Vísir - 25.04.1969, Blaðsíða 8

Vísir - 25.04.1969, Blaðsíða 8
s 1 VISIR Otgefandi ReyKjaprent ti.f Framkvæmdastjón Sveinn R. Eyjölfsson Ritstjór* Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri. Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsmgar. Aðalstræti 8 Símar 15610 11660 og 15099 Afgreiðsla Aðaístræti 8. Sími 11660 Ritstjörn. Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Askriftargjald kr. 145.00 A mánuði innanlands I lausasölu kr 10.00 eintakið 0rentsmiðja Vísis — Edda h.f. Hannihal framsóknast 4ndrúmsloftið í Framsóknarflokknum hefur verið töluvert öðruvísi en í hinum stjórnmálaflokkunum, að minnsta kosti síðustu árin. Aðrir flokkar hafa hald- ið tiltölulega fast við kjarna stefnumála sinna og tek- ið afstöðu til mála í samræmi við það, sem þeir telja bezt fyrir þjóðina, þótt skoðanir þeirra séu að sjálf- sögðu misjafnar. Framsóknarflokkurinn hefur sparað sér að burðast með slíka einlægni. Stefna flokksins hefur miðað að því eina marki að verða stjórnarflokkur. Til þess að vera sem hreyfanlegastur í því tilliti hefur flokkur- inn varpað fyrir borð eiginlegri þjóðmálastefnu. Sá misskilningur hefur orðið ríkjandi í Framsókn- arflokknum, að bezta leiðin í ráðherrastólana sé að vera með skipulegum hætti á móti öllu og reyna alls staðar að spilla fyrir. Þessi misskilningur hefur kom- ið stjórnarflokkunum vel. Þeir eru búnir að vera lengi við völd og slíkt leiðir eðlilega til þess, að sumir verða leiðir á þeim. Þessi leiði hefur ekki orðið til þess, að straumur fólks lægi frá stjórnarflokkunum til Fram- sóknarflokksins, því að framkoma þess flokks hefur verið mjög fráhrindandi. Fólk styður ekki flokk fyrir að vera á móti öllu, líka því, sem allir sjá, að er til bóta. En gaman er a^ sjá breytingarnar, sem verða á þeim mönnum, er láta heillast af Framsóknarflokkn- um. Segja má, að þeir framsóknist. Þessi breyting fer nú fram hjá tveimur kunnum verkalýðsleiðtogum, sem eiga í miklum erfiðleikum, Hannibal Valdimars- syni og Birni Jónssyni. Erfiðleikar Hannibals og Björns eru fólgnir í því, að pólitísk framtíð þeirra er myrkvuð. Þeir hafa beð- ið algeran ósigur í baráttu sinni við kommúnista Al- þýðubandalagsins, sem hafa meira að segja reytt svo af þeim fylgið heima fyrir, að þeir munu ekki ná aftur kosningu í heimahéruðum sínum af eigin rammleik. Björn nýtur ekki stuðnings nema um helmings Al- þýðubandalagsliðsins í Norðurlandskjördæmi eystra og kommúnistarnir hafa náð Steingrími Pálssyni Vestfjarðaþingmanni frá Hannibal. Þeir félagar eygja því enga aðra pólitíska von en að fljóta á Framsókn inn á þing. Þess vegna eru þeir nú að framsóknast og það með áhrifamiklum hætti. Þeir hafa látið af faglegri stefnu í verkalýðsmálum og hafa í þess stað tekið upp ein- dregna pólitíska afstöðu. í samningunum um kjara- málin, sem nú standa yfir, hafa þeir sífellt lagt ófrið- legar til málanna. Þeir eru hættir að hugsa um óskir launþega um samkomulag og vinnufrið og hugsa að- eins um framsóknarstefnuna, að vera á móti öllu. Að bessu leyti skera þeir sig nú úr hópi annarra verka- 'ýðsleiðtoga, sem þrátt fyrir stjórnarandstöðu sína missa ekki alveg sjónar á hagsmunum launþega, sem fyrst og fremst felast í-skjótum og hóflegum samn- ingum í samræmi við vilja alþjóðar. VÍSIR . Föstudagur 25. apríl I969.