir Engidal,- Það er þó ekki svo að á þetta ástand hafi ekki verið minnzt. Um bað hafa verið gerðar lög- regluskýrslur, bornar unp munn legar og sendar skriflegar að- finnslur og bænir um bætur á ástandi þessu frá almennings- félögum og einstaklingum. Sveitarstjóri Garðahrepps, lög reglan í Hafnarfirði, slysavarna- deildirnar í Hafnarfiröi, Slysa- vamafélag íslands og samtökin Varúð á vegum. Og efiaust marg ir fleiri. En lítið hefur dugað. Starfsmenn ríkisins og bæja fara sínar leiðir og hafa oft úr litlu að Spila .En það er nú svo, að flest allar veigameiri hættur er hægt að fjarlægia og draga úr hættunni með tiltölulega Iitl- um aðgerðum og án mikils til- kostnaðar. Sjáðu raflýsingarlínurnar við Suðurlandsveg og Hafnarfjarðar veg! Af hveriu eru ekki staurar staðsettir í innanverðum beygj- unum? Svar: Þá er ekki hægt að staga þá, þegar raflínan sveigir, en einmitt þá tekur lín an mest í staurana. En segjum að svo sé, en af hveriu er þá ekki hægt að staðsetja 2—3 staura I inanverðri beyjunni, þar sem þeirra er mest þörf, tengda með línum þvert á veg- inn, eða að stífa bá staura af sem eru í innanverðri beygj- unni. Það hafa rafveitumenn orð ið að gera erlendis, þar sem krafan er óumflýjanleg. Víða skortir lýsingu þar sem hennar er mikil þörf, t. d. ná- lægt gatnamótum, vegna þess, að aðstæður eru erfiðar eða þá að það stendur á afköstum ann- arra vinnuflokka, teikningum, skipulagi o. s. frv. Og þannig getur ástandið verið í langan tíma. En að yfirvinna erfiðleik- ana eða setja bráðabirgða lýs- ingu „þangað til“ það virðist ekki taka því. Sjáðu ástandið við Suðurlands brautina á móts við Lækjar- hvamm, Múlahverfi, Hálogaland (íþróttahúsið) ,Nesti og við Hafnarfj.veginn á móts við Foss vogskirkjugarðinn, Fossvogs- læk, sunnan Kópavogsbrúar, í Garðahrepp og við Engidal. Hvað heldur þú að mundi kosta að staðsetia staura við brýrnar, ég tala nú ekki um, ef það hefði verið haft í huga strax viö lagningu línanna. Brýmar voru komnar þá. End- urskinsmerking dugar ekki þótt vel hefði verið hægt að hafa brúarhandriöin og sérstaklega stólpana sýnilegri, með því að mála alit gulri lakkmálningu jafnframt góðu viðhaldi á endur skinsmerkjunum. En hvað kostar að láta þessa banvænu brúarstólpa hverfa og leiða þessar sprænur í gegnum rör? Víkka veginn í eðlilega breidd. Þar á ég sérstaklega við Fossvogsiækinn og Hraunholts- lækinn eða Vífilsstaðalækinn. Hér má einnig nefna Lambhaga- brúna I Mosfellssveit, sem mætti segja mér, að væri nú einn hættulegasti staður á vegi hér í nágrenni höfuðstaðarins. Ég vil ekki Vegagerð ríkisins neitt illt. Þar eru margir góðir menn. En ég efast hreinlega um, að umferðareyjarnar, sem skilja í sundur akbrautir við Vífils- staðaveginn og Hraunsholtinu, séu lögleg fyrirtæki.. .... fyrirkomulag við lýs- ingu gangbrauta, sem þú nefnir í rabbi þínu er ekki nægilega gott. Lýsingin nær ekki nægj- Iega út fyrir gangbrautirnar, svo maður sjái aövífandi veg- farendur og þá, sem bíða færis að komast út á gangbrautina. Erlendis svo sem í Kaupmanna höfn og Osló og að sjálfsögðu viðar, er fengin góð reynsla og athugun á þess konar lýsingu og því óhætt að fara í öllu eftir þeirra forskrift." Eins og fram kemur í bréfi Sigurðar er margt sem laga má til að auka öryggi vegfarenda, en skiljaniega kosta allar lag- færingar nokkuð fé, en það eru nánast einu rökin fyrir því, að ekki skuli allar lagfæringar gerðar þar sem sérfróðum mönn um þykir vera til bóta. En hafa skal i huga að slys og óhöpp kosta mikið fé, stundum eru þau líka óbætanleg. Þrándur I Götu. ÚÉÉÉÉÉÉtÉtÉtÉÉÚtáf) Vantar yður íbúð til kaups ? Kaupendaþjónustan leitar að þeirri fbúð, sem yður hentar. Kaupendaþjónustan. gerir samanburð á verði og gæðum þeirra íbúða, sem á markaðnum eru. Kaupendaþjónustan gætir hagsmuna yðar. KAUPENDAÞJÓNUSTAN Fasteignakaup Ingólfsstræti 3, sími 10 2 20. éZ25ZZS22S225S225!

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.