Vísir - 27.02.1969, Side 13

Vísir - 27.02.1969, Side 13
V í SIR . Fimmtudagur 27. febrúar 1969. K JA LLARASIÐA N 13 Rekstur frystihúsanna • Okkur vantar 160 milljónir króna til að láta enda ná saman árið 1969, miðað við ó- breytt markaös-^rð, vinnslu- magn og kaupgjald, segja frysti húsaeigendur. Ýmsir hafa spurt: Var gengisfellingin of lítil eftir allt saman? Eða eru frystihúsa- eigendur að færa á rekstrarliði bókhaldsins útgjöld, sem ekki eiga heima þar? Við þessum spumingum er ekki unnt að gefa eins atkvæðis svör. l>áðar spurningarnar eru al- gengar. Seinni spurningin hefur beinlínis orðið aö full- yrðingu í máiflutningi ýmissa vinstri sinnaðra forystumanna í atvinnumálum, einkum í umræðum um verðlagsmál og kaupgjaldsmál. Árum saman hafa útgerðarmenn, frystihúsa- eigendur og stjómendur síldar- verksmiðja verið sakaðir um að færa viðhaldskostnað og ný- byggingar á rekstrarreikning sinn í því skyni að fela hagnað sinn og auka möguleika sína á öflun rekstrarstyrkja. Þá hafa ýmsir fullyrt að útreikningar þeir, sem liggja til grandvallar gengisfellingunni á sl. ári hafi verið ófullnægjándi. Báðar þessar fullyrðingar eru í meg- inatriðum rangar. Békhaldið AS vísu er það rétt að frysti- húsaeigendur færðu á hagnað- arárum sínum ýmislegan við- haldskostnað á rekstrarliði bók- haldsins. En eftir að frystihúsin byrjuðu að tapa hefur þessu ekki yej:}§..ti;l að.dreifa. Viðhald frystihúsÚ^em rekin ha'fa verið meö ta'pi'hefúr éfekert verið, — allavega - sáralítið. Það er meira að segja margt, sem bendir til að frystihúsaeigendur hafi bók- haldslega fært eignaaukningu þegar henni var ekki til að dreifa, aðeins til að sýna tapið minna en það raunverulega var. Þetta hefur sína þýðingu þegar leitaö er til lánastofnana. Á meðan frystihúsin gátu fært viðhaldskostnað að einhverju leyti sem rekstrarkostnað helg- aðist það af hinni almennu þró- un efnahagsmála og var talið fullkomlega réttlætanlegt innan takmarka, sem að vísu eru alltaf matsatriði. Afskriftir frystihúsa, sem oft eru af gömlurn stofni, nægja ekki á verðbólgutímum til að standa undir endurnýjun fyrirtækjanna. Þau verða að leita annarra úrræða, ef þau eiga ekki að leggjast niður meö tímanum. Báðar þessar ráðstaf- anir eru neyðarráðstafanir, sem mwhdrF EFTIR ASMUND EINARSSON ásamt öðru eru vottur um það hve rekstrargrundvöllur þess- ara þýðingarmiklu fyrirtækja hefur löngum verið slæmur. Enda þótt tap frystihúsanna eigi aðaluppruna sinn í verðfalli á erlendum mörkuðum hafa ýmis önnur atriði mikil áhrif á afkomu þeirra. Afstaða hús- anna gagnvart miðum við land- ið, útgerðarmöguleikar, vinnuafl og fjöldi frystihúsa á staðnum hefur sitt að segja. Hitt nær ekki nokkurri átt að það hafi alltaf verið „lélegur“ eða „góð- ur“ rekstur, sem gerði gæfu- muninn, eins og reynt hefur ver- ið að teíja þjóðinui trú um. Þessi áróöur er ekki sízt kom- inn frá þeim öflum, sem á sín- um tíma' gúmúðu af að hafa ráðið því að frystihúsin voru staðsett í atvinnuskyni en ekki endilega með afkomumöguleika þeirra fyrir augum. Gengislækkunin Og þá er komið að spurn- ingunni um það hvort gengis- lækkunin hafi veriö rangt reikn- uð út frá sjónarmiði frystihús- anna. Eigendum þeirra er ætlað að leysa þann vanda aö verulegu leyti sjálfir. Ríkisstjórnin er beinlínis aö knýja frystihúsa- eigendur til gagngerðra breyt- inga á rekstri sínum og mark- mið breytinganna er betri nýt- ing frystihúsa, aukin afköst þeirra og um leiö hlutfallslega lækkaður rekstrarkostnaður. Ein leiðin sem til greina kemur að þessum markmiðum, er samruni frystihúsa á þeim stöðum sem þaö er talið hag- kvæmt og framkvæmanlegt. Afkomumöguleikar Nettótap frystihúsanna hefur undanfarin ár numið um 400 milljónum króna. Tapiö skipt- ist eftir árum þannig: Árið 1966 80 millj. Árið 1967 180 millj. kr. Árið 1968: Um 120 milljónir króna. Þaö bætir ekki afkomumöguleika frystihúsanna að þau verða að axla að vera legu leyti þær kjarabætur, sem sjómenn fengu í nýafstöðnum samningum. Þau hafa nú semt sem áður mögul. til að láta enda nú saman, þótt það verði að telj ast mjög vafasamt, aðslíkttakist fljótt á litið. Það er nefnilega ekki nóg að frystihúsaeigend- ur láti undan kröfunni um sam- runa frystihúsa og aðrar meg- inbreytingar á skipulagi frysti- iðnaðarins.Launahækkanir mega ekki verða miklar og verðlag út- flutningsafurða þyrfti að hækka lítilsháttar. Frystihúsaeigendur hafa á- reiðanlega reynt að starfrækja frystitæki sín eins vel og þeim var unnt. En margt