| |^u á sunnudaginn á aö efna til þjóðaratkvæöagreiöslu í Frakklandi um breytingu á stjórnarskránni. Breytingar þess ar fela aö vísu í sér djúptæk þjóöfélagsleg og stjórnfræðileg umskipti í Frakklandi og sem slíkar eru þær de Gaulle forseta mikið áhugamál. En svo virð- ist nú, sem honum hafi ekki tekizt aö vekja áhuga alls þorra þjóöarinnar á þessum breyting- um. Pær viröast, eins og þær hafa verið settar fram vera allt of flóknar og háfræðilegar til þess að allur almenningur geti skilið þær eða rætt um þær af nokkru viti. Þess vegna er þaö nú álit margra fylgismanna de Gaulles, að þaö hafi veriö misráðið aö efna til þjóðarat- kvæðagreiðslu um tillögurnar, tæpast geti aðrir um þær fjallað en hálærðir menn og helzt pró- fessorar, og að þeirra áliti fengnu hefði átt aö gera út um málin í þingdeildunum. Alls eru breytingartillögurn- ar, sem farið er fram á viö stjórnarskrána eitthvað í kring- um 60 talsins, en raunverulegar breytingar eru ekki nálægt því De Gaulle hefur mistekizt I eitt skipti að vekja athygli frönsku þjóðarinnar. Losa Frakkar sig við de Gaulle á sunnudaginn? svo margar, heldur stafar þessi mikli fjöldi af því, að stjórnar- skrár eru samansettar eins og víravirki, og ef einum liðerhagg að, þá rekur sú breyting sig í gegnum óteljandí aðra para- graffa Það væri því þýðingarlaust til skilnings á málinu aö ætla að fara að rekja allar breytinga- /tillögurnar. Hitt er einfaldara að reyna að útskýra í hverju höfuöbreytingin er fólgin. Hún er sú, að auka og efla sjálfs- stjórn héraöanna, draga stór- lega úr afskiptum og skrif- finnsku Parísar-stjórnarinnar af stjórn og framkvæmdamálum sýslna og hreppa, Af þessu leiðir svo jafnframt, að efri deild franska þingsins eöa senatið eins og hún er oftast kölluð verður svipt þætti sínum í lög- gjafarákvörðunum. Þessi breyting virðist vera til mikilla bófa, en hún getur, ef hún kemst í gegn, haft víðtæk áhrif á næstu áratugum, svo að segja umskapað hiö franska þjóðfélag. En þó hún eigi við í Frakklandi er ekki þar með sagt, að sams konar breyting væri heppileg í öðrum Iöndum. Og þýðingu hennar verður og aö meta í samræmi og áframhaldi af fyrri stjórnarskrárbreytingum sem de Gaulle hefur beitt sér fyrir. T'n yrði eins konar enda hnútur á þeim og gerir fyrri breytingar hans skiljanlegri og eðlilegri. Það var ekkj til skamms tíma vitað, að de Gaulle hefði slíkar breytingar í huga, en með þeim er nú stefnt að því aö jafna þær andstæður og mót- sagnir, sem mynduðust af öfg- um í fyrri stjórnarskrárbreyting um hans. j^Jeð stjórnarskrám má segja að ríkjum séu settar leik- reglur. Þær eiga að stuöla aö því að ólík öfl geti tekizt á um völdin kurteislega og siölátlega og um leið að tryggja, að hinn hagkvæmasti árangur náist. Þær eiga að stuðla að sterkri stjórn en þó svo aö réttlæti geti ríkt og ríkisvaldiö fái ekki á sig svip ofríkis. Þessa drengilegu leikkeppni um völdin er reynt að tryggja í stjórnarskrám með þrískipt- ingu valdsins, sem einmitt var mjög mikið runnin upp úr frönskum stjómarfarshugmynd- um á fyrrj öldum. Og það er einmitt höfuðviöfangsefni