Vísir


Vísir - 06.10.1969, Qupperneq 4

Vísir - 06.10.1969, Qupperneq 4
4 V1SIR . Mánudagur 6. október 1969. Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 7. október. Hrúturinn, 21. marz—20. aprfl. Reyndu að verjast þeirri til- finningu, sem að öllum líkind- um ásækir þig nokkuð í dag, að örlögin hafi markaö þér svo þröngan bás, að öll barátta þín og viðleitni sé til einskis. Nautiö, 21. apríl—21. mai. Gættu þess að eyða ekki of mikl um tíma í aukaatriði, reyndu að gera þér grein fyrir aðalatrið- unum og einbeita þér aö þeim fyrst og fremst, þá nærðu skjót- ari árangri. Tvíburamir, 22. maí—21. júni Peningamálin verða eitthvað í erfiðara lagi en ættu þó að leysast sæmilega áður en lýkur. Athugaðu hvort þú hefur ekki þöf fyrir meiri fjölbeytni í störfum og viðfangsefnum. Krabbinn, 22. júní—23. júlí. Mjög svo hlutlaus dagur yfir- leitt, en þó miðar öllu nokkuð í rétta átt. Sinntu þeim störfum sem fyrir liggja og taktu lífinu og hlutunum með ró. Notaðu kvöldið til hvíldar. Ljónið, 24. júlí—23. ágúst. Þú þyrftir eiginlega að staldra við um stund og athuga þinn gang. Ýmislegt bendir til þess að annríki undanfarinna daga hafi orðið til þess að þú fylgist ekki nógu vel með hag þínum. Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Taktu ekki hart á því þótt ein- hve, sem þú umgengst allnáið hlaupi eitthvað út undan sér. Þegar þannig stendur á, geta umvandanir oft einungis gert illt verra, þótt vel séu meintar. Vogin, 24. sept.—23. okt. Það getur farið svo að þú þurf- ir að takast á umfram venju við þau verkefni, sem þér veröa fengin. En það borgar sig líka, ef vel tekzt veröur það þér til mikils álitsauka. Drekinn, 24. okt.—22. nóv. Ferðalag, sem þú hefur annað hvort ákveðið, eða ert eitthvað viöriðinn, virðist fara út um þúfur á siðustu stundu, eða þá eitthvaö annað, sem kostað hef- ur þig nokkum undirbúning. Bogmaöurinn, 23. nóv.—21. des. Gættu þess að skilaboð komist rétt og óbrengluð til viðkom- andi aðila, og yfirleitt skaltu gæta þess að haga orðum þín- um þannig í dag, að þau verði hvorki rangtúlkuð né misskilin. Steingeltin, 22. des.—20. jan. Staldraðu nokkuð við í dag, at- hugaðu hvað hlutimir kosta þig, ekki endiiega i peningum, og hvað þú færð í aðra hönd. Að sjálfsögðu er ánægjan líka nokk urs viröi. Vatnsberinn, 21. jan,—19. febr. Atburðalítill dagur hjá flestum. Áætlanir munu standast sæmi- lega, og þú nærð sómasamleg- um árangri í störfum þínum en til nýrra og meiri framkvæmda er dagurinn varla vel fallinn. Fiskarnir, 20. febr.—20. marz. Taktu hlutunum og lifinu meö ró I dag, og sinntu venjulegum störfum þínum af kostgæfni. Taktu kvöldið snemma og not- aðu það til að athuga hvar þú stendur og gera nýjar áætlanir. Hún er þekkt fyrir góðan Simone Signorct. — Ég hef aldrei notfært mér vinatengsl og persónuleg sam- bönd, mér sjálfri til framdráttar, aldrei átt leynilega elskhuga aldrei breytt hárgreiðslu í tilefni blaöamannafunda, og aldrei hagað lífi mínu í því skyni að hljóta vinsældir eða slúöur fyrir. Þess vegna er ég stolt af Oscars verö- laununum mfnum. Þannig mæltist leikkonunni, Simone Signoret, er hún tók á móti æöstu viðurkenningu, sem kvikmyndaleikari getur hlotið, Oskars verðlaununum, fyrir 9 ár- um síðan. Það vill svo til að einmitt um þessar mundir er verið að sýna með henni kvikmynd í Laugarás- bíói, sem heitir „Dularfullir leik- ir“, og er sögð leyndardómsfull og spennandi. Danska sjónvarpið hefur líka dálæti á henni og sýndi fyrir skömmu myndina, Þríhyminginn, sem frumsýnd var í Danmörku árið 1962. • Hin 47 ára og vinstrisinnaða leikkoná, er á margan hátt mjög athyglisverð kvenpersóna. Hún hefur til að mynda aldrei fengið lélega dóma fyrir kvikmyndaleik. Leikur hún gjarnan forfallnar og óhamingjusamar, en gáfaðar kon- ur, sem setja allt sitt að veöi í sinni síðustu tilraun til að snúa gæfuhljólinu sér í hag. ! einkalífi sínu hefur hún einnig virzt hafa lag á að bera sín fáu persónulegu áföll. Þegar heims- blöðin, fyrir nokkrum árum sfðan birtu þá frétt, aö eiginmaður henn ar, Yves Montand, sem hún haföi verið gift f 19 ár, væri oröinn ást- fanginn í Marilyn Monroe, er þau léku saman í myndinni, „Let’s Make Love,“ sagöi hún: — Auðvitað er ég bæði hrygg og afbrýðisöm, en ég á auðvelt með að fyrirgefa honum. Hún er svo ung og falleg, að ég skil hann vel og rödd Yves hefur löngum orkað sem segull á kvenfólk, þann ig, að ég skil hana einnig ósköp vel. Mikill og gagnkvæmur skilning ur virðist ríkja á milli hjónanna, þegar þau eru saman og þau kvarta oft undan því, að vegna atvinnu sinnar verði þau oft og einatt að vera fjarri hvort öðru um lengri eða skemmri tíma. — Enda þótt ég leiki mjög lítið í kvikmyndum nú orðið, finnst mér ég hafa allt of lítinn tíma til að vera hjá Yves. En þegar viö á annað borð njótum samverunnar er það dásamlegt, við hlæjum mikið, rffumst og sláumst af og til, en að mestu leyti skemmtum við okkur dásam lega. Yves er líka skemmtilegur maður, auk þess sem hann er bæði hugulsamur og blíðlyndur. mj0® ANNAÐ F.KK t AXMINSTER BÝÐUR KJÖR VIÐ ALLRA HÆFI 49 M . f ■ ■BBHBHHbS

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.