Vísir - 30.04.1969, Blaðsíða 3

Vísir - 30.04.1969, Blaðsíða 3
V1SIR . Miðvikudagur 30. apríl 1969. 3 LANDSUÐIÐ VALID-ÆFIR í SAL TVÍK FYRIR LEIKINN Arsenal kemur með allt sitt stórkasta og H manna fararstjórn Landsliðið, sem leika á gegn Arsenal á sunnudaginn hefur verið valið. Á föstudag og laugardag mun Ilðið dvelja við æfingar í Saltvík á Kjalarnesi, en um helgina kemur Arsenall'ðið hingað í tveim ferðum, en liðið hefur ævinlega ferðazt í tvennu lagi í öryggis- skyni. Liðið, sem Hafsteinn „einvald- ur“ Guðmundsson teflir fram gegn Arsenal er þannig skipað: Sigurö- ur Dagsson, Jóhannes Atlason, Ársæll Kjartansson, Guðni Kjart- Firmakeppni í hnndknnftleik hnldin á næstunni • Fyrlrhugað er að halda firma- keppni í handknattleik nú á næstunni. Er öllum fyrirtækjum heimllt að gerast þátttakendur f keppninni og eru þeir sem áhuga hafa beðnir að senda Kristjáni Stefánssyni síma 20-200 þátttöku- tllkynningar fyrir 5. maí. ansson, Ellert Schram, fyrirliði, Halldór Björnsson, Ingvar Elísson, Eyleifur Hafsteinsson, Hermann Gunnarsson. Þórólfur Beck, Hreinn Elliðason. Varamenn eru Páll Pálmason, Páll Ragnarsson, Halldór Einars- son, Sigurbergur Sigsteinsson, Ás- geir Elíasson og Sigurþór Jakobs- son, Liðið hefur nú að baki 22 æfinga- leiki við misjafnar aðstæður I vet- ur og er án efa bezt undirbúna landsliðið sem ísland hefur teflt fram. v Arsenal mætir með allt sitt sterkasta Iiö þ. á m. Ian Ure, sem er þekktur hér eftir leiki sína með Dundee um árið, en þá var Ure að hefja sig upp á stjörnuhimininn og var nokkru síðar keyptur af Arsenal frá skozka félaginu. Meðal leikmanna er og aö finna fyrrver- andi félaga Þórólfs Beck frá St. Mirren, Jimmy Robertson. Alls koma 15 leikmenn Arsenal hingað, og fararstjórn, sem telur hvorki meira né minna en 11 menn. Þættí það víst frétt, ef ís- lenzkir fararstjórar væru í sama hlutfalli í utanferöum. Meðal fararstjóranna verður stjórnarfor- maðurinn HiIl-TVood, framkvæmda- stjórinn Bertie Mee, læknir og gjaldkeri o. fl.. — svo og hinn góðkunni markvörður Arsenal um árabil, Jack Kelsey, sem kom hing- að fyrir nær 10 árum í heimsókn til Akraness og lék hér. Varð hann nokkru síðar að hætta vegna al- varlegra meiðsla. KR vann „einvígið44 við Bretana með 3:2 1 stað einvígis læknis og einvígis- manns drottningar fengu íþrótta- unnendur að sjá drengilcga viður- eign brezkra knattspymumanna við „old-boys" lið KR í gærkvöldi á Melavelli og horfðu margir á þennan skemmtilega og vel leikna leik. MELAVOLLUR Reykjavíkurmótið á morgun (fimmtudag). VALUR — ÞRÓTTUR kl. 16 Dómari: Sveinn Kristjánsson Línuverðir: Hinrik Láruson og Ragnar Jó- hannesson. Mótanefnd KRR KR-liöið, með uppistöðuna frá 1959, þegar KR vann Islandsmótiö með „fullu húsi", 20 stigum, var skemmtilegt 1 fyrri hálfleik og skoraði 3 mörk en heldur hallaði undan fæti í þeim síðari, og þá skoruðu Bretar 2 mörk. KR