í stjómarskrám að marka stöðu framkvæmdavalds og löggjafar- valds. Þar á milli er nauðsyn- legt að, ná einhverju jafnvægi eða samspili, en þó er þetta margþætt mál og ýmis öfl sem á togast á ýmsum sviðum. Það er t.d. mjög einkennilegt, að í hinu hálýðræðislega Frakk- landi fv-r á árum var ríkis- valdið miklum mun voldugra en tíðkaðist í flestum öðrum lýð- ræðisríkjum. Þetta var-arfur frá konungstímunum og Napoleons tímanum. París var miðstöð og háborg alls Frakklands og eng- um ráöum þótti ráðið nema í stjórnarskrifstofum hennar. — Héraös og borgarstjórnir úti á landsbyggðinni hafa verið afar ósjálfstæðar gagnvart ríkisvald- inu. Til þess aö ná jafnvægi gagn- vart þessu öfluga ríkisvaldi hlutu þá á móti aö vera gerðar ráðstafanir til að klippa af því klærnar. Fyrsta atriðið sem þótti sjálfsagt, úr því héraðs- stjórn landsins var í París, var, að önnur deild þjóöþingsins, öldungadeildin var gerð aö nokk urs konar héraðaþingi. Til henn- ar var ekki kosið meö almenn- um þingkosningum, heldur kusu héraðsstjórnir fulltrúa til hennar og gátu þannig haldið uppi eftir liti og gagnrýni á aðgerðum ríkis stjórnarinnar. X-Tin afleiðingin af sterku miö- stjórnarvaldi ríkisstjórnar- innar varð svo, að dregið var úr afli framkvæmdavaldsins gagn- vart þjóðþinginu. Það yrði allt of langt mál að rekja með hvaöa aðferðum þetta var gert, til dæm is með mjög skertum þingrofs- rétti og hlutfallskosningum, sem • hindruöu myndun öflugra megin 1 flokka en á bak viö það allt! bjó að líkindum sú hugmynd, sem var rótgróin meðal þjóðar-, innar, að framkvæmdavaldið, væri þegar orðið nógu öflugt í • lýðræðisríki og sakaði ekki þó ; það væri lamaö með öðrum; hætti. Úr þessu varð svo samsetning • sem margir hafa talið, og þeirra 1 á meðal de Gaulle, að hafi oft; á tíðum gert framkvæmdavald- < ið óstarfhæft. Ríkisbáknið var / að vísu risavaxið og sýndist; vera voldugt á yfirboröi, en þeg : ar á bjátaði kom í ljós, að það j stóö á leirfótum. Skýrast kom; þetta í ljós út á við í tíðum , stjómarskiptum og magnleysi. rikisvaldsins til að sigrast á stærstu vandamálunum og er ' þar frægast aðgerðaleysi þess' til viðeigandi aðgeröa gegn vax andi hættu frá nazista-Þýzka- landi. En inn á við þóttust menn, líka sjá glöggt hve óheppilegt þetta kerfi var í slakri héraða- ’ stjóm. Þar virtist allt stranda í glundroða, skriffinnsku og magn leysi til að marka nýjar braut- ir. Aldagömul og úrelt fyrir-' bæri fengust ekki afnumin, þar • sem allt strandaði á skrifborð-, um ríkisfulltrúanna í París. — Þannig teygðu miðaldir sig allt • fram á 20. öldina í lifnaðarhátt- um og héraðsstjórn sveitanna. að er nú kunnara en frá þurfi , að segja, að de Gaulle hef- ■ ur tvímælalaust áorkað miklu • til umbóta í stjórnarfari lands- ■ ins. Aðgerðir hans beindust ■ fyrst að því að efla ríkisvald- ið sem mest gagnvart þjóðþing-' inu. Hann gekk ef til vill of langt í þessu, vegna beizkrar reynslu sinnar og rótgróinnar' fyrirlitningar á stjómleysisá- standi því sem áöur var rikj- andi á þjóðþinginu. En á því er enginn vafi að starfsgeta rík- isstjórnarinnar jókst stórkost- lega og með auknu valdi tókst

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.