Vísir - 30.04.1969, Blaðsíða 1
VISIR
59. árg. - Miðvikudagur 30. apríl 1969. - 95. tbl.
Nú er Skúli
skoraður á hólm!
— Þori hann ekki að mæta
mér 20. maí, getur hann étið
eitt eintak af Aftonbladet,
segir Skúli Thoroddsen, sem
tekið hefur einvígisáskorun
íslenzks læknis, starfandi í
Svíbjóð.
„Ólafur H. Ólafsson hringdi í
mig af skrifstofum sænska
Aftonbladet og kallaöi mig
skömm stéttarinnar — sagöi
meðal annars réttast að reka
mig úr læknafélaginu — og
sagðist skyldi taka mig í gegn,
ef ég ÞYRÐI að koma til Svi-
þjóðar,“ segir Skúli,
„Ég sagðist reiðubúinn að
mæta honum 20. maí og að rétt-
ast væri, að einvígið færi fram
á vegum Aftonbladet, en þeir
hjá blaðinu létu í ljós einhvem
kvíða yfir þvi, að meiðsli kynnu
að hljótast af, en ég lofaði þeim,
■ að ég skyldi fara með hann eins
og ungbarn, þegar ég legði
hann í gólfið.
Til vara bauð ég honum, að
10. síða.
Bensín víða til sölu
Ekki virðist mikil hætta á
því að bílar stöðvist í verk-
fallinu vegna bensínsleysis.
Bensín er selt á flestum bens-
ínsölum í nágrenni borgarinn
ar.
Bensínsölur þar: sem sjálfs-
' afgreiðsla fer fram, eða eigend
ur afgreiða, halda sínu striki.
, H'afa bíleigendur því' getað
fengið vökvánn í Kópavogi,
Hafnárfirði og Mosfellssveit eft
úr. sem áður.
KirkjuvörSurinn í Hallgrímskirkju og Rúnar Guðmundsson lög-
regluþjónn í Hallgrímskirkjuturni um miðnætti í nótt.
Ekkert óhapp hefur hent dreng-
ina til þessa, en tilviljun ein ræður
því nánast, hvenær lögreglan verð-
ur að berja að dyrum heimilis ein-
hvers þeirra og flytja sorgar-
tíðindi foreldrunum — nema gripið
verði í taumana áður, sem væri
þá betra heldur fyrr en síðar.
Kirkjusmiðir halda helzt, að í
turninn sí ' ! drengir úr Skólavörðu-
holtinu, en þeir gætu þó komið úr
Norðurmýrinni, eða neðan úr Þing-
holtunum.
Hringið!
Margir lesenda notfærðu sér í
gáer að hringja í ritstjóm Vísis til
að koma á framfæri ýmsu, sem
þeim lá á hjarta. Við minnum á
að blaðamaður er til viðtals dag-
lega frá kl. 13—15 fyrir þá sem
vilja.
Slitnað upp úr sátfafundum:
Harðarí aðgerðir eftir viku
Iðja í verkfalli hjá Vrfilfelli, Kaaber, Sanitas
og Dúk. — Engin ákvörðun um allsherjarverkfall
H Verkalýðsfélögin ráðgera harðari aðgerðir eftir
7. maí. Forustumenn þeirra hafa setið fundi síðustu
daga og fjallað um málið. Engin ákvörðun hefur
þó verið tekin um allsherjarverkfall, enn sem kom-
ið er, og vilja ýmsir halda áfram keðjuverkföllum
um nokkurt skeið. Iðja hefur boðað verkfall frá
7. maí hjá Vífilfelli (Kóka kóla), Sanitas, O. John-
son & Kaaber og Dúk. Frekari aðgerðir verða boð-
aðar næstu daga.
Engir sáttafundir hafa verið síðan í fyrradag, og ekki hafði
verið boðaður fundur í morgun.
Á mánudag má segja, að slitn
að hafi upp’úr viðræðum. Vinnu
veitendur gerðu tilboð, sem mun
hafa gengið skemmra en tillögur
sáttanefndar, sem höfðu verið
ræddar fyrir helgi. Tóku fuil-
trúar ASÍ tilboöi vinnuveitenda
illa, og meiri harka færðist i
deiluna. Var þá talið tilgangs-
laust að halda áfram fundi.
