Vísir - 24.05.1969, Qupperneq 10
/0 VÍSIR . Laugardagur 24. maí 1969.
I Í KVÖLD | I DAG j IKVÖLdII j DAG | IKVÖLD 6
MESSUR •
Grensásprestakall. Messa í
Breiðagerðisskóla á hvítasunnu-
dag kl. 2. Séra Felix Ólafsson.
Hallgrimskirkja. Hvítasunnu-
dagur. Hátíðarmessa kl. 11
fA Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
Annar hvítasunnudagur. Messa
kl. 11 f.h. Dr. Richard Beck pred-
ikar, dr. Jakob Jónsson þjónar
fyrir altari. Ræðuefni: Hin fyrsta
íslenzka guðsþjónusta vestan hafs
Ásprestakall. Hvítasunnudagur.
Hátíðarmessa kl. 11 í Laugarás-
bíói. Séra Grimur Grímsson.
Kirkja Óháða safnaðarins. Há-
Uöarníessa kl. 11 á hvitasunnu-
4ag. Ath. breyttan messutíma. —
Séra Emil Björnsson.
Laugarneskirkja. Hvítasunnu-
dagur. Messa kl. 14. Annar hvíta-
sunnudagur. Messa kl. 14. Séra
Garðar Svavarsson.
Dómkirkjan. Hvítasunnudagur.
Messa kl. 11 f.h, Séra Óskar J.
Þorláksson. Annar í hvítasunnu.
Messa kl. 11 f.h. Séra Jón Auðuns
Langholtsprestakall. Hátiöar-
guðsþjónusta kl. 2 hvitasunnudag.
Báðir prestarnir. 2. hvítasunnu-
dagur. Bafnasamkoma kl. 10.30.
Séra Árelíus Níelsson.
Neskirkja. Hvítasunnudagur.
Guðsþjónusta kl. 2. Séra Páll
Þorleifsson. Annar hvítasunnudag
ur. Guðsþjóhusta kl. 2. Skírnar-
guðsþjónusta kl. 3.15. Séra Fran-k
M. Halldórsson.
Elliheimilið Grund.
Hvítasunnudagur, guðsþjónusta
kl. 10 fyrir hádegi. Séra Ólafur
Skúlason. — Annar hvítasunnu-
dagur. Guðsþjónusta kl. 10 fyrir
hádegi. Séra Lárus Halidórsson.
t
ANDLÁT
Jóna Hildeberg Jónsdóttir, til
heimilis að Nesvegi 66, andaöist
20. þ.m., 51 árs að aldri. Eftirlif-
andi maöúr hennar er Óskar Jóns-
son. Útför hennar verður gerð frá
Fossvogskirkju n.k. þriðjudag kl.
10.30.
Sæmunda Jónsdóttir Fjeldsted,
ckkja, til heimilis að Brautarholti
í Sandgerði, andaðist 20 þ.m., 64
ára að aldri. Hún verður jarðsung
in frá Fossvogskirkju n.k. þriðju-
dag kl. 13.30.
Sólborg Sæmundsdóttir, ti'l heim
ilis að Kársnesbraut 105, andaöist
20. þ.m., 78 ára aö aldri. Jarðar-
för hennar verður gerð frá Foss-
vogskirkju n.k. þriðjudag kl. 15.
BELLA
Hér er varahjólið, nú er spurn-
ingin hvernig við eigum að koma
loftmu í því yfir i tóma dekkiö?
FUNDIR
Kvenfélag Garðahrepps. Hin ár-
lega kaffisala til ágóða fyrir
Garöakirkju verður á annan í
hvítasunnu kl. 15 að aflokinni
messu í samkomuhúsinu að
Garðaholti.
íftUÉBjiv/l i nahita birv?. z , ' '
SKEMMTISTAÐIR •
Röðull. Opið til kl. 11.30 í
kvöki. Opið annan í hvítasunnu.
Hljómsveit Magnúsar Ingimars-
sonar. Söngvarar Þuriður og Vil-
hjáhnur.
Þórscafé. Dansað í kvöld og
annan i hvíta^nnnu.
Glaumbær. Dansað til kl. 11.30
í kvöld. Hljómsveit Önnu Vil-
hjálms leikur. Annan í hvita-
sunnu verður dansað til kl. eitt.
