Vísir - 31.03.1969, Blaðsíða 3

Vísir - 31.03.1969, Blaðsíða 3
Vf'S IR. Mánudagur 31. marz 1969. 75 morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd ÍSRAELSSTJÓRN LÝSIR SIG AND- VÍGA FJÓRVELDAVIÐRÆÐUNUM ■ f ákveðinni og einarðlegri greinargerð, sem birt var í gær, lýsti ríkisstjórn Israels sig algerlega andvíga tilraunum stór veldanna fjögurra, Bretlands, Bandarikjanna, Frakklands og Sovétrikjanna til þess að leysa deilur Israels og Arabaríkjanna. Kveðst ísraelsstjórn í engu hvika frá fyrri afstöðu, að ísrael og Ar- abaríkin leysi deilumálin sín i milli. í fréttum frá vettvangi Samein- uðu þjóðanna í New York hefur að undanfömu margsinnis komið fram að ambassadorar fyrrnefndra stór- velda hjá Sameinuðu þjóðunum, myndu geta hafið sameiginlegar við ræður um þessi mál f þessari viku, jafnvel í bvrjun vikunnar, en undir helgina dró úr þeim vonum vegna þess að allt var f sjálfheldu á fund- um Öryggisráös, sem kom saman til fundar f s.l. viku til þess að fjalla um kærur Jórdaníu á hend- ur Israels um seinustu árásir ísra- elskra flugvéla á skotmörk f Jórd- anfu. ísraelsmenn segja, að skotið hafi Sovétstjórnin býður Kína upp á friðsam- lega lausn mála Kínverska stjórnin hafði ekki, er sfðast fréttist, svaraö tilboði Sovét stjómarinnar, sem um varð kunn- ugt á laugardagskvöld, þess efnis að landamæradeilumar yrðu leyst- ar friðsamlega. Fjost barst frétt um þetta til vestrænna landa frá útvarpinu f Búdapest en svo var staðfest í Moskvu, að kínverska ambassa- ) domum þar hefði verið afhent orð- sending ofangreinds efnis. I orðsendingunni var þó tekið > fram, að Kínverjar heföu átt upp ■ tökin að bardögunum viö Ussuri- fljót, og ennfremur var tekið fram, ‘ að Sovétstjómin héldi til streitu kröfu sinni um yfirráð yfir Daman skij-ey í Ussurifljóti, sem Kfnverj ár gera tilkall til líka. Ussurifljót mun nú vera að ryðja sig og í frétt frá Japan segir, að Rússar hafi yfirgefið eyna. Skömmu áöur en fréttirnar bár- ust um ofannefpt tilboð Sovét- stj. höfðu borizt fréttir um liðs- flutnihga Kínverja til Ussurifljóts og að þeir væru að efla þar varnir sínar, koma þar upp eldflauga- stöðvum o.s.frv. Seinustu fréttir herma, að em- bættismaður í Peking segi staðhæf ingar Rússa um að Kínverjar hafi átt upptökin við Ussurifljót, lygar frá upphafi til enda. ’verið á bæki- og þjálfunarstöövar skæruliða, en Jórdanir að sprengju hafi verið varpað á stöövar, þar sem arabískir flóttamenn nutu hvildar og hafi 27 borgarar beðið bana en um 20 særzt. öryggisráðið varö ioks að fresta fundi enn einu sinni (i fyrradag) fram yfir heigi. Fjögur ríki, sem sæti eiga f ráð- inu, Pakistan, Alsfr, Senegal og Zambfa, lögðu fram tillögu um að fordæma ísrael með aðvömn um það jafnframt, aö gripið yrði til strangra aögeröa, ef árásum yrði ekki hætt, en vestrænir fulltrúar, m. a. Bretar, vömðu viö öllu, sem gæti oröið til þess að spilla fyrir fjórveldaviðræðunum, og væri á- kaflega óheppilegt að þeirra áliti, að slík tillaga yrði samþykkt svo til um leið og viðræðurnar hæfust, en auk þess bæri að orða tillögur svo, að í þeim fælist aövörun til beggja aðila. I gmndvallaratriöum kvaðst fulltrúi Breta vera þvf sam- þykkur að fordæma árásina. Nasser forseti Egyptalands kvað svo að orði í gær, að ekki væri um nema eina leið að ræða fyrir Egypta — leiö erfiðleikanna, þ. e. að búa sig undir aö geta háö styrjöld við Israel, eins og hann og boðaði ný- lega f ræðu. Viðræðum Wilsons og Gowons lokið — Wilson býbst til ab hitta Ojukwu utan Biafra Wilson lauk í gær viðræðum sín um við Gowon. Hann kom í marga bæi, þar sem barizt héfur verið, sVo sem Enugu, fyrrum höfuðstað Bíafra, og Port Harcourt, og kynnti sér hjálparstarfsemi. 1 gær lýsti hann yfir, aö hann væri fús til að hitta Ojukwu, leið toga Bíafra, — á einhverjum staö, sem samkomulag gæti náðst um einhvers staðar í Afríku. Hann kvað sambandsstjóm Nígeríu í grund- Útför Eisenho wers fer fram í dag — Dagur þjóbarsorgar i Bandarikjunum ■ Dagur þjóðarsorgar er í Bandarfkjunum f dag og blakta fánar i hálfa stöng um öll Bandarfkin, en í dag fer út- för Eisenhowers fyrrv. forseta fram f Washington aö viðstöddu mörgu stórmenni. Þúsundir manna af öllum þjóð emum hafa vottað hinum látna hinztu virðingu, þar sem lík hans hvíldi á viðhafnarbörum f kapeilu þjóðardómkirkjunnar, en þaðan var lfkkistan flutt I gærkvöldi á