Vísir - 24.05.1969, Page 5
5
V í S I R . Laugardagur 24. maí 1969.
Þær voru áhugasamar konurnar 70, sem fylgdust með gerbakstrinum.
Er ekki bruggað bóft ekkert pressu■
gerið fáist handa húsmæðrum?
Tp'yrir skömmy var sýnikennsla
I gerbakstri hjá Húsmæðra-
félagi Reykjavíkur. Um 70
konur voru þar mættar til að
sjá Vilborgu Björnsdóttur baka
úr pressúgeri eða ölgeri eins og
það hefur einnig verið nefnt.
Nú er það svo, aö pressu-
gerið svonefnda er ekki á al-
mennum markaöi heldur er það
selt út frá Áfengis- og tóbaks-
verzlun rikisins, sem hefur
einkaleyfi á öllum gerinnflutn-
ingi landsmanna. Eða eins og
Þorsteinn Hannesson, innkaupa-
stjöri áfengisverzlunarinnár seg-
ir: — Við höfum einkasölu á
öllu geri, pressugeri og þurr-
geri og viö flytjum báðar teg-
undimar inn. Pressugerið seljum
við eingöngu bökurum enda er
það mjög vandmeðfariö. Það er
lifrænt og á að geymast i sæmi-
legum kulda.
IJins vegar veit Kvennasiðan
aö pressuger er selt i hverri
búðarholu i Danmörku, hverj-
um sem vill þaö. Við fengum
þær upplýsingar hjá Lei^bein-
ingarstöö húámæðra aö fyrir-
spurn stöðvarinnar til ráðu-
neytis um frjálsa sölu á pressu-
geri hefði verið svarað á þá
lund, að ekki væri hægt að
leyfa sölu pressugers hérlendis
vegna hættu á bruggi.
Þetta finnast okkur léleg svör!
Er ekki bruggað, þótt pressuger
sé ekki á frjálsum markaði?
Hins vegar mega húsmæöur
láta sig háfa það að nota venju-
legt lýftiduft, sem er gjör-
sneytt B-vítamínunum, sem
pressugerið er svo auðugt af,
og sem jafnvel eyðileggur þann
litla skammt af B-vitamíni, sem
fyrir er í hveitinu. Önnur leið
fyrir húsmæður er að nota svo-
Vilbbrg Björnsdóttir, hús-
niæðrakennari með ávaxta-
Iengju, sem hún er að setja
inn í ofninn.
nefnt þurrger eða perluger,
sem selt er í nær hálfskilósdós-
um á kr. 90 og viðbættum sölu-
skatti og eru það einu umbúð-
irnar, sem til eru á þeirr; fram-
leiöslu, þótt mjög ákjósanlegt
væri að fá minni umbúðarein-
ingar.
En við getum glatt húsmæður
meö því, að i athugun er aö
flytja inn smærri umbúöir eftir
því sem Þorsteinn Hanriesson
tjáði okkur og að, ef húsmæðra-
samtökin ,,pressuöu“ á væri
jafnvel von um það, aö pressu-
gersmáfið kæmist eitthvað á-
leiðis.
Cnúum okkur aftur að ger-
^ bakstrinum hjá Húsmæðra-
félaginu. Konurnar fylgdust
með af miklum áhuga. Nú er
ekki ólíklegt að einmitt nú,
þegar samdráttar hefur gætt á
atvinnusviðinu, muni fleiri hús-
mæður stunda húsmæðrastarfið
eingöngu og eyöa þá meiri tima
í bakstur heima fyrir jafnt á
matarbrauði og öðrum tegund-
um meðlætis. Veröur. því krafan
um hráefni, eins og pressuger
og perluger eða þurrger í hand-
hægum einingum áleitnari.
Einnig má geta þess, að erlendu
kvennablöðin hafa undanfarið
lagt rrþkla áherzlu á bakstur úr
pressugeri með hliðsjón af
þeirri baráttu, sem löngu er
hafin og stendur nú sem hæst
fyrir bættum lifnaðarháttum og
bættu mataræói.
íPfliNISlfllllgsii
ÍNokkrar tegundir af brauði með geri. Avaxtalengjurnar þrjár, með eplum og rúsínum til
fyllingac, heilhveitibrauð í sneiðum og hveitibrauð, snúðakaka fremst, frænkukaka og kanel
\ stengnr,.
Neskaffí er ilmandi drykkur.
I önn og hraða nútímans ör.var og lífgar
Neskaffi.
Óvenju ferskt og hressandi bfagö af
Neskaffi.
Ungt fólk velur helst Neskaffi.
Neskaffi er nútímakaffi.
A matseðli
dagsins
MAGGI- blómkálssúpa,
gómsætur réttur
sem öll fjölskyldan fagnar
MAGGI
SWISS
SOUP
MAGGI-súpur frá Sviss
eru beztar
V.______ ____________
VÉRkTÁKAR - VINNUVÉLALEIGA
Löílpressur - SLurðpröfur
Kranar —«
Tökum aö okkur alls konar
framkvœmdir
bœði í tíma-og ákvœðisvinnu
Mikil reynsla í sprengingum
LOFTORKA SF.
SÍMAR: 21450 & tOI'IO
/
NÝJA
BRAGÐ
GÓDA
súkkulaöi- og megrunarkexíð, sem fæst í öllum apótek-
um — Biðjið um LIMMITS súkkulaðikex.
n