Roof Tops og Haukar leika. —
Kent og Sara skemmta bæði
kvöldin.
Silfurtunglið. Dansað í kvöld
og annan í hvítasunnu.
Klúbburinn. Dansað á báðum
hæðum annan í hvitasunnu.
Sigtún. — Annan í hvítasunnu
verður dansað til kl. eitt.
Nauðungoruppboð
sem auglýst var i 44. 46. og 49. tölublaöi Lögbirtingablaösins
1968 á fiskverkunarhúsi í Hópslandi við Hafnargötu, Grinda-.
vík, þingl. eign Staöarvíkur h/f, fer fram eftir kröfu Trygg-
ingastofnunar rikisins á eigninni sjálfri, þriðjudagirm 27.
maí 1969, kl. 2.30 e. h.
Sýslumaöurinn í Gullbrmgu- og Kjósarsýslu.
Nuuðunguruppboð
sem auglýst var í 1. 4. og 6. tölublaði Lögbirtingablaðsins
1969 á húseigninni Faxatúni Faxatúni 25, Garðahreppi,
þingi. eign Magnúsar Jónssonar, fer fram eftir kröfu Þor-
finns Egilssonar, hdl., Hákonar H. Kristjónssonar, hdl., og
Vilhjálms Árnasonar, hrl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn
28. mai 1969, kl. 2.00. e.h.'
Sýshimaðurinn I Guilbringu- og Kjósarsýshi.
Hótel Borg. — Sextett Ölafs
Gauks ásamt Svanhildi skemmta
í kvöld og annan í hvítasunnu.
ÚTVARP •
LAUGARDAGUR 24. MAl
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Óskalög sjúklinga. Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
15.00 Fréttir — og tónleikar.
15.20 Um litla stund. Jónas Jón
asson ræðir við Árna Óla rith..
um Elliðavatn og umhverfi þess
15.50 Harmónikuspil.
16.15 Veðurfregnir.
Á nótum æs^cunnar. Dóra Ingva
dóttir og Pétur Steingrímsson
kynna nýjustu dægurlögin.
17.00 Fréttir. Laugardagslögin.
18.00 Söngvar í léttum tón.
18.20 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Daglegt líf. Árni Gunnars-
son fréttamaður stjórnar þaett-
inum.
20.00 Bellman-söngvar.
20.25 Maí. Anna Snorrad. spjall-
ar um vorið og kynnir ljóð og
lög. Lesari með henni: Arnar
Jónsson leikari,
21.05 Mars og valsar eftir Johann
Strauss.
21.25 Leikrit: ,,Óttinn“ eftir Ant-
on Tsjekhoff.. Leikstjóri Ævar
R. Kvaran.
22.00 Fréttir.
Á undan hvítasunnu. — Ása
Beck kynnir léttklassíska tón-
Iist og kafla úr tónverkum.
23.45 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
Sunnudagur 25 maí.
9.00 Morguntónleikar.
10.10 Veðurfregnir .
10.25 Háskólaspjall. Jðn Hnefill
Aðalsteinsson fil. lic. ræðir við
dr. Ármann Snævarr háskóla
rektor.
11.00 Messa í Kópavogskirkju.
Prestur: Séra Gunnar Árnason.
Organleikari: Guðmundur
Matthíasson.
12.15 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í Uáteigskirkju.
Prestur: Séra Arngrímur Jóns
son. Organleikari: Gunnar Sig
urgeirsson.
15.15 Miödegistónleikar.
16.55 Veðurfregnir.
17.00 Barnatími: Sigrún Björns-
dóttir og Jónína H. Jónsdóttir
stjórna.
18.00 Miöaftanstónleikar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Einleikur: Rögnvaldur Sig-
urjónsson leikur.
19.45 Uppruni Nýja testamentis-
ins. Séra Gísli H. Kolbeins á
Melstað flytur erindi.
20.10 í tónleikasal: Karlakór Ak
ureyrar syngur á tónleikum á
Akureyri.
20.45 Fenningin. SamfeMd dag-
skrá í aðalumsjá séra Ingólfs
Guðmundssonar. Viðtöl við
séra Gunnar Árnason og Helga
Þorláksson skólastjóra, svo
og við ónafngreint æskufólk.
