Vísir - 25.04.1969, Page 3
2
VIS IR . Föstudagur 25. apriT 1989.
SIGRARNIR í VÍDA VANGS-
HLAUPINU ALLIR í KÓPA VOG
® ÞÓRÐUR GUÐ-
MUNDSSON úr Kópa-
vogi var sigurvegarinn í
Víðavangshlaupi ÍR í
gær, en hlaupið er elzta
„tradisjón“ frjálsíþrótt-
anna og sannarlega var
ánægjulegt að sjá 28
unga og friska hlaupara
leggja upp í hlaupið um
hinar venjulegu slóðir í
Vatnsmýrinni, —■ og sjá
þá loks alla koma í mark
ið við Miðbæjarbarna-
skólann.
Þessi sigur Þórðar er hans
stærsti sigur á ferli hans, en
framfarir hans hafa verið mikl
ar. enda hefur hann stundaö æf
ingar af mikilli elju og áhuga.
Athyglisvert var við þetta hlaup
að tvö féiög áttu 10 manna sveit
ir þ.e. ÍR og Breiðablik í Kópa-
vogi. Breiðablik vann sigur í
3, 5 og 10 manna sveitum, en
I’R var í öðru sæti.
Annað skemmtilegt er við
þetta hlaup, þ.e. þátttaka Kópa-
vogsmanna. Það er nú einu
sinni svo að Víðavangshlaup ÍR
er fyrsti umtalsveröi viðburður
frjálsíþróttaársins, og sannar-
lega er mikið upp úr því að
ieggja að fariö sé glæsilega af
stað. Gott upphaf getur boðað
gott sumar frjálsíþróttamanna,
enda er hér um stórt auglýsinga
atriði að ræöa. Ættu frjáls-
íþróttamenn því að kappkosta
að gera þetta að sem mestri
auglýsingu, — og því fleiri þátt
takendur, þeim mun sterkari
auglýsing.
Þórður hljóp leiöina á 11,02,0
mín, Sigfús Jónsson, hinn ungi
hlaupari iR-inga varð annar á
11,07,8 og knattspyrnumaður úr
KR Kjartan Ólafsson kom þægi
lega á óvart með því að verða
þriðji á 11,30,8.
„Jú, á því lék enginn vafi, bolt-
inn var INNI,“ sagði Bjarni
Pálmarsson, línuvörður í leikn-
um milli KR og Fram í gær, en
þá hófst Reykjavíkurmótið í
knattspyrnu á Melavellinum. —
Þetta mark KR, sem Sigur-
þór Jakobsson skoraði „óvart“
færði KR sigur með 2:1.
Sigurþór hafði leikið sig laglega
upp að endamörkum, ætlaði greini
lega að gefa fyrir markið á vel
staðsettan framherja, en mistókst,
boltinn þvældist einhvern veginn
inn á marklínu milli markvarðar og
marksúlu, — og fór inn fyrir lín-
una, KR hafði skorað sigurmarkið.
Það var sannkölluð vorknatt-
spyrna, sem menn fengu að sjá
að þessu sinni. Þó er greinilegt
að yfir heildina eru leikmenn bet-
ur undir átökin búnir, — en mættu
þó undantekningarlítið vera léttari
Sigurþór — skoraðl 2 mörk.
á fæti. E.t.v. skemmdi völlurinn
talsvert fyrir aö þessu hinni, hann'
var laus í sér og skemmdi mjög.
allan samleik.
Fyrri hálfleikurinn var öllu betri.
en sá síðari, en þá var völlurinn •
líka oröinn spilltari en áður.
Sigurþór skoraði einnig fyrsta
mark sumarsins, — og ekki var það .
glæsilegra en það síðara, markvörð .
ur missti frá sér boltann, en Sigur ■
þór ýtti boltanum inn fyrir.
Öllu skást var jöfnunarmark ’
Fram snemma í seinni hálfleik. —
Samt var fegurðinni ekki fyrir að,
fara. Hreinn Elliðason jafnaði,
fylgd; vel eftir og varð á undan,
Guðmundi Péturssyni, markverði
KR sem stóð og beið þess að ná
boltanum
Á morgun og sunnudag fara leik.
ir fram í Reykjavíkurmótinu, Vík .
ingur og Þróttur á morgun en á •
sunnudag Valur og KR.
Sigurmarkið
kom ..óvart..
Boltinn átti að fara út til sóknarmanns, en
lenti innan marklinu — KR vann Fram
Knattspyrnufélög
Bjóðum hagstælt verð og fjölbreytt úrval
SPALL fótboltar
★
HENSON búningar
★
LISPRO legghlífar
★
BONETTI hanzkar
★
KOPA skór
★
UWIN sokkar
★
Einkaumboð fyrir
Benjamin flóðljós
Allt fyrir leikmanninn og félagið
HALLDÖR EINARSSON • HEILDVERZLUN
Lækjargötu 6b • Pósthólf 1015
70 konur fá
gullmerki fyrir
góð störf fyrir
badminton-
íbróttina
• Þaö er ekki oft sem það
gerist að konur eru heiðraðar
fyrir góð störf í þágu íþróttanna.
Þetta kemur þó fyrir, en liklega
hafa aldrei jafnmargar fengið
guilmerki félags sins í einu eins
og þessar. þær eru 10 talsins,
og hafa unnið góð störf fyrir
TBR, Tennis- og badmintonfé-
lag Reykjavíkur, sem hélt ný-
lega upp á 30 ára afmælið og
heiðraði þá konumar fyrir störf
í badmintoníþróttinni. Á mynd-
inni eru 8 þeirra, þær Rannveigu
Magnúsdöttur og Bergljótu
Borg vantar en frá vinstri á
myndinni eru Kristín Kristins-
dóttir, Lovísa Sigurðardóttir,
Jónína Nieljóhníusardóttir,
Guðmunda Stefánsdóttir, Hulda
Guömundsdóttir, Halldóra Thor-
oddsen, Ellen Ti— og Sigríð-
ur Guðmundsdótti
LÖGTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að und-
angengnum úrskurði verða lögtökin látin
fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað
gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar,
fyrir eftirtöldum gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og
miðagjaldi, svo og söluskatti af skemmtun-
um, gjöldum af innlendum tollvörutegundum,
matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktar-
sjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbygging-
um, söluskatti 1. ársfjórðungs 1969, svo og
nýálögðum viðbótum við söluskatt, lesta-
vita- og skoðunargjöldum af skipum fyrir ár-
ið 1969, bifreiðaskatti, skoðunargjaldi af bif-
reiðum, gjaldi vegna breytingar í hægri hand-
ar akstur og tryggingariðgjöldum ökumanna
bifreiða fyrir árið 1969, öryggiseftirlitsgjaldi,
almennum og sérstökum útflutningsgjöldum,
aflatryggingasjóðsgjöldum, svo og trygginga-
iðgjöldum af skipshöfnum ásamt skráningar-
gjöldum.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
23. apríl 1969.