Capitolhæð þar sem hún liggur á viðhafnarbörum undir hjálmþakinu milli þjóð- þingsdeildanna. I líkfylgdinni gekk Nixon forseti með fjöl-. skyldu Eisenhowers og þar næst þjóðafulltrúar þeir, sem komnir voru til Washington. Tugþúsund ir manna höfðu safnazt saman á gangstéttum beggja vegna strætanna, sem farnar voru til Capitol-hæðar. Lfkið verður greftrað á miðvikudag í Abilene í Kansas, fæðingarbæ Eisenhow- ers. Þjóðhöfðingjar ýmsir og aðrir þjóðafulltrúar verða viðstaddir, úr þjóðhöfðingjahópi m. a. de Gaulle Frakklandsforseti Bald- vin Belgfukonungur, Konstantín konungur Grikklands og Irans- keisari. I gær var kominn til Washington Montgomery lávarð ur, sem var næstur Eisenhower að völdum er hann var yfir- hershöfðingi bandamanna í sið- ari heimsstyrjöld, en Montgom- ery kemur fram fyrir hönd El- fsabetar Bretadrottningar. Gort- on forsætisráðherra Ástralíu var kominn til Washington í gær. Margra var von í gærkvöldi og nótt. Fulltrúar brezku stjórnar- innar óg stjórnarandstöðunnar verða við útförina, en Wilson forsætisráðherra er sem kunn- ugt er f Nígeríu, og Heath er í heimsókn f Iran (Persíu). Elsenhower ► ■ vallaratriöum ekki mótfallna slfk um fundi. Þó kvað hann ekki vilja fyrir hendi hjá sambandsstjóm- inni, að taka þátt f slfkum fundi. Loks tók hann fram, að hann tæki ekki að sér hlutverk sáttasemjara og viðræður við Ojukwu fælu ekki í sér viðurkenningu á Bíafra. Og hann lofaði öllum þeim stuðningi Breta við hjálparstarfsemi, sem unnt væri að láta f té. Talið er að Wilson fari til Addis Abbeba á heimleiðinnl, og ræði við Haile Selassie keisara Eþíópíu, sem er formaöur sáttanefndar Ein- ingarsamtaka Afríku, sem til þessa hefur árangurslaust reynt aö fá aðila í borgarastyrjöldinni til þess að fallast á vopnahlé. Rússar alþjóða- meistarar í íshockey Frétt frá Stokkhólmi í gær hermdi, að Rússar hefðu slgraö Kanadamenn f alþjóða fshockey- keppninni, með 4 mörkum gegn tvelmur. Unnu þelr þar með alþjóðakeppn ina í sjöunda sinn í röð. Svíar voru næstir, Tékkar þriðju. • Mótmæli. Trudeau forsætisráð- herra mótmælti ekki áformum Nix- ons um gagneldflaugakerfi, er hann ræddi við hann í Washington. Orð- ið ekki féll niður í fréttinni á 7. sfðu, sem birt var í blaðinu á laug- ardag. • Sómalía. Kosningar hafa farið fram f Afríkulandinu Sómalíu og voru „allmargir embættismenn skotnir til bana af almenningi er menn fóru á kjörstað", að því er hermt var f NTB-frétt frá Mogad- ishu. • Landslagsmálverk eftir holl- enzka málarann Jan van de Capp- elle var selt á listmuna- og lista- verkauppboði í London nú f vikunni fyrir 125.000 sterlingspund, en alls voru seld 132 meistaraverk fyrir um hálfa milljón punda. 0 Stöðugt er fylgzt með sovézka flotanum á Atlantshafi, en f hon- um eru lð skip. Enn eru uppi get- gátur um, að flotadeildin kunni að fara alla léið til Vladiwostock í Síberfu, en nú eru aðrar getgátur að skjóta upp kollinum, svo sem hann kunni að eiga að sigla inn á Miðjarðarhaf — eða til Vestur-Af- ríku, og mun þá mörgum detta í hug stuöningur sovétstjórnar við sambandsstjóm Nígeríu. 0 Sprengingar. Skemmdir urðu af sprengingum f skrifstofubygging- um f Bilbaó aöfaranótt fimmtudags, og má segja, að ekki hafi fyrr verið búið að fella herlögin úr gildi en þetta gerðist. Hið sama gerðist í 6 öðrum bæjum Baskahéraðanna. Krim Belcacem Fyrrverandi varaforseti Alsírs sakaður um. samsæri 0 Algelrsborg: Réttarhöld eru hafin gegn 56 mönnum fyrir samsærl gegn stjóminni. Þeirra kunnastur er Krim Belcacem fyrrverandi varaforseti landsins. Byitingardómstóll í Oran dæmir f málinu. Krim Belcacem er útlagi og býr nú ( Frakklandi. Sex aðrir eru einnig útlagar. Belcacem er Kabyli, ættaður úr Atlasfjöllum. Hann var meðai samningamanna, sem sömdu yið Frakka um sjálfstæði landsins í Evian, en það var 1962 sem landið fékk sjálfstæði. Sakborningum er í ákæruskjal inu lýst sem ævintýramönnum sem með erlend öfl að bakhjarli hafi ætlað að ónýta árangurinn af byltingunni. Þeir eru líka kall aðir „samsafn morðingja“, en Belcacem stofnaðj til lýðræðis- legrar hreyfingar í Frakklandi fyrir tveimur árum, og var mark ið „endurreisn lýðræöis í Alsír (MDRA-hreyfingin). Það eru menn úr þessarj hreyfingu sem sakaðir eru um að hafa staðiíð að samsærinu til þess að ráða als- frska leiðtoga af dögum. ■ .«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.