þarf að breytast áður en duglegasti frýstihússforstjórinn getur ver- ið sæmilega öruggur um af- komu fyrirtækis síns. Þess vegna er — hvað sem kostum skipulagningarinnar líður — ekki rétt að áfellast frystiiðnað- inn fyrir andstöðu gegn slikum breytingum meðan önnur Þýð- ingarmikil atriði í rekstrargrund velli hans eru ekki tekin til al- varlegrar endurskoðunar. Harðviðar- utihurðir ® jafnan fyrirliggjandi innihurðir @ Eik — gullálmur % Hagkvæmt verð 0 Greiðs/uski/málar ýttn/ Lr 'Utikurðit RÁNARGÖTU 12 — SÍMI 19669 FILACSLIF K.F.U.M. A.D. Aðaldeildarfundur í húsi félags- ins við Amtmannsstíg í kvöld kl. 8.30. Séra Arngrímur Jónsson hef ur erindi: „Hin stríðandi kirkja.“ — Allir karlmenn velkomnir. Heilsuvernd Síðasta námskeið vetrarins i tauga- og vökvaslökun, öndunar- og léttum þjálfunaræfingum, fyrir konur og karla, hefst mánudaginn 3. marz. Uppl. í síma 12240. Vignir Andrésson. ELDHUSINNRETTINGAR SKEIFAN 7 SÖLUUMBOÐ: ÓÐINSTORG HF. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 Loðnu-dagar Það er glæsilegt að sjá drekk- hlaöin skip koma að landi, en slíkt er næsta sjaldgæf sjón. En nú siðustu dagana hefur þó loðnan gengið svo kröftuglega á miðin, að fjöldi skipa hefur fengið þvílíkt fullfermi, að það varðar hér um bil við lög, því einnig það, að hlaöa skipin of mikið, er forboðið, þó skipstjór arnir freistist auðvitað til þess að hlaða skip sín til hins ýtrasta í Miöviðrinu, Þeir vita sem er, að loðnan stendur vfirleitt ekki lengi við, heldur gengur yfir mið in með ógnarhraða. Annars er loönan ein af þeim fisktegund- um, sem mem vita svo lítið um, bví hún hefur ekki verið talin svo mikilvægur nytjafisk- ur fyrr en allt í einu nú síð- ustu árin sem hún hefur verið veidd til bræðslu aðallega, þó nú muni vera að opnast mark- aður til reynslu, meira að segja alla leið til Japans. Áður var loðnan aðeins veidd til beitu fyr ir annan þýðingarmikinn fisk. Þannig breytast viöhorfin sí og æ. Það fór fyrir mér sem svo mörgum öðrum, að ég stóðst ekki mátið og fór niður að höfn til að horfa á löndun úr drekk- hlöðnu skipi, því svo ógnar- langt finnst manni síðan slíkir ánægjuatburðir hafa gerzt sfð- ast hér um slóðir. Löndunin gekk líka svo sann- arlega vel, því enn hefur tækn- inni fUygt fram, og nú er ekki Iengur landað : málum, og held- ur ekki með „kröbbum“ eða „kjöftum“, eða hvað það nú allt var kallað. Nú er þaö síldardæl- an, sem dælir loðnunni auðveld- lega á bílana, án þess að manns bftjrCÞ* óurfl að koma nærri. Ekkert erfiði, aðeins aukin tækni. En til þess að hægt sé að landa loðnunni, þarf að dæla vatni eða sjó í lestina, svo þessi smái fiskur fljóti. En það vakti fljótlega athygli mína, að sjó var dælt úr höfninni og í lest- ina, en ekki úr vatnsleiðslu á hafnarbakkanum. Kannski er mengun ekki það mikil f íslenzk um höfnum, að hætta stafi af fyrir búpening, því mest af loönunni fer í mjöl til skepnu- fóðurs. Þó ætti þessi sóðaskap- ur að vera óbarfur þar sem vatn er nærtækt. Það er þó allt- af staðreynd, að skólp og saur rennur vfða f hafnir, og mengun þvf ætíð einhver. Þessi sóðaskapur vakti mig þó fyrst til umhugsunar, þegar mér var aagt að verið gæti, að lítið maen yrði fryst af þess- um afla til útflutnings til mann- eldis. Þá fylltist ég viðbjóði og fannst að tllfinnanlega hefði skort á, að einhverjir af hinum stóra hópi sérfræðinga og mats- manna létu sjá sig til aö leið- beina sjómönnunum til betri siða í meðferð á afla sínum. Sívaxandi samkeppni á erlend um fiskmörkuðum krefst stöð- ugrar árvekni í meðferð og fram leiðslu hvers konar fiskafurða, og síðast en ekki sízt þrifnaðar. Og þrifnaðarins þarf auðvitað að gæta frá þvf fiskurinn er inn- byrtur og þar til hann fer full- unninn úr Iandi. Einfaldast er að gæta sömu nákvæmni og þrifnaðar við allt hráefni, hvort sem það á að hagnýtast til mann eldis eða dýrafóðurs, því auð- vitað er ekki alltaf hægt að gera sér grein fyrir fyrirfram, hvem ig hráefni verður hagnýtt. Þrándur I Götu. START ENGINE STARTING FLUID Start vökvi Gangsetningarvökvi sem auSveidar gangsetningu, einkum í frostum og köldum veörum. FÆST Á. ÖLLUM HELSTU BENSÍNSTÖÐVUM ANDRI H.F-, HAFNARSTRÆTI 19, SÍMI 23955 Sféttarfélag verkfræðinga Aðalfundarboð Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga verð- ur haldinn í skrifstofu VFÍ, Brautarholti 20, föstudaginn 28. þ. m. kl. 17.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjómiru SEáöití. 4

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.