Kunnugir telja, að í „tillög-
um sáttanefndar fyrir helgi hafi
falizt um 8% kjarabót til hinna
lægst launuðu, en minni í hundr
aðstölu fyrir aðra. Tilboð vinnu
veitenda gekk mun skemmra.
Mjólkur- og bensínverkföllum
iýkur í kvöld, svo og verkfalli
í kjötiðnaði og Áburðarverk-
smiðjunni. Byggingamenn halda
áfram verkfalli til 5. maí.
Eina “krafa verkaiýðsfélag-
anna hefur verið full vísitölu
bót vegna verðhækkana síðustu
mánaða. Viðræður haf færzt æ
meira í það horf, að rætt hefur
verið um grunnkaupshækkanir í
stað vísitöiubóta. Kæmu þá vísi
tölugreiðslur ekki til fram
kvæmda fyrr en í haust. Þá
hafa fléttazt inn í málið ýmsar
hugmyndir um stuðning við
hina lægst Iaunuðu í formi fjöl
skyldubóta og fleira.
Deilan er nú sögð mun illvíg-
ari en verið hefur. Eftir 30
sáttafundi eru ekki horfur á
skjótri lausn hennar.
Stofna sér í hættu í
Hljéðfærin Eæsf
uppi í ,Tun«glinu#
Um fjögur hundruð manns
Iögðu leið sína í Austurbæj-
arbíó í gærkvöldi, þar sem
fram fór forleikur fegurðar-
samkeppninnar 1969. Gestim
ir settust f sæti sín strax að
lokinni kvikmvndasýningu á
tólfta tímanum og biðu
spenntir eftir því að fegurð-
ardísirnar kæmu fram.
Á því varð þó nokkur töf,
þar sem hljóöfærin, sem leika
átti á meðan stúikurnar gengju
um salinn reyndust læst uppi í
„Silfurtungli" þegar til átti að
taka. — Ekki kom þetta þó svo
mjög að sök því að á meðan
hljómsveitarmennirnir voru að
finna lyklana og ná hljóðfær-
unum, hélt kynnir kvöldsins
Alli Rúts, gestum i góöu skapi
með brö.ndurum, og hljóðfæra-
leikurum Flowers var síðan
klappað lof í lófa, þegar þeir
voru búnir að finna hljóðfærin
sín.
Stúlkurnar komu fram bæði
á sundbolum og í samkvæmis-
kjólum, gengu hring um áhorf-
endasalinn og fóru síöast milli
sætaraðanna meö blómvendi í
fanginu, — Margir skemmti-
kraftar léku listir sínar á þess-
ari miönætursýnirigu, sem stóð
til klukkan að ganga þrjú. — í
kvöld verður hins vegar loka-
þáttur keppninnar í Klúbbnum
og þar verður úr því skorið hver
hlýtur titilinn „Fegurðardrottn-
ing íslands 1969“.
í svimandi hæð frá jörðu hátt
uppi í vinnupöllunum utan á
Hallgrímskirkjutumi, hafa strákar
stundum leikið sér og klifrað á
kvöldum.
En sá leikur er gamanlaus meö
öllu, því aö svo tæpt tefla þeir á'
vaðið, að fótaskortur á einum
stað, eöa ef þeir misstu handfest-
una á öðrum staðnum eru þeim vís
örkuml eöa jafnvel bani.
Stöku sinnum veröur fólk vart
við þennan stórhættulega leik
strákanna og gerir þá lögreglunni
viðvart eins og í gærkvöldi, en
þaö viröist lítiö stoða, þótt lög-
reglan stuggi við þeim. Jafnharöan
eru strákamir komnir upp í tum-
inn aftur, sem virðist hafa eitthvert
óskiljanlegt aðdráttarafl á þá.
Klifra þeir upp á turnvægnina,
hlaupa upp brattann og ná þannig
að komast upp á vinnupallana, en
þar klifra þeir svo og leika sér viö
dauðann í fimmtíu til sextíu metra
hæð yfir jörðu.
Foreldrar þessara drengja virðast
lítið-vita um atferli þeirra, eða eru
a’Ia vega þá furðu afskiptalitlir um
hvað þeir taka sér fyrir hendur.
Austurbæjarbíói í gærkvöldi.
Frá vinstri: Ágústa Siguröar-
dóttir, Dagmar Gunnarsdótt-
ir, Ragnheiður Pétursdóttir,
Erla Haröardóttir og María
Baldursdóttir.
Hallgrímstunrinum