vann því 3:2. Bæöi liðin sýndu skemmtilegan leik, sennilega það bezta sem sézt hefur f vor af góöum samleik. Lauk einvíginu því í alla staði hið bezta. MELAVOLLUR Reykjavíkurmótið í kvöld. (miðvikudag). FRAM — VÍKINGUR kl. 19,30. Dómari: Guðmundur Haraldsson Línuverðir: Skúli Jóhannesjon — Sigurður Sigurkarlsson. Mótanefnd KRR UNGUNGASKEMM TUN / SKAUTAHÖLLINNI SKEIFUNNI 17 í KVÖLD KL 19.30 Icehockey-keppni Dansað á svellinu til kl. 0.30. Flowers leika fyrir dansi. Aðgöngumiðar á kr. 100.— verða seldir við innganginn. SKAUTAFÉLAG REYKJAVÍKUR IISEHDOR HBRDHI: ■ Kurteisin í Iág- marki almennt. Óskapa armæða getur verið samfara því að tala við sumt fólk í síma. Það ætti að gera símakurteisi að skyldugrein í barnaskólum, fyrst foreldrar eru ekki færir um að sjá böm- um sínum fyrir réttu uppeldi á þessu sviði. „Já, halló! Hvar er -etta? ... Já, er ’ann Sigg ... ’eima?“ Eitthvað álíka þessu byrja mörg símtöl. En þetta er svo sem ekki það versta, heldur hitt, þegar margir — oft hjá opinberum fyrirtækjum — virð- ast gera sér hreint og beint far um að vera sem allra ókurteis- astir í símanum. Svo sem skella á, snúa út úr o. s frv. Margir virðast heldur hreint ekki færir um að sýna almenna kurteisi, eins og að kveðja að loknu sfmtali eða þakka fyrir svörin eða fyrirgreiðsluna. Suma rekur meira að segja í vörðurnar, byrjj hinn aðilinn að kynna sig og bjóða góðan dag- inn og láta það koma mjög flatt upp á sig. Er nú ekki til einhver leið tiil þe: að innræta fólki betri umgengnisvenjur við náungann? Símnotandi. Q ■ Engar íþróttafréttir. Ég hringi nú aðallega til þess að tilkynna að ég er mjög á- nægður með Vísi sem dagblað. Þó er einn slæmur ljóður á blaði ykkar og hann er: Íþróttasíður 2—3 daglega Af hverju að vera með þc r síður, þegar árangur fþróttamanna okkar er jafnlé- legur og raun ber vitni? Hafið meiri fréttir af atvinnumálum, þegar annað hvert fyrirtæki er að geispa golunni. Fjölbreyti- legt efni blaösins má haldast að öðru leyti, enda ekki yfir því kvartaö. Anti-sportisti. S1 ■ Ekkert siðleysi Góðir Vfsismenn. Ég bfð alltaf spennt eftir því, að Vísir 6é borinn heim til mfn. En þið megið ekki misbjóða okkur með þessari myndasíðu ykkar (4. síðu), Þar er reyndar mikið af meinlausum myndum og fréttum, en sumar myndimar eru svo ósmekklegar og furðu- legar, að nærfi stappar siðleysi. Sérstaklega fannst mér myndin ósmekkleg. em sýna átti „út- sýni hvutta" Er allt gert til að .þóknast" sem flestum kaup- endum? Jafnvel reisnin látin víkja? Fjölbreytni er sem sé á- gæt, en góðir Vísismenn, látið ekki siðlevsisstrauminn hrffa vkkur með sér Setiið ekki blett á blaðið okkar. Látið mynda- síðu-mottó‘ vera: Skemmtilegar myndir, fræöandi, meinlausar en engar gegn-menning-f-landi. myndir. Með tilhlökkun til næsta blaðs, Guðrún. Hringið í síma 1-16-60 I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.