Vísir - 06.10.1969, Blaðsíða 8

Vísir - 06.10.1969, Blaðsíða 8
a V í SIR . Mánudagur 6. október 1969. VISIR Úlgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099 Afgreiðsla: Aðalstræti 8. Sími 11660 Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur) Áskriftargjald kr. 165.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiöja Vísis — Edda h.f. Skógum spillt Jslenzku skógarnir eru lágvaxnir og ekki beinvaxnir. Mörgum finnst raunar ofmælt að kalla þá skóga, þar sem þeir séu aðeins lítilf jörlegt kjarr. En þeir eru samt hinar undursamlegustu vinjar í okkar nakta landi. Þeir eru fullir af birkiangan og hinum fegursta undirgróðri. Og þeir yfirgnæfa ekki landslagið eins og hávaxnir erlendir skógar gera. Birkikjarrið gerir landið fjöl- breytilegt en klæðir það ekki í einkennisbúning eins og háu barrskógarnir gera. Það hefur frá alda öðli hæft íslenzkri náttúru. Barrskógar hafa það fram yfir laufskóga að vera sígrænir. En samt þarf töluvert sérstæðan fegurðar- smekk til að halda því fram, að hávaxnir barrskógar séu til meiri prýði en lágvaxnir birkiskógar. Kostur þeirra felst fyrst og fremst í notagildi þeirra til timb- urframleiðslu. íslenzkir skógræktarmenn hafa náð góðum árangri í ræktun nytjaskógar á Hallormsstað. Þeir hafa leitt sterk rök að því, að við getum orðið sjálfum okkur nógir í timbri ef við erum nógu dug- leglr við að planta barrtrjám., i,A^0V.95\0^ JMA\Aktí,nili Bárrskógarækt er meginviðfangsefni skógræktar- manna af þessum sökum. En þeir hafa átt við þann vanda að glíma, að erfitt er að koma barrtrjám til þroska á íslandi. Ungu barrtrén eru viðkvæm fyrir veðra- og hitabreytingum íslenzkrar náttúru. Þau skortir hörku innlenda kjarrsins. Til þess að leysa þetta vandamál hafa skógræktarmenn víða tekið upp á því að nota birkiskógana sem skjól fyrir barrplöntur. Og í þessu hafa þeir sums staðar ekki sézt fyrir. Það er Ijótt að sjá, hve illa þeir hafa farið með suma þá skóga,sem þeir hafa fengið til varðveizlu. Eðlilegt er, að þeir vilji grisja þá til þess að fá trén til að rísa betur. En þeir hafa ekkert umboð til þess að brytja þá misk- unnárlaust niður í skjólgarða fyrir barrtré. Með þessu eru þeir að breyta eðli íslenzku skóganna. Þeir eru að breyta þeim í barrskóga. Nú eru flestir hlynntir því, að ræktaðir verði nytja- skógar hér á landi. En þeir eru miklu færri, sem vilja láta eyðileggja birkiskógana í þessu skyni. Ef skóg- ræktarmenn geta ekki ræktað nytjaskóga annars stað- \ ar en í birkiskógarvinjum landsins, eiga þeir að end- urskoða markmið sín. Þjóðin á birkiskógana og það er ^ mjög óvíst, að hún kæri sig um að þeir séu höggnir niður til að rýma fyrir nytjaskógi. í raun og sannleika eru birkivinjarnar okkar allt of fáar til þess að við get- um leyft þessi spjöll á þeim. Skynsamlegt væri af skógræktarmönnum að end- urskoða markmið sín. Þeirra hlutur yrði ekki góður, ef það þarf að stofna skógverndarfélag til að verja birkiskógana fyrir ágangi skógræktarmanna. Og þeir komast ekki með neinu móti hjá því að verða lýstir ábyrgir fyrir meðferð sinni á birkiskógunum, sem þeim hafa verið fengnir til varðveizlu. Kapp er bezt með forsjá og því ættu leiðtogar skógræktarmanna að staldra við og spýrja sjálfa sig, hvort þeir gangi til , góðs götuna fram eftir veg. } i i í „Búið að