Gunnar Kristjánsson stud.
theol. flytur sögulegan þátt á-
samt Rafnhildi Eiríksdóttur. —
Umræður Jóhanns Hannesson-
ar, séra Ingþórs Indriöasonar
og séra Ingólfs Guðmundsson-
ar. Hrafnhildur Lárusdótir flyt
ur inngang, lokaorð og kynn-
ingar.
21.50 Sónata í g-moll fyrir fiðlu
og sembal eftir Vivaldi. Jan
Tanasow og Anton Heiller
leika.
22.00 Staðreynd upprisunnar.
Haraldur Ólafsson les kafla úr
bók Ásmundar Guðmundssonar
biskups „Ævi Jesú.“
22.15 Veöurfregnir.
Kvöldhljómleikar.
23.45 Fréttir í stuttu máli. —
Dagskrárlok.
Mánudagur 26. maí.
8.30 Létt morgunlög.
8.55 Fréttir.
9.00 Morguntónleikar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Þáttur um bækur. Ólafur
Jónsson, Árni Björnsson og
Þorgeir Þorgeirsson ræða um
,,Önnu“, nýja skáldsögu Guð-
bergs Bergssonar.
11.00 Messa í Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Jón Auðuns dóm-
prófastur. Organleikari: Ragn-
ar Björnsson.
12.15 Hádegisútvarp.
14.00 Miðdegistónleikar: ,,La
Traviata“ eftir Giuseppe Verdi.
Guðmundur Jónsson kynnir
óperuna.
15.30 Kaffitíminn.
16.15 Veðurfregnir. Endurtekið
efni frá Selfossvöku 13, f.m.
17.00 Barnatími: Skólatönleikar
Sinfóníuhljómsveitar íslands
24. febr. Þorkell Sigurbjörns-
son stjórnar hljómsveitinni og
kynnir tónverkin.
18.00 Stundarkorn með franska
söngvaranum Gérard Souzay,
sem syngur lög eftir frönsk
tónskáld, Gounod, Chabrier,
Bizet, Franck og Roussel.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19-00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Sagnamenn kveða. Ljóð
eftir Jóhann ^Sigurjónsson og
Guömund Kamban. Baidur
Pálmason sér um þáttinn og
tes ásamt Helgu Bachmann leik
konu.
19.55 Einsöngur í ýtvarpssal:
Jón Sigurbjörnsson syngur ís-
lenzk lög. Ólafur Vignir Al-
bertsson leikúr á píanó.
20.25 Frú Anna í Laufási. Eh'n
Pálmadóttir blaðamaður ræðir
við Önnu Klemensdóttur, fyrri
hluti.
20.55 Konsert fyrir óbó og
strengi eftir Cimarosa.
21.05 Spurt og svarað. Þorsteinn
Helgason leitar eftir spurning-
um fólks og svörum réttra að-
ila við þeim.
22-00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
1 upphafi og niðurlagi danslaga
tímans verða leikin og sungin
verðlaunalögin frá H-deginum
fyrir réttu ári (23.55 fréttir í
stuttu máli).
01.00 Dagskrárlok.
„Gamli þríhyrningurinn —
frá sérstöku sjónarhorni"
Kl. 21.25.
— Þetta er nú bara einn, stutt
ur þáttur, sem hefur verið gerður
upp úr samnefndri smásögu
Tsjekhoff, segir Þorsteinn Ö.
Stephensen, form. leiklistardeild
ar Ríkisútvarpsins um útvarps-
leikritið i kvöld ,,Óttinn.“
— Það eru aðallega þrjár per-
sónur sem koma þarna við sögu,
tveir karlar og ein kona og það
má segja, að þarna sé gamli þrí-
hyrningurinn kominn, þó frá dá-
lítið sérstöku sjónarhorni.
„Hugsanlegt framtíöar-
skipulag á fermingunni“
Kl. 20.45
á hvítasunnudagskvöld er samf.
dagskrá í útvarpinu, sem efnt
er tii á vegum Kristilega stúdenta
félagsins og heitir „Fermingin.“
Ðagskráin er i umsjón séra
Ingólfs Guðmundssonar, kennara
i Kennaraskólanum, sem segir
frá efni dagskrárinnar i megin-
dráttum.
