Vísir - 29.05.1969, Blaðsíða 3
V1SIR . Fimmtudagur 29. maí 1969.
EVRÓPUBIKARINN AFTUR
1 HÖNDUM INTER MILAN
□
Unnu Ajax, Hollandi i úrslifunum i Madrid i gærkvöldi 4:1
PIERINO PRATI, hinn 23 ára gamli leikmaður
Inter Milan, var sannarlega í essinu sínu í gær-
kvöldi. Að vísu skorar hann mikinn fjölda af mörkum
að öllu jöfnu, en í Evrópubikarúrslitum er fátítt að
menn skori 3 mörk, — en það gerði hann. Sigur Milan
yfir Ajax 4:1 var ekki hvað sízt honum að þakka.
Bemabeau-völlurinn í Madrid var I milljónir manna um alla Evrópu
hálfskipaður, þar voru um 50 þús. j og horfðu á leikinn í sjónvarpi.
manns, en hins vegar sátu tug- i Leikmenn Milan fengu fyrir
Þróttur tekur nýja
völlinn við Sævið-
arsund í notkun
þennan sigur ca. hálfa milljón tsl.
króna hver maður í sigurlaun, en
að leik loknum var þeim afhentur
Evrópubikarinn vegiegi af for-
manni Evrópusambandsins, Gustav
Wiederkehr. Milan hefur áður
unnið bikarinn, það var 1963, en í
fyrra vann liðið Evrópubikar bik-
arliða.
Knattspyrnan, sem Milan sýndi,
var stórkostleg, og þrátt fyrir að
liðið skoraði strax eftir 7 mínútna
leik, dró það ekki að ráði úr sókn-
araðgerðum, heldur reyndi að
skora annaö. Það tókst. Á 40. mín.
skoraöi Prati annaö mark sitt,
fékk fallega sendingu frá „gull-
manninum" í ítalskri knattspymu,
Gianni Rivera.
Nokkm áður áttu bæöi Prati og
Svíinn Kurre Hamrin ágæt tæl<i-
færi, en Hamrin lék nú líklega
kveðjuleik sinn sem atvinnumaður
og hættir því á skemmtilegum
tímamótum.
Þegar Hollendingarnir skoruðu
úr vítaspyrnu á 10. mín. í seinni
hál'fleik kom heldur betur líf í leik-
inn. Vítaspyman var dæmd, þegar
Svíanum Inge Danielsson var
brugðið innan teigs og skoraði
bakvörðurinn Vasovis, sem er
Júgóslavi.
Eftir 7 mínútna taugaspennu
tókst Milan að skora 3:1 og var
Sormani þar að verki með föstu
skoti, en lokamarkið skoraðj Prati
. á 29. mfnútu með skalla.
I Milan leikur við argentínska lið-
iö Estudiantes í HM fyrir félagslið
síðar í sumar.
• Nýr knattspymuvöllur hefur
bætzt íþróttaæskunni í hverf-
inu við Sæviðarsund. Það er Knatt-
spymufélagið Þróttur, sem hefur
tekið í notkun ágætan malarvöll
á svæði sínu, og hefur völlurinn
verið vel þeginn og mikið notaður
undanfama daga, strákamir byrj-
aðir að sparka strax í býtið á
morgnana og eru að alian liðlangan
daginn.
• Þróttur hefur löngum átt við
unglingavandamál að strfða,
félagiö hefur ekki haft úr nægilega
miklum skara að moða, en nú virð-
ist endir bundinn á það vandamál,
svo framarlega sem félaginu tekst
að fá hæfa menn tii að stjóma
æfingunum. Hefur mikill fjöldi
pilta sótt æfingar á nýja vellinum.
• Á sunnudaginn verður völlur-
inn formlega tekinn i notkun
með leikjum sem hefjast kl. 13.30.
Við völlinn hafa Þróttarar komið
sér upp félagsheimili, en þar er
fundarsalur ásamt búningsher-
bergjum og böðum.
Tilkynning
Síldarútvegsnefnd hefir ákveðið að halda
fund með útgerðar- og skipstjórnarmönnum
síldveiðiskipa þeirra, sem ráðgert er að saltað
verði um borð í á komandi síldarvertíð. Enn-
fremur er síldarsaltendum og öllum þeim aðil-
um, sem hlut eiga að máli boðin þátttaka í
fundinum.
Fundurinn verður haldinn í Átthagasal Hótel
sögu mánudaginn 2. júní n.k. kl. 3 e.h.
SÍLDARÚTVEGSNEFND
Kjörbúðarbifreið
til sölu með öllum innréttingum, þ.e. inn-
byggðum stórum kæliskáp, kæliborði, djúp-
frysti, kælipressum, hillum, körfum, kassa-
borði o.fl. — Uppl. gefur kaupfélagsstjórinn
í síma 50200 kl. 9—10 og 17—19 á morgun
og kl. 9—11 laugardag.
I
Kaupfélag Hafnfirðinga.
Kartöfluskrælari óskast
til kaups. — Uppl. í síma 82455.
)
....
Hér eru hinir sterku vamarmenn Milan. Fachetti til vinstri og Burgnich, í leik gegn Benfica. Torr-
es er til hægri á myndinni.
AUGLÝSING
TIL INNFLYTJENDA.
Athygli innflytjenda er vakin á ákvæðum
reglugerðar nr. 38 26. febr. 1969 um af-
hendingu aðflutningsskjala til tollmeðferðar.
Samkvæmt reglugerðinni ber innflytjendum
að afhenda tollstjóra þess umdæmis, sem
vara er geymd í, fullgild aðflutningsskjöl
um vöruna samkvæmt 19. og 20. gr. tollskrár
laga, áður en 3 mánuðir eru liðnir frá inn-
flutningi hennar. Hafi innflytjandi ekki skil-
að aðflutningsskjölum um cöru innan fram-
angreinds frests skal hann greiða kr. 100 í
dagsektir þar til skjölum hefur verið skilað.
Auk dagsekta er tollstjóra heimilt að stöðva
tollafgreiðslu á öðrum vörum til sama inn-
flytjanda. Reglugerð þessi tók gildi 1. apríl
1969, þannig, að ákvæði hennar um dagsekt-
ir og önnur viðurlög taka að virka hinn 1.
júlí 1969.
Fjármálaráðuneytið, 27. maí 1969.
Holl og ódýr skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Ath. fjölskylduafsláttinn.
Skautaleiga.
Opið alla d&ga kl. 10—23.
.si.auia
1101.1. i\
/