kaupa allt hey, sem menn áttu aflögu,“ segir Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri. „Tyví nær hver bóndi verður að minnka eitthvað bústofninn Sumir aöeins um nokkra gripi aðrir meira og einstaka mað- ur verður jafnvel að farga öllu sínu, en að meðaltali verður lík lega milli 10 og 15% fækkun búfjár", álltur Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri, sem manna mest og bezt þekkir hag bænda í dag. Þetta eru erfiðleikar óþurrka sumarsins í ár sem bætast við erfitt árferði undanfarinna ára. Þegar svo kyrkingslega er tek ið fyrir aðalfjáröflunarleið bænda, eins og heyverkunin er, hlýtur útkoman að verða á þá leið, þegar siðustu árin á undan hafa ekki verið það feit, að unnt hafi verið að leggja til hlið ar að neinu ráði. Jafnvel þótt allir bændur væru það stöndugir aö geta lagt út í stórfelld heykaup á 4000 krónur hverja smálest, væru hreinlega ekki til heybirgðir í landinu, sem fullnægja mundu eftirspuminni. Nú þegar munu flestir eða allir búnir að selja það hey, sem þeir voru aflögu- færir með. Þannig er t.d. búið að kaupa allt hey, sem aflögu var í Eyjafirði. Margur hefur til þess gripið í heyspamaðarskyni á undanföm um ámm að auka fóðurbætis- gjöfina og fóðurblöndunotkun Margur bóndasonurinn sér á eftir kindinni sinni í sláturhúsin f haust. íslendinga var komin í 58.000 smálestir í fyrra af þessum or- sökum, en sérfraeðingar eins og Agnar Guðnason ráöunautur hjá Búnaðarfélagi íslands, telja að eðlileg notkun mundi vera um 40.000 smálestir á ári. Þegar könnun var gerð á þessu í fyrra kom I ljós, að fóðurbætisgjöf- in var allt að 700 kg á mjólkur kú, en að meðaltali var þaö milli 500 og 600 kg. Það þýðir að íslenzku kýmar úða í sig minnst 20.000 smálestum á ári. 'Hins vegar reyndist fóðurbæt isgjöf sauðfjár ákaflega mismun andi, enda undir svo mörgu kom ið, vetrarhögum og öðru slíku og var hún á hverja sauðkind frá 7 kg upp 1 allt að 40 kg. Þegar meðalverð kúafóöur- blöndunnar er um 8.300 krónur smálestin en fóðurblanda fyrir hænsni svín og fleira jafnvel enn dýrari eða um 9000 krónur hver smálest, sjá menn að það er dýrt spaug að ætla að auka enn þar við. Slíkt er ekki hverjum manni kleift og vonlegt að mönnum vaxi það svo f augum að þeir kjósi heldur að draga verulega úr þeim fjölda, sem þeir setja á hjá sér í haust. Það megnar lítið til þess aö auka mönnum bjartsýni, að ný- lega hafa Islendingar gert ein- hver þau beztu fóðurkaup, sem þeim nokkurn tíma hafa boðizt. Bygguppskera hefur verið svo mikil í Evrópu og framboðið aukizt svo, aö verð þessarar kornvöru liggur niöri á markaðn um. Hafa íslendingar fest kaup á töluverðu magni af þessu korni, ósekkjuöu og ómöluðu, hjá Frökkum, sem selja það öll um þjóðum ódýrara — nema þá kannski Sýrlendingar en þeirra bygg þykir ekki eins góð vara. Þegar þetta bygg hefur ver- iö malað, sekkjað og dreift út verður þaö selt á 6 krónur kíló ið til bænda. Þykja það hag- kvæm kaup, því að eitt kg af byggi — þegar bætt hefur verið í þ.að eggjahvítuefnum — á aö hafa sama fóðurgildi og tvö kg. af töðu, sem seld er á 4 krónur kílóið. En þrátt fýrir þessi hag- kvæmu kaup, þætti það ekki góö búmennska að ætla að ala féð á eintómum fóðurbæti og menn telja sig neydda samt til þess að fækka. -K

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.