• — Við fórum með hljóónemann
og gengum á fund nokkurra ung
menna, allt fermdra unglinga,
og spurðum fyrst um þeirra álit
á" fermingunni. Það komu fram
mjög mismunandi skoðanir og
allt eru þetta ónafngreind svör.
Þá gengum við á fund séra Gunn-
ars Árnasonar og leituðum álits
hans á fermingaraldrinum, ferm
ingarathöfninni, sérstaklega játn-
ingunni, og í þriöja lagi á ferm
ingarundirbuningnum.
Við töluðum einnig við Helga
Þorláksson, skólastjóra, sem er
áhugamaður um kirkjumál og
spurðum hins sama.
Næsti liður í dagskránni er þátt
ur um sögu fermingarinnar og í
lokin fékk ég tvo menn þá Jó-
hann Hannesson prófessor og
séra Ingj.ór Indriðason, sem
höfðu heyrt þessar umræður, til
þess að ræða þessi atriði og taka
afstöðu til þeirra. Eins kemur
fram hugsanlegt framtíðarskipu-
lag á þessum málum.
Mér fannst ástæða til að taka
þetta efni fyrir, þar sem ferming-
ar eru yfirleitt á hvítasunnunni,
a.m.k. úti á landi og er ástæða
til að hrista upp í þessum málum
eins og öðrum að minum dómi.
SJÓNVARP •
LAUGARDAGUR 24. MAÍ
18.00 Endurtekið efni: ,,Það er
svo margt“. Kvikmyndaþáttur
Magnúsar Jóhannssonar. Að
þessu sinni verða sýndar mynd
irnar „Hnattfiug 1924“, „Skíöa-
gaman" og „Laxaklak“.
18.35 „Vorið er komið“. Skémmti
dagskrá í umsjá Fiosa Ólafsson
ar. Auk hans koma fram Sig-
ríður Þorvaldsdóttir, Margrét
Guðmundsdóttir, Helga Magn-
úsdóttir, Egill Jónsson, Gísli A1
freðssonj Karl Guðmundsson
og Þórhallur Sigurðsson.
19.20 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.25 Tamdir smáfuglar. íbúar
fuglabæjarins Chirpendale una
glaðir við sín daglegu störf, en
þeir eiga einn óvin — krákuna
svörtu, sem kémur öðru hverju
og flytur með sér skelfingu og
eyðileggingu. Myndin er leikin
af fuglum.
21.15 „Leiðarljós“. Erla Stefáns-
dóttir syngur nokkur vinsæl
lög. Undirleikarar eru Gunnar
Þórðarson, Karl Sighvatsson,
Jóhann Jóhannsson og Pétur
Östlund.
21.30 Einhvers staðar við ána
Xingu. Á bökkum Xingu-fljóts,
inni í myrkviðum Brasilíu, búa
ýmsir Indiánaþjóðflokkar við
siðmenningu, sem er á svipuðu
stigi og með steinaldarmönnum
í árdaga. í þessari mynd er sótt
ur heim einn slíkur þjóðflokkur
22.00 Rikarður ljónshjarta og
krossfararnir. Bandarísk kvik-
mynd gerð árið 1954 eftir sögu
Walters Scotts. Leikstjóri er
David Butler. Aðafhlutverk:
RexHarrison, Virginia Mayo,
* George Sanders, Laurence Harv
ey og Robert Douglas.
23.35 Dagskrárlok.
Sunnudagur 25. maí.
17.30 Hátíðarmessa. Séra Björr
Jónsson, Keflavík. Kirkjuktt-
Keflavíkurkirkju syngur. Organ
isti Geir Þórarinsson.
18.25 Stundin okkar. Heimsókn í
Náttúrugripasafniö. Þulur Birg-
ir G. Albertsson. Rannveig og
krummi koma í heimsókn. —
Dagur i reiðskóla. „Draumur
Lindu.‘‘ Barnasöngleikur eftir
Hauk Ágústsson. Nemendur
úr Langholtsskóla flytja. Um-
sjón Svanhildur Kaaber og
Birgir G. Albertsson.
Hlé.
